English version

Fréttasafn 2007

 

Þróun í þágu barna - ný skýrsla UNICEF

12.des.2007
Í nýrri skýrslu sem gefin var út í vikunni af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna er að finna upplýsingar um hvernig þjóðum heims miðar að því að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan nefnist Progress for Children, eða Þróun í þágu barna.

 


Jólakort og gjafavörur UNICEF

03.des.2007
Jólabúð UNICEF opnar í dag mánudaginn 3. desember á skrifstofu UNICEF Ísland að Laugavegi 42, 2. hæð. Þar er hægt að nálgast úrval jólakorta og vandaðra gjafavara. Pdf-skjal af kynningarbæklingi fyrir einstaklinga. Pdf-skjal af kynningarbæklingi fyrir fyrirtæki og stofnanir.

 


Barnasáttmálinn verður fullorðinn

16.nov.2007
Útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, verður 18 ára þriðjudaginn 20. nóvember. Af því tilefni mun UNICEF efna til málþings í Norræna húsinu á afmælisdaginn frá kl. 14.00 til 16.30. © UNICEF

 


Áframhaldandi flóð valda skaða á Haítí

02.nov.2007
Um það leiti sem íbúar Haítí voru að snúa aftur til sins heima eftir flóð sem skall á fyrir mánuði síðan, kom enn eitt flóðið sem fylgdi í kjölfar stormsins Noel. Síðan í lok september hafa flóð og miklar rigningar gert það að verkum að flestar íbúðir eru á floti. UNICEF veitir víðtæka neyðaraðstoð.

 


Göngunni á Ama Dablam lokið

30.okt.2007
Ingvar komst á topp Ama Dablam föstudaginn 19. október ásamt Simoni Yates. Viðar þurfti því miður að snúa við í búðum eitt þar sem hann átti erfitt með hæðaraðlögun. Þeir félagar áttu góða daga í Katmandú áður en þeir héldu af stað að skoða verkefni UNICEF í Chitwan síðastliðinn sunnudag.

 


Framlög frá Íslandi skila árangri í baráttunni gegn malaríu

26.okt.2007
Í lok árs 2006 sváfu 40% íbúa í hinu litla Vestur-Afríkuríki Gíneu-Bissá undir flugnaneti með skordýraeitri (e. insecticide-treated nets). Um er að ræða gríðarlega aukningu frá árinu 2000 þegar notkunin var einungis 2-7%.

 


Útbreiðsla malaríu minni en áður

16.okt.2007

Um 350-500 milljónir malaríutilfella greinast á hverju ári sem leiðir til dauða einnar milljónar manna árlega. Afrísk börn undir fimm ára aldri telja 80% þessarra dauðsfalla. Ný skýrsla UNICEF og samtaka sem standa að átaki gegn malaríu (Roll Back Malaria) sýnir fram á að aðgerðir til að hefta útbreiðslu malaríu eru að skila árangri, sér í lagi í sunnanverðri Afríku þar sem byrði sjúkdómsins er mest.


 


Ný sending komin til landsins

12.okt.2007
Loftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir eru seldir í Kronkron og á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42.

 


Loftbelgjabolirnir uppseldir ... en önnur sending er komin til landsins!

05.okt.2007

Loftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir fást áfram í Kronkron og Spútnik í Kringlunni, en einnig í Gyllta kettinum.


 


Flóð í vestanverðri og mið-Afríku

26.sep.2007

Óvenju mikil rigning hefur valdið flóðum og sent fjölda fólks á vergang. Aðstæður eru sérstaklega slæmar í vestanverðri og mið-Afríku og beinir UNICEF sjónum sínum að Ghana, Togo og Burkina Faso, en þessi lönd eru talin í mestri þörf fyrir neyðaraðstoð.


 


Tónleikar ungmennaráða UNICEF og ÍTR gengu vel

21.sep.2007

Tónleikar ungmennaráða UNICEF Ísland og Reykjavíkur í mið-og vesturbæ gengu vonum framar. Hljómsveitirnar Jeff who?, Reykjavík, Soundspell, Skakkamanage, Retro Stefson og Grrrrr tróðu upp og var ekki annað að sjá en tónleikagestir skemmtu sér vel. Allar hljómsveitirnar gáfu vinnu sína og þakka ungmennaráðin þeim vel fyrir.


