Fréttasafn 2005
Dúkkur Kvenfélagasambands Íslands og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú komnar í sölu bæði á Akureyri og Egilsstöðum. Þegar hefur nær helmingur af 800 dúkkum selst og því hafa safnast 2 milljónir króna sem mun hjálpa stúlkum í skóla í Gíneu-Bissá. Vegna fjölda eftirspurna var dúkkunum komið í sölu úti á landi.
Ár liðið frá hamförunum við Indlandshaf
Annan í jólum var eitt ár liðið frá flóðbylgjunni við Indlandshaf. Hamfarirnar sem fylgdu voru geigvænlegar og kölluðu á neyðaraðstoð af þeirri stærðargráðu sem engin dæmi voru fyrir. Ríkisstjórnir og einstaklingar um allan heim sýndu mikið örlæti og hjálparstofnanir eins og UNICEF fengu liðstyrk hvaðan æva að úr heiminum.
UNICEF Ísland vill óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Við þökkum þann stuðning og þá velvild sem við höfum notið á árinu og lítum björtum augum til framtíðar.
Dúkkurnar komnar norður á Akureyri!
Býflugan og blómið á Akureyri hefur tekið til sölu dúkkur sem kvenfélög um land allt hafa gert til styrktar stúlkum í Gíneu-Bissá. Nú geta Norðlendingar skoðað úrvalið og fest kaup í dúkkum sem gleðja bæði börn á Íslandi og í Gíneu-Bissá. Býflugan og blómið er staðsett á Glerárgötu 36.
Hinar vinsælu dúkkur Kvenfélagasambands Íslands og UNICEF eru nú til sölu í Blómabæ á Egilsstöðum. Hver dúkka kostar 5000 krónur og rennur ágóðinn til menntaverkefnis fyrir stúlkur í Gíneu-Bissá. Við hvetjum alla fyrir austan til að leggja leið sína í Blómabæ, Miðvangi 31, Egillstöðum.
Þau börn sem njóta góðs af verkefnum UNICEF í Gíneu-Bissá voru þeirrar gæfu aðnjótandi fyrir nokkru að fá veglegan styrk frá þremur íslenskum fyrirtækjum, Baugi Group, FL Group og Fons. Eins og kunnugt er héldu styrktaraðilar okkar veislu þar sem boðsgestir gátu veitt styrki til verkefna UNICEF í þessu sjötta fátækasta ríki í heimi, Gíneu-Bissá.
Á jaðri samfélagsins - hundruð milljónir barna eru ósýnileg umheiminum
Hundruð milljónir barna þjást vegna mikillar misnotkunar og kúgunar og eru beinlínis ósýnileg gagnvart umheiminum, sagði UNICEF í dag í tengslum við kynningu á skýrslunni. Þema skýrslunnar í ár eru börn sem standa utan við samfélagið, eru ekki sýnileg umheiminum og er þar af leiðandi sérstaklega erfitt að ná til.
Lilja Eyþórsdóttir veitir UNICEF styrk
Lilja Eyþórsdóttir veitti UNICEF styrk í dag að verðmæti 57.000 krónum og mun styrkurinn renna til menntunar stúlkna. Lilja afþakkaði blóm og gjafir í afmælisveislu sinni en óskaði í staðinn eftir því að þeir sem vildu gætu lagt 500 til 1000 kr inn á reikning til styrktar UNICEF.
Þann 1. desember, á alþjóða alnæmisdeginum, veittu Alnæmissamtökin 100.000 kr. styrk til herferðar UNICEF sem ber yfirskriftina „Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi". Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, veitti styrknum viðtöku á skrifstofu Alnæmissamtakanna.
Sir Roger Moore kíkir á jólakortasölu UNICEF
Sir Roger Moore mun kíkja á jólakortasölu UNICEF á morgun, laugardag, að Laugavegi 42, 2. hæð, kl. 14:00. UNICEF hefur selt jólakort í nær 60 ár eða nánast alveg frá stofnun samtakanna. Sala á þeim var ein fyrsta fjáröflun meðal almennings sem UNICEF fór í og er enn stór tekjulind samtakanna.
Um 90 milljónir söfnuðust á fullveldishátíð til styrktar UNICEF
Á fullveldishátíð sem styrktaraðilar UNICEF, Baugur Group, FL Group og Fons, efndu til í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi söfnuðust um 90 milljónir króna. Allur ágóði af kvöldinu mun renna til verkefna UNICEF í Gíneu-Bissá. UNICEF á Íslandi er afar þakklátt fyrir þennan mikla stuðning.
