English version

Fréttasafn 2009

 

UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla

22.des.2009
UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Fjölmargir hafa komið að starfinu með einum eða öðrum hætti á árinu sem er að líða. Fyrir hönd þeirra barna sem njóta góðs af stuðningi heimsforeldra og annarra styrktaraðila færum við ykkur kærar þakkir.

 


Fjölskylduhátíð 20. desember

11.des.2009
UNIMA á Íslandi og UNICEF efna til fjölskylduhátíðar sunnudaginn 20. desember.  Boðið verður upp á alls sex brúðuleikhússýningar yfir daginn sem allar eru ætlaðar fyrir börn á leikskólaaldri og fyrsta bekk grunnskóla. Miðaverð er 500 krónur og eru allir velkomnir.  

 


Dauðsföllum vegna mislinga fækkar á heimsvísu

10.des.2009
Dauðsföllum af völdum mislinga í heiminum fækkaði úr 733 þúsundum árið 2000 í 164 þúsund í fyrra, eða um 78% á tímabilinu. Á síðustu árum hafa 700 milljónir barna verið bólusettar gegn sjúkdómnum og er talið að þær aðgerðir hafi komið í veg fyrir dauða 4,3 milljóna barna.  

 


Árangur framar björtustu vonum

08.des.2009
Árangur af Degi rauða nefsins, söfnunarátaki UNICEF, var framar björtustu vonum. Söfnuðust vel yfir 150 milljónir og yfir 2000 einstaklingar gengu í lið heimsforeldra. Einnig seldust yfir 5000 trúðanef, og mýmargir notuðu þau til þess að gleðja samferðafólk sitt!  

 


Dagur rauða nefsins er í dag!

04.des.2009
Dagur rauða nefsins er í dag. Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg til að gera daginn að veruleika en hápunkturinn er útsending frá Borgarleikhúsinu í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld. Þar munu grínistar og annað listafólk láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að skemmta Íslendingum og safna styrkjum fyrir verkefni UNICEF um allan heim.  

 


Hætt‘essu væli og Brostu á gogoyoko tónlistarvefnum

02.des.2009
Lag Ljótu hálfvitanna, „Hætt‘essu væli“, sem er sérstaklega samið fyrir dag rauða nefsins er nú fáanlegt á tónlistarvefnum gogoyoko.com. Þar er einnig að finna lag Baggalúts, „Brostu“, sem hljómsveitin samdi fyrir dag rauða nefins 2006. Allur ágóði rennur til UNICEF.  

 


Trúðakennsla á Youtube í tilefni dags rauða nefsins

01.des.2009
Landsins þekktustu trúðatæknar hafa búið til fimm myndbönd þar sem er farið yfir nokkur grunnatriði trúðalistarinnar.  Myndböndin er hægt að nálgast á vefsíðunni Youtube. Markmiðið er að gera sem flestum Íslendingum kleift að rækta sinn innri trúð en tilefnið er dagur rauða nefsins, söfnunarátak sem UNICEF og skari listafólks stendur fyrir.  

 


Dagur rauða nefsins á Facebook

24.nov.2009
Hægt að gerast aðdáandi dags rauða nefsins á Facebook. Á síðunni er að finna nýjustu fréttir í aðdraganda stóra dagsins sem og skemmtilegt efni frá því að dagur rauða nefsins var haldinn í fyrsta sinn hérlendis árið 2006. Við hvetjum sem flesta Facebook-notendur til að gerast aðdáendur.  

 


Dagur rauða nefsins 4. desember

24.nov.2009
Þann 4. desember næstkomandi tekur fjöldi listamanna höndum saman með UNICEF og standa fyrir Degi rauða nefsins. Um kvöldið verður söfnunarþáttur í opinni dagskrá Stöðvar 2 þar sem grínistar láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að safna fé fyrir bágstödd börn um allan heim  

 


Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 20 ára

20.nov.2009
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er 20 ára í dag, föstudaginn 20. nóvember. Barnasáttmálinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á því að börn hafi sjálfstæð réttindi, óháð foreldrum eða forsjáraðilum og að þau þarfnist sérstakrar umönnunar og verndar umfram hina fullorðnu.  

