English version

Aurora velgerðarsjóður

Velgerðarsjóðurinn Aurora hefur stutt við verkefni UNICEF í hinu fátæka ríki í Vestur-Afríku, Síerra Leóne, í þrjú ár. Sjóðurinn var settur á laggirnar af hjónunum Ingibjörgu Kristjánsdóttur landslagsarkitekt og Ólafi Ólafssyni, stjórnarformanni Samskipa, í janúar 2008. Megintilgangur sjóðsins er að stuðla að og styrkja menningar- og góðgerðastarfsemi á Íslandi og erlendis.

Í febrúar 2009 hafði sjóðurinn ráðstafað 116 m. kr. yfir fjögurra ára tímabil til menntaverkefna UNICEF í Síerra Leóne. Styrktarfénu mun sérstaklega vera varið í verkefni sem miða að því að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga.

Aurora velgerðarsjóður styrkti einnig útvarpsverkefni í Mósambík um 3,5 milljónir króna í febrúar 2009.

Heimasíða Aurora vegerðarsjóðs er www.aurorafund.is.

| Mynd 1 af 3 |
Styrkþegar úr velgerðarsjóðnum Aurora og fulltrúar sjóðsins árið 2010