English version

Fjármál og rekstur

Tekjur á árinu 2009 námu rúmum 254 milljónum en kostnaður við fjáröflun, kynningarmál, innanlandsverkefni og rekstur skrifstofu nam tæpum 59,8 milljónum. Vegna beinna rekstrarframlaga var hins vegar einungis 23% af söfnunarfé varið til rekstrar (sjá MYND 1 hér að neðan).

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eins og undanfarin ár var framlag heimsforeldra stærsti tekjuliður UNICEF á Íslandi. Heildartekjur af verkefninu námu rúmri 161 milljón. Af heildarframlögum landsnefndarinnar til hjálparstarfs komu því yfir 64% frá heimsforeldrum (sjá MYND 2 hér að neðan).

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ráðstöfun til hjálparstarfs nam rúmlega 240 milljónum. Þar af var tæplega 126,7 milljónum varið til reglubundinna verkefna UNICEF og nýtast í þeim löndum þar sem þörfin er mest, m.a. með tilliti til tíðni ungbarnadauða, fjölda barna, læsi og landsframleiðslu á mann.

Tæplega 87,2 milljónir runnu til eflingar menntunar í Síerra Leóne. Munar þar mest um 40 milljóna framlag frá velgerðasjóðnum Auroru. Er um að ræða annað framlag sjóðsins af fimm til menntunar í landinu. Einnig komu til framlög frá fjölda fyrirtækja eða svokölluðum UNICEF-verndurum og lauk þar með verkefni verndara í Síerra Leóne. Auk þess var hluta af stuðningi heimsforeldra varið til menntaverkefnisins. Útvarpsverkefni í Mósambík hlaut einnig 3,5 milljóna styrk frá Auroru velgerðasjóði. Auk þess bættist við 2,8 milljóna styrkur frá heimsforeldrum og öðrum stuðningsaðilum.

UNICEF á Íslandi stóð fyrir neyðarsöfnun fyrir börn á Gaza í byrjun árs 2009 og söfnuðust tæpar 1,6 milljónir frá almenningi. Söfnunarátak Barnahjálparinnar og V-dagssamtakanna fyrir fórnarlömb kynferðisofbeldis í Austur-Kongó gekk vel og nam styrkur almennings og framlag úr neyðarsjóði utanríkisráðuneytisins tæpum 10 milljónum (sjá MYND 3 hér að neðan).

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samkvæmt lögum UNICEF á Íslandi er stofnfé stofnunarinnar ein milljón. Í lok árs 2008, í kjölfar efnahagsþrenginga á Íslandi, ákvað stjórn UNICEF á Íslandi að 20 milljónir skyldu settar í sérstakan varasjóð og hefur honum ekki verið ráðstafað. Óráðstafaðar tekjur í lok árs 2009 námu því tæpum 31,7 milljónum. Að stofnfé og varasjóði undanskildum verður óráðstöfuðum tekjum ráðstafað til hjálparstarfs UNICEF á árinu 2010.