 


UNICEF stendur fyrir opnum fundi með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne

21.sep.2007

Mánudaginn 24. september stendur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir opnum hádegisfundi í Iðnó með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne. Þar mun Ishmael lesa upp úr bók sinni Um langan veg: frásögn herdrengs og fjalla um reynslu sína af borgarastyrjöldinni í Síerra Leóne. Fundurinn stendur frá 12:10 til 13:10


 


Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða!

17.sep.2007

Ungmennaráð Íþrótta og tómstundaráðs miðbæjar og vesturbæjar í samstarfi við ungmennaráð UNICEF á Íslandi stefna að því að halda tónleika til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna miðvikudaginn 19. september 2007 í Listasafni Reykjavíkur. Tónleikarnir bera yfirskriftina: Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða!


 


UNICEF sendir hjálpargögn á jarðskjálftasvæðin á Súmötru

14.sep.2007

UNICEF sendir í dag hjálpargögn á jarðskjálftasvæðin á eyjunni Súmötru í Indónesíu. Flytja þarf hjálpargögnin frá Medan í norðurhluta Súmötru og munu þau berast til Bengkulu Utara og Muko Muko, þar sem jarðskjálftinn var harðastur, nk mánudag. Um er að ræða skólatjöld, hreinlætisvörur, vatnsdúnka, könnur, moskítónet, eldunaráhöld...


 


Nýjar rannsóknir sýna að í fyrsta skipti eru dauðsföll barna færri en 10 milljónir á ári

13.sep.2007

Nýjar alþjóðlegar tölur sýna að mikill árangur hefur náðst í baráttunni við barnadauða, þar á meðal hefur dánartíðni barna undir fimm ára lækkað verulega. Dauðsföll meðal barna telja nú 9,7-10 milljónir á ári og hafa aldrei verið færri, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn. Til samanburðar dóu 13 milljónir barna á árinu 1990.


 


Íslenska ríkið styður verkefni UNICEF um að koma íröskum börnum aftur í skóla

11.sep.2007

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 10 milljónum króna til sameiginlegs átaks Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og UNICEF til aðstoðar börnum sem eru meðal íraskra flóttamanna í Sýrlandi, Jórdaníu, Egyptalandi og Líbanon. Áætlað er að meðal íraskra flóttamanna sé um hálf milljón barna á skólaaldri sem hafa lítinn sem engann aðgang að menntun.


 


Aðstæður vegna flóðanna í Suður-Asíu enn slæmar

06.sep.2007

Monsúnrigningar í Suður-Asíu hafa verið þær mestu í manna minnum. Talið er að tæplega 3000 manns hafi týnt lífi og yfir 50 milljónir hafa þurft að flýja heimili sín. Ljóst er að þörfin er mikil og lýsti UNICEF áhyggjum sínum yfir því að hungur, sjúkdómar og vannæring gæti herjar á milljónir kvenna og barna á meðan á flóðunum stendur.


 


Sóley og María gefa til bágstaddra barna

27.ágúst.2007

Vinkonurnar Sóley Vera, 12 ára, og María, sem er 11 að verða 12 ára, héldu tombólu og seldu varning í Firðinum og fyrir utan Krónuna í Hafnarfirði á dögunum. Þær söfnuðu alls 8262 krónum sem þær gáfu til UNICEF. Þær seldu eigið dót og söfnuðu því hjá öðrum til að selja eða bjóða upp á tombólunni.


 


Tombóla til styrktar börnum

23.ágúst.2007

Bjartur, sem er 9 ára, hélt á dögunum tombólu fyrir utan Pétursbúð í Vesturbænum og safnaði hann alls 2815 krónum. Hann mætti vaskur á skrifstofu UNICEF á Laugaveginn og afhenti framkvæmdastjóra UNICEF, Stefáni Inga Stefánssyni, söfnunarféð. UNICEF kann Bjarti bestu þakkir fyrir framlagið og hvetur fleiri börn til að styrkja jafnaldra sína, sem eiga um sárt að binda, með þessum hætti.


 


Jarðskjálfti í Perú hefur alvarlegar andlegar afleiðingar á börn

22.ágúst.2007

Þúsundir barna og ungmenna hafa misst heimili sín í kjölfar jarðskjálftans í suðurhluta Perú fyrir viku síðan. Mörg barnanna hafa orðið fyrir miklu tilfinningalegu áfalli og þurfa skjóta aðhlynningu. UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að veita sálræna aðstoð og stuðning til þessarra ungu fórnarlamba.


