Vissir þú að...

í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.

Þú ert hér:  

Fréttasafn 2008

 

Yfirlýsing UNICEF vegna árásanna á Gaza

30.des.2008
UNICEF hefur miklar áhyggjur af þeim áhrifum sem núverandi ofbeldi á Gaza mun hafa á börn. UNICEF hvetur alla hlutaðeigandi aðila að átökunum að fara eftir alþjóðlegum lögbundnum skyldum til tryggja að börn fái vernd og öll nauðsynleg hjálpargögn sem þau þurfi á að halda.


 


UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla

23.des.2008
UNICEF óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakkar styrktaraðilum sínum fyrir samfylgdina á liðnu ári. Fyrir hönd þeirra barna sem njóta góðs af stuðningi heimsforeldra og annarra styrktaraðila færum við ykkur kærar þakkir. Gleðileg jól og farsælt komandi ár!


 


UNICEF flytur neyðargögn til Simbabve

23.des.2008
Flugvél með neyðargögnum frá UNICEF er lent í Harare, Simbabve, og er þeim ætlað að hjálpa íbúum landsins að stemma stigu við kólerufaraldurinn og hnignandi heilsugæslu í landinu. Flutningur neyðargagnanna mun efla enn frekar hjálparstarf UNICEF í landinu, en samtökin útvega m.a. 70% allra lyfja í landinu.


 


Dagbækur UNICEF uppseldar

17.des.2008
Allar dagbækur UNICEF eru uppseldar, þ.e. viðskipta,- ljósmynda,- og listaverkadagbækur, stórar sem smáar. Enn er þó hægt að fá úrval leikfanga og vandaðrar gjafavöru, auk jólakorta. Jólabúð UNICEF er á Laugavegi 42 og nk. laugardag, 20. desember, verður útibú sett upp í jólaþorpi Hafnarfjarðar.


 


Góð umönnun á fyrstu árum ævi barna skiptir sköpum

11.des.2008
Umtalsverðar breytingar hafa orðið á umönnun ungra barna í ríkustu löndum heims, segir í nýrri skýrslu sem UNICEF kynnti í dag. Ísland uppfyllir níu af tíu viðmiðum sem skýrslan setur fram í samanburði sínum á umönnun ungra barna í efnalega vel stæðum löndum.


 


Samráðsfundur um starf ungmennaráða

09.des.2008
Miðvikudaginn 26. nóvember var haldinn í fyrsta skipti á landsvísu samráðsfundur um stofnun og starf ungmennaráða. UNICEF á Íslandi, Akureyrarbær og Íþrótta og tómstundaráð Reykjavíkur  stóðu fyrir fundinum sem haldinn var á Akureyri.


 


Dauðsföll vegna mislinga lækka um 74%

05.des.2008
Dauðsföll af völdum mislinga hafa lækkað um 74% á heimsvísu , frá 750 þúsund til 197 þúsund, frá árinu 2000 til 2007. Að auki hefur dauðsföllum vegna mislinga fækkað um 90% í Miðausturlöndum frá 96 þúsund niður í 10 þúsund á sama tímabili.


 


HIV-prófun og meðferð bjargar lífi nýfæddra barna

01.des.2008
Því fyrr sem nýfædd börn greinast og fá meðferð við HIV/alnæmi því meiri lífslíkur eiga þau, samkvæmt nýrri skýrslu fjögurra hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag. Skýrslan, sem ber heitið Children and AIDS: Third stocktaking report.


 


Hjálpargögn og ljósmyndir til sýnis í jólabúð UNICEF

27.nov.2008
Í tilefni af opnun jólabúðar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, verður sett upp sýning með hjálpargögnum og ljósmyndum dagana 28. nóvember til 5. desember. Af því tilefni býður UNICEF alla velkomna í jólabúðina að Laugavegi 42 (2. hæð) föstudaginn 28. nóvember kl. 13-14. Kaffi, músík og með’í!