Baugur Group, FL Group og Fons gefa 135 milljónir til menntaverkefnis í Gíneu-Bissá
Fyrirtækin Baugur Group, FL Group og Fons skrifuðu í morgun undir stærsta styrktarsamning fyrirtækja sem gerður hefur verið í þágu góðgerðarmála á Íslandi. Styrkurinn hljóðar upp á 135 milljónir króna og munu nær 100 þúsund börn í Gíneu-Bissá njóta góðs af styrknum, auk kennara, skóla og samfélagsins alls.
Kvenfélagasamband Íslands afhendir einnig peningagjöf
Helga Guðmundsdóttir, formaður Kvenfélagasambands Íslands, afhenti í dag Stefáni Inga Stefánssyni framkvæmdastjóra UNICEF Ísland 172.500 krónur fyrir hönd þeirra kvenfélaga sem ekki höfðu saumað dúkkur til styrktar menntaverkefnis UNICEF Í Gíneu-Bissá.
Jólakort og gjafavörur UNICEF eru að koma í hús og hefst salan eftir helgi í nýrri skrifstofu UNICEF Ísland að Laugavegi 42, 2. hæð, og í ýmsum ritfangaverslunum.
UNICEF hlúir að þörfum barna á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan
Enn er mikil þörf á aðstoð á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan og hefur UNICEF unnið hörðum höndum á síðustu vikum við að tryggja heilsu og öryggi barna sem eiga um sárt að binda vegna skjálftans.
UNICEF hefur alþjóðlega herferð gegn alnæmi barna
Alþjóðleg herferð UNICEF, undir slagorðinu “Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi” er ætlað að vekja athygli heimsbyggðarinnar á þeirri staðreynd að málefni barna hafa verið undanskilin frá alþjóðlegum aðgerðaráætlunum gegn alnæmi.
Börn á afskekktum svæðum í Pakistan enn í hættu
Það er kapphlaup við tímann að bjarga lífi þeirra fjöldamörgu barna sem eru hjálparþurfi á afskekktum svæðum í fjalllendi Pakistan þar sem jarðskjálftinn reið yfir fyrir tveim vikum.
UNICEF óskar eftir að ráða verkefnastjóra fjáröflunar
UNICEF leitar að kraftmiklum verkefnastjóra í fullt starf til að hafa umsjón með fjáröflunum UNICEF auk þess að taka þátt í öðrum verkefnum við kynningu og upplýsingagjöf. Áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofuna í síma 552-6300 eða með því að senda tölvupóst á unicef@unicef.is
Mikilvæg aðstoð berst til barna í Pakistan
Mikilvæg aðstoð frá UNICEF berst nú til afskekktra svæða í Pakistan sem urðu illa úti í jarðskjálftanum sem reið yfir laugardaginn 8. október. Fjölmörg þorp á þessu fjalllenda svæði einangruðust þegar vegir eyðilögðust í jarðskjálftanum. Verið er að koma birgðum til þeirra þurfandi loftleiðis frá vörugeymslu UNICEF í Karachi, höfuðborg Pakistan, til Peshawar og þaðan til Mansehra.
UNICEF Ísland hefur nú flutt í nýtt húsnæði að Laugavegi 42, 2. hæð, ásamt UNIFEM og Félagi Sameinuðu þjóðanna. Félögin voru öll áður til húsa í Skaftahlíð 24.
UNICEF veitir 2,5 milljónum króna til hjálparstarfs í Pakistan
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur sent út 2,5 milljónir króna til neyðaraðstoðar fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan. UNICEF hefur óskað eftir 20 milljónum Bandaríkjadala (yfir einum milljarði ISK) til að geta veitt neyðaraðstoð til barna og fjölskyldna sem lifðu af jarðskjálftann.
Hjálparstarf UNICEF í Pakistan
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, vinnur nú hörðum höndum við hjálparstarf eftir jarðskjálftann sem reið yfir Pakistan, Indland og Afganistan á laugardagsmorgun. Aðeins klukkutímum eftir hamfarirnar hóf UNICEF að flytja teppi, föt, tjöld, sjúkragögn, fæðu fyrir ungabörn, sápur, vatn og vatnshreinsitöflur á svæðið.
Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu
Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Um 27 milljónir barna og 40 milljónir þungaðra kvenna eru ekki bólusett ár hvert og í 41 landi eru færri börn bólusett í dag en fyrir áratug síðan.
Saga af baráttu feðga við mænusótt
Þó að svo miklum árangri hafi verið náð í að útrýma mænusótt hafa nokkur tilfelli verið skráð í Nígeríu og nágrannaríkjum þess. UNICEF telur að ef takist ekki að útrýma mænusótt í Nígeríu geti hún ógnað veröldinni að nýju. Sjúkdómurinn leggst á börn, kripplar þau og lamar.
Fjöldi Íslendinga hefur bæst í hóp heimsforeldra
Fleiri Íslendingar hafa bæst í hóp heimsforeldra eftir söfnunarþáttinn hjá Fólk með Sirrý í gær, en skráningin gekk framar vonum. Tvær endursýningar verða á þættinum, í dag fimmtudag kl. 17:20 og á sunnudag kl. 15:10. Enn er opið fyrir söfnunarsímann 5 62 62 62.
Heimsforeldraátak UNICEF nær hámarki í söfnunarþætti í Fólk með Sirrý á SkjáEinum í kvöld. Í þættinum gefst Íslendingum kostur á að sjá með eigin augum hvernig framlögum heimsforeldra er varið og hvað lítið framlag skiptir miklu máli.
Pétur Björnsson styrkir verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá
Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri og eigandi Vífilfells, hefur veitt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Gíneu-Bissá 5 milljóna króna styrk. Fjárstuðningnum verður varið alfarið til verkefnis sem miðar að því að styrkja framleiðslu joðbætts salts í landinu og um leið veita stúlkum og ungum mæðrum menntun.
Heimsforeldrar í Fólki með Sirrý
Heimsforeldraátak UNICEF nær hápunkti næstkomandi miðvikudag, 14. september, í tveggja klukkustunda löngum söfnunarþætti hjá Sirrý á SkjáEinum, kl. 21:00-23:00. Í söfnunarþættinum verður sýnt fram á hve miklum árangri heimsforeldrar hafa náð og hvað hvert framlag skiptir miklu máli.
Fimmtudaginn, 8. sept., mun UNICEF Ísland bjóða börnum og fullorðnum, gestum og gangandi, að bragða á „Uji“, allsérstökum graut sem veittur er vannærðum börnum í Afríku og víðar. Uppákoman er í tengslum við söfnunarþátt fyrir UNICEF hjá Sirrý á SkjáEinum næstkomandi miðvikudag. Við hvetjum alla til að mæta á Ægissíðuna!!
Alvarlegt ástand í kjölfar fellibylsins Katrínar við Mexíkó-flóa
Þúsundir fórnarlamba fellibylsins Katrínar við Mexíkó-flóa búa nú við slæmar aðstæður þar sem mikil þörf er á hreinu vatni og mat. Frá og með síðastliðnum föstudegi var talið að 1,2 milljónir manna væru heimilislausar og allt að þriðjungur eða fjórðungur þeirra eru börn undir 16 ára aldri.
Þann 1. september 2004, fyrir ári síðan, réðust gíslatökumenn inn í skóla númer eitt í Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi. Tilhlökkun barna og foreldra við upphaf nýs skólaárs breyttist fljótt í martröð. Þremur dögum síðar voru yfir 170 börn látin ásamt hundruðum fullorðinna.
Matvæli og bólusetningar bjarga lífi barna í Níger
Með börn sín á bakinu bíða mæðurnar í þorpinu Tsaki þolinmóðar eftir því að fá matvæli og læknisaðstoð, en slík þjónusta er hluti af alþjóðlegu átaki til þess að stöðva hungursneyð í þessu landi sem er svo illa hrjáð af þurrkum.
Hin fjögurra ára gamla Su-Sze safnar 8.800 Bandaríkjadölum fyrir börn í Malasíu
Malasíubúar eru stoltir af hinni fjögurra ára gömlu Kam Su-Sze en hún hefur safnað meira en 33.000 malasískum ringitum (um 615.000 íslenskum krónum) fyrir UNICEF, með því að selja póstkort sem hún sjálf hafði myndskreytt.
