English version

Fréttasafn 2006

 

UNICEF óskar landsmönnum gleðilegs nýs árs

29.des.2006

UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Fjölmargir hafa komið að starfinu með einum eða öðrum hætti á árinu sem er að líða. UNICEF þakkar bakhjörlum, heimsforeldrum og þeim sem stutt hafa börn víða um heim á liðnu ári í gegnum UNICEF.


 


Mikið hefur áunnist, en margt á enn eftir að gera

14.des.2006

Brátt verða tvö ár liðin frá því flóðbylgja fór yfir strendur landa við Indlandshaf og skók samfélögin þar, sem og alla heimsbyggðina. Af því tilefni gefur UNICEF út skýrslu þar sem kemur fram hvað hefur áunnist á þessum tveimur árum, farið er yfir aðstæður barna í dag og hver næstu skrefin verða í hjálparstarfinu.


 


Eflum vald kvenna til hjálpar börnum

11.des.2006

Ný skýrla um aðstæður barna um allan heim. Samkvæmt skýrslunni leiðir jafnrétti kynjanna til „tvöfalds arðs“ fyrir bæði konur og börn og er nauðsynlegt fyrir heilbrigði og þróun fjölskyldna, samfélaga og þjóða.


 


Fyrsti bekkur Nesskóla býr til rauð nef

01.des.2006

Fyrsti bekkir Nesskóla Neskaupstað ákváðu í tilefni Dags rauða nefsins að fræðast um hvað dagurinn gengi út á. Nefnilega að gera góðverk og gefa til þeirra sem minna mega sín í þessum heimi. Börnin í Nesskóla fræddust um börnin í Afríku, skoðuðu myndir og kennararnir sögðu þeim frá því hvers vegna þessi dagur væri haldinn.


 


Svasíland með augum Sigur Rósar

01.des.2006

Á haustdögum ferðaðist hljómsveitin Sigur Rós til Svasílands á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi til að kynna sér HIV-verkefni samtakanna þar í landi. Ferðin hafði mikil áhrif á hljómsveitina og ákváðu þeir að efna til sýningar á ljósmyndunum sem þeir tóku í heimsókninni. Sýningin ber yfirskriftina: Yfirgefna kynslóðin: Svasíland með augum Sigur Rósar.


 


Bylgjan brosir með UNICEF - Þátttaka fyrirtækja á Degi rauða nefsins

01.des.2006

Bylgjan brosir með UNICEF á Degi rauða nefsins 1. desember og er með brandara-átak fyrir fyrirtæki og vinnustaði. Þetta er kjörið tækifæri fyrirtækja til að leggja átakinu lið og styrkja bágstödd börn víða um heim.


 


Valgerður Sverrisdóttir heimsækir birgðastöð UNICEF

28.nov.2006

Á dögunum heimsótti Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, birgðastöð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn þar sem hún kynnti sér hvernig UNICEF pakkar og sendir hjálpargögn til barna um allan heim.


 


Íslensk fyrirtæki styrkja dreifingu malaríu-flugnaneta í Gíneu-Bissá

21.nov.2006

Í síðustu viku hófst átak UNICEF í Gíneu-Bissá um að koma í veg fyrir malaríusmit. Í átakinu verður 180 þúsund malaríu-flugnanetum dreift til barna og mæðra þeirra, börn fá A-vítamín og lyf við ormum í maga. Áætlað er að flugnanetin komi til með að bjarga 4000 börnum á ári sem annars myndu deyja af völdum malaríu.


 


Borgarstjórn setur formlega sölu á rauðum nefjum af stað

13.nov.2006

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, ásamt allri borgarstjórn, lögðu sitt af mörkum í dag og keyptu rauð trúðanef. Með þessu opnaði borgarstjórn formlega söluna á rauðu nefjunum. Rauðu nefin koma í allar verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar ESSO í dag og kosta 500 krónur.


 


Rauðu nefin komin í verslanir um allt land

13.nov.2006

Rauðu trúðanefin eru komin í verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar Essó um allt land. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF um allan heim... Þannig að ef þú kaupir nef gleður þú ekki aðeins þá sem sjá þig, heldur getur þú glatt börn í sárri neyð.


 


Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar UNICEF... með rautt nef!

09.nov.2006

Í dag skrifuðu fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi. Samningarnir hljóða upp á 60 milljónir króna og ná til næstu þriggja ára. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.


 


Fimm fyrirtæki gerast bakhjarlar UNICEF á Íslandi

09.nov.2006

Í dag skrifa fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins; Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip, undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi til næstu þriggja ára. Samningurinn hljóðar upp á 60 milljónir króna. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.