 


Hátt í 3,5 milljónir króna söfnuðust í Latabæjarhlaupi

20.ágúst.2007

Um 4223 börn og foreldrar þeirra lögðu leið sína að Háskóla Íslands til að taka þátt í Latabæjarhlaupinu síðastliðinn Laugardag. Vel var staðið að hlaupinu og þóttist takast vel til í alla staði. Börnin voru þó mestu sigurvegararnir þar sem þau söfnuðu hátt í 3,5 milljónum króna til styrktar verkefna UNICEF um allan heim.


 


Bestu bolir í heimi

17.ágúst.2007

Í dag hefst sala á bolum til styrktar UNICEF sem bera nafnið „bestu bolir í heimi“. Hönnun bolanna var í höndum Kronkron og vísar hún í að öll getum við risið upp gegn því misrétti sem mörg börn eru beitt. Nýstofnað ungmennaráð UNICEF og íslenskir hönnuðir taka höndum saman og gera þessa boli sem geta breytt lífi barna.


 


Íþróttaálfurinn hitar upp fyrir Latabæjarhlaupið

13.ágúst.2007

Eftivæntingin var mikil fyrir utan Háskóla Íslands þegar loftfar íþróttaálfsins lenti þar um helgina. Hann var kominn til að hita upp fyrir Latabæjarmaraþonið með nokkrum börnum. Mikið fjör fylgdi upphituninni og fékk íþróttaálfurinn krakkana til að gera alls kyns kúnstnir eins og handahlaup og kollhnís sem endar í spíkati.


 


Átak um brjóstagjöf í Írak

13.ágúst.2007

Sumarið í Írak er heitt, Celsíusgráðurnar nálgast 50 og það gæti þýtt að hættulegir sjúkdómar herji á yngstu börnin. UNICEF er í miðju átaki um að auka brjóstagjöf mæðra og bæta næringargjöf í landinu. Barnahjálpin varar við því að samblanda af miklum hita, skorti á drykkjarvatni og hreinlæti.


 


Starfsmenn UNICEF Ísland safna áheitum

30.jul.2007

Allt starfsfólk UNICEF Ísland ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis laugardaginn 18. ágúst næstkomandi. Fremstur í flokki fer framkvæmdastjórinn Stefán Ingi Stefánsson sem hyggst hlaupa heilt maraþon eða 42,2 km. Aðrir starfsmenn hlaupa allt frá 3 km upp í 21,1.


 


Menntun flóttabarna frá Írak

27.jul.2007

UNICEF og Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) ætla í sameiningu að koma tugum þúsunda flóttabarna frá Írak aftur í skóla. Kostnaður við slíkt verkefni hljóðar upp á 129 milljónir dollara eða 8 milljarða íslenskra króna. Írösk börn hafa í stórum hópum þurft að flýja heimaland sitt, heimili og aðra fjölskyldumeðlimi, þau hafa mörg hver lent í sálrænum áföllum og misst úr námi meira og minna síðan stríðið hófst árið 2003.


 


Alvarlegir þurrkar í Svasílandi

24.jul.2007

Alvarlegir þurrkar í Svasílandi ógna nú íbúum þessa litla lands sem liggur norðan við Suður-Afríku. UNICEF gerir ráð fyrir að þurfa nærri 2,5 milljónir bandaríkjadala til að geta sinnt þörfum barna á sviði vatns, hreinlætis, heilsugæslu, barnaverndar og næringar.


 


Þúsaldarmarkmiðum SÞ miðar hægt

04.jul.2007

Í vikunni var kynnt skýrsla Sameinuðu þjóðanna í tilefni þess að nú er það tímabil hálfnað sem alþjóðasamfélagið gaf sér til að uppfylla hin átta mikilvægu markmið í þróunarsamvinnu sem kennd eru við Þúsaldarmarkmiðin um þróun. Alþjóðasamfélagið hefur náð athyglisverðum árangri á ýmsum sviðum í þeirri viðleitni að frelsa milljónir manna úr viðjum fátæktar.


 


Misnotkun barna í skjóli loforða um betra líf

25.jun.2007

„Ég man vel eftir því þegar ég var sendur til Senegal. Ég var níu ára gamall. Mamma vildi ekki að ég færi en þar sem pabbi tekur ákvarðanirnar var ég var sendur í læri hjá bissáskum kennara í fræðum Kóransins,“ sagði hinn tólf ára gamli Demba Baldé.


