Barnaþing Sameinuðu þjóðanna
Leiðtogar heims segja JÁ fyrir börnin
Dagana 8.-10. maí 2002 komu rúmlega 7 þúsund manns saman á einni mikilvægustu ráðstefnu sem haldin hefur verið fyrir börn heimsins. Það var Barnaþing Sameinuðu þjóðanna og þar settu þjóðir heims sér markmið um að bæta aðstæður barna og ungmenna. Þessi markmið voru unnin af börnum og kallast World Fit for Children. Þetta plagg hefur verið leiðandi í starfi UNICEF síðan.
Í desember 2007 komu börn heims aftur saman á vettvangi Sameinuðu þjóðanna til að meta þann árangur sem náðst hefur síðan Barnaþingið var fyrst haldið og fara yfir World Fit for Children.
Barnaþingið markaði tímamót þar sem einungis var fjallað um börn og málefni þeirra og ekki síst þar sem börnin sjálf tóku í fyrsta skipti virkan þátt. Barnaþingið fór yfir þann árangur sem náðst hafði síðan heimsfundur fyrir börn hafði verið haldinn árið 1990 og hleypti nýju lífi í skuldbindingar alþjóðasamfélagsins um að standa vörð um réttindi barna.
Um 70 þjóðarleiðtogar og/eða forsætisráðherrar, fulltrúar ríkisstjórna, ásamt öðrum hátt settu embættisfólki kom til New York til að taka þátt í þinginu. Þar komu saman sérfræðingar, fræðifólk, fulltrúar borgarasamfélagsins, frjálsra félagasamtaka, menningarmála, trúarhópa og fyrirtækja. Auk þess tóku mikilvægir einstaklingar þátt í þinginu eins og Nelson Mandela og Bill Gates.
Þáverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Kofi Annan, ávarpaði börnin í opnunarræðu sinni á þinginu og sagði að: „Við, hinir fullorðnu, höfum brugðist ykkur algjörlega. Eitt af hverjum þremur í ykkar hópi hefur þjáðst af vannæringu fyrir fimm ára aldur. Eitt af hverju fjórum ykkar hefur ekki verið bólusett gegn neinum sjúkdómi. Næstum eitt af hverjum fimm gengur ekki í skóla … Við, hinir fullorðnu, verðum að snúa þessarri þróun við.“
