Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Fjármál UNICEF

Heildarútgjöld UNICEF árið 2007 voru 2,767 milljónir bandaríkjadala eða um 205 milljarðar íslenskra króna. Af þeim fóru 97% í verkefni fyrir börn í þróunarlöndunum. Við erum stolt af því að aðeins 3% fjármagnsins fór í skrifstofukostnað og stjórnsýslu sem talin er nauðsynleg til að tryggja yfirsýn með verkefnum, opið bókhald og aukna fjáröflun.

Þessari fjárhæð er skipt niður með eftirfarandi hætti: 
• Stjórnun og höfuðstöðvar - 94 milljónir USD.
• Stuðningur við verkefni - 156 milljónir USD.
• Beinn kostnaður við verkefni - 2,517 milljónir USD

Stjórnun og höfuðstöðvar er kostnaður við skrifstofurnar í New York, afskriftir og aðra yfirstjórn. Stuðningur við verkefni er kostnaður við þann hluta starfsins sem þjónusta verkefnin en eru þó ekki beinn hluti af þeim, svo sem rekstur svæðaskrifstofa (sem eru alls 7), laun yfirmanna allra landsskrifstofa (sem eru alls 156) og rekstur birgðastöðvar UNICEF í Kaupmannahöfn. Beinn kostnaður við verkefni er síðan framkvæmd verkefnanna sjálfra.

Rekstrarkostnaður 
Þessi 10% sem ekki fara beint í verkefni gagnast engu að síður börnunum. Eins og sést er stór hluti af þessari tíund sem fer í stuðning við verkefni. Þetta er sú vinna sem fram fer á svæðisskrifstofunum. Hlutverk þeirra er að taka saman og miðla upplýsingum um aðstæður barna í hverju landi fyrir sig, fylgjast með framvindu verkefna og tryggja gegnsæi í fjármálum.

Inn í þessu er einnig kostnaður við birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn sem vinnur mikið og gott starf við að kaupa hjálpargögn og koma þeim þangað sem þeirra er mest þörf. Birgðastöðin hefur oft sannað gildi sitt í neyðarástandi en í birgðastöðinni er líka séð um að kaupa bóluefni, HIV-lyf, malaríunet og annað slíkt sem UNICEF vinnur við að dreifa allan ársins hring.

Þar vinnur t.a.m. Thomas Sörensen sem stýrir útboðum fyrir kaup á bóluefnum en UNICEF kaupir árlega yfir 3.000 milljónir bóluefnisskammta. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljónum barna á ári hverju. Thomas vinnur vissulega við skrifborð, en hans starf gerir það að verkum að UNICEF, sem er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum, getur gert það á hagkvæman hátt og þannig fengið meira fyrir peningana.

Úttektir á fjárreiðum
UNICEF sér til þess að reglulega eru gerðar úttektir á fjárreiðum samtakanna. Það eru bæði aðilar innan samtakanna og utanaðkomandi aðilar sem framkvæma slíkar úttektir. Sem stærstu barnahjálparsamtök í heimi, sem reiðir sig eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna, er mikilvægt að tryggja opið bókhald og traustar fjárreiður.

Utanaðkomandi úttekt endurskoðanda sænsku þróunarsamvinnustofnunarinnar (SIDA) nýverið leiddi í ljós að fjárreiður og bókhald UNICEF væri mjög gott. Fyrir samtök eins og UNICEF er mikilvægt að þróast og vera sífellt að bæta sig.

Ef þú hefur einhverjar fyrirspurnir varðandi fjármál UNICEF hafðu samband á skrifstofu okkar í síma 5 62 62 62 eða sendu póst á unicef hjá unicef.is.