Fræðsluefni
Þeir skólar sem taka þátt í UNICEF-hreyfingunni fá sendan DVD-disk með fræðslumyndböndum um líf barna í löndum sem UNICEF starfar í, ásamt glærufyrirlestrum. Fyrir viðburðinn nýtir skólinn efnið frá UNICEF til að fræða nemendurna um aðstæður erlendra jafnaldra sinna, svo að þeir öðlist betri innsýn í mismunandi hversdag og lífsskilyrði barna í öðrum löndum. Fræðslan gerir nemendunum einnig kleift að setja framlag sitt í UNICEF-hreyfinguna í víðara samhengi. Þannig öðlast börnin betri skilning á því hverju þeir geti komið til leiðar með því að leggja sitt af mörkum til mannúðarmála.
Latri frá Laos fjallar um líf og aðstæður hinnar 14 ára Latri sem býr í Laos. Fylgst er með venjulegum degi í lífi Latri, hvaða skyldum hún gegnir heima við og hvað hún lærir um í þorpsskólanum, sem er styrktur af UNICEF (fyrir alla aldurshópa).
Barnæskunni rænt fjallar um barnasölu og barnaþrælkun í Vestur-Afríkuríkinu Benín. Nokkur börn segja frá reynslu sinni og fjallað er um orsakir barnaþrælkunar og hvaða ráð UNICEF og stjórnvöld í Benín beita til að koma í veg fyrir sölu og vinnuþrælkun barna (hentar best 7. til 10. bekk).
Vonir Paulinu fjallar um aðstæður Paulinu, 11 ára stelpu sem býr í þorpi við Viktoríuvatn í Tansaníu með mömmu sinni og systkynum. Henni finnst gaman að ganga í skóla en óttast að þurfa að hætta námi eftir grunnskóla vegna fátæktar. Í myndinni fylgjumst við með lífi Paulinu heima og í skólanum (fyrir alla aldurshópa).
Glærukynningarnar fjalla um Laos og Benín í samhengi við efni fræðslumyndanna. Þær er einnig hægt að nálgast hér á síðunni: Glærukynning um Laos; Glærukynning um Benín; Glærukynning um Tansaníu.