Allir eiga rétt
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og Námsgagnastofnun gáfu út kennsluefni fyrir efri bekki grunnskóla árið 2007. Efninu er ætlað að auka þekkingu ungmenna á mannréttindum og draga úr fordómum. Efnið er eingöngu að finna á vefnum og þar má prenta út öll verkefnin og gögnin sem því fylgja.
Kennsluefnið kemur út á vef Námsgagnastofnunar og hefur að geyma fjölda verkefna og verkfæra sem kennarar geta nýtt sér í mannréttindakennslu: www1.nams.is/unicef.
Kennsluefnið er ætlað eldri deildum grunnskóla og til hjálpar kennurum við að fræða ungmennin um réttindi sín sem og skyldur. Efnið hvetur ungmennin til þess að þróa með sér umburðarlyndi og samstöðu með öðrum íbúum jarðarinnar, friðarvilja, skilning á félagslegu réttlæti og meðvitund um umhverfið og verndun þess.
Lagað að íslenskum aðstæðum
„Allir eiga rétt“ er unnið upp úr kennsluefni sem UNICEF hefur þróað og gefist hefur vel í nágrannalöndum okkar. Efnið er þó sérstaklega aðlagað okkar samfélagi með íslensk skólabörn í huga.
Aldrei hefur verið eins mikilvægt og nú að unga kynslóðin þrói með sér skilning og umburðarlyndi gagnvart menningarlegri fjölbreytni. Fjölmiðlun, fólksflutningar og tækninýjungar í samskiptum gera mörk milli menningarheima óskýrari og er nýja kennsluefninu ætlað að veita ungmennum mikilvæga færni til þess að verða virkir þátttakendur í fjölmenningarsamfélagi nútímans.
Fellur að nýrri aðalnámskrá
Í drögum að nýrri aðalnámskrá er lögð meiri áhersla en áður á markmið um mannréttindi í lífsleiknikennslu. Tilgangur lífsleikni er m.a. að styrkja einstaklinginn til þátttöku í lýðræðislegu samfélagi og átta sig á gildi mannréttinda.
„Allir eiga rétt“ helst því í hendur við auknar áherslur á mannréttindakennslu í nýrri aðalnámskrá. Auk þess er íslenska ríkið aðili að Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hefur þannig skuldbundið sig til þess að standa fyrir verndun á réttindum barna og fræðslu þeirra um þau réttindi.
Nánari upplýsingar gefa:
Aldís Yngvadóttir ritstjóri hjá Námsgagnastofnun, s: 535 0400
Hólmfríður Anna Baldursdóttir upplýsingafulltrúi UNICEF Ísland, s: 552 6304.