 


Miðafríkulýðveldið á ystu nöf

26.nov.2008
Á meðan átök sem geisa í nágrannalandinu Austur-Kongó hafa fengið mikla athygli er ástandið í Miðafríkulýðveldinu á mjög viðkvæmu stigi. UNICEF hefur miklar áhyggjur af vaxandi fjölda flóttabarna og kvenna og öryggi þeirra.


 


Heimsþing gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum

25.nov.2008
Um 3000 þátttakendur frá yfir 125 löndum koma saman á heimsþingi í Rio de Janeiro í Brasilíu dagana 25.-28. nóvember til að deila reynslu sinni og hugmyndum í baráttunni gegn kynferðislegri misnotkun á börnum.


 


Jólakúla og látúnsskraut er uppselt

21.nov.2008
Bæði jólakúla UNICEF og látúnsskrautið í ár er uppselt á Íslandi og á heimsvísu. Jólakúlur og látúnsskraut síðustu ára eru einnig uppseld og því ófáanleg. Nóg er til af öðru jólaskrauti s.s. handgerðum dúfum frá Indlandi og kertum frá Suður-Afríku. Úrval leikfanga er mikið og því úr mörgu að velja í jólapakkana fyrir þau yngstu.


 


„Bestu bolir í heimi“

17.nov.2008
Sala er hafin á „bestu bolum í heimi“ til styrktar UNICEF. Hönnun bolanna er sem fyrr í höndum Kron kron og grafíska hönnuðarins Harðar Kristbjörnssonar og vísar hún í að veröldin sé eins og völundarhús þar sem sumir rati rétta leið að góðu lífi á meðan aðrir sitji fastir í öngstræti fátæktar. Bolirnir fást í Kron kron og jólabúð UNICEF að Laugavegi 42 og kosta 2800 kr.


 


Jólabúð UNICEF fer vel af stað

11.nov.2008
Jólabúð UNICEF hefur farið vel af stað. Jólakúlan, sem er hönnuð sérstaklega fyrir UNICEF á hverju ári, er nánast uppseld. Eins hvetjum við þá sem vilja tryggja sér látúnsskraut að kíka við í jólabúðinni sem fyrst. Jólabúðin er opin alla virka daga kl. 12-18 að Laugavegi 42.


 


Mikil neyð flóttafólks í Austu-Kongó

10.nov.2008
Ástandið fer versnandi dag frá degi í Austur-Kongó. Bardagar hamla hjálparstarfi en þó hafa UNICEF og aðrar hjálparstofnanir hafið víðtæka neyðaraðstoð til að veita þúsundum flóttafólks helstu lífsnauðsynjar. Neyðaraðstoð UNICEF er á sviði vatns, hreinlætis, næringar, bólusetningar og verndar.


 


Allt að 100 þúsund manns flúðu heimili sín í Austur-Kongó í síðustu viku

03.nov.2008
Allt að 100 þúsund manns, þar af 60 þúsund börn, flúðu heimili sín vegna harðra átaka milli vopnaðra hópa í norðurhluta Kivu í síðustu viku.


 


Jólabúð UNICEF opnar í dag

02.nov.2008
Sala á jólakortum, leikföngum og gjafavörum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefst í dag mánudaginn 3. nóvember með opnun jólabúðar UNICEF að Laugavegi 42. Allur ágóði af sölu jólakorta og gjafa rennur til verkefna UNICEF fyrir börn um allan heim. Nánar á www.unicef.is/jolakort.


 


Vaxandi átök í A-Kongó - 50 þúsund á flótta

30.okt.2008
Bardagar í Norður Kivu, í Austur-Kongó, hafa færst í aukana síðustu 48 tímana og leitt til þess að tugir þúsunda eru nú á flótta til Goma, höfuðborgar héraðsins. Bardagarnir hafa að mestu átt sér stað í bænum Kibumba á Rutshuru-svæði.