 


Tilraunaverkefni í skólum

14.jun.2007

Þrír skólar tóku þátt í tilraunaverkefni UNICEF nú í vor. Verkefnið ber yfirskriftina UNICEF-hreyfingin. UNICEF hreyfingunni er ætlað að koma til móts við þann áhuga á starfsemi UNICEF sem við hjá landsnefndinni höfum fundið hjá kennurum og skólabörnum.


 


Átak gegn stífkrampa stendur yfir í Gíneu-Bissá

30.maí.2007

Átak gegn stífkrampa stendur nú yfir í fyrsta skipti í Gíneu-Bissá. Ætlunin er að útrýma stífkrampa í mæðrum og nýfæddum börnum. Forsætisráðherra landsins hrinti átakinu af stað um helgina. Um 330 þúsund stúlkur og konur frá 15 til 49 ára verða bólusettar þökk sé stuðningi frá UNICEF.


 


UNICEF kallar eftir auknum fjárframlögum til hjálpar börnum í Írak

24.maí.2007

Í yfirlýsingu sem UNICEF sendi frá sér í gær kalla samtökin eftir 42 milljónum bandaríkjadala til að standa undir nauðsynlegu hjálparstarfi í þágu írakskra barna á næstu sex mánuðum. Um að ræða aðstoð við börn sem staðsett eru í Írak og eins börn sem hafa flúið með fjölskyldum sínum til Jórdaníu og Sýrlands.


 


Leikskólar í Kambódíu

15.maí.2007

UNICEF í Kambódíu starfar náið með afskekktum samfélögum á landsbyggðinni við að byggja leikskóla sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu. Aðeins 14% af börnum í Kambódíu á aldrinum 3 til 5 ára fara í leikskóla. Hlutfallið er minna úti á landsbyggðinni.


 


Aðstæður barna í Írak fara versnandi

18.apr.2007

Vegna afleiðinga átaka í Írak hefur UNICEF beðið ríkisstjórnir og alþjóðasamfélagið um að auka stuðning sinn við börn landsins, sem eru sífelt í hættu á að fá sjúkdóma og verða vannærð. Ástandið hefur farið vernsandi á síðustu 12 mánuðum í Írak og nágrannalöndum þess og börn eru fórnarlömb aukinna átaka og vernsandi heilsugæslu og menntakerfis.


 


Dregið úr ungbarnadauða í Síerra Leóne

16.apr.2007

Í heilsugæsluátaki sem hófst í dag í Síerra Leóne er áætlað að gefa 1,2 milljón kvenna á aldrinum 15-49 ára bólusetningu gegn stífkrampa og 85 þúsund börn frá 0-59 mánaða munu fá A-vítamín og lyf við ormum í maga.


 


UNICEF fær styrk úr Menningarsjóði Landsbankans

12.apr.2007

UNICEF hefur hlotið styrk úr Menningarsjóði Landsbankans að upphæð 1.000.000 króna en styrkirnir voru afhentir með viðhöfn í Iðnó í gær. Stjórn Menningarsjóðs ákvað að tileinka úthlutun ársins þeim 75 málefnum og félögum sem eru í þjónustunni Leggðu góðu málefni lið í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans og er UNICEF eitt þeirra félaga.


 


Flóðbylgja á Salómonseyjum - neyðarhjálp hafin

03.apr.2007

Síðastliðið sunnudagskvöld skall flóðbylgja á Salómonseyjar í Kyrrahafi í kjölfar jarðskjálfta sem mældist 7.6 stig á Richter kvarða. Staðfest er að a.m.k 21 hafi látið lífið og 100 liggja slasaðir (samkvæmt tölum frá 3. apríl). Um 25 þúsund manns misstu heimili sín og sjúkrahús og heilsugæslustöðvar eru mikið skemmdar. Þegar er farið að meta ástandið og funduðu UNICEF og samstarfsaðilar í dag varðandi næstu skref.


 


Unnið úr umsóknum um skrifstofustarf

02.apr.2007

UNICEF þakkar þeim rúmlega 60 umsækjendum sem sóttu um hlutastarf á skrifstofu okkar. Við erum hætt að taka við umsóknum og erum að vinna úr þeim sem okkur hefur borist. Ráðningarferlinu verður lokið fyrir 20. apríl. Við svörum öllum umsóknum og förum með þær sem trúnaðarmál.