Hungur og vannæring ógna nú lífi 3,6 milljóna manna í Níger, meðal þeirra eru 800.000 börn undir fimm ára aldri. UNICEF og samstarfsaðilar hafa lagt fram beiðni um framlag að upphæð 14,6 milljóna Bandaríkjadala til þess að stemma stigu við hungursneyðinni sem læsir nú klóm sínum um landið.
Góðir tónleikar, gott málefni og símsvörun!
Þegar svo stórt verkefni eins og útsending Live8 var á Sirkus þarf að huga að mörgu. Heimsforeldraátak UNICEF stóð yfir alla útsendinguna, eða í 12 klukkustundir, og gafst fólki kostur á að hringja í símann 5 62 62 62. Hinum megin á línunni voru alls 23 einstaklingar og fjölskyldumeðlimir þeirra, í þjónustuveri Og Vodafone
Hlutverk heimsforeldra mikilvægt
Vegna fjölda fyrirspurna síðustu daga er vert að taka það fram að heimsforeldrar styrkja ekki eitt ákveðið barn, heldur verkefni sem hjálpa mörgum börnum. Verkefnin geta t.d. verið að bólusetja öll börn í einu landi, byggja skóla, veita aðgang að vatni og hreinlætisaðstöðu, veita umönnun til HIV-smitaðra, sjá um munaðarlaus börn, frelsa börn úr stríðum og svo mætti lengi telja.
Börn og ungmenni leggja tillögur sínar fram við G8
Eftirfarandi eru niðurstöður C8-fundar UNICEF sem lauk í gær 5. júlí í Dunblane, Skotlandi. Fulltrúarnir, sem margir hafa reynslu af mikilli fátækt, HIV/alnæmi, stríði og vinnuþrælkun, voru 17 ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára frá þróunarlöndum og G8-ríkjum. Niðurstöðurnar voru kynntar í gær og afhendar fulltrúm G8 fundarins.
Fjöldi nýrra heimsforeldra bættust í hópinn á meðan á útsendingu Live8-tónleikanna stóð á Sirkus um helgina. Alls skráðu sig um 600 manns í gegnum síma og á netinu og eru íslenskir heimsforeldrar því orðnir um 4300. Gert er ráð fyrir að fleiri muni skrá sig á næstu vikum þar sem heimsforeldraátak UNICEF stendur enn með auglýsingum í sjónvarpi og útvarpi.
Um þessar mundir fer fram fyrsti C8-fundur UNICEF í Dunblane, Skotlandi, en hann hófst 3. júlí og stendur til 5. júlí, rétt áður en leiðtogar G8 ríkjanna hittast. Á fundinum munu ungmenni, undir 18 ára, frá átta af fátækustu ríkjum í heimi – Bútan, Kambódíu, Moldavíu, Jemen, Gíneu, Síerra-leone, Lesótó og Bólivíu, koma saman ásamt ungmennum frá nokkrum G8 ríkjum – Rússlandi, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og Bretlandi.
Baugur Group, Sirkus og UNICEF á Íslandi verða í samstarfi í tengslum við Live8-útsendinguna hér á landi 2. júlí nk. Á meðan fólk um allan heim safnast saman til að láta sig misskiptingu heimsins varða, eru Íslendingar hvattir til að gerast heimsforeldrar og þannig hafa áhrif á líf barna sem hafa ekki sama aðgang að lífsgæðum og við.
Skýrsla UNICEF eftir sex mánuði
Ný skýrsla UNICEF um neyðaraðgerðir- og þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum við Indlandshaf er komin út nú þegar 6 mánuðir eru liðnir frá atburðunum þar sem yfir 200 þúsund manns misstu lífið og sem skildu um 1,5 milljón börn eftir hjálparþurfi.
Neyðarhjálp úr norðri - Tilkynning
Næstkomandi sunnudag, 26. júní kl. 11:00, munu hjálparsamtökin fimm, sem stóðu að söfnunarátakinu Neyðarhjálp úr norðri, efna til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu. Þá verður hálft ár liðið frá því að flóðbylgjurnar við Indlandshaf tóku líf yfir 200 þúsund manna og skildu milljónir eftir án heimilis, lifibrauðs og ástvina.
Samantekt á aðgerðum UNICEF í Asíu
Nú, þegar hálft ár er liðið frá hamförunum við Indlandshaf, gefst hjálparstofnunum tækifæri á að líta yfir árangur starfs síns og verkefnin framundan. UNICEF Ísland hefur þegar sent yfir 11,5 milljónir króna til hamfarasvæðanna af rúmlega 18 milljónum sem UNICEF Ísland hafði til ráðstöfunar frá Neyðarhjálp úr norðri.
