Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Fréttasafn 2004

 

Neyðaraðstoð vegna flóðanna

29.des.2004

Að minnsta kosti 70 þúsund manns fórust í flóðum við strendur Indlands, Sri Lanka, Taílands, Malasíu, Mayanmar, Bangladess, Indónesíu og fleiri landa við Indlandshaf í kjölfar eins stærsta jarðskjálfta sem um getur í 40 ár. UNICEF er með skrifstofur í öllum þeim löndum sem lentu í fljóðbylgjunni og hefur því getað brugðist skjótt við.


 


UNICEF flytur birgðir til fórnarlamba hamfaranna í Asíu

28.des.2004
UNICEF flytur nú í snarheitum birgðir til þeirra strandsvæða í Asíu sem urðu fyrir flóðbylgjunni vegna jarðskjálftans síðasta sunnudag. „Hundruð þúsunda manna börðust fyrir lífi sínu þegar flóðbylgjurnar skullu á síðastliðinn sunnudag.

 


Gleðileg jól

23.des.2004

UNICEF Ísland vill óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum þær frábæru viðtökur sem landsnefndin hefur fengið á þessu fyrsta starfsári sínu og við lítum björtum augum til framtíðar.


 


Þekkingarmiðlun veitir UNICEF styrk

22.des.2004

Fyrirtækið Þekkingarmiðlun veitti UNICEF 150 þúsund króna styrk á dögunum í nafni viðskiptavina sinna í stað þess að senda þeim jólakort. Styrkurinn mun renna til menntaverkefa UNICEF, en í dag eru yfir 121 milljón börn sem njóta ekki grunnmenntunar.


 


Nikola segir reynslusögu sína af jarðsprengjum

20.des.2004

Milljónir jarðsprengna og annarra sprengjuleifa eftir stríðsátök víðs vegar um heim ógna öryggi barna. Börn slasast, deyja eða missa foreldra sína af völdum jarðsprengna löngu eftir að átök líða undir lok, samkvæmt heimildum frá UNICEF.


 


Jólastyrkur frá Útflutningsráði

20.des.2004

Útflutningsráð Íslands hefur ákveðið að veita UNICEF Ísland styrk að jafnvirði þeirri upphæð sem annars hefði farið til jólakortakaupa stofnunarinnar. Með styrkveitingunni styður Útflutningsráð Barnahjálpina til góðra starfa fyrir börn til betra lífs.


 


The State of the World’s Children skýrslan 2005

09.des.2004

Barnæska er hörmuleg lífsreynsla fyrir helming barna á jörðinni – Þessi mikilvægu ár eru eyðilögð vegna fátæktar, stríðsátaka og HIV/alnæmis. Þrátt fyrir að það sé nær algilt að vilja vernda börn og æskuárin, þá sýnir ný skýrsla UNICEF að meira en helmingur barna heimsins þjáist vegna fátæktar, stríðsátaka og HIV/alnæmis.


 


Ljósmyndasýning UNICEF fyrir framan Hagkaup

01.des.2004

Við vekjum athygli á því að ljósmyndasýning UNICEF í Smáralindinni er nú staðsett fyrir framan Hagkaup. VIð hvetjum alla til að kíkja á þessa áhrifamiklu ljósmyndasýningu, kynnast aðstæðum barna víðsvegar í heiminum og verkefnum UNICEF.


 


Robbie Williams talar gegn mansali

30.nov.2004

Poppsöngvarinn Robbie Williams hefur veitt UNICEF lið og talar gegn mansali á nýútgefnu myndbandi bresku landsnefndar UNICEF. Myndbandið byggir á ljóði eftir skáldið Simon Armitage og gefur innsýn inn í þær hörmungar sem tengjast mansali.


 


Heimildamyndir á Íslandi til úrslita

25.nov.2004

lok október komu 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum til að taka þátt í einnar-mínútu-myndbanda-vinnustofu sem UNICEF Ísland hélt, með stuðningi menntamálaráðuneytisins. Slíkar vinnusmiðjur eru haldnar um alla Evrópu og í nóvember ár hvert er haldin samkeppni milli einnar mínútu myndbandanna í Hollandi.


