Vissir þú að...

á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.

Þú ert hér:  

Fréttasafn 2010

 

Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

26.des.2010

UNICEF á Íslandi óskar heimsforeldrum og öðrum styrktaraðilum sínum gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári. Barnahjálpin sendir einnig hugheilar kveðjur til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg í söfnunarátakinu Degi rauða nefsins eða lögðu starfinu lið með einhverjum hætti á liðnu ári.


 


Tólf jemensk börn hafa látið lífið af völdum sprengna á þessu ári

22.des.2010

Að minnsta kosti 12 börn létu lífið vegna sprengna í Jemen á þessu ári og hátt í 20 börn slösuðust alvarlega. Fyrr í mánuðinum slasaðist unglingspiltur þegar hann átti við jarðsprengju sem hann fann nálægt heimili sínu í Sa'ada héraði. Hann missti fjóra fingur
þegar sprengjan sprakk í höndunum á honum.


 


Sannar gjafir fáanlegar á Íslandi

17.des.2010

UNICEF á Íslandi hefur sett á markað gjafir sem geta breytt lífi nauðstaddra barna, eða svokallaðar „Sannar gjafir“. Um er að ræða  raunverulegar gjafir sem fólki býðst að kaupa í vefverslun UNICEF, en þeim er síðan dreift árið um kring til barna og fjölskyldna þeirra í samfélögum þar sem þörfin er mest.


 


Jólakortin seld um allt land

08.des.2010

Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í verslunum Pennans/Eymundssonar, A4, Bókabúð Máls og menningar, Bóksölu stúdenta og víðar.


 


Röng skýring í heimabanka

06.des.2010

Þau leiðu mistök áttu sér stað við skuldfærslu vegna framlaga heimsforeldra af VISA-kortum nú eftir mánaðarnótin að rangur skýringartexti birtist í heimabanka. Skal áréttað að um er að ræða venjubundna skuldfærslu vegna styrks heimsforeldra og alls ótengda Degi rauða nefsins sem fram fór síðastliðinn föstudag. Mistökin verða leiðrétt á prentuðu yfirliti frá VISA.


 


Greiðsluseðlar sendir út fyrir mistök

06.des.2010

Vegna kerfislægra mistaka voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslusamningi. UNICEF á Íslandi biður innilegrar velvirðingar á þessum mistökum sem nú hefur verið komið fyrir. Millifærsla af reikningi verður framkvæmd sjálfkrafa síðar í dag og því skal ekki greiða fyrrnefnda greiðsluseðla.


 


Landsmenn tóku vel í söfnunarátak UNICEF, Dag rauða nefsins

04.des.2010

Landsmenn tóku vel í söfnunarátakið Dag rauða nefsins sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð fyrir í gær. Alls söfnuðust 173 milljónir króna og hátt í 2000 manns bættust í hóp heimsforeldra, mánaðarlegra styrktaraðila Barnahjálparinnar.


 


Dagur rauða nefsins er í dag!

03.des.2010

Landssöfnun Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) Dagur rauða nefsins er í dag! Í kvöld mun landslið leikara og grínista sameina krafta sína í stórum skemmti- og söfnunarþætti í opinni dagskrá á stöð 2. Gamanið hefst á slaginu 20.00.


 


Greiðsluseðlar sendir út fyrir mistök

02.des.2010

Vegna kerfislægra mistaka voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslusamningi. UNICEF á Íslandi biður innilegrar velvirðingar á þessum mistökum sem nú hefur verið komið fyrir. Millifærsla af reikningi verður framkvæmd sjálfkrafa síðar í dag og því skal ekki greiða fyrrnefnda greiðsluseðla.


 


Dagur rauða nefsins á föstudaginn

28.nov.2010

Dagur rauða nefsins nálgast nú óðfluga. Hápunkturinn er skemmti- og fjáröflunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 á föstudaginn. Nú fer hver að vera síðastur að tryggja sér rautt nef til styrktar bágstöddum börnum en nefin fást í verslunum Bónuss og Hagkaups og útibúum Íslandsbanka. Auk þess taka skátar og íþróttafélög um land allt þátt í átakinu með nefjasölu.


 


Söfnunarsími opnar á Bylgjunni

26.nov.2010

Bylgjan mun opna söfnunarsíma UNICEF, 562 6262, í tengslum við Dag rauða nefsins næstkomandi mánudag. Þannig getur fólk byrjað að skrá sig sem heimsforeldra strax á mánudaginn þrátt fyrir að hápunkti átaksins verði ekki náð fyrr en í sjónvarpsútsendingunni á Stöð 2 föstudaginn 3. desember.


 


Retro Stefson með lag Dags rauða nefsins í ár

22.nov.2010

Lag Dags rauða nefsins í ár er í flutningi hinnar stórskemmtilegu og fjölhæfu hljómsveitar Retro Stefson. Lagið heitir einfaldlega Dagur rauða nefsins og hefur m.a. að geyma smellna tóna og barnakór.