Mismunandi þarfir landanna við Indlandshaf
Hvert þeirra átta landa sem lentu í flóðbylgjunum við Indlandshaf hafa mismunandi þarfir, allt frá því að endurbyggja skóla til að koma á viðunandi vatns- og hreinlætiskerfi. UNICEF styrkir hvert land fyrir sig og fer eftir heildaráætlun hverrar ríkisstjórnar um uppbyggingu.
Þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum hefur gengið vonum framar; ekki hefur orðið vart við sjúkdómsfaraldra, enginn dó úr hungri, börn eru farin aftur í skóla og fólk var haldið við góða heilsu og verndað. Hjálparstofnanir hafa þó þurft að takast á við ýmis vandamál síðastliðið hálft ár.
Nemendur 6. bekkjar í Gerðaskóla héldu tombólu á vorhátíð skólans á dögunum og gáfu þeir allan ágóðann til UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Bekkurinn safnaði alls 17.171 krónu og hefur fjárstuðningnum verið veitt viðtöku. UNICEF mun nota peninginn til hjálpar öðrum börnum sem minna mega sín í heiminum.
Með sól í hjarta og söng á vörum
Þessar ungu stúlkur, Bergþóra Björg, Þorbjörg Eva og Elva Dögg, eiga heima á Raufarhöfn. Í tilefni af sumarkomunni gengu þær í hús á Raufarhöfn og sungu til styrktar UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þær söfnuðu 2.616 krónum. Framlag þeirra Bergþóru, Þorbjargar og Elvu er kærkominn stuðningur við börn sem eiga um sárt að binda.
Ann M. Veneman tekur við sem framkvæmdastjóri UNICEF
Ann M. Veneman er nýr framkvæmdastjóri UNICEF og tók hún við nú um síðustu mánaðarmót og varð þar með fimmti framkvæmdastjóri UNICEF í 60 ára sögu samtakanna. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá tækifæri til að leiða UNICEF, sem eru ein merkustu hjálparsamtök í heimi,“ sagði Veneman á sínum fyrsta starfsdegi í höfuðstöðvunum í New York.
Björk gefur út geisladisk til styrktar UNICEF
Næstkomandi mánudag, 2. maí, mun geisladiskur sem Björk Guðmundsdóttir gefur út til styrktar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vera dreift í búðir hér á landi. Drifin áfram af þeim hrikalegu áhrifum sem hamfarirnar í kjölfar flóðbylgnanna í Asíu höfðu á börn á svæðinu, ákvað Björk að setja saman safn af útgáfum annarra á lagi hennar „Army of Me“.
Bellamy kveður UNICEF eftir tíu ára setu í stól framkvæmdastjóra
Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF, lýkur tíu ára tímabili sínu sem framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, um næstu mánaðarmót. Árangur UNICEF í forystu Bellamy er ótvíræður. Hún hefur ekki bara lagt áherslu á að bjarga lífi barna, heldur einnig á að tryggja þeim góðan uppvöxt í vernduðu og barnvænu umhverfi.
Of mörg börn ganga ekki í skóla
Þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í menntun barna í þróunarlöndunum ganga of mörg börn ekki í skóla, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF. Skýrslan, sem nefnist „Progress for Children”, fjallar um jafnrétti kynjanna og grunnmenntun. Hún er samstarfsverkefni margra aðila innan alþjóðasamfélagsins sem vilja stuðla að því að menntun sé jafn aðgengileg stúlkum sem drengjum.
Allsérstakur sumarglaðningur mun berast inn á hvert heimili á Íslandi fyrstu viku sumars. Um er að ræða DVD disk með teiknimyndinni Kötu – litlu lirfunni ljótu á alls sjö tungumálum. Skýringin á þessum sumarglaðningi er sú að Umhyggja – félag til styrktar langveikum börnum og UNICEF Ísland hafa tekið höndum saman.
UNICEF vill tryggja öryggi barna í skólastofum í Nepal nú þegar nýtt skólaár er að hefjast þar í landi. Nýtt skólaár á að vera tækifæri til að tryggja það að ofbeldi og ótti verði ekki hluti af skólanáminu, segir fulltrúi UNICEF í Suður-Asíu.