 


Harður jarðskjálfti í Pakistan

28.okt.2008
Talið er að 160 manns hafi látist þegar jarðskjálfti, 6,4 á Richter, reið yfir suðvesturhluta Pakistan laust eftir klukkan fjögur að staðartíma (23:09 GMT á þri.). Starfsfólk UNICEF er komið á vettvang og mun meta aðstæður og þarfir fólks. Sömuleiðis er þegar hafinn flutningur á hjálpargögnum frá birgðastöð í Pakistan.


 


Ekkert af fjárframlögum til UNICEF hefur tapast

21.okt.2008
Fjárhagur UNICEF á Íslandi stendur vel þrátt fyrir lægðina sem nú gengur yfir í efnahagslífinu og þrot bankanna. Glitnir er viðskiptabanki UNICEF og eru allar innistæður geymdar inni á öruggum bankareikningum. Ekkert af fjárframlögum til UNICEF hefur því tapast.
 

 


Sala jólakorta fyrir fyrirtæki er hafin!

15.okt.2008
Sala á glæsilegum jólakortum og gjafavörum UNICEF til fyrirtækja og stofnana er hafin. UNICEF hvetur fyrirtæki og stofnanir til að panta með góðum fyrirvara og bendum við á að þau sem panta kort fyrir 1. nóvember fá 10% afslátt. Jólabúð UNICEF opnar að Laugavegi 42 þann 3. nóvember.
 

 


Þúsundir barna taka þátt í fyrsta handþvottadeginum

14.okt.2008
Frá Máritaníu til Tjad, Níger til Síerra Leóne, Fílabeinsströndinni til Austur- og Vestur-Kongó verða þorpssamfélög, leikvellir og skólastofur fullar af lífi á alþjóðlegum handþvottadegi, miðvikudaginn 15. október. Aldrei áður hefur verið farið í annað eins fræðsluátak til að vekja athygli á mikilvægi handþvottar á líf og heilsu barna.
 

 


Kólerufaraldur geisar í Gíneu-Bissá

26.sep.2008
Kólerufaraldur geisar nú í litla vestur-afríkuríkinu Gíneu-Bissá, en alls hafa yfir 7 þúsund tilfelli greinst og 133 manns látist síðan í sumar. UNICEF og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) vinna með yfirvöldum og frjálsum félagasamtökum til að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdómsins.  

 


Ný skýrsla vekur athygli á dauða kvenna við barnsburð

23.sep.2008
Í nýrri skýrslu sem kynnt var sl. föstudag af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, er athyglinni beint að þeirri hættu sem konur í þróunarlöndunum búa við á meðan á meðgöngu stendur og í fæðingu. 99 prósent mæðradauða á sér stað í þróunarlöndunum.  

 


UNICEF birtir tölur yfir minnkandi barnadauða

12.sep.2008
Í dag gerði UNICEF opinberar nýjar tölur sem sýna fram á minnkandi barnadauða á árinu 2007. UNICEF kallar þó eftir auknu átaki til að lækka barnadauða enn frekar. Þetta nýja mat sýnir 27 prósenta fækkun dauðsfalla barna undir fimm ára aldri.
 

 


Hlaupa fimm maraþon og styrkja UNICEF

10.sep.2008
Hlaupahópurinn Reykjavik Road Runners ætlar að hlaupa í fimm stærstu maraþonum heimsins á næstu tveimur árum. Mun hópurinn nota tækifærið og safna áheitum til styrktar UNICEF. Upphafsmenn hópsins eru hlaupararnir Pétur Ívarsson og Guðmundur Guðnason en eru aðrir velkomnir að slást í hópinn.  