 


Harry Belafonte opnar ljósmyndasýningu

19.nov.2004

Næstkomandi laugardag, þann 20. nóvember kl. 15:30, mun stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, opna ljósmyndasýningu um UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna – í Smáralindinni. Sýningin verður staðsett fyrir framan Te & kaffi (Debenhams) á neðri hæð Smáralindar.


 


Harry Belafonte a leid til landsins

13.nov.2004

Í tilefni af 15 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og heimsforeldraátaki UNICEF Ísland mun velgjörðarsendiherra UNICEF og stórsöngvarinn Harry Belafonte heimsækja landið 18.-21. nóvember. Belafonte var skipaður velgjörðarsendiherra UNICEF þann 4. mars 1987.


 


Leikmenn Manchester Utd tala fyrir hönd barna í herferð UNICEF

09.nov.2004

Stjörnuleikmenn Manchester United fótboltafélagsins og framkvæmdastjóri þeirra ljá málefnum barna rödd sína í nýrri sjónvarpsherferð UNICEF. Hin 30 sekúndna löngu myndskilaboð hvetja almenning til þess að styðja við starf UNICEF í baráttunni gegn HIV/alnæmi, mansali og misnotkun barna og stuðningi við menntun stúlkna.


 


Velgjörðasendiherra UNICEF Harry Belafonte

02.nov.2004

Velgjörðarsendiherra UNICEF Harry Belafonte sést hér umkringdur börnum í Senegal, en hann fór þangað fyrr á árinu til að hjálpa UNICEF að vekja athygli á mikilvægi þess að skrá öll börn.


 


Menntamálaráðherra heimsækir vinnusmiðju UNICEF

01.nov.2004

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri heimsóttu UNICEF við lok vinnusmiðju í gerð einnar-mínútu-myndbanda. Þau 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum sem sóttu vinnusmiðjuna sýndu gestunum afrakstur vinnu sinnar og ræddu um þau málefni sem brenna mest á ungu fólki í dag.


 


Vinnusmiðja í gerð einnar-mínútu myndbanda hefst á Íslandi

18.okt.2004

Tuttugu ungmenni frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi eru samankomin í Reykjavík til þess að vinna að framleiðslu einnar-mínútu myndbanda um lýðræði og þátttöku ungs fólks í samfélaginu. UNICEF Ísland og menntamálaráðuneytið standa fyrir vinnusmiðjunni sem stendur yfir þar til á fimmtudaginn 21. október.


 


Flogið til stuðnings UNICEF

14.okt.2004

Í dag lenti flugstjórinn og stjórnarformaður South East Asian Airlines, Iren Dornier, sögulegum flugbát af gerðinni Dornier DO24 ATT í Reykjavík. Dornier flýgur nú hringinn í kringum heiminn en nákvæmlega 75 ár eru liðin frá því afi hans og hönnuður flugvélarinnar, Claude Dornier (1884-1969), fór ferð með slíkri flugvél sem þá þótti mikið afrek á sviði flugsmíði.


 


Ísland veitir tveimur milljónum króna til neyðaraðstoðar

05.okt.2004

Utanríkisráðuneytið samþykkti föstudaginn 1. október að veita tveimur milljónum króna til neyðaraðstoðar UNICEF í ríkjum Karabíska hafsins í kjölfar eyðileggingar fellibylsins Jeanne þann 18. september sl. Í aðstæðum sem þessum skiptir miklu máli að bregðast skjótt við og hafa íslensk stjórnvöld gert það aðeins viku eftir að Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, fór þess á leit við þjóðir heimsins að þær kæmu íbúum Haítí og annarra ríkja Karabíska hafsins til aðstoðar.


 


Heimsforeldrar – söfnunarátak Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna

29.sep.2004

Um þessar mundir senda landsnefnd UNICEF á Íslandi og frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra, bréf til allra heimila landsins þar sem Íslendingum er boðið að gerast heimsforeldrar. Heimsforeldrar eru öflugt stuðningsnet fyrir þurfandi börn um allan heim sem fólk getur orðið hluti af með mánaðarlegu fjárframlagi.