UNICEF tekur nú þátt í neyðaraðgerðum, ásamt öðrum hjálparsamtökum innan Sameinuðu þjóðanna, í kjölfar jarðskjálftans við strendur Indónesíu í gær. UNICEF mun dreifa hjálpargögnum til skjálftasvæðanna svo sem segldúkum, tjöldum, vatnstönkum og sjúkrakössum, sem hannaðir eru fyrir slíkar aðstæður.
Harry Belafonte sendir Íslendingum kveðjur
Stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, mun senda Íslendingum bréf sem fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn, 15. mars. Harry Belafonte kom til landsins á vegum UNICEF Ísland í nóvember síðastliðnum í þeim tilgangi að hvetja fólk til að gerast heimsforeldrar og láta sig málefni barna varða.
Laugardaginn 12. mars fagnaði landsnefnd UNICEF á Íslandi eins árs afmæli sínu. Af því tilefni var slegið upp barnaafmæli í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Skaftahlíð 24. Boðið var upp á barnaafmælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu frumskógum Afríku. Barnakór Ísaksskóla söng afmælissönginn, Hótel jörð og lag úr Línu Langsokk.
Yfir 440 börn njóta góðs af styrk Baugs í Gíneu-Bissá
Baugur Group styrkir nú verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem snýr að umönnun ungabarna í Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá. Styrkurinn hljóðar upp á 20 milljónir króna og er það hæsti styrkur sem veittur hefur verið af fyrirtæki á Íslandi til eins þróunarverkefnis.
Jarðskjálfti mældist 6.4 á Richter skala í suðvesturhluta Íran í nótt. Þarlendir fjölmiðlar segja að um 175 manns hafi týnt lífi og miklu fleiri hafi slasast. Landskrifstofa UNICEF í Íran hefur sent hjálparstarfsmenn til jarðskjálftasvæðisins, en aðstæður þar eru erfiðar vegna rigninga.
UNICEF fer á jarðskjálftasvæðin í Íran
Sérfræðingar UNICEF í neyðaraðstoð eru komnir til jarðskjálftasvæðisins í Zarand, í suðvesturhluta Íran, til að meta eyðilegginguna og hvort að þörf sé fyrir neyðaraðstoð. Tala látinna er kominn upp í 400 og hafa um 30 þúsund manns orðið fyrir einhvers konar áhrifum af völdum skjálftanna.
Um 246 milljónir barna í vinnuþrælkun
Í dag kynnti landsnefnd UNICEF á Bretlandi nýja skýrslu sína um barnaþrælkun, en samkvæmt henni eru 246 milljónir barna í ánauð vinnuþrælkunar í dag. Börn, allt niður í fimm ára gömul, eru svift frelsinu sem fylgir barnæskunni og þeim grundvallarréttindum sem öll börn eiga að hafa eins og t.d. að ganga í skóla.
Íslensk ættleiðing styrkir verkefni UNICEF á flóðasvæðunum
Félagið Íslensk ættleiðing veitti í gær styrk til verkefna UNICEF á flóðasvæðunum við Indlandshaf. Styrkupphæðin er 305 þúsund krónur en það samsvarar þúsund krónum á hvert barn sem hefur verið ættleitt frá þeim löndum sem lentu í hamförunum annan í jólum.
Börnin komin í skólana og farin að brosa aftur
Hambantota er lítið fiskiþorp á suðurströnd Sri Lanka varð illa úti í hamförunum. Bærinn var eitt sinn þekktur fyrir fiski- og saltiðnað sinn, en flóðbylgjan eyðilagði byggingar, báta og bryggjur og lamaði þar með efnahag bæjarins. Þúsundir fjölskyldna eru nú án atvinnu. UNICEF hefur hrint af stað viðamiklu átaki í þessu svæði.
Neyðarástand í Lýðveldinu Kongó
Neyðarástand hefur skapast í Lýðveldinu Kongó (Kinshasa) vegna átaka í austurhluta landsins. UNICEF aðstoðar nú um 50 þúsund almenna borgara sem hafa þurft að flýja í flóttamannabúðir. Verstu átökin eiga sér stað á svæðinu Djugu, norður af Bunia. Samkvæmt UNICEF hafa flest þorpin verið rænd og brennd af vopnuðum hópum.