 


Allt að 300 þúsund börn eru hjálparþurfi á Haítí

09.sep.2008
Miklar rigningar og flóð fylgdu í kjölfar fellibylja sem skollið hafa á strendur Haítí og nágrannaeyja á Karíbahafinu. Áætlað er að 650 þúsund manns séu hjálparþurfi, þar af 300 þúsund börn. UNICEF einbeitir sér að því að veita fólki skjól og mat, auk þess að koma hreinlætisgögnum og vatni til fólks. Sjúkdómar sem berast með vatni eru helstu dánarvaldar barna eftir hamfarir sem þessar.

 


UNICEF bregst við neyð í kjölfar flóða í Indlandi og Nepal

29.ágúst.2008
Mikil flóð hafa eyðilagt á 250 þúsund heimila í norðurhluta Bihar á Indlandi. Um er að ræða mestu flóð á svæðinu í 50 ár. UNICEF bregst við með því að veita skjól, lyf og fleiri nauðsynjar nú þegar fólk streymir í flóttamannabúðir í fátækasta héraði Indlands.

 


Kaffi til styrktar UNICEF

25.ágúst.2008
Á næstu tveimur vikum mun fjölda íslenskra fyrirtækja standa til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.

 


3700 börn safna þremur milljónum fyrir UNICEF

25.ágúst.2008
Tæplega fjögur þúsund börn létu slagvirði ekki aftra sér og tóku þátt í Latabæjarhlaupi Glitnis sl. laugardag. Þátttökugjöld barnanna runnu óskipt til UNICEF og því má segja að hver þátttakandi hafi lagt sitt af mörkum til hjálpar bágstöddum jafnöldrum sínum víða um heim.

 


UNICEF bregst við þörfum barna og kvenna í Georgíu

18.ágúst.2008
UNICEF og samstarfsaðilar dreifa hreinlætispökkum og vatnsflöskum til 3.600 kvenna og barna sem flúið hafa heimili sitt í og umhverfis Tbilisi, höfuðborgar Georgíu. Enn fleiri hjálpargögn eru á leiðinni. Utanríkisráðuneyti Íslands sendi í gær fulltrúa á vegum friðargæslunnar til starfa hjá Barnahjálpinni.  

 


Latabæjarhlaup til styrktar UNICEF

12.ágúst.2008
Latabæjarhlaupið verður haldið laugardaginn 23. ágúst nk. Yfirskrift hlaupsins er „Börn hlaupa fyrir börn“ en eins og í fyrra verður hlaupið til styrktar UNICEF.
 

 


Yfirlýsing frá UNICEF vegna átakanna í Georgíu og Ossetíu

12.ágúst.2008
UNICEF hefur miklar áhyggjur af stigvaxandi ofbeldi í Suður-Ossetíu þar sem fréttir herma að fjöldi óbreyttra borgara liggi í valnum. Konur og börn eru stór hluti þeirra sem lenda í átökum og þurfa að leita skjóls.  

 


Alþjóðleg vika brjóstagjafar

05.ágúst.2008
Vikuna 1. til 7. ágúst stendur yfir alþjóðleg vika brjóstagjafar og er henni fagnað formlega í 120 löndum um allan heim. Með vikunni eru ríkisstjórnir, heilbrigðisstarfsfólk og foreldrar hvattir til að styðja nýbakaðar mæður sem þurfa tíma, rúm og hvatningu til brjóstagjafar.  

 


Barnahjálpin fer austur

23.jul.2008
Um þessar mundir fer UNICEF um Austurland til að safna heimsforeldrum og kynna starfsemi Barnahjálparinnar. Farið verður um Seyðisfjörð, Reyðarfjörð, Eskifjörð og fleiri góða staði í dag og á Egilsstaði á fimmtudag og föstudag. Skemmtileg sýning verður sett upp fyrir utan Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum.  

 


Íslendingar gáfu 3 milljónir til hjálparstarfs

08.jul.2008
Hvirfilbylurinn Nargis reið yfir suðausturhluta Mjanmar 3. apríl síðastliðinnmeð þeim skelfilegu afleiðingum að rúmlega 84 þúsund manns létu lífið og 54 þúsunda er enn saknað.  