 


Árleg skýrsla UNICEF tileinkuð Barnasáttmálnum

19.nov.2009
Sérstök útgáfa árlegrar skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum (e. The State of the World's Children) er kynnt í dag. Í skýrslunni er sérstaklega fjallað um áhrif Barnasáttála Sameinuðu þjóðanna og þær áskoranir sem enn standa í vegi fyrir að réttindi barna séu uppfyllt  

 


Margt á döfinni vegna 20 ára afmælis Barnasáttmálans

16.nov.2009
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna verður 20 ára föstudaginn 20. nóvember. Í tilefni af tímamótunum hafa ungmennaráð umboðsmanns barna, Barnaheilla og UNICEF sameinað krafta sína og munu halda mikilvægi sáttmálans á lofti með fjölbreyttum hætti vikuna 15. til 20. nóvember.
 

 


Mikilvægt að koma í veg fyrir vannæringu

13.nov.2009
Um 200 milljón börn í þróunarlöndunum, sem eru undir fimm ára aldri, þjást af vaxtaskerðingu vegna langvarandi vannæringar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslunni Tracking Progress on Child and Maternal Nutrition sem UNICEF hefur gefið út.
 

 


Ungbarnadauði fátíðastur á Íslandi

11.nov.2009
Hvergi í heiminum var ungbarnadauði fátíðari árið 2007 en á Íslandi, eða 1,5 af 1.000 lifandi fæddum. Þetta er meðal þeirra upplýsinga sem finna má í Landshögum 2009, hagtöluárbók Hagstofu Íslands, sem kom út sl. mánudag.
 

 


Velgjörðasendiherrar UNICEF tala fyrir réttindum barna

10.nov.2009
Velgjörðasendiherrar UNICEF hafa tekið höndum saman í tilefni 20 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og koma fram í myndböndum sem ætlað er að draga athygli að þessum merka áfanga í réttindum barna.
 

 


Átak gegn barnadauða af völdum lungnabólgu

04.nov.2009
Fjórða hvert barn sem lætur lífið fyrir fimm ára aldur deyr af völdum lungnabólgu. Það gerir um tvær milljónir barna á þessum aldri á hverju ári. Enginn annar sjúkdómur á jafnstóran þátt í barnadauða og lungnabólga en á fimmtán sekúndna fresti deyr barn af hans völdum.

 


Jólabúðin hefur opnað

27.okt.2009
Jólabúð UNICEF opnaði í dag, mánudaginn 2. nóvember, að Laugavegi 42. Í búðinni er hægt að nálgast úrval fallegra jólakorta, vandaðrar gjafavöru og skemmtilegra leikfanga. Jólakort UNICEF hafa verið seld á Íslandi í hálfa öld.

 


Aldrei fleiri börn bólusett

26.okt.2009
Samkvæmt nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú fleiri börn bólusett gegn banvænum sjúkdómum en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir það munu að minnsta kosti 24 milljón kornabörn fara á mis við þessa mikilvægu heilsuvernd án frekara fjármagns og bætts aðgengis.

 


Alþjóðlega handþvottardeginum fagnað í annað sinn

20.okt.2009
Alþjóðlegi handþvottardagurinn var haldinn hátíðlegur í annað skiptið í síðustu viku. Markmið dagsins er að vekja athygli á því að handþvottur með sápu og vatni er ein albesta og ódýrasta forvörnin sem völ er á gegn fjölmörgum sjúkdómum.

 


UNICEF til hjálpar 50.000 indónesískum fjölskyldum

14.okt.2009
UNICEF í Indónesíu rær nú öllum árum að því að koma börnum, sem urðu fyrir barðinu á öflugum jarðskjálfta þann 30. september sl., til hjálpar. Meðal forgangaatriða samtakanna er að tryggja ómengað drykkjarvatn, koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma og dreifa skólagögnum.

 


UNICEF kemur börnum á Samóa-eyjum aftur í skóla

14.okt.2009
UNICEF vinnur nú náið með menntayfirvöldum á Samóa-eyjum við að tryggja að þarlend börn geti haldið skólagöngu sinni áfram eins fljótt og auðið er. Öflug flóðbylgja gekk nýlega yfir eyjarnar og er skólaganga mikilvægur þáttur í að koma lífi barnanna aftur í eðlilegar skorður.

 


UNICEF bregst við röð náttúruhamfara

05.okt.2009
Röð náttúrhamfara á undanförnum dögum hefur haft gífurleg áhrif á milljónir manna í Asíu og á Kyrrahafinu. Frá 26. september hafa alls sex lönd orðið fyrir barðinu á flóðum, hvirfilvindi, flóðbylgju og jarðskjálftum. UNICEF vinnur nú að því að bregðast við neyð barna í þessum löndum.