 


Sögusagnir um að 66 börn hafi verið myrt í Úganda

30.mar.2007

Sögusagnir eru um að 66 börn hafi verið myrt í Úganda í tengslum við afvopnun í norðurhluta Kotido svæðis. UNICEF og samstarfsaðilar (þ.á.m. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna) eru í nánu sambandi við yfirvöld í Úganda og Kotido svæðis vegna þessa og hvetur til að atburðurinn verði rannsakaður af sjálfstæðum aðilum.


 


Aðstæður barna í Írak

29.mar.2007

Ný rannsókn á aðstæðum barna í Írak dregur upp nokkuð dökka mynd af lífi barna í landinu. Írösk börn þurfa að horfast í augu við aukið óöryggi í landinu þar sem jafnvel skólaganga getur falið í sér hættur. Fjöldi einstæðra mæðra hefur aukist vegna ofbeldisins og sömuleiðis fjöldi flóttafólks. Fyrstu niðurstöður rannsóknar yfirvalda í Írak og UNICEF benda til þess að aðstæður barna í landinu eru ekki góðar.


 


Frá hugsjónum til framkvæmda - málþing um þróunarsamvinnu

21.mar.2007

Átta mannúðarsamtök hafa tekið höndum saman um að halda fyrsta málþing hér á landi um hlutverk félagasamtaka í þróunarsamvinnu föstudaginn 23. mars kl. 9-16 í Norræna húsinu. Samtökin sem koma að málþinginu eru ABC barnahjálp, Barnaheill, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, Kristniboðssambandið, SOS barnaþorp, UNICEF og UNIFEM á Íslandi.


 


UNICEF auglýsir eftir starfskrafti á skrifstofu

20.mar.2007

UNICEF á Íslandi óskar eftir að ráða starfskraft í hlutastarf (50%) á skrifstofu. Um er að ræða almennt skrifstofustarf, s.s. textavinna, gagnaskráning, fundahald, umsjón með daglegum rekstri, móttöku og fleira. Viðkomandi þarf að hafa haldgóða tölvukunnáttu og góða þekkingu á íslenskri og enskri tungu.


 


Hátt í 200 börn tóku þátt í fundi kvennanefndar SÞ

12.mar.2007

Í síðustu viku lauk árlegum fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem ætlað er að fara yfir stöðu kvenna og jafnréttismála í heiminum öllum. Þema fundarins í ár var stúlkubarnið og tók UNICEF því mjög mikinn þátt í undirbúningi fundarins. Þar sem það er UNICEF mjög mikilvægt að börn og ungmenni komi að málum tóku hátt í 200 börn þátt í fundinum. Fulltrúi þeirra hélt ræðu og lagði fram tillögur sem sjá má í heild sinni hér.


 


Aðstoð berst fórnarlömbum jarðskjálftanna á Súmötru

09.mar.2007

Í gær lauk UNICEF að meta þarfir fórnarlamba jarðskjálftanna á vesturhluta Súmötru. Neyðin er stærst í nágrenni Solok þar sem hörðustu jarðskjálftarnir urðu og þegar hafa átta vörubílar farið með neyðargögn þangað frá birgðastöð UNICEF í Medan á norður Súmötru.


 


UNICEF bregst við jarðskjálftum á Súmötru

06.mar.2007

Fréttir herma að yfir 70 manns hafi látið lífið í hörðum jarðskjálfta (6.2) sem varð á vestanverðri Súmötru kl. 10:49 að staðartíma í morgun. Tveimur tímum síðar kom annar skjálfti, næstum eins harður (6.0), á sama svæði. Yfir 200 manns liggja særðir og spítalar eru yfirfullir af sjúklingum. Hundruðir bygginga hafa skemmst.


 


Niðurstöður úr skýrslu UNICEF um hag barna á Vesturlöndum

27.feb.2007

Í vefriti menntamálaráðuneytisins er vakin athygli á því að niðurstaða um framtíðarstarfsvæntingar ungmenna hér á landi í nýrri skýrslu UNICEF um hag barna í ríku löndunum er ekki í samræmi við nýjustu kannanir sem gerðar hafa verið hér á landi. Þess ber að geta að UNICEF styðst við eldri kannanir en þær nýjustu sem hafa verið gerðar hérlendis.