 


Framlag sem munar um

04.jul.2008
Þessar fjórar harðduglegu stelpur, Birta Haraldsdóttir, Elín Ísold Pálsdóttir, Sunna Margrét Tryggvadóttir og Dóróthea María Jóhannsdóttir, héldu á dögunum tombólu fyrir utan Bónus á Laugaveginum. Þær söfnuðu alls 1075 krónum fyrir UNICEF.  

 


UNICEF leitar að götukynningarfólki til starfa

01.jul.2008
UNICEF á Íslandi leitar eftir hressu og áræðanlegu ungu fólki til fjáröflunar- og kynningarstarfa í júlí og fyrri helming ágústmánaðar. Um er að ræða starf götukynna sem skrá heimsforeldra í Reykjavík og nágrenni, sem og úti á landi. Jákvæðni, traust og áræðanleiki er skilyrði.  

 


Ungir leiðtogar frá öllum heimshornum sameinast fyrir J8 fundinn

01.jul.2008
Á morgun mun ungt fólk frá öllum G8 löndunum og þróunarlöndum hefja fjórða árlega „Junior 8“ fundinn í Chitose í Japan. Málefnin, sem tekin verða fyrir, eru svipuð þeim sem leiðtogar G8 munu taka fyrir á fundi sínum í næstu viku í Japan.

 


Barnahjálpin á landsbyggðinni

25.jun.2008
UNICEF ætlar að gera víðreisn um landið í sumar og safna heimsforeldrum. Hringferðin hefst á Ísafirði og nú er hópur vaskra “götukynna” kominn til Vestfjarða þar sem þeir munu vera með athyglisverða sýningu, rölta í hús og kynna barnahjálpina fyrir gangandi vegfarendum. 

 


Yfir 10.000 skólar í Sichuan urðu fyrir miklu tjóni

12.jun.2008
Samkvæmt nýjum upplýsingum urðu yfir 10.000 skólabyggingar í Sichuan fyrir miklu tjóni í jarðskjálftanum sem reið yfir héraðið þann 12. maí síðastliðinn. Þar af eyðilögðust næstum 7.000 skólar gjörsamlega. UNICEF áætlar að fjöldi þeirra barna sem líða fyrir ástandið hlaupi á milljónum.

 


Útgáfa á veggspjöldum með ákvæðum Barnasáttmálans

28.maí.2008
Umboðsmaður barna, Barnaheill og UNICEF á Íslandi hafa gefið út tvö veggspjöld með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í styttri útgáfu. Veggspjöldin eru ætluð til notkunar í skólastarfi.

 


Vegna fréttar Stöðvar 2 um Vatnsviku UNICEF

27.maí.2008

Vegna fréttar Stöðvar 2 um kostnað við Vatnsviku UNICEF 2008 vill UNICEF á Íslandi árétta að samtökin báru engan kostnað vegna söfnunarátaksins og að allt söfnunarféð rennur óskert til vatnsverkefna í þróunarlöndunum.


 


Ein milljón barna þarf tafarlausa aðstoð

22.maí.2008

UNICEF telur að ein milljón barna í Mjanmar þurfi á tafarlausri aðstoð að halda. Hættan á að lífshættulegir sjúkdómar taki að breiðast út eykst með hverjum degi.


 


Formannsskipti hjá UNICEF á Íslandi

22.maí.2008

Aðalfundur íslenskrar landsnefndar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) var haldinn miðvikudaginn 21. maí. Einar Benediktsson fyrrum sendiherra, sem gegnt hefur formennsku allt frá stofnun UNICEF á Íslandi í mars 2004, lét af embætti og við tók Þórunn Sigurðardóttir, fráfarandi listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.

