Þú ert hér:  

Björk í Banda Aceh

Björk Guðmundsdóttir heimsótti verkefni UNICEF í Banda Aceh í Indónesíu árið 2006. Svæðið komst í heimsfréttirnar annan í jólum árið 2004 eftir að flóðbylgjan mikla skall á yfir sex lönd í Suður-Asíu, en Banda Aceh varð hvað verst úti. Björk heimsótti verkefni sem snúa að vernd og menntun barna, auk þess sem hún hitti fórnarlömb flóðbylgjunnar.

Í viðtali við Ríkisútvarpið eftir ferðina sagði Björk að eyðileggingin og fjöldagrafirnar hefðu verið það skelfilegasta sem hún hefði séð á ævi sinni. Í viðtali við Fréttablaðið sagði hún meðal annars að miklir öfgar hafi mætt sér á staðnum, bæði varð hún vitni að kraftaverkum og eins hafi hún hitt fólk sem aldrei mun bera bætur eftir þessar hörmungar.

Landsnefnd UNICEF í Bretlandi hafði veg og vanda af ferðinni, en það er UNICEF á Íslandi mikill heiður að hún skuli leggja Barnahjálpinni lið með þessum hætti.

Björk hefur gefið út disk með endurhljóðblöndunum af laginu Army of me til styrktar UNICEF, sem og gefið ágóða af tónleikamiðasölu.

| Mynd 1 af 7 |
Björk hjálpar ungum stúlkum að teikna í barna-miðstöðinni í Neuheun í Aceh-héraði. Þegar Björk heimsótti svæðið bjuggu 2000 manns í búðum eða tímabundnum heimilum, þ.á.m. 400 börn. UNICEF veitti m.a. sálgæslu til barnanna á svæðinu.