Formaður ungmennaráðs
Formaður Ungmennaráðs Unicef er Yousef Ingi Tamimi. Hann er hress, skemmtilegur og hugmyndaríkur strákur á tvítugsaldri sem hefur verið virkur meðlimur í ungmennaráði allt frá stofnun þess haustið 2006.
Yousef útskrifaðist frá Kvennaskólanum vorið 2008 og leggur nú stund á stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Einnig hefur Yousef lært flug og er nú þegar kominn með einkaflugmannsprófið.
Yousef á rætur að rekja til Palestínu. Sumarið 2008 fór hann þangað sem sjálfboðaliði þar sem hann starfaði í félagsmiðstöðvum og kenndi ungmennum í Ramallah og Nablus ensku.
Auk barnahjálpar, þróunarmála, flugs, stjórnmálafræði og mannréttindamála, hefur Yousef áhuga á ferðalögum og fjallgöngum.