Rit um Barnasáttmálann
Rit um Barnasáttmálann
UNICEF hefur gefið út rit um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, eða Barnasáttmálann eins og samningurinn nefnist í daglegu tali. Ritsjóri er Þórhildur Líndal. Ritið kostar 3.950 kr. og fæst á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42, 2. hæð, 101 Reykjavík.
Ritið nefnist Barnasáttmálinn – Rit um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins með vísun í íslenskt lagaumhverfi. Í því er hver grein sáttmálans tekin fyrir í sérstökum kafla; fjallað er almennt um efni greinarinnar en einnig hugað að einstökum efnisatriðum hennar. Að lokum er farið yfir íslensk lög og lagaframkvæmd sem greininni tengjast. Er ritið ætlað bæði leikum og lærðum og ætti m.a. að gagnast við skipulega fræðslu um efni og markmið Barnasáttmálans.
Efni ritsins byggist að stórum hluta til á efni viðamikillar bókar, sem á ensku ber heitið Implementation Handbook for the Convention on the Rights of the Child og er gefin út af UNICEF. Þórhildur Líndal hefur svo unnið kafla um íslenska lagaumhverfið og byggir þar á þekkingu sinni og starfsreynslu liðinna ára sem umboðsmaður barna.
Um Barnasáttmálann
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins var lagður fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989. Sáttmálinn hefur verið fullgiltur af fleiri ríkjum en nokkur annar mannréttindasáttmáli sögunnar og mótað nýjan, siðferðilegan grundvöll um hvernig líta beri á og koma skuli fram við börn.
Barnasáttmálinn öðlaðist formlega gildi á Íslandi þann 27. nóvember 1992, en auk þess hefur Ísland fullgilt valfrjálsar bókanir við sáttmálann, annars vegar um sölu á börnum, barnavændi og barnaklám og hins vegar um þátttöku barna í vopnuðum átökum. Frá því að Barnasáttmálinn var fullgiltur af Íslands hálfu hefur ýmislegt verið gert til að aðlaga íslenskan rétt og stjórnsýslu betur að ákvæðum hans. Ástæða er til að nefna í þessu sambandi að með 14. gr. stjórnarskipunarlaga nr. 97/1995 var í fyrsta sinn sett inn í íslensku stjórnarskrána nr. 33/1944 ákvæði sem varðar börn sérstaklega. Í 3. mgr. 76. gr. hennar segir nú orðrétt: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.“
Öll ríki heims utan tvö hafa fullgilt Barnasáttmálann. Einungis Sómalía og Bandaríkin hafa ekki fullgilt sáttmálann þótt bæði ríkin hafi skrifað undir hann.
Um ritstjórann
Þórhildur Líndal lauk embættisprófi í lögum frá Háskóla Íslands 1977 og öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður 1989. Hún var skipuð umboðsmaður barna þegar það embætti var stofnað og gegndi því starfi í tíu ár, frá ársbyrjun 1995 til ársloka 2004. Það féll í hennar hlut, sem fyrsta umboðsmanns barna hér á landi, að byggja þetta nýja embætti upp frá grunni og skapa því traust og virðingu. Í krafti embættisins og með Barnasáttmálann að leiðarljósi beitti hún sér fyrir ýmsum umbótum á stöðu og högum íslenskra barna. Hún hefur haldið fyrirlestra og skrifað greinar um málefni barna á breiðum grundvelli.
Áður var Þórhildur fulltrúi yfirborgardómarans í Reykjavík og starfaði síðar sem deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu og sérfræðingur í forsætisráðuneytinu. Hún starfar nú sem mannréttindaráðgjafi Reykjavíkurborgar.