 


UNICEF á vettvangi í Indónesíu

02.okt.2009
Starfsfólk frá UNICEF vinnur nú hörðum höndum að því að bregðast við neyðarástandinu í Indónesíu eftir að snarpur jarðskjálfti reið yfir landið á miðvikudaginn. Talið er að allt að þriðjungur þeirra sem þurfa hjálp séu börn.

 


Mannlegt friðarmerki á Klambratúni í kvöld

02.okt.2009
Alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna án ofbeldis (e. Day of Nonviolence) er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag. Af þessu tilefni mun fjöldi samtaka standa fyrir myndun mannlegs friðarmerkis á Klambratúni klukkan 20 í kvöld.

 


Fjallað um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó í Speglinum

01.okt.2009
Í útvarpsþættinum Speglinum á Rás 2 í gær var talað við hjónin Pál Ásgeir Davíðsson og Bergljótu Arnalds en þau dvöldu í Austur-Kongó í hittifyrra. Þar heyrðu þau m.a. átakanlegar sögur þolenda frá fyrstu hendi og kynntust öflugu starfi UNICEF.

 


Útvarpsþáttur ungmenna um Barnasáttmálann

30.sep.2009
Ungmenni hvaðanæva að af landinu munu næstu 12 fimmtudaga fjalla um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í nýjum útvarpsþáttum sem hefja göngu sína á Rás 1 á morgun. Í ár er þvi fagnað að tuttugu ár eru frá því að þessi mikilvægi mannréttindasáttmáli var samþykktur.

 


Opinn fundur um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó

30.sep.2009
V-dagurinn á Íslandi og UNICEF standa fyrir opnum fundi um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó. Fundurinn fer fram í húsakynnum UNICEF á Laugavegi 42 í Reykjavík fimmtudaginn 1. október milli klukkan 12.10 og 13.00.

 


Utanríkisráðuneytið styrkir starf UNICEF í Austur-Kongó

28.sep.2009
UNICEF á Íslandi hefur fengið átta milljónir króna úthlutað frá utanríkisráðuneytinu vegna langvinns neyðarátands í Austur-Kongó. Styrkurinn rennur til verkefna UNICEF gegn kynferðisofbeldi og aðstoðar við konur og stúlkur sem orðið hafa fyrir nauðgunum í landinu.

 


V-dagurinn og UNICEF taka höndum saman

23.sep.2009
Í dag ýttu V-dagssamtökin á Íslandi og UNICEF úr vör sameiginlegu átaki til að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gagnvart konum og stúlkum í Austur-Kongó. Á sama tíma verða samtökin með söfnun meðal íslensks almennings til styrktar verkefnum í þágu ungra kynferðisbrotaþolenda í landinu. 

 


Dregur úr tíðni barnadauða

11.sep.2009
UNICEF kynnti í gær nýjar niðurstöður sem sýna að dánartíðni barna undir fimm ára aldri hélt áfram að lækka á árinu 2008. Samkvæmt niðurstöðunum hefur barnadauði dregist saman um 28% á árabilinu 1990 til 2008; úr 90 dauðsföllum á hverjar 1000 fæðingar í 65.

 


UNICEF fordæmir nauðganir í Austur-Kongó

08.sep.2009
Árið 1998 hófst stríð í Austur-Kongó sem er talið hafa kostað um fimm milljónir manna lífið. Þó stríðinu sé formlega lokið eru nauðganir og ofbeldi enn daglegt brauð. Framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, heimsótti nýverið barnunga þolendur nauðgana og ofbeldis í austurhéruðum landsins. 

 


UNICEF hefur áhyggjur af flóttabörnum í Jemen

03.sep.2009
UNICEF hefur miklar áhyggjur af þróun mála í norðurhluta Jemen. Talið er að um 150.000 manns séu á vergangi vegna átaka sem þar hafa brotist út og að a.m.k. 60% þeirra séu börn. Vegna átakanna er fjöldi flóttafólks utan seilingar mannúðarsamtaka. 

 


UNICEF-styrktarspjöld á kaffihúsum Te & kaffi

24.ágúst.2009
Viðskiptavinum Te & kaffi býðst nú að styrkja starfsemi UNICEF með því að kaupa sérstök styrktarspjöld í sérsverslunum og á kaffihúsum fyrirtækisins. Spjöldin kosta 250 eða 500 krónur. Það gera sér fæstir grein fyrir hve miklu slíkar upphæðir geta skipt fyrir bágstödd börn. 