 


UNICEF sendir sjúkragögn til Beslan og Vladikavkaz

08.sep.2004

UNICEF hefur sent út tvo bílfarma af sjúkragögnum til sjúkrahúsa í Beslan og Vladikavkaz til þess að annast þau hundruð barna sem særðust í Beslan-gíslatökunni. Gögnin, að virði um 6,5 milljóna íslenskra króna, munu ná til svæðisins í dag, miðvikudaginn 8. september.


 


Yfirlýsing frá Carol Bellamy um gíslatöku barna í Rússlandi

06.sep.2004

„Gíslatakan er ótæk, óskiljanleg, óhugsandi. Harmleikurinn er sá að þessi atburður er einungis sá nýjasti í vaxandi öldu ofbeldis sem beint er gegn börnum. Nú er kominn tími til þess að gera úttekt á og grandskoða heim okkar og hvernig komið er fram við börn,“ sagði Bellamy.


 


Heimsókn í birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn

03.sep.2004

Hólmfríður Anna Baldursdóttir, starfsmaður UNICEF Ísland, heimsótti á dögunum landsnefnd UNICEF í Danmörku og birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn. Birgðastöðin, sem er 25 þúsund fermetrar, pakkar og sendir vörur til allra heimshorna fyrir UNICEF.


 


Angóla stefnir að því að útrýma mænusótt

29.ágúst.2004

Í sömu viku og mænusóttarfaraldur skall á þremur Afríkulöndum tók Angóla skref á átt að útrýmingu mænusóttar í landinu. Skrefið var tekið með því að hefja bólusetningarherferð þar sem fimm milljónir barna verða bólusettar.


 


Framkvæmdastjóri UNICEF heimsækir fyrrverandi barnahermenn

25.ágúst.2004

Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, er nú í heimsókn í Líberíu. Hún mun heimsækja Jah Tondo-búðirnar fyrir fólk sem hefur flosnað frá heimilum sínum og Don Bosco-áfangaheimilið fyrir börn sem hafa verið neydd til hermennsku.


 


UNICEF styrkir skuldbindingu sína við börn í Írak

18.ágúst.2004

Eitt ár er nú liðið síðan mannskæð sprengjuárás var gerð á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad þar sem margir starfsmenn létu lífið, þar á meðal einn starfsmaður Barnahjálparinnar. UNICEF sendi frá sér tilkynningu í dag um að skuldbinding stofnunarinnar við hag barna í Írak væri sterkari en nokkru sinni.


 


Barátta fyrir lífi meðal fórnarlamba flóða í Bangladess

13.ágúst.2004

Eftir gríðarleg flóð hafa mörg fátækustu börn heims reynt að endurbyggja líf sitt um leið og þau standa frammi fyrir mikilli sjúkdómahættu. Hin gríðarlegu áhrif hinna áframhaldandi monsún rigninga ógna þeim árangri í enduruppbyggingu sem íbúar Bangladess hafa náð.


 


Viktoría hefur lokið sundi yfir Breiðafjörð

10.ágúst.2004

Viktoría Áskelsdóttir lauk í dag, 10. ágúst, sundi sínu yfir Breiðafjörð. Tekið var vel á móti henni þegar hún kom í land í Stykkishólmi, en bæjarstjórinn var fremstur í flokki móttökuhópsins.


 


Brjóstagjöf gæti bjargað lífi 1,3 milljóna barna

05.ágúst.2004

UNICEF hefur tekið höndum saman við 120 lönd víðsvegar í heiminum um að halda upp á alþjóðlega viku brjóstagjafar, sem hófst þann 1. ágúst síðastliðinn.


 


Vefdagbók Viktoríu

02.ágúst.2004

Viktoría hefur haldið dagbók um sund sitt yfir Breiðafjörð. Í dagbókinni lýsir Viktoría sundinu, skrifar um hugleiðingar sínar og lýsir hinni fallegu nátttúru kringum Breiðafjörðinn. Nú er aðeins ein vika eftir af sundinu og hefur Viktoríu gengið afar vel í þessari þrekraun sinni.


 


UNICEF bólusetur gegn heilahimnubólgu í Búrúndí

30.jul.2004

Um 24 tilfelli heilahimnubólgu varð vart í norðurhluta Búrúndí í síðustu viku. Líkja hjálparstofnanir SÞ þessu við faraldur og hafa UNICEF, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) og ríkisstjórn Búrúndí stofnað til samstarfs til að reyna að koma í veg fyrir að fleiri börn smitist.