 


Afskurður á kynfærum á undanhaldi

21.nov.2010

Í nýrri skýrslu frá UNICEF er að finna vísbendingar um að víðsvegar í Afríku sé smám saman að draga úr afskurði á kynfærum stúlkna og kvenna. Í skýrslunni eru tekin dæmi af samfélögum þar sem þessi skaðlegi siður er á undanhaldi.


 


Borgarstjórn hrinti af stað sölu nefjanna

17.nov.2010

Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, keypti fyrstu rauðu nefin, ásamt borgarstjórn, í gær og hrinti þannig af stað söfnunarátaki UNICEF, Degi rauða nefsins, með glæsibrag. Átakið nær hámarki 3. desember þar sem söfnunar- og skemmtidagskrá verður í opinni dagskrá á Stöð 2.


 


Jólakortin komin í verslanir

11.nov.2010

Jólakort UNICEF eru nú komin í verslanir um land allt. Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í verslunum Pennans/Eymundssonar, A4, Bókabúð Máls og menningar, Bóksölu stúdenta og víðar.


 


Breytt heimasíða UNICEF á Íslandi

10.nov.2010

Heimasíða UNICEF á Íslandi hefur gengið í gegnum margvíslegar
breytingar á undanförnum dögum. Með breytingunum viljum við tryggja
enn betra aðgengi stuðningsaðila okkar, og allra áhugasamra, að
upplýsingum um starfsemi UNICEF hér heima og erlendis.


 


Aukin hætta á dreifingu sjúkdóma í kjölfar fellibylsins Tómasar á Haítí

09.nov.2010

Fellibylurinn Tómas gekk yfir Haítí í síðustu viku. Íbúar þessarar litlu eyja í karabíska hafinu vöknuðu á sunnudaginn og þurftu að meta skaðann vegna fellibylsins Tómasar, sem kom hræðilega nálægt því að bæta aukinni eymd á þjóð, sem er nú þegar að spóla sig út úr vandræðum nýliðins kólerufaraldurs og jarðsjálftans þann 12.janúar 2010.


 


Mjúkdýraleiðangur í IKEA hefst í dag

01.nov.2010

IKEA á Íslandi tekur í fyrsta skipti þátt í alþjóðlegu söfnunarátaki fyrir UNICEF og Save the Children með því að selja mjúkdýr til styrktar samtökunum. Átakið á sér langa sögu og hefur styrkt fjölda verkefna fyrir bágstödd börn víða um heim.


 


Kaupmenn í einn dag fyrir UNICEF

27.okt.2010

Smáralind bauð á dögunum börnum að gerast kaupmenn í einn dag og safna fyrir góðgerðarfélag að eigin vali. Dagurinn heppnaðist vel þar sem 101 barn mætti og safnaði fyrir góðu málefni. Fulltrúi UNICEF tók við ágóðanum sem rann til samtakanna, alls 3.120 krónur


 


Foreldrar og aðstandendur Skóla ehf gefa til neyðaraðstoðar

20.okt.2010

Skólar ehf reka fimm leikskóla á Suðvesturhorni landsins. Nýverið stóð fyrirtækið fyrir söfnun meðal starfsfólks og foreldra barna á leikskólunum vegna neyðaraðstoðar UNICEF á Haítí. Alls söfnuðust 101.500 krónur en auk þess lögðu Skólar til mótframlag upp á sömu upphæð. Skólar bættu svo um betur með 100.000 króna gjöf vegna neyðaraðstoðar í Pakistan.

 


 


Seldu málverk til styrktar börnum

12.okt.2010

Frændsystkinin Franklín Máni Arnarsson og Vala Karítas Guðbjartsdóttir gerðu listaverk og seldu til styrktar UNICEF á dögunum. Málverkasýning var haldin í fjölskylduboði og í kjölfarið seld. Þau Franklín og Vala söfnuðu alls 6.500 krónum.


 


Stúlkur styrkja börn í Pakistan

01.okt.2010

Vinkonurnar Karítas Gyða Sigurðardóttir og Helga Guðný Hallsdóttir, 10 ára, komu við hjá UNICEF í dag og afhentu styrk að upphæð 3130 krónum til neyðarstarfsins í Pakistan. Þær söfnuðu fénu með því að selja leikföng, sem þær áttu sjálfar, fyrir utan Bókasafn Hafnarfjarðar og Ísbúð Vesturbæjar í Hafnarfirði.


 


Leitum að eldhugum í kynningarstörf

30.sep.2010

UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki sem vill leggja málstað samtakanna lið í október og nóvember. Starfið felst í því að ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu, kynna starf UNICEF, og bjóða fólki að skrá sig sem mánaðarlega styrktaraðila.


 


Minnt á dag án ofbeldis 2. október

30.sep.2010

Alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna án ofbeldis (e. Day of Nonviolence) er haldinn