á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.
Þú ert hér:
Anthony Lake er sjötti framkvæmdastjóri UNICEF. Hann hefur yfir 45 ára reynslu af störfum innan opinberrar stjórnsýslu og alþjóðlegra samtaka. „Ég er ánægður með að ganga til liðs við UNICEF. Ég hlakka til að vinna með okkar frábæra starfsfólki og mörgu samstarfsaðilum í þeim tilgangi að bæta réttindi barna um allan heim,“ sagði Lake á sínum fyrsta starfsdegi innan UNICEF 1. maí 2010.
Anthony Lake hefur unnið með leiðtogum og stefnumótandi aðilum um allan heim. Í starfi sínu sem þjóðaröryggisráðgjafi Bill Clintons, þáverandi forseta, (1993-1997) og sem yfirmaður áætlanagerðar og stefnumótana hjá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna á tímum Carter stjórnarinnar (1977-1981), kom hann að utanríkisstefnu, öryggismálum og mannúðar-og þróunarmálum. Á árunum 2007 til 2008 var hann aðalráðgjafi utanríkismála í kosningabaráttu Barack Obamas.
Trúfesta Anthony Lakes til eflingu friðar og öryggis í heiminum er hornsteinninn í öllum hans ferli. Eftir að hann hætti störfum hjá Bill Clinton árið 1997 varð hann sérstakur sendifulltrúi bandaríkjaforseta gagnvart Haítí, Eþíópíu og Eritreu. Sem slíkur lagði hann hönd á plóg í samningagerðinni, sem kennd er við Alsír, og batt endi á stríðið milli Eþíópíu og Eritreu. Árið 2000 fékk hann Samuel Nelson Drew-verðlaun hvíta hússins fyrir störf sín. Hann spilaði einnig stórt hlutverk í stefnumótuninni sem leiddi til friðar í Bosníu og Hersegóvínu og Norður-Írlandi.
„Friður og öryggi er grunnurinn að því að byggja barnvænni heim. Stríð drepa ekki aðeins börn – þau breiða út sjúkdóma og brjóta niður alla efnahagslega von. Að lokum er ekki hægt að finna raunverulegan frið í diplómatískum skjölum. Hann sést einungis á öruggu og heilbrigðu lífi stúlkna og drengja. Ef við bætum líf barna í dag, hjálpum við þeim að erfa betri heim á morgun,“ sagði Lake þegar hann tók við embættinu.
Anthony Lake hefur áratuga reynslu af alþjóðlegum þróunarmálum og réttindum barna í gegnum störf sín með félagasamtökum. Hann hefur leitt Alþjóðlega sjálfboðaliðaþjónustu, verið ráðgjafi Alþjóða rauða krossins og setið í stjórn Save the Children og Utanríkisþróunarþingsins.
Tengsl Anthony Lake við UNICEF hófust fyrir nokkrum árum þegar hann tók sæti í stjórn bandarísku landsnefndarinnar fyrir UNICEF. Hann sat þar í níu ár og þar á meðal sem stjórnarformaður á árunum 2004 til 2007. Undir hans stjórn jukust framlög til landsnefndarinnar verulega eftir breytingar á starfsaðferðum og markmiðum landsnefndarinnar.
Lake útskrifaðist úr Harvard og Princeton og lauk doktorsgráðu frá skóla Woodrow Wilson í opinberri og alþjóðlegri stjórnsýslu. Hann starfaði sem prófessor í Georgetown háskóla í Washington áður en hann tók starfi framkvæmdastjóra UNICEF. Áhugi hans á menntun endurspeglast í stjórnarsetu hans í ýmsum akademískum stofnunum í Bandaríkjunum.
Lake er giftur og á þrjú börn og fimm barnabörn.