 


Aldrei fleiri íslenskir heimsforeldrar

14.ágúst.2009
Aldrei hafa fleiri Íslendingar styrkt starf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og nú. Í ágústbyrjun voru heimsforeldrar UNICEF á Íslandi yfir 14.000 talsins. Það er því ljóst að þrátt fyrir þrengingar á Íslandi ætla Íslendingar ekki að gleyma þeim börnum sem búa við sárustu neyðina.

 


Tíðni ungbarnadauða enn hæst í Síerra Leóne

29.jul.2009
Tíðni ungbarnadauða, þ.e. hlutfallslegur fjöldi barna sem deyr fyrir fimm ára aldur, hefur um áraskeið verið hæst í Síerra Leóne. Þó ástandið hafi batnað á undanförnum árum er ungbarnadauði þar enn mestur eða 27%. Síerra Leóne er einnig það land í heiminum þar sem tíðni mæðradauða er hæst.

 


Sífellt fleiri fá meðferð við HIV í fátækjum ríkjum

28.jul.2009
Áætlað er að í lok ársins 2008 hafi um 4 milljónir manna í fátækari ríkjum heims fengið lyfjameðferð við HIV samanborið við 3 milljónir árið 2007 og 400.000 árið 2003. Þetta kemur fram í bráðabirgðagögnum frá WHO, UNAIDS og UNICEF.

 


Allir styrktarsamningar við UNICEF á Íslandi heiðraðir

24.jul.2009
Vegna efnahagsþrenginganna á Íslandi og tengdrar umræðu vill UNICEF á Íslandi m.a. koma á framfæri að allir styrktarsamningar sem fyrirtæki, sjóðir og einstaklingar hafa gert við UNICEF hafa verið heiðraðir og að engir fjármunir UNICEF á Íslandi töpuðust við fall bankanna á haustdögum 2008.

 


Milljón börn á flótta í Pakistan

22.jul.2009
UNICEF hefur miklar áhyggjur af mörg þúsundum barna sem hafa hrakist frá heimilum sínum vegna átakanna í Norðvestur-Pakistan á undanförnum vikum. Áætlað er að af tveimur milljónum flóttafólks sé um helmingurinn börn.

 


UNICEF bólusetur gegn mislingum í Gíneu-Bissá

14.jul.2009
Dagana 3. til 7. júlí stóð UNICEF í Gíneu-Bissá, ásamt fleiri samtökum, fyrir viðamiklu heilsuátaki í þágu bissáskra barna undir fimm ára aldri. Áætlað er að um 25.000 börn hafi fengið A-vítamín, aformunarlyf og bólusetningu gegn mislingum.

 


Ungmenni ræða stöðu barna á J8-fundinum

09.jul.2009
Ungt fólk víðsvegar að úr heiminum er nú saman komið í Róm til að sitja hinn svokallaða J8-fund. Fundurinn fer fram samhliða fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims, G8, og er af frumkvæði UNICEF. Fulltrúar þátttakenda munu ávarpa leiðtoga G8-ríkjanna í dag.

 


Degi afrískra barna fagnað

23.jun.2009
Í síðustu viku minntist UNICEF dags afrískra barna. Um leið fögnuðu samtökin þeim mikla árangri sem náðst hefur í að bæta lífsafkomu barna í fjölda Afríkulanda á undangengnum árum – þó gríðarlegt verk sé enn óunnið.

 


Moskítónet koma í veg fyrir dauða þúsunda barna

12.jun.2009
Á hverju ári deyja þúsundir og aftur þúsundir barna af völdum malaríu. Samkvæmt nýrri skýrslu hafa moskítónet hins vegar bjargað lífi að minnsta kosti 125.000 barna undir fimm ára aldri.

 


Átak í nýskráningu heimsforeldra

09.jun.2009
Í sumar mun starfsfólk frá UNICEF ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að kynna UNICEF og bjóða fólki að ganga til liðs við heimsforeldraverkefni okkar. Heimsforeldrar styrkja samtökin mánaðarlega og nýtist styrkurinn í þágu þeirra barna sem mesta hafa þörfina.

 


Söfnun vegna neyðarástands í Pakistan

28.maí.2009
UNICEF á Íslandi hefur hafið söfnun vegna átakanna í Pakistan. Áætlað er að yfir helmingur þeirra sem eru á flótta undan átökum í norðvesturhluta landsins séu börn. Flóttafólk streymir inn í flóttamannabúðir og nærliggjandi samfélög

 


Vaxandi neyð í norðvesturhluta Pakistan

28.maí.2009
UNICEF hefur sent út ákall vegna átaka stjórnarhersins og uppreisnarmanna í norðvesturhluta Pakistan. Samtökin áætla að þau þurfi 41,4 milljón bandaríkjadali til að standa undir nauðsynlegri aðstoð við fólk á flótta undan átökunum. Yfir helmingur þeirra sem eru á vergangi eru börn.