 


UNICEF og Mia Farrow vekja athygli á neyðarástandi barna í Miðafríkulýðveldinu

26.feb.2007

Velgjörðarsendiherra UNICEF, Mia Farrow, lauk ferð sinni um Miðafríkulýðveldið með því að kalla eftir brýnni neyðaraðstoð og viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á því neyðarástandi sem nú ríkir í landinu.


 


Byko og Barcelona

23.feb.2007

Fyrirtækin Byko, Elko, Húsgagnahöllin og Intersport halda knattspyrnumót á morgun, laugardag, kl. 19 í Fífunni, knattspyrnuvelli Breiðabliks. Deild 150 í timburverslun Byko í Breiddinni ákváðu að styrkja UNICEF og fara að fordæmi knattspyrnufélags Barselóna og merkja búningana Barnahjálpinni.


 


Velferð barna í ríku löndunum

14.feb.2007

Í dag kynnir UNICEF skýrslu um velferð barna og ungmenna í þeim löndum sem eru efnahagslega best sett í heiminum, „An overview of child well-being in rich countries“. Í ljós kemur að heilsufar barna og ungmenna á Íslandi er gott og lendir Ísland í öðru sæti á eftir Svíum í þeim þætti skýrslunnar. Ísland er í meðallagi í menntamálum en athygli vekur að um 10% 15 ára ungmenna á Íslandi eru einmana og finnast þeir utangarðs í samfélaginu.


 


UNICEF og WHO bregðast við sjúkdómsfaröldrum í Sómalíu

13.feb.2007

Þrátt fyrir mikið óöryggi í mið- og suðurhluta Sómalíu ætla Sameinuðu þjóðirnar að halda áfram að koma til móts við brýnar þarfir fólks á svæðinu, en þar hefur brotist út niðurgangsfaraldur sem rekja má til nýlegra flóða.


 


Ljósmyndir Sigur Rósar

05.feb.2007

Við vekjum athygli á því að ljósmyndir Sigur Rósar úr ferð þeirra til Svasílands á vegum UNICEF eru komnar inn á alþjóðlega vefsíðu þeirra. Njótið vel!


 


Falin neyð barna

29.jan.2007

Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna Humanitarian Action Report 2007, sem kynnt var í dag, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega 43 milljarða (635 milljónir usd) til að aðstoða börn og konur á 33 neyðarsvæðum víða um heim. Þetta eru annars vegar vel þekkt svæði eins og Darfur og hins vegar lönd á borð við Haítí, Eritreu og Mið-Afríkulýðveldið, sem ekki er fjallað mikið um í fjölmiðlum.


 


Gleði til góðgerða

25.jan.2007

Á dögunum héldu nemendur Menntaskólans í Reykjavík árlega áheitasöfnun sína Gleði til góðgerða og söfnuðust alls 254.874 krónur sem runnu óskertar til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Nemendur fengu viðurkenningarskjal í tilefni þessa og UNICEF þakkaði þeim kærlega fyrir framlagið og fyrir að vekja athygli á málstaðnum með stórskemmtilegri söfnun.


 


Ljósmyndadagbækur UNICEF

10.jan.2007

Hinar vinsælu ljósmyndadagbækur UNICEF eru að seljast upp. Dagbækurnar eru vandaðar með ljósmyndum af börnum frá öllum heimshornum. Hver vika fær eina opnu og er bókin gormuð en þó með þykkri kápu. Annað upplag sem pantað var er nú að klárast, en fólk getur keypt þær á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42, 2. hæð. Hringið í síma 552 6304 til að fá nánari upplýsingar.


 


Menning innfæddra í Venesúela varðveitt

09.jan.2007

Añu ættlfokkurinn er einn af þeim minnihlutahópum í Venesúela sem hafa þurft að berjast fyrir tilvist sinni. Alls eru 3500 manns sem teljast til Añu og eru heimaslóðir ættflokksins í norðvesturhluta Venesúela, Lagoon Sinamaica.


 


Framkvæmdastjóri UNICEF ferðast um flóðasvæðin

03.jan.2007

Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, hóf fimm daga ferðalag sitt í gær um þau lönd sem urðu verst úti í flóðunum. Hún mun skoða aðstæður og meta þarfir þeirra hundruð þúsunda barna sem þar eru og fara yfir neyðaraðstoð UNICEF til þessa. Bellamy mun hitta börn og fjölskyldur þeirra, frjáls félagasamtök, stjórnvöld og fleiri.