 


Dagur rauða nefsins í fyrsta skipti á Íslandi

02.nov.2006

Í næstu viku hefst söfnunarátak UNICEF Dagur rauða nefsins sem nær hámarki með sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 þann 1. desember. Lag Baggalúts „Brostu“ verður kynnt í þætti Hemma Gunn í kvöld (2. nóv), en það var samið sérstaklega fyrir átakið.


 


Skýrsla framkvæmdarstjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum

12.okt.2006

Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel félagslega samþykkt samkvæmt nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem gerð er heildstæð greining á ofbeldi gegn börnum um allan heim.


 


Sameinuðu þjóðirnar fordæma aukið ofbeldi í Darfur héraði

09.okt.2006

Ofbeldi gegn konum og börnum í Darfur héraði er orðið ógnvænlega algengt. Títt hefur verið um gróft ofbeldi frá því borgarastríðið hófst árið 2003, en síðastliðna mánuði hefur þó árásum á konur og börn, bæði innan og utan flóttamannabúða, stórfjölgað.


 


Palestínsk börn fá sálræna aðstoð

05.okt.2006

Á þessu ári hefur 91 barn týnt lífi sínu í átökum á Vesturbakkanum og Gaza, það er nærri helmingi fleiri en allt árið 2005. Ótti og ofbeldi er hluti af daglegu lífi barna á hernumdu svæðum Palestínu og þau þjást vegna aukins óróleika og kvíða.


 


Neyðin í Darfur - yfirlýsing frá framkvæmdastjóra UNICEF

15.sep.2006

Eftirfarandi yfirlýsing var send frá Ann M. Veneman, framkvæmdastjóra UNICEF í dag: „Enn eru börn fórnarlömb tilgangslausra morða í Darfur. Áætlað er að 400 þúsund manns hafi týnd lífi í átökunum. Um 1,9 milljónir manna hafi þurft að flýja heimili sín og nærri 3 milljónir þurfa að treysta á alþjóðlegar hjálparstofnanir um mat, skjól og heilsugæslu.


 


Samstarf UNICEF og fótboltaliðs Barselóna

08.sep.2006

Fótboltafélagið Barselóna og UNICEF kynntu í gær samstarf um að bæta líf barna í þróunarlöndunum. Þau fyrstu sem munu njóta góðs af samstarfinu eru börn sem hafa orðið fórnarlömb HIV/alnæmis í Svasílandi. Barselóna kynnti nýja treyju fyrir árið 2006-2007 sem skartar UNICEF lógóinu í fyrsta skipti að framan.


 


Tvær flugur í einu höggi - áhrifarík neyðaraðstoð í Líbanon

06.sep.2006

Verið er að veita mikla neyðaraðstoð í Líbanon og hefur UNICEF þróað nýjar og áhrifaríkar leiðir til að ná sem mestum árangri fyrir sem minnst fé. Strax eftir að sprengjuárásum Ísraela lauk hóf UNICEF að dreifa miðum og hengja upp veggspjöld sem miðuðu að því að fræða fólk um hvernig UXO-klasasprengjur líta út og hvernig á að bera sig að ef fólk finnur slíkar sprengjur.


 


Börn fara aftur í skóla

24.ágúst.2006

Um þessar mundir eru íslensk börn að byrja í skóla á ný eftir sumarfrí. Í Líbanon er ástandið viðkvæmt en samkvæmt UNICEF liggur nú mikið við að skólastarf í Líbanon raskist sem minnst. UNICEF styrkir verkefni ríkisstjórnar Líbanon sem eiga að tryggja það að börn byrji í skólanum á réttum tíma.


 


Mikill vatnsskortur í Líbanon

22.ágúst.2006

Fyrstu athuganir benda til að allt vatnskerfi í suðurhluta Líbanon sé mikið skemmt eftir mánaðarlöng átök þar. Af tólf stöðum, sem urðu fyrir árásum, voru vatnsleiðslur á tíu þeirra illa skemmdar eða gersamlega eyðilagðar, samkvæmt fréttum frá fulltrúum UNICEF í Líbanon.


 


Sprengingar í Sri Lanka

15.ágúst.2006

Sprengingarnar síðastliðinn mánudag í Mullaitivu svæði, sem urðu fjölda stúlkna að bana og særðu enn fleiri, er afleiðing vaxandi ofbeldis á Sri Lanka. „Þessi börn eru saklaus fórnarlömb ofbeldis,“ sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF í dag.