 


UNICEF auglýsir eftir starfskröftum

26.maí.2009
UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki, 18 ára og eldra, sem vill leggja málstað samtakanna lið í sumar og fram á haust á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felst í því að ganga í hús, kynna starf UNICEF, bjóða fólki að skrá sig sem heimsforeldri og styðja þannig fjölda þurfandi barna um allan heim.

 


Manchester United og FC Barcelona styrkja UNICEF

26.maí.2009
Manchester United og FC Barcelona mætast í úrslitaleik meistaradeildar UEFA á morgun. Á vellinum eru liðin miklir andstæðingar. En utan vallar eiga þau sameiginlegt markmið: að vinna gegn hinum gríðarlegu áhrifum sem HIV og alnæmi hafa á börn og ungt fólk um allan heim í samstarfi við UNICEF.

 


Líf milljóna barna í Norðaustur-Afríku í hættu

20.maí.2009
Langvarandi matvælaskortur, vopnuð átök og stjórnmálalegur óróleiki ógna velferð og lífi milljóna barna í Norðaustur-Afríku. Einnig ýta óstöðug veðrátta og hinar hnattrænu efnahagsþrengingar undir neyð fólks á svæðinu.

 


Sýning á vegum umboðsmanns barna

20.maí.2009
Hátt í þrjúþúsund grunn- og leikskólanemendur hafa í vetur tekið þátt í verkefni á vegum umboðsmanns barna þar sem þau tjá sig í myndrænu og rituðu máli um hvernig það er að vera barn á Íslandi. Sýning á verkum barnanna opnar í Gerðubergi föstudaginn 22. maí.

 


Hönnuðu boli til styrktar UNICEF

18.maí.2009
Sjö ungmenni tóku sig til á dögunum og hönnuðu boli til styrktar UNICEF. Innblástur hönnunarinnar sóttu þau til þriggja af greinum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Er óhætt að segja að mjög vel hafi tekist til hjá þessum ungu og upprennandi hönnuðum.

 


Börn á Sri Lanka í hringiðu átaka

13.maí.2009
UNICEF hefur fordæmt skelfileg áhrif átakanna á Sri Lanka á börn. Samtökin hafa jafnframt skorað á stjórnvöld í landinu að draga úr hernaðaraðgerum sínum til að tryggja öryggi óbreyttra borgara og skorað á LTTE að hleypa óbreyttum borgurum frá átakasvæðinu.

 


Ár liðið frá jarðskjálftanum í Sichuan

11.maí.2009
Ár er nú liðið frá því að jarðskjálfti af stærðargráðunni 8,0 á Richter-skala reið yfir Sichuan-umdæmi í Kína. Á undanförnum tólf mánuðum hefur UNICEF varið 20 milljónum bandaríkjadala í neyðaraðstoð vegna hamfaranna.

 


Málþing: Þrælkun eða þroskandi vinna?

07.maí.2009
Laugardaginn 9. maí nk. kl. 10-13 verður haldið málþing í Þjóðminjasafni Íslands um vinnu barna. Málþingið er haldið á vegum Þjóðminjasafnsins og UNICEF á Íslandi í tengslum við sýninguna Þrælkun, þroski, þrá? sem nú stendur yfir í safninu.

 


Ár liðið frá hamförunum í Mjanmar

04.maí.2009
Eitt ár er liðið frá því að hvirfilbylurinn Nargis reið yfir Mjanmar. UNICEF brást umsvifalaust við og hóf hjálparstarf fyrir nauðstödd börn og fjölskyldur þeirra. Þó svo að kastljós fjölmiðlanna hafi beinst annað er starfsfólk UNICEF enn að störfum í landinu þar sem það tekst daglega á við eftirmála hamrafaranna.

 


UNICEF í viðbragðsstöðu vegna H5N1-veirunnar

30.apr.2009
UNICEF, ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna, er tilbúin til að aðstoða stjórnvöld í Mexíkó ef H5N1-veiran, hin svokallaða „svínaflensa“, heldur áfram að breiðast út.

 


Hundrað þúsund óbreyttir borgarar á flótta í Sri Lanka

30.apr.2009
Um hundrað þúsund óbreyttir borgarar, þar af þriðjungur börn, hafa flúið undan sókn stjórnarhers Sri Lanka inn á eina svæðið sem enn er undir stjórn skæruliða Tamíl-tígranna. Tugir þúsunda eru innikróaðir á átakasvæðinu.