 


 


Aðalfundur UNICEF á Íslandi

21.maí.2008

Aðalfundur íslenskrar landsnefndar UNICEF verður haldinn í dag, miðvikudaginn 21. maí, klukkan 16-18. Fundurinn fer fram í Þjóðminjasafni Íslands. Allir þeir sem hafa áhuga á starfi UNICEF eru hjartanlega velkomnir.

 

 


Svikapóstur frá meintu UNICEF-netfangi

21.maí.2008

UNICEF á Íslandi hefur fengið ábendingu um að svikatölvupóstur, sem virðist vera frá alþjóðlegum starfsmanni UNICEF, hafi borist hérlendum aðilum. Viðtakanda póstsins er boðið gull og grænir skógar taki hann að sér að gerast milligöngumaður um móttöku og innlausn fjármuna.

 

 


UNICEF kemur lífi barna í sem eðlilegast horf á ný

15.maí.2008

„Við hlupum upp á hæð þegar vatnsborðið hækkaði,” útskýrir Kaung Myat, 12 ára drengur, þar sem hann stendur við rústir bambuskofans sem hann bjó í ásamt fjölskyldu sinni í þorpinu Gyo Phyu í Yangon sýslu í Mjanmar.


 


Hver sekúnda skiptir máli fyrir börnin í Mjanmar

10.maí.2008

Flugvélar lentu með þrjár milljónir vatnshreinsitaflna frá UNICEF í Yangoon í gær. Áætlað er að fljúga með lyf, sjúkragögn og matvæli fyrir vannærð börn á næstu þremur dögum. Nýjar myndir voru að berast frá hamfarasvæðunum sem sýna glöggt það neyðarástand sem skapast hefur af völdum fellibylsins fyrir rúmri viku síðan. Leggið neyðarsöfnun UNICEF lið fyrir börnin í Mjanmar.


 


UNICEF á Íslandi safnar fyrir neyðaraðstoð í Mjanmar (Búrma)

06.maí.2008

UNICEF sinnir neyðaraðstoð við börn í Mjanmar (Búrma) vegna ástandsins sem þar hefur skapast í kjölfar náttúruhörmunga sem riðu yfir landið á föstudaginn. Hundruð þúsunda barna þurfa á hjálp að halda.

 


 


Þúsundir látnar í Mjanmar (Búrma)

06.maí.2008

Ljóst er að tjónið af völdum hvirfilbylsins Nargis, sem reið yfir Mjanmar (Búrma) á laugardaginn, er gífurlegt; þúsundir manna hafi látið lífið og þúsundir eru slasaðar. UNICEF vinnur að því hörðum höndum að koma lífsnauðsynjum til svæða sem verst hafa orðið úti.

 

 


Tolli málar 100 hús fyrir UNICEF

18.apr.2008
Listamaðurinn Tolli hefur á undanförnum vikum málað eitthundrað „skólabyggingar“ fyrir UNICEF. Þessi glæsilega húsaþyrping verður til sýnis í Saltfélaginu 18.-25. apríl. Húsin verða þá gefin UNICEF-verndurum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem greiða mánaðarlega til UNICEF.

 

 


Ný skýrsla um baráttuna gegn HIV/alnæmi

11.apr.2008
Í nýrri skýrslu UNICEF, UNAIDS og WHO kemur fram að sífellt fleiri börn og þungaðar konur með HIV/alnæmi fá meðhöndlun.
 

 


Vatnsburður í Kastljósi

10.apr.2008
Nokkrir þjóðþekktir Íslendingar komu saman að Gvendarbrunnum í Heiðmörk þriðjudaginn 8. apríl og báru vatn um 800 metra leið. Tilgangur vatnsburðarins var að vekja athylgi á Vatnsviku UNICEF og þeirri staðreynd að víða um heim þarf að sækja vatn um langa vegalengd.
 