 


Ástandið í Líbanon versnar dag frá degi - lélegar samgöngur hamla hjálparstarfi

04.ágúst.2006

Ástandið í Líbanon versnar dag frá degi eftir að Ísraelar hófu árás á suðurhluta landsins 12. júlí síðastliðinn. UNICEF hóf strax víðtæka neyðaraðstoð þrátt fyrir að erfitt sé að komast að vissum svæðum þar sem allir vegir og flugvellir hafa verið eyðilagðir. Þegar þetta er ritað er tala látinna 860 og 3265 liggja særðir vegna átakanna, en ljóst er að fleiri munu liggja í valnum ef heldur áfram sem horfir.


 


Neyðarástand vegna átakanna í Austur-Kongó

24.jul.2006

Í nýrri skýrslu UNICEF sem kynnt var í dag kemur fram að 1200 manns láta lífið daglega sökum átakanna í Austur-Kongó. Helmingur þeirra eru börn. Talið er að tugir þúsunda íbúa hafi orðið fórnarlömb ofbeldis, en miklu fleiri hafa látist vegna sjúkdóma og vannæringar sem rekja má til átakanna.


 


Ástandið í Líbanon versnar

18.jul.2006

Samkvæmt upplýsingum frá UNICEF fer ástandið í Líbanon hraðversnandi eftir að átök brutust þar út. Áætlað er að átökin hafi þegar kostað yfir 200 borgara lífið og sært yfir 400, um 30 prósent þeirra eru börn. Talið er að um 400 þúsund manns hafi flúið heimili sín. Flest þeirra hafa flust til ættingja og vina á öruggari svæðum, en allt að 40 þúsund manns hafa leitað skjóls í skólabyggingum.


 


Tímamót í sögu UNICEF á Íslandi

14.jul.2006

Framkvæmdastjóri UNICEF Ann M. Veneman heimsótti landsnefndina á Íslandi í dag föstudaginn 14. júlí. Tilefnið var að skrifa undir samstarfssamning við UNICEF Ísland til frambúðar. Þessi undirritun vakti mikla fjölmiðlaathygli enda stór tímamót fyrir landsnefndina.


 


Ann M. Veneman heimsækir Ísland

11.jul.2006

Framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, mun heimsækja Ísland næstkomandi föstudag. Um þessar mundir eru rúm tvö ár frá því landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi hóf störf og mun UNICEF nú gera framtíðarsamning við landsnefndina sem þýðir að landsnefndin starfar áfram undir merkjum UNICEF og skuldbindur sig til að afla fjár fyrir verkefni UNICEF og fylgja stöðlum samtakanna.


 


Leikskólakrakkar selja myndir til styrktar UNICEF

22.jun.2006

Nemendur og kennarar leikskólans Vesturbergs héldu Listahátíð þann 11.maí í Listasafni Reykjanesbæjar, Duushúsum. Haldin var myndlistasýning með myndum eftir leikskólakrakkana að dagskrá lokinni og stóð sýningin yfir í nokkra daga. Verkin hafa síðan verið til sölu og seldust upp nú í júní og rann ágóðinn til UNICEF Ísland.


 


UNICEF veitir neyðaraðstoð á eyjunni Jövu í Indónesíu

01.jun.2006

Nú er ljóst að tæplega 6.000 manns fórust í jarðskjálftanum sem reið yfir eyna Jövu í Indónesíu laugardaginn 27. maí. Þúsundir særðust í skjálftanum og um 200.000 manns eru taldir hafa misst heimili sín. Frá því á mánudag hefur UNICEF unnið ötullega að því að koma neyðargögnum til fórnarlamba jarðskjálftans.


 


Börn safna handa börnum

30.maí.2006

Í tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla fór fram söfnun í vikunni 15.-19.maí sem að stóðu nemendur og starfsfólk skólans til styrktar UNICEF. Söfnunarbaukur var í sal skólans alla vikuna og var vel gætt af nemendum skólans, en þeir sáu til þess að söfnunin færi vel fram. Hvatt var til þess að hver og einn kæmi með sem svarar 70 kr.


 


Þurrkar ógna börnum í austurhluta Afríku

15.maí.2006

Á síðastliðnum árum hafa þurrkar í austurhluta Afríku sífellt versnað. Árið 2000 dóu tæplega 100.000 manns vegna þurrka í sama héraðinu. Meirihluti þeirra sem þurrkarnir hafa áhrif á eru hirðingjarnir og fjölskyldur þeirra sem flakka um löndin Sómalíu, Eþíópíu, Kenía, Djibouti og Erítreu í leit að æti fyrir hjarðir sínar.