 


Réttindaganga og áheitahlaup á sumardaginn fyrsta

22.apr.2009
Fjölmenni verður á Miklatúni á sumardaginn fyrsta þegar börn og unglingar frá frístundamiðstöðinni Kampi safnast saman og hlaupa til stuðnings UNICEF auk þess að minna á réttindi sín.

 


Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið

20.apr.2009
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er nú lokið, en hún fór fram á Ísafirði, Egilsstöðum og í Reykjavík. Verkefnið var unnið af UNICEF í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Haldnar voru þriggja daga vinnusmiðjur þar sem ungt fólk lærði að vinna í fjölmiðlum og búa til fréttir og annað efni sem svo var birt eða flutt í viðkomandi samstarfsmiðlum.

 


Vodafone á Íslandi styrkir UNICEF

20.apr.2009
Vodafone mun styrkja UNICEF á Íslandi á næstu tveimur árum með mánaðarlegu fjárframlagi upp á 50 þúsund krónur og aðstoða við fjáröflun af ýmsu tagi, UNICEF að kostnaðarlausu. Vodafone og UNICEF skrifuðu undir styrktarsamning í dag.

 


Fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Egilsstöðum

07.apr.2009
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins, sem miðar að því að hvetja ungt fólk til þátttöku og virkni í samfélaginu, verður haldin á Egilsstöðum dagana 16.-18. apríl. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er öllum ungmennum í 8.-10. bekk opin. Sækja um hér.

 


Alþjóðlegur heilsudagur

07.apr.2009
Á alþjóðlegum heilsudegi, 7. apríl 2009, er lögð áhersla á mikilvægi heilsugæslu á neyðarsvæðum. Hinn alþjóðlegi dagur er haldinn til að fagna stofnun alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar eða World Health Organization.

 


Ungir fréttaritarar útskrifast í Reykjavík

01.apr.2009
Alls luku 17 ungmenni fréttaritaraþjálfun unga fólksins í Reykjavík um síðustu helgi. Framleidd voru tvö innslög fyrir útvarp og tvær blaðagreinar. Því miður reyndist ekki unnt að fá inn nógu margar umsóknir í fréttaritaraþjálfun á Akureyri sem átti að vera nú um næstu helgi, þannig að henni hefur verið aflýst. Næsta þjálfun er á Egilsstöðum 16.-18. apríl. Sækja um hér.

 


Kaffi til styrktar UNICEF

26.mar.2009
Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.

 


Fréttaritaraþjálfun unga fólksins í Reykjavík

24.mar.2009

Fréttaritaraþjálfun unga fólksins verður haldin í Reykjavík dagana 26.-28. mars á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið og fá þátttakendur efni birt eða útvarpað í þeim miðlum. Gert er ráð fyrir fimmtudegi og föstudegi frá kl. 17 til 20, og laugardegi kl. 11 til 13. Sækja um hér.


 


Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið á Ísafirði

18.mar.2009

Um helgina luku 19 manns fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Ísafirði með glans. Þau framleiddu þrjú innslög fyrir útvarp og þrjár greinar fyrir Morgunblaðið, þar af hefur ein þegar birst. Sjá hér. Nú er tekið við umsóknum í næstu fréttaritaraþjálfun sem haldin verður í Reykjavík dagana 26.-28. mars. Sækja um hér.


 


UNICEF reynir að mæta þörfum barna í Súdan

17.mar.2009
UNICEF vinnur nú hörðum höndum með yfirvöldum og þeim félagasamtökum sem eftir eru í Súdan að því að komast til móts við þarfir barna eftir að ríkisstjórn landsins bannaði starfsemi 16 frjálsra félagasamtaka (NGOs). Hömlun á hjálparstarfi stefnir mikilvægum verkefnum í hættu og þar með lífi hundruð þúsunda barna.


 


Barnasáttmálinn lögfestur

17.mar.2009

Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna yrði lögfestur á Íslandi. Ísland og Noregur verða þá einu löndin sem lögfest hafa sáttmálann, þó að flest lönd heims hafi staðfest hann. Í framhaldinu fer fram endurskoðun á barnaverndarlögum með sáttmálann í huga.


 


Barnasáttmáli S.þ. lögfestur á Íslandi?

