Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Barnasáttmálinn á mannamáli

Grein 1 Allar manneskjur, yngri en 18 ára, eiga þau réttindi sem koma fram í þessum sáttmála.

Grein 2 Þessi réttindi gilda fyrir öll börn, sama hvaða trú, kynþætti eða fjölskyldu þau tilheyra. Eða hvaða getu þau hafa, hvað þau hugsa eða segja.

Grein 3 Það á að taka ákvarðanir með það í huga hvað sé gott fyrir börn. Yfirvöld eiga að setja reglur sem vernda börn.

Grein 4 Yfirvöld eiga að virða þessi réttindi.

Grein 5 Foreldrar bera ábyrgð á því að ala upp börnin sín. Yfirvöld eiga að virða ábyrgð foreldra og aðstoða þá ef þörf krefur.

Grein 6 Allir eiga rétt á því að lifa góðu lífi og yfirvöld eiga að tryggja börnum þau réttindi.

Grein 7 Barn á að bera nafn og þjóðerni frá fæðingu.

Grein 8 Yfirvöld eiga að tryggja að barn beri nafn, þjóðerni og hafi tengsl við fjölskyldu sína.

Grein 9 Barn skal ekki vera tekið frá foreldrum sínum nema þeir valdi barninu skaða eða vanræki það. Ef foreldrar skilja á barnið rétt á því að vera í sambandi við báða foreldra, nema það skaði barnið.

Grein 10 Ef fjölskyldur búa í mismunandi löndum má ekki hindra ferðir þeirra á milli þessarra landa og á barnið rétt á því að sameinast foreldrum sínum.

Grein 11 Yfirvöld eiga að koma í veg fyrir að börn séu flutt ólöglega úr landi.

Grein 12 Barn á rétt á því að láta skoðanir sínar í ljós og að virðing sé borin fyrir þeim.

Grein 13 Barn á rétt á því að fá upplýsingar og deila þeim, svo lengi sem þær skaða ekki barnið eða aðra.

Grein 14 Barn á rétt á því að hafa eigin trúarskoðanir ef þær brjóta ekki réttindi annarra. Foreldrar eiga að leiðbeina börnum sínum í þessum málum.

Grein 15 Barn má taka þátt í félagsstarfi og stofna eigin félög, svo lengi sem það brýtur ekki réttindi annarra.

Grein 16 Barn á rétt á einkalífi og það á að vera tryggt samkvæmt lögum.

Grein 17 Barn á rétt á að fá áreiðanlegar upplýsingar frá fjölmiðlum. Sjónvarp, útvarp, blöð og tímarit eiga að miðla upplýsingum þannig að barnið skilji þær og að þær skaði ekki barnið.

Grein 18 Báðir foreldrar bera ábyrgð á uppeldi barna sinna og eiga alltaf að hafa í huga hvað sé best fyrir hvert barn. Yfirvöld eiga að styðja við foreldra til dæmis með því að veita viðeigandi þjónustu ef báðir foreldrar vinna utan heimilis.

Grein 19 Yfirvöld eiga að veita barni vernd ef það hefur orðið fyrir misnotkun eða vanrækslu af hálfu foreldris eða umsjónaraðila.

Grein 20 Yfirvöld eiga að tryggja velferð barna sem eiga ekki foreldra eða geta ekki verið í umsjá sinnar nánustu fjölskyldu.

Grein 21 Yfirvöld eiga að tryggja að ættleiðing sé einungis framkvæmd ef það er barninu fyrir bestu.

Grein 22 Yfirvöld eiga að sjá til þess að börn, sem koma inn í land sem flóttamenn, njóti sömu lagalegu réttinda og innfædd börn.

Grein 23 Fatlað barn á rétt á hjálp til að lifa góðu og sjálfstæðu lífi.

Grein 24 Barn á rétt á að fá góða heilsugæslu, hreint vatn og næringaríka fæðu svo það geti lifað heilbrigðu lífi. Rík lönd eiga að hjálpa fátækari löndum að ná þessu markmiði.

Grein 25 Yfirvöld eiga að sjá til þess að börn sem búa á stofnunum búi við góðar aðstæður.

Grein 26 Barn á rétt á félagslegri aðstoð og almannatryggingum.

Grein 27 Barn á rétt á góðum lífsskilyrðum sem uppfylla andlegar og sálrænar þarfir þess. Yfirvöld skulu hjálpa fjölskyldum sem geta ekki uppfyllt þessar þarfir barna sinna.

Grein 28 Barn á rétt á ókeypis grunnmenntun og agareglur skólans skulu vera mannúðlegar. Rík lönd eiga að hjálpa þeim fátækari að tryggja börnum þennan rétt.

Grein 29 Menntun á að þroska börn svo þau nýti hæfileika sína til fulls og verði virkir einstaklingar í samfélaginu. Menntun á að hvetja börn til að bera virðingu fyrir foreldrum sínum og mismunandi menningarheimum.

Grein 30 Barn, sem kemur úr minnihlutahópi í þjóðfélaginu, á rétt á að rækta eigin menningu og tala eigið móðurmál.

Grein 31 Börn eiga rétt á frítíma og tíma til að leika sér ásamt því að fá að njóta menningarlegra og listrænna viðburða.

Grein 32 Yfirvöld eiga að vernda börn frá erfiðisvinnu sem gæti heft möguleika þeirra til menntunar og verið skaðleg heilsu þeirra.

Grein 33 Yfirvöld eiga að grípa til aðgerða til að vernda börn frá fíkniefnum.

Grein 34 Yfirvöld eiga að vernda börn gegn kynferðislegri áreitni og misnotkun.

Grein 35 Yfirvöld eiga að koma í veg fyrir að börn séu numin á brott eða seld

Grein 36 Ekki má misnota börn á nokkurn hátt.

Grein 37 Börn, sem brjóta lög, verða að hljóta mannsæmandi meðferð og mega ekki sæta pyntingum. Þau mega ekki sitja í fangelsi með fullorðnum og eiga rétt á að halda samskiptum við fjölskyldu sína.

Grein 38 Börn mega ekki gegna hermennsku og á tímum stríðsátaka eiga börn að hljóta sérstaka vernd.

Grein 39 Yfirvöld eiga að aðstoða börn sem sætt hafa misnotkun eða vanrækslu og hjálpa þeim að byggja upp sjálfsvirðingu sína.

Grein 40 Ungir lögbrjótar eiga rétt á lögfræðiaðstoð. Fangelsun má einungis nota þegar um mjög alvarlega glæpi er að ræða.

Grein 41 Ef þau landslög sem eru fyrir hendi eru betri en þessar greinar á að styðjast við þau.

Greinar 42-54 Yfirvöld eiga að sjá til þess að börn og fullorðnir þekki Barnasáttmálann, að hann sé virtur og að eftir honum sé farið.