English version

LÁTTU Í ÞÉR HEYRA! - Fréttaritaraþjálfun unga fólksins

Langar þig að búa til innslag fyrir útvarp eða skrifa í dagblað?

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi (UNICEF) stendur fyrir fréttaritaraþjálfun fyrir ungt fólk í mars og apríl 2009. Haldnar verða þriggja daga vinnusmiðjur þar sem ungt fólk lærir að vinna í fjölmiðlum og búa til fréttir og annað efni sem svo verður flutt eða birt í fjölmiðlum.

Meðal þess sem þú munt læra er:

  • Hvernig starfa fjölmiðlar í raun og veru?
  • Hvernig kemur þú fram í fjölmiðlum?
  • Hvernig tekur þú viðtal?
  • Hvernig skrifar þú efni í dagblað eða býrð til innslag/frétt fyrir útvarp?
  • Hvernig kemur þú skoðunum þínum á framfæri?
  • Hvernig nærðu athygli fjölmiðla?

Þjálfunin er haldin í samstarfi við RÚV og Morgunblaðið/www.mbl.is. Þær eru opnar öllum nemendum í 8., 9. og 10. bekk og verða haldnar á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og í Reykjavík. Hámarksfjöldi þátttakenda er 30. Ekkert þátttökugjald.

Nánar um fréttaritaraþjálfun unga fólksins
UNICEF hefur áhuga á að gefa ungu fólki á Íslandi þjálfun og tækifæri til að tjá skoðanir sínar og koma hugðarefnum sínum á framfæri í fjölmiðlum og víðar í samfélaginu. Þess vegna ætlum við að fara af stað með fréttaritaraþjálfun unga fólksins um allt land í mars og apríl. Verkefnið fór formlega af stað á Heimsdegi barna í fjölmiðlum 1. mars (e. International Children's Day of Broadcasting).

Markmið þjálfunarinnar er að hvetja ungmenni til að koma skoðunum sínum á framfæri og kynna leiðir til þátttöku og virkni í samfélaginu, læra inn á fjölmiðla, fjölmiðlalæsi, o.s.frv. Höfuðáhersla verður þó lögð á að ungmennin læri að vinna efni fyrir fjölmiðla, þ.e. taka viðtöl, klippa innslög fyrir útvarp og skrifa frétt eða grein í prentmiðil. Þessi hluti þjálfunarinnar verður unnin í nánu samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið.

Lagt er upp úr því að þjálfunin sé lifandi og skemmtileg og að ungmenni fái að prófa sig áfram. Um leið er ætlast til þess að þau geta framleitt ,,alvöru" efni fyrir fjölmiðla og því miklar kröfur gerðar.

Áætlaðar dagsetningar fyrir hverja þjálfun:

  • Þjálfun 1 : Ísafjörður : 12.-14. mars - LOKIÐ
  • Þjálfun 2 : Reykjavík : 26.-28. mars - LOKIÐ
  • Þjálfun 3 : Akureyri : 2.-4. apríl - AFLÝST/FRESTAÐ
  • Þjálfun 4 : Egilsstaðir : 16.-18. apríl - LOKIÐ

Miðað er við að halda þjálfunina á fimmtudegi og föstudegi, kl. 17-20, og á laugardegi kl. 11-17. Búast má við að sumir hópar þurfi að klára vinnslu efnisins á mánudeginum.

ATH! Ef þátttakendur eru yfir 30 verður nauðsynlegt að bæta við fréttaritaraþjálfun. Ungmenni gætu þá átt von á að komast ekki strax að.

Afrakstur og markmið fréttaritaraþjálfunar
Það er von okkar að eftir vinnusmiðjurnar verði tugir íslenskra ungmenna um land allt reiðubúin að láta í sér heyra! Við munum koma upplýsingum um alla þátttakendur til fjölmiðla (nema annars sé óskað) þannig að þeir geti nýtt sér krafta þátttakenda málefnum barna og ungmenna til framdráttar. Við viljum að þátttakendur geti orðið einskonar fréttaritarar ungmenna á Íslandi.

Þátttakendur fá viðurkenningarskjal fyrir að hafa lokið þjálfuninni og samantekt á öllu efni sem unnið er í hverri vinnusmiðju á geisladiski.

20 ára afmæli Barnasáttmálans
Samkvæmt 12. og 13. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna skulu aðildarríki tryggja rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós og taka tillit til þeirra. Markmið UNICEF Ísland með fréttaritaraþjálfun unga fólksins og öðrum verkefnum er að hvetja börn og ungmenni til þátttöku í samfélagsumræðu og búa til vettvang fyrir skoðanir þeirra í samræmi við ákvæði Barnasáttmálans.

Árið 2009 markar 20 ára afmæli Barnasáttmálans og því þótti við hæfi að hrinda úr vör margvíslegum verkefnum sem snúa að þátttöku og eflingu barna og ungmenna á Íslandi. Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er eitt þeirra verkefna.

Nánari upplýsingar gefur Anna í síma 552 6304 eða í frettaritari@unicef.is.