13.mar.2009
Næstkomandi mánudag mun fara fram atkvæðagreiðsla á alþingi um þingsályktunartillögu sem fjallar um lögfestingu Barnasáttmálans. UNICEF á Íslandi fagnar þessu. M.a. er lagt til að frumvarp til laga verði sett fram fyrir 20. nóvember 2009, en þá verða liðin 20 ár síðan hann var fyrst samþykktur á allsherjarþingi S.þ.


 


Samantekt um breytta stöðu barna á Íslandi

12.mar.2009
UNICEF á Íslandi hefur að undanförnu haft samband við aðila sem vinna að málefnum barna á Íslandi. Markmiðið var að kanna hvort farið sé að gæta áhrifa efnahagsþrenginganna sem Ísland gengur nú í gegnum á börn. Í kölfarið hefur UNICEF gert samantekt.


 


Sameinast í baráttunni gegn ofbeldi á konum

09.mar.2009
Á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna í gær, 8. mars, varpaði UNICEF ljósi á ofbeldi gegn stúlkum og konum. Á hverjum degi upplifa stúlkur og konur heimilisofbeldi, kynferðislega misnotkun, ofbeldi og mansal. Í flestum tilvikum er ekki refsað fyrir slíka glæpi. Nauðganir og kynferðisofbeldi eru í stöðugt meira mæli notað sem vopn í stríðum.


 


Fréttaritaraþjálfun á Ísafirði - skráning stendur yfir

05.mar.2009
Skráning ungs fólks í fréttaritaraþjálfun UNICEF stendur nú sem hæst. Tekið er við umsóknum til 11. mars í þjálfunina á Ísafirði, en til 24. mars í Reykjavík. Hámarksfjöldi þátttakenda er 30 manns. Þjálfunin verður haldin á Akureyri og Egilsstöðum í apríl. Ísafjarðarbær styrkir verkefnið um 30 þúsund krónur, auk þess sem öll aðstaða er útveguð af bænum.


 


Fréttaritaraþjálfun fyrir ungt fólk á Íslandi hefst

27.feb.2009
Fréttaritaraþjálfun ungmenna um allt land ýtt úr vör í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. UNICEF á Íslandi og Ríkisútvarpið undirrita samstarfsyfirlýsingu með það að markmiði að hvetja börn og ungmenna til að koma skoðunum sínum á framfæri. Þjálfunin og önnur verkefni eru framkvæmd í tilefni 20 ára afmæli Barnasáttmálans í ár.


 


Heimsdagur barna í fjölmiðlum

26.feb.2009

Næstkomandi sunnudag, 1. mars, fagnar UNICEF Heimsdegi barna í fjölmiðlum (e. International Children's Day of Broadcasting) en á þeim degi hvetja samtökin alla fjölmiðla að leyfa röddum barna og ungmenna að heyrast. Í ár mun Ríkisútvarpið - Rás 1 og 2 - helga daginn börnum. Sjá á www.ruv.is. UNICEF hvetur alla til að leggja við hlustir!


 


Næringarverkefni á Gaza

25.feb.2009

UNICEF hefur áhyggjur af versnandi heilsu barna á Gaza og aukningu á tilfellum niðurgangs í kjölfar þess að fleiri heimili hafa orðið háð matar- og peningagjöfum. UNICEF reynir því að veita aðgang að hreinu vatni og hreinlæti, auk þess að dreifa næringu til barna. Styrkja hjálparstarf UNICEF á Gaza hér.


 


UNICEF fær 43,5 milljónir króna styrk frá Auroru

13.feb.2009

Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur úthlutað alls 111,5 milljónum króna í styrki til sex verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar. UNICEF fær úthlutað alls 40 milljónum til menntaverkefnis í Síerra Leóne og 3,5 milljónum til útvarpsverkefnis ungmenna í Mósambík.


 


Mest þörf á sálrænni aðstoð á Gaza

11.feb.2009

Samkvæmt könnun Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna á Gaza hafa átökin haft mikil áhrif á efnahagslegt, félagslegt og sálrænt líf Gazabúa. Könnunin sýnir fram á að tveir þriðju fjölskyldna telji sig þurfa á hjálp að halda. Þar kemur einnig fram að börn sýni merki álags, þ.e. væti rúmið, fái martraðir, séu árásargjarnari og þjáist af kvíða.


 


Stöðvum umskurð á kynfærum kvenna

06.feb.2009

Í dag er alþjóðadagur gegn umskurði á kynfærum kvenna og í tilefni þess kallar UNICEF eftir meiri aðgerðum til að stöðva megi þetta ofbeldi gagnvart stúlkubörnum. ,,70 milljónir stúlkna og kvenna sem eru lifandi í dag hafa verið umskornar," sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF.