Samkeppni einnar mínútu myndbanda
UNICEF vekur athygli á því að þann 1. mars er lokaskiladagur í hinni árlegu einnar-mínútu-myndbanda samkeppni. Ungmenni og fullorðnir frá öllum heimshornum geta tekið þátt. Vinnusmiðja einnar mínútu myndbanda var haldin hér á landi í október síðastliðnum en þá tóku 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum þátt með glæsilegum árangri.
Stjörnurnar flykkjast að til að styrkja fórnarlömb flóðbylgjunnar
Sameinuðu þjóðirnar, Barnahjálp SÞ og tónlistarstöðin MTV hafa tekið höndum saman og munu halda söfnunartónleika þann 3. febrúar kl. 15:00 í Bangkok, Tælandi. Fram koma margir af þekktustu tónlistamönnum nútímans og nokkrir gamlir og góðir. Meðal þeirra eru Bryan Adams, Ashanti, Enrique Iglesias, og fleiri..,
UNICEF fagnar framlagi Gates-sjóðsins og Noregs til bólusetninga
UNICEF fagnaði í dag nýjum framlögum frá Sjóði Bill og Melindu Gates og ríkisstjórn Noregs til hnattrænna bólusetningarverkefna, en framlögin nema yfir 1 milljarði Bandaríkjadala sem deilist yfir tíu ára tímabil. UNICEF sem er leiðandi í bólusetningum barna, fagnaði þessari framtíðarskuldbindingu við bólusetningar.
Ann Veneman tekur við af Carol Bellamy í maí 2005
Ann Veneman, fráfarandi landbúnaðarherra Bandaríkjanna, var á dögunum útnefnd af Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem næsti framkvæmdastjóri UNICEF – Barnahjálpar SÞ. Veneman mun taka við af Carol Bellamy, sem nú hefur gegnt stöðu framkvæmdarstjóra UNICEF í tíu ár.
Landssöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri" fékk frábærar viðtökur hjá landsmönnum og ljóst er að yfir 110 milljónir hafa safnast fyrir fórnarlömb hamfaranna við Indlandshaf einungis með þessari söfnun. Söfnunarþáttur í samsendri útsendingu Ríkissjónvarpsins, Stöðvar 2 og Skjás eins gekk mjög vel og sýndi hvernig samstaða og samstarf ólíkra aðila getur skipt sköpum í söfnun sem þessari.
Dagskrá söfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri
Söfnunarátakið Neyðarhjálp úr norðri stendur nú sem hæst en mun ná hámarki í söfnunarþætti á þremur sjónvarpsstöðvum samtímis á morgun, laugardag. Margir skemmtilegir atburðir eru í kringum söfnunina, það stendur nú yfir uppboð, fyrirtæki geta skorað á hvort annað, leikhúsin og bíóhúsin verða með sýningar til styrktar söfnuninni.
David Beckham skipaður velgjörðarsendiherra UNICEF
Nýskipaður velgjörðarsendiherra UNICEF, David Beckham, mun taka þátt í sjónvarpsherferð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlömbum flóðanna í löndunum við Indlandshaf. UNICEF áætlar að það kosti rúma 9 milljarða íslenskra króna að tryggja að þörfum barna verði mætt næstu sex mánuði.
Velgjörðarsendiherrar UNICEF tala um hamfarirnar við Indlandshaf
Fólk um allan heim er snortið af þeim hörmungum sem áttu sér stað annan dag jóla. Velgjörðarsendiherrar UNICEF hafa látið til sín taka til að vekja athygli á neyð þeirra sem lifðu af og ekki síst til að hvetja fólk að styrkja hjálparstofnanir á borð við UNICEF sem nú starfa dag og nótt við neyðaraðstoð.
500 manns hafa á fyrsta degi hringt í söfnunarsíma átaksins og gefið 809.000 kr. Fyrirtæki sýna hugkvæmni m.a. getur fólk keypt kaffi frá Aceh-héraði og lagt söfnuninni þannig lið. Dagskrá á Glerártorgi á Akureyri á laugardaginn verður í höndum listamanna úr fjórðungnum. Fleiri sjálfboðaliða vantar í verslunar-miðstöðvarnar föstudag og laugardag.
Clinton-sjóðurinn og UNICEF hefja vatnsátak á flóðasvæðunum
Bill Clinton fyrrvverandi forseti Bandaríkjanna og Carol Bellamy, framkvæmdarstjóri UNICEF tilkynntu í gær sameiginlegt átak þar sem ætlað er að færa börnum og fjölskyldum þeirra, sem lentu í flóðbylgjunni, hreint drykkjarvatn og hreinlætiskerfi (vatnslagnir, skolplagnir o.fl.).
