Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Áherslur UNICEF

Alþjóðleg verkefni UNICEF byggja á Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun. Út frá þeim setur UNICEF sér fimm forgangsverkefni í starfi sem þó tengjast öll innbyrðis. Á fjögurra ára fresti eru þessi forgangsverkefni endurskoðuð og breytt ef þess gerist þörf. 

  • Lífsafkoma og þroski ungra barna: Að veita yngstu börnunum góða byrjun í lífinu, veita börnum lífsnauðsynlegar bólusetningar og aðra heilsugæslu.
  • Menntun og jafnrétti: Að veita öllum börnum, jafnt stúlkum sem drengjum, góða grunnmenntun og ýta undir jafnrétti kynjanna.
  • HIV/alnæmi: Að fyrirbyggja HIV-smit, veita umönnun til smitaðra og sjá til þess að börnum sem eru munaðarlaus af völdum alnæmis sé veittur stuðningur og umönnun.
  • Barnavernd: Að byggja upp verndandi umhverfi fyrir börn, koma í veg fyrir að þau séu misnotuð, beitt ofbeldi eða vanrækt.
  • Réttur barna og þátttaka: Að auka þátttöku barna í samfélaginu og fræðslu um réttindi þeirra.