 


Vatnsvika UNICEF hafin

04.apr.2008
Í VATNSVIKU UNICEF gefst almenningi kostur á að styrkja vatnsverkefni UNICEF í þróunarlöndunum með því að leggja fram fjárframlög í gegnum heimasíðuna www.vatnsvika.is. Jafnframt stendur gestum valdra veitingastaða til boða að styðja við framtakið og greiða 250 krónur fyrir glasið af kranavatni.
 

 


OR og UNICEF undirrita samstarfssamning

03.apr.2008
UNICEF á Íslandi og Orkuveita Reykjavíkur hafa bundist samtökum um að safna fé til að afla drykkjarvatns fyrir börn um víða veröld. Talið að um 6.000 börn láti lífið á hverjum degi vegna sjúkdóma sem rekja má til neyslu á óheilnæmu vatni.
 

 


Alþjóðlegur dagur vatnsins

25.mar.2008
Samkvæmt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) hafa sextíu og tvö prósent Afríkubúa ekki aðgang að viðunandi salernisaðstöðu, þ.e. klósetti sem heldur skólpi frá snertingu við umhverfi fólks.
 

 


Vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá lokið

14.mar.2008
Íslensk sendinefnd var stödd í opinberri vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá dagana 3.–9. mars. Tilgangur heimsóknarinnar var að efla tengslin milli landanna tveggja en fyrir fjórum árum hóf UNICEF á Íslandi að styrkja þróunarverkefni í hinu sárfátæka Vestur-Afríkuríki.
 

 


Lífsbjörg í Gíneu-Bissá

06.mar.2008
Á 30 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Árið 2006 útvegaði UNICEF, með dyggum stuðningi íslenskra aðila, meira en 24 milljón moskítóflugnanet sem úðuð höfðu verið með skordýraeitri til þess að koma í veg fyrir malaríusmit. 
 

 


Vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá

06.mar.2008
Fyrir fjórum árum hóf UNICEF Ísland að styrkja þróunarverkefni í litla Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá. Af þessum ástæðum stendur nú yfir opinber vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá (3. – 9. mars) í þeim tilgangi að efla enn frekar tengslin milli landanna tveggja.
 

 


Tónlist til styrktar UNICEF í Síerra Leóne

27.feb.2008
Á síðunni www.steinssonproject.com er hægt að hala niður hljómplötunni Backtracking Eighties, er inniheldur fræg endurútsett popplög frá níunda áratugnum, án endurgjalds og um leið styrkja menntaverkefni UNICEF með fjárframlagi að eigin vali.
 

 


Bráðabirgðaskólar UNICEF í Kenía

26.feb.2008
Þegar fjölskylda Yvonne flúði ofbeldið í þorpinu þeirra, missti hin átta ára gamla stúlka heimili sitt, dýrmætu plasthálsfestina sína, skólabúninginn sinn og skólastofuna. UNICEF vinnur nú að því að tryggja börnum bráðabirgðamenntun í tjaldskólum í Kenía.
 

 


Neyðaraðgerðir í Rúanda

19.feb.2008
Sunnudaginn 3. febrúar 2008, gekk röð jarðskjálfta yfir Rúanda og Lýðveldið Kongó. UNICEF og samstarfsaðilar vinna nú hörðum höndum að því að bæta aðgengi að heilsugæslu, menntun, skjóli, næringu og hreinu vatni auk þess að tryggja verndun barna.
 

 


Þörfin á neyðaraðstoð er mikil

13.feb.2008
Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Humanitarian Action Report 2008, kemur fram að UNICEF þarf rúmlega 58 milljarða króna til að koma börnum og konum til hjálpar á neyðarsvæðum.
 

 


Tónlist til styrktar UNICEF

07.feb.2008
Í dag verður tónlistarverkefninu The Steinsson Project hleypt af stokkunum á vefsvæðinu www.steinssonproject.com. Á síðunni er hægt að hala niður hljómplötunni Backtracking Eighties án endurgjalds og um leið styrkja menntaverkefni UNICEF með fjárframlagi að eigin vali.
 

