Vissir þú að...

45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.

Þú ert hér:  

Barnasáttmálinn og Ísland

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, eða Barnasáttmálinn, var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember 1989. Hann var undirritaður fyrir hönd Íslands þann 26. janúar 1990. Þann 13. maí 1992 heimilaði Alþingi ríkisstjórn að fullgilda hann með ályktun og öðlaðist hann gildi hér á landi þann 27. nóvember 1992.

Barnasáttmálinn hefur verið staðfestur af 192 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og er hann sá mannréttindasamningur, sem hefur verið staðfestur af flestum þjóðum.

Samningurinn hefur ekki verið lögfestur á Íslandi. Fullgilding hans felur þó í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði hans.

Hér má sjá allar greinar Barnasáttmálans á íslensku og endurritaðar af ungmennum, en þær voru settar saman í tilefni af 18 ára afmæli Barnasáttmálans.