UNICEF-uppreisnin
|
Verkefnið
UNICEF-uppreisnin er samstarfsverkefni UNICEF Ísland og prentsmiðjunnar Odda.Ungmennaráð UNICEF Ísland heldur utanum verkefnið. Megintilgangur UNICEF-uppreisnarinnar er að gera framhaldsskólum kleift að halda eins konar UNICEF-fjáröflunardag eða -daga, til styrktar þurfandi börnum í heiminum, og efla um leið vitund nemenda um þróunarmál og réttindi barna. Við viljum að auðvelt og skemmtilegt verði að skipuleggja slíkan dag. Þessi síða er í raun ykkar „verkfærakassi“ til þess að skipuleggja fjáröflunarviðburði fyrir UNICEF á sem einfaldastan og skemmtilegastan máta. Hér getið þið fundið Verklagsreglur um fjáröflun fyrir UNICEF Ísland, Fjáröflunarbanka með fullt af hetjulegum fjáröflunarhugmyndum, Staðreyndabanka um starfsemi UNICEF sem þið getið notað sem innblástur til að búa til fjáröflunargögn (plaköt, borða, póstkort, glærukynningar, vefsíður, kynningarmyndbönd, o.s.frv.), tengla á áhugavert myndefni sem þið getið sýnt í frímínútum og hádegishléum í skólanum, og síðast en ekki síst: tengil inn á lokað hönnunar-svæði á vef Odda þar sem þið getið nálgast forskrift að prentefni (plaköt, borða, og póstkort) sem þið getið skreytt með ykkar grafík og ykkar skilaboðum um starfsemi UNICEF, réttindi barna og ungmenna og þróunarmál. Prentsmiðjan Oddi mun prenta ykkur skólanum/nemendafélaginu að kostnaðarlausu:
Prentefnið getið þið notað til að auglýsa UNICEF-daginn innan ykkar skóla, ásamt því að vekja samnemendur ykkar til vitundar um ofangreind málefni. Það eina sem þið þurfið að gera er að senda okkur tölvupóst á uppreisnin@unicef.is frá viðurkenndu veffangi skóla eða nemendafélags og tilkynna þátttöku. Við sendum ykkur svo aðgangsorð að vefsvæðinu hjá Odda og þið getið byrjað að skipuleggja ykkar einstaka fjáröflunardag. Að deginum loknum leggið þið söfnunarféð inn á reikning: 0515-26-102010; kennitölu: 481203-2950 eða troðið því í umslag og lítið við á skrifstofu UNICEF og við gefum ykkur knús og smellum af ykkur mynd.
|