 


Opnað fyrir söfnunarsímanúmer til styrktar Gaza

05.feb.2009

Í gær var opnað fyrir söfnunarsímanúmer til stuðnings hjálparstarfi UNICEF á Gaza. Símanúmerin eru 908-1000 fyrir 1000 króna framlag, 908-3000 fyrir 3000 króna framlag og 908-5000 fyrir 5000 króna framlag. Fyrir rúmri viku var söfnunarreikningur opnaður og nema framlög frá almenningi á Íslandi til hjálparstarfsins nú um 1,2 milljónum króna.


 


UNICEF dreifir skólagögnum til barna á Gaza

27.jan.2009

UNICEF dreifir nú skólagögnum til þeirra hundruða barna sem streyma aftur í skólana á Gaza. Samtökin vinna hörðum höndum að því að koma á fót sérstökum svæðum þar sem börn geta fundið til öryggis og verndar. Þetta er allt gert til þess að koma lífi barna í sem eðlilegast horf á ný. Þú getur styrkt hjálparstarf UNICEF á Gaza með því að smella hér.


 


UNICEF biður um einn milljarð USD til neyðarhjálpar

27.jan.2009

Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Humanitarian Action Report 2009, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega milljarð bandaríkjadala til að aðstoða börn og konur á neyðarsvæðum víða um heim.


 


Neyðarsöfnun hafin fyrir hjálparstarfi á Gaza

22.jan.2009

Eftir átökin á Gaza síðastliðnar þrjár vikur er ljóst að einn þriðji látinna - um 412 - voru börn, auk þess sem 1855 börn særðust. Gríðarleg eyðilegging blasir við og uppbyggingarstarfið er stórvaxið. UNICEF á Íslandi hefur því ákveðið að hefja neyðarsöfnun. Reikningur UNICEF á Íslandi fyrir Gaza er 515-26-102040 / kt. 481203-2950.


 


Hjálparstarf á Gaza

21.jan.2009

UNICEF dreifir hjálpargögnum til Gaza nú þegar lýst hefur verið yfir vopnahléi. UNICEF er með til reiðu sex vörubílsfarma af hjálpargögnum, þar á meðal 2.200 hreinlætispakka. UNICEF er mjög umhugað um andlega velferð barna á svæðinu og mun efla slík verkefni til muna.


 


Hætta steðjar að þunguðum konum í þróunarlöndum

15.jan.2009

Konur í fátækustu ríkjum heims eru 300 sinnum líklegri til að deyja við barnsburð eða af orsökum sem rekja má til þungunar en konur í iðnríkjum, samkvæmt árlegri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, State of the World’s Children.


 


Tala látinna barna á Gaza fer hækkandi

12.jan.2009

Tala látinna og særðra barna í átökunum á Gaza fer hækkandi og versnar ástandið dag frá degi. Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum í gær hafa 854 Palestínumenn látið lífið síðan 27. desember, þar af eru 275 börn og 85 konur. Að minnsta kosti 3.681 hafa særst, þar af eru 1.362 börn og 528 konur.


 


Framlögum heimsforeldra seinkar

07.jan.2009
Vegna tæknilegra mistaka reyndist ekki unnt að millifæra greiðslur þeirra heimsforeldra, sem greiða sitt mánaðarlega fjárframlag í beingreiðslum, um þessi mánaðarmót. Verið er að vinna í málinu og ættu greiðslurnar að ganga í gegn á næstu dögum.


 


UNICEF bregst við neyð barna á Gaza

06.jan.2009
UNICEF flytur nú matvæli, eldsneyti og lyf til þurfandi barna á sjúkrahúsum Gaza-svæðisins. Sjúkrahús eiga erfitt með að sinna fórnarlömbum árásanna, vöntun er á heilsugæslustarfsfólki, lyfjum, tækjabúnaði og rými til að taka á móti því fólki sem þarf á aðstoð að halda.


 


Ný fæða þróuð sem kemur í veg fyrir vannæringu

02.jan.2009
UNICEF hefur þróað nýja fæðu sem kemur í veg fyrir og veitir meðferð við vannæringu meðal barna á neyðarsvæðum. Um er að ræða „Plumpy’doz“ en það er nýjasta kynslóð af fæðu fyrir 6-36 mánaða göml börn. Þessarri nýju fæðu verður dreift til 100 þúsund barna í Sómalíu á næstu vikum.