Stofnstyrktaraðilar og bakhjarlar
Á upphafsárum UNICEF á Íslandi naut landsnefndin liðsinnis fyrirtækja sem styrktu reksturinn með veglegum fjárstyrkjum. Fjögur fyrirtæki voru stofnstyrktaraðilar UNICEF á Íslandi við stofnun landsnefndarinnar þann 15. mars 2004. Þetta voru Actavis, Allianz, Baugur og Samskip. Styrkti hvert þessara fyrirtækja starfsemina frá 2004-2006, um 2 milljónir árlega hvert.
Á árunum 2006-2009 voru fimm fyrirtæki svo kallaðir bakhjarlar UNICEF á Íslandi og greiddu árlega samtals 20 milljónir króna. Þetta voru: Stoðir, Samskip, Glitnir, Fons og Baugur.
Auk þess að vera stofnstyrktaraðilar og bakhjarlar styrktu sum þessara fyrirtækja UNICEF rausnarlega með ýmsum öðrum hætti. Baugur Group, Fons og Stoðir styrktu viðamikil verkefni í hinu sárafátæka ríki í Vestur-Afríku, Gíneu-Bissá sem miðaði að því að draga úr tíðni ungbarnadauða og auka heilsugæslu og menntun í landinu. Lesa má nánar um verkefnin hér. Einnig runnu þátttökugjöld í Latabæjarhlaupi Glitnis 2007 og 2008 runnu óskipt til verkefna UNICEF.