Í dag, þriðjudag, hófst landssöfnun þriggja sjónvarpsstöðva, þriggja verslunarmiðstöðva, níu útvarpsstöðva, þriggja dagblaða, listamanna, fyrirtækja og almennings til hjálpar þeim sem lifðu af hamfarirnar í Asíu. Söfnunarfénu verja fimm mannúðarsamtök; Barnaheill - Save the Children, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, SOS barnaþorp og UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Yfirlitsgrein yfir starf UNICEF á hamfarasvæðunum
UNICEF starfar í öllum þeim löndum sem urðu verst úti í hamförunum og gat því strax hafið víðtæka neyðaraðstoð. UNICEF telur að a.m.k. einn þriðji hinna látnu hafi verið börn og að yfir 1,5 milljón barna séu nú hjálparþurfi. UNICEF gerir allt til að tryggja að þörfum barna sé mætt og að sú kynslóð sem lenti í hamförunum muni fá þá aðstoð sem á þarf að halda.
Aðgerða krafist við að bjarga börnunum frá misnotkun
Þörf er á tafarlausum aðgerðum á flóðasvæðunum ef bjarga á börnunum frá misnotkun, vændi og ofbeldi, og til að koma í veg fyrir að þau gleymist, samkvæmt fréttum frá aðalstöðvum UNICEF þann 8. janúar. UNICEF skipuleggur lykilaðgerðir sem nauðsynlegar eru til að vernda munaðarleysingja og önnur börn.
Samstarfshópur einstaklinga, fyrirtækja og fjölmiðla undirbýr nú landssöfnun til styrktar þeim sem þjást vegna hamfaraflóðanna í Asíu. Söfnunin hefst á mánudag og nær hámarki með sjónvarpsútsendingu laugardaginn 15. janúar. Verndari söfnunarinnar og talsmaður verður Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands.
Nemendafélag Tækniháskólans styrkir neyðaraðstoð í Suður-Asíu
Nemendafélag Tækniháskólans færði UNICEF Ísland framlag á dögunum að upphæð 100.000 krónur. Framlagið er til stuðnings neyðar- og uppbyggingarstarfi Barnahjálparinnar á flóðasvæðunum í Suður- og Suðaustur-Asíu. UNICEF er með viðamikla starfsemi á hamfarasvæðunum og einbeitir sér sérstaklega að þörfum barna.
Dæmi um kostnað í neyðaraðstoð
Oft gera einstaklingar sér ekki grein fyrir því hvað fjárstuðningur þeirra skiptir miklu máli og í hvað peningarnir eru nákvæmlega að fara. UNICEF hefur sett fram verðdæmi af hinum ýmsu þáttum neyðaraðstoðar. Af þessum dæmum má sjá hvað það kostar lítið að bjarga mannslífum og bæta líf þúsunda manna.
UNICEF bregst fljótt við hamförunum í Asíu
Neyðaraðstoð frá UNICEF hefur nú borist eða er komin vel á leið til þeirra svæða sem verst urðu úti eftir flóðbylgjurnar í síðustu viku. UNICEF brást strax við fréttunum af flóðbylgjunum í Asíu með sendingu 200.000 neyðarsjúkrapakka frá birgðastöðinni í Kaupmannahöfn. Nokkru síðar höfðu fimm flugvélafarmar með ýmsum neyðargögnum verið sendir.
Börn hafa orðið illa úti í hamförunum í Asíu
Áætlað er að börn, sem þurfa á neyðaraðstoð að halda, séu nú um 1,5 milljónir. Mörg þeirra hafa misst foreldra sína eða hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar og þurfa nauðsynlega á umhyggju og stuðningi að halda. UNICEF áætlar að meira en einn þriðji þeirra sem létust í flóðunum hafi verið börn.
Önnur tegund hamfara gæti fylgt
Hætta er á að önnur tegund hamfara bíði þeirra sem björguðust frá flóðunum í Asíu. Um þessar mundir ógna sjúkdómar, hungursneyð og heimilisleysi lífi og bata milljóna manna. UNICEF og aðrar hjálparstofnanir vinna nú hörðum höndum að því að bjarga mannslífum og veita fórnarlömbum flóðanna alla þá aðstoð sem hægt er við erfiðar aðstæður.