 


Íslenskir aðilar styrkja alheimsátak gegn mænusótt

04.maí.2006

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi tilkynnti í dag um rúmlega 20,5 milljóna króna styrk frá Hreini Loftssyni hrl., Lýsi hf., Frímúrarareglunni á Íslandi, Eimskipi, Samherja, Klofningi, Íslensku umboðssölunni, Sölku-Fiskmiðlun, Norlandiu, Ice-Group og Félagsbúinu Miðhrauni til bólusetningarverkefnis UNICEF gegn mænusótt í Nígeríu.


 


Lítið dregið úr vannæringu barna

02.maí.2006

Samkvæmt nýrri skýrslu sem UNICEF kynnti í dag hefur lítið sem ekkert dregið úr vannæringu barna í þróunarlöndunum síðustu 16 árin. Tæpur helmingur vannærðra barna í heiminum býr í Pakistan, Bangladesh og Indlandi í Suður-Asíu. Afturför gætir hjá sumum ríkjum Miðausturlanda og framfarir eru hægar meðal barna í Afríku.


 


UNICEF kynnir styrkveitingu til verkefnis í Nígeríu

28.apr.2006

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, mun kynna stuðning fjölda íslenskra fyrirtækja og einstaklinga við stórt styrktarverkefni Barnahjálparinnar í Nígeríu fimmtudaginn 4. maí nk. Um er að ræða sameiginlegt átak nokkurra fyrirtækja sem stunda viðskipti í Nígeríu, auk annarra fyrirtækja og einstaklinga.


 


Dúkkur í sumargjöf

18.apr.2006

Nú er lóan komin að kveða burt snjóinn og sumardagurinn fyrsti á næsta leyti. Á þeim degi gefa margir sumargjöf og eru dúkkurnar sem gleðja tilvalin sem slík. Þær voru saumaðar síðasta sumar af konum í 90 kvenfélögum víðsvegar að af landinum til styrktar stúlkum í Gínea-Bissá.


 


Landið sem gleymdist

06.apr.2006

UNICEF Ísland vekur athygli á nýrri heimildamynd Dúa J. Landmark um Vestur Afríkuríkið Gíneu-Bissá, menningu þess, stöðu barna og verkefni UNICEF. Myndin verður frumsýnd í Sjónvarpinu 11. apríl kl. 21:15 og endursýnd á Páskadag 16. apríl kl. 11:05. Myndin er mjög sláandi og sýnir vel hvernig fólk reynir að draga fram lífið þrátt fyrir erfiðar aðstæður.


 


Barnasáttmálinn kynntur í 6. bekk

05.apr.2006

UNICEF Ísland dreifir nú í annað sinn bæklingnum „Öll börn eiga rétt“ um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda og Námsgagnastofnun. Bæklingnum er dreift til allra 6. bekkinga á landinu og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur.


 


Nemendur FAS styrkja UNICEF

03.apr.2006

Nemendur FAS, Framhaldskóla Austur-Skaftafellssýslu héldu styrktartónleika í nóvember síðastliðnum og söfnuðu 100 þúsund krónum sem runnu til UNICEF. Fyrir tónleikana fengu þau menningarverðlaun Hornafjarðar í febrúar.


 


Vinningshafi Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi styrkir UNICEF

28.mar.2006

UNICEF Ísland barst óvæntur styrkur frá vinningshafa Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi, Hjalta Vigfússyni 12 ára, að upphæð 15 þúsund krónur. Er það UNICEF Ísland sérstaklega mikill heiður að veita þessum styrk móttöku þar sem Stóra upplestrarkeppnin vinnur að því að efla vitund og styrk ungmenna líkt og Barnahjálpin gerir víðsvegar um heiminn.


 


Ungmenni taka þátt í baráttunni gegn alnæmi

23.mar.2006

Samkvæmt tölum frá UNAIDS breiðist HIV hraðast út í Austur Asíu en á nokkru öðru svæði í heiminum. ,,Við erum á krossgötum á þessu svæði og til að bregðast við með öflugum hætti verður að taka tillit til barna og ungmenna og þau verða að taka þátt,” sagði svæðisstjóri UNICEF í Austur Asíu, Anupama Rao Singh, við opnun ráðstefnu um börn og HIV/alnæmi í Austur Asíu og Kyrrahafinu sem hófst í Hanoi í Víetnam í gær.


 


Unicef 60 ára

16.mar.2006

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, var stofnuð í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1946 og fagnar því 60 ára afmæli sínu í ár. Á þessum áratugum hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn.


