Samantekt um áhrif efnahagsþrenginga á börn
Í byrjun mars 2009 hafði UNICEF á Íslandi samband við aðila sem vinna að málefnum barna á Íslandi til að kanna hvort farið væri að gæta áhrifa efnahagsþrenginganna á börn.
Í kölfarið gerði UNICEF samantekt um breyttar aðstæður barna á Ísland. Hana má finna hér. Í samantektinni koma fram hugmyndir um viðbrögð við efnahagsástandinu og eins eru settir fram nokkrir umhugsunarpunktar.
Þeir aðilar sem UNICEF talaði við voru Barnaverndarstofa, Börnin í borginni, Heilbrigðisráðuneytið, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heimili og skóli, Kvennaathvarfið, Landlæknir, Lýðheilsustöð, Menntamálaráðuneytið, Miðstöð heilsuverndar barna, Rauði kross Íslands, Ríkislögreglustjóraembættið, Stígamót, Stuðlar og Umboðsmaður barna. Að auki voru erlendar rannsóknir skoðaðar.
Fulltrúi UNICEF í vinnuhópi um málefni barna
Fulltrúi frá UNICEF á Íslandi hefur aðkomu að vinnuhóp um börn sem heyrir undir svo kallaða velferðarvakt félagsmálaráðuneytisins og hefur samantekt samtakanna verið deilt með vinnuhópnum.
Hlutverk velferðarvaktarinnar er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna. Velferðarvaktin hefur skipað sex vinnuhópa og hugar einn hópanna að málefnum barna upp að 18 ára aldri.