 


Neyðaraðstoð UNICEF í Tsjad

07.feb.2008
Tugir þúsunda flóttamanna streyma nú yfir landamærin milli Tsjad og norðurhluta Kamerún. UNICEF undirbýr víðtæka neyðaraðstoð til Tsjad og þess flóttafólks sem flúið hefur ástandið þar.
 

 


Styrkur frá Bridgesambandi Íslands

04.feb.2008
Bridgesamband Íslands styrkti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, um 27.500 krónur á dögunum. Upphæðin safnaðist á góðgerðarkvöldi Miðvikudagsklúbbs Bridgesambandsins, en kvöldið var haldið sem hluti af alþjóðlegu móti. UNICEF þakkar Bridgesambandinu kærlega fyrir gjöfina!
 

 


David Beckham heimsækir verkefni UNICEF í Síerra Leóne

31.jan.2008
Fótboltastjarnan og velgjörðarsendiherrann David Beckham var nýlega í heimsókn í Síerra Leóne þar sem hann skoðaði verkefni UNICEF. Að sögn Beckham fór hann til Síerra Leóne til þess að beina athygli að málefnum bágstaddra barna.
 

 


Aðstoð vegna flóða í Mósambík

30.jan.2008
Í janúar hafa flóð í ánni Zambesi í Mósambík hrakið tugþúsundir manna frá heimilum sínum, þar af er helmingurinn börn. UNICEF veitir víðtæka neyðaraðstoð.
 

 


Aurora velgerðarsjóðurinn styrkir verkefni UNICEF í Síerra Leóne

29.jan.2008
Aurora velgerðarsjóðurinn veitti á dögunum 120 milljónum íslenskra króna til verkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Síerra Leóne.
 

 


Tíðni barnadauða aldrei verið lægri – hægt að ná meiri árangri að mati UNICEF

22.jan.2008
Í nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, The State of the World’s Children 2008, er lögð áhersla á leiðir til að draga úr þeim fjölda barna sem deyr fyrir fimm ára aldur. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Genf í dag, 22. janúar. (http://www.unicef.org/sowc08).

 


Opinn hádegisfundur UNICEF

22.jan.2008
Fimmtudaginn 24. janúar stendur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir opnum hádegisfundi með Geert Cappelaere, yfirmanni UNICEF í Síerra Leóne og Dr. Minkailu Bah, menntamálaráðherra Síerra Leóne. Hádegisfundurinn verður haldinn í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42, 2. hæð.

 


Fjöldi barna í hættu í Kenía

17.jan.2008
Talið er að um 100 þúsund börn séu nú á vergangi eftir að átökin brutust út í Kenía og 75 þúsund börn búi í þeim rúmlega 100 búðum sem sprottið hafa upp á síðustu vikum. Að auki er talið að mörg þúsund börn og fjölskyldur þeirra hafi þurft að flýja heimili sín og hafi fundið tímabundið skjól hjá öðrum fjölskyldumeðlimum.

 


Orlando Bloom í Nepal

17.jan.2008
Nýlega fór leikarinn Orlando Bloom til Nepal að heimsækja verkefni UNICEF, en hann er nýjasti velgjörðarsendiherra samtakanna. Í fjóra daga ferðaðist Orlando um afskekkt og fátæk þorp á vestanverðu svæðunum Kaski og Chitwan. Nepal er eitt af fátækustu löndum í heimi.

 


Átök í Kenía

15.jan.2008
Í kjölfar forsetakosninganna í Kenía 27. desember brutust út heiftarleg átök. Rekja má yfir 700 dauðsföll til ofbeldisverka eftir kosningarnar og yfir 250 þúsund manns eru nú á vergangi. UNICEF leiðir hjálparstarfið á sviði vatns,- hreinlætis,- og menntaverkefna og dreifir hjálpargögnum.