 


Börn í Bangladess fá bólusetningu

10.mar.2006

Í síðasta mánuði fóru bólusetningarteymi, stutt af UNICEF, um Bangladess í stærsta bólusetningarverkefni gegn mislingum í heimi. Áætlað er að ná til 33,5 milljóna barna. Teymin fóru á alla staði sem börn eru að finna; í skóla, garða, stofnanir, íbúðahverfi, strætóa og lestarstöðvar.


 


Reynt að svindla á íslenskri ferðaþjónustu í nafni UNICEF

07.mar.2006

Vegna fréttar um að erlendir einstaklingar svindluðu pening frá aðilum í ferðaþjónustu í nafni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eða annarra samtaka vill UNICEF á Íslandi koma eftirfarandi á framfæri:


 


Skólar opna aftur á Fílabeinsströndinni

02.mar.2006

Ríkisstjórn Fílabeinsstrandarinnar hefur ákveðið að taka upp próf að nýju og mun það gera 80 þúsund nemum kleift að taka þau próf sem nauðsynleg eru til að halda áfram menntun sinni. Vegna mikilla óeirða í landinu hefur réttur barna til náms verið margbrotinn.


 


Baráttan gegn mænusótt í Nígeríu heldur áfram

14.feb.2006

Baráttan gegn mænusótt í Nígeríu heldur áfram þar sem áætlað er að útrýma sjúkdómnum árið 2007. Ljóst er að UNICEF og samstarfsaðilar hafa mikið verk fyrir höndum til að það megi nást. UNICEF í Nígeríu sendi upplýsingar um stöðu mála þar í landi. Þann 3. febrúar 2006 höfðu 786 mænusóttartilfelli verið staðfest í 21 héraði í Nígeríu fyrir 2005. Til samanburðar voru tilfellin 779 í 30 héruðum árið 2004.


 


Björk í Banda Aceh

06.feb.2006

Björk Guðmundsdóttir fór til Banda Aceh, á norðanverðri Súmötru í Indónesíu, dagana 26.-27. janúar. Tilgangur heimsóknar hennar var að heimsækja verkefni og uppbyggingarstarf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eftir flóðbylgjuna sem reið yfir löndin við Indlandshaf fyrir rúmu ári síðan.


 


Bindum endi á misnotkun barna í Simbabve

25.jan.2006

Eftir fréttir þess efnis að skólastjóri hafi verið kærður vegna ásakana um hafa nauðgað sex nemendum í barnaskóla hefur UNICEF brugðist harkalega við og hafið herför gegn misnotkun barna í Simbabve. UNICEF telur það mjög alvarlegt að kynferðisofbeldi og önnur misnotkun á börnum hafi aukist í Simbabve.


 


Neyðarástand ríkir í 29 löndum

23.jan.2006

UNICEF þarf 805 milljónir bandaríkjadollara til að hjálpa börnum og konum í aðstæðum sem samtökin skilgreina sem neyðarástand. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF um neyðarástand, Humanitarian Action Report, sem kynnt var í dag, en þar er sérstaklega fjallað um ástandið í 29 löndum.


 


Þurrkar ógna börnum í Kenía

19.jan.2006

Einn mesti þurrkur í Kenía í áraraðir ógnar nú lífi og heilsu þúsunda barna í norðurhluta landsins. Nýlegur regntími var stuttur í norður- og austurhluta landsins þar sem fólk lifir á hirðingjabúskap. Undir venjulegum kringumstæðum ætti búfénaður að vera við góða heilsu og nærast á nýsprottnu grasi, en í stað þess liggja hræ þeirra við vegina.


 


Vefsíða vegna hamfaranna við Indlandshaf

13.jan.2006

Opnuð hefur verið vefsíða vegna þess að ár liðið frá hamförunum við Indlandshaf og landssöfnuninni Neyðarhjálp úr norðri. Þar má sjá skýrslu UNICEF um hamfarirnar sem kom út í desember og aðgengilegar upplýsingar fyrir almenning og fjölmiðla.


 


Flóðbylgjukynslóðin er vongóð um framtíðina

06.jan.2006

Börn í Indónesíu eiga hvað erfiðast uppdráttar eftir flóðbylgjuna og í þeim fjórum löndum sem tóku þátt í könnuninni hafa börn áhyggjur af öðrum jarðskjálfta og annarri flóðbylgju.
Einu ári eftir að flóðbylgjan breytti lífi þeirra á hörmulegan hátt eru börn á Indlandi, Sri Lanka og Taílandi vongóð um framtíðina, meðan börn í Indónesíu hafa þurft meiri tíma til þess að jafna sig.