 


Heimsreisa Ewan McGregor með UNICEF

30.jul.2004

Skoski leikarinn Ewan McGregor og besti vinur hans, Charley Boorman, enduðu í gær rúmlega 3ja mánaða, 32.000 km heimsreisu sína á mótorhjólum. Ferðina kölluðu þeir ,,Lengri leiðina” (The Long Way Around) og hófst hún í byrjun maí í Lundúnum.


 


Synt yfir Breiðafjörð

23.jul.2004

Laugardaginn 24. júlí mun Viktoría Áskelsdóttir hefja tveggja vikna sund yfir Breiðafjörð. Þetta verður í fyrsta skipti sem nokkur manneskja reynir að synda yfir fjörðinn.


 


Sumarbúðir UNICEF fyrir krakka á Vesturbakkanum og Gaza

21.jul.2004

Með stuðningi UNICEF hafa nú verið settar upp sumarbúðir fyrir krakka sem búa á Vesturbakkanum og á Gaza-svæðinu og þar með gefið um 17 þúsund stúlkum og drengjum tækifæri til að leika sér á ný.


 


Hin ,,týndu börn” Úganda

19.jul.2004

UNICEF vakti í dag athygli á eymd þúsunda barna sem hafa verið rænd frá heimilum sínum af uppreisnarhernum, LRA, í Norður-Úganda og gerð að stríðsmönnum og kynlífsþrælum. Þessi harmleikur hefur afmáð hugmyndina um áhyggjulausa og frjálsa barnæsku í huga þúsunda barna og unglinga í Úganda.


 


Tvær milljónir barna bólusettar gegn mislingum í Darfur

16.jul.2004

Tvær milljónir barna á átakasvæðum Darfur-héraðsins í Súdan hafa verið bólusettar gegn mislingum. Um 500.000 barna eru þó án bólusetningar vegna þess að of hættulegt hefur reynst fyrir heilbrigðisstarfsmenn að ná til þeirra, samkvæmt heimildum stofnanna Sameinuðu þjóðanna þann 9. júlí.


 


Delta Kappa Gamma styrkir UNICEF og menntun stúlkna

16.jul.2004

Delta Kappa Gamma, samtök kvenna í ýmiskonar fræðslustörfum veittu UNICEF styrk á dögunum til þess að mennta ungar stúlkur í Vestur-Afríku. Ákveðið var að láta 100 þúsund krónur renna til þessa verkefnis núna en jafnframt munu hinar níu deildir samtakanna fá það verkefni að safna áfram til þessa verkefnis næstu vetur.


 


UNICEF og H&M í samstarfi

08.jul.2004

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og tískukeðjan H&M tilkynntu samstarf sitt við að auka forvarnir gegn HIV og alnæmi og styðja menntun stúlkna. Fyrsta skref samstarfsins felur í sér 107 milljóna króna framlag H&M til þriggja ára verkefnis UNICEF í Kambódíu.


 


Barátta fyrir lífi í Darfur

01.jul.2004

Á síðasta ári hafa 1,2 milljónir manna, helmingurinn af þeim börn, verið flæmd frá heimilum sínum í Darfur-héraði í Súdan. Þar til í febrúar 2004 var mannúðaraðstoð haldið niðri og átökin hafa síðan þá þróast í það sem Sameinuðu þjóðirnar kalla „versta neyðarástand í heiminum í dag“.


 


EJS styrkir UNICEF

18.jun.2004

EJS, sem er einn stærsti þjónustuaðili og birgi landsins í upplýsingatækni, gaf nýlega Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna allan tölvubúnað í skrifstofu sína að Skaftahlíð 24 í Reykjavík.


 


Afrískt tónlistarfólk semur lag í von um að geta heft útbreiðslu alnæmis

21.maí.2004

Þekktir afrískir tónlistarmenn komu saman dagana 16.-20. maí í Senegal til að taka upp lag í von um að geta vakið fólk til umhugsunar um HIV/alnæmi og heft útbreiðslu sjúkdómsins í álfunni. Þá er markmiðið einnig að geta dregið úr fátækt um helming fyrir árið 2015, en það er ártal sem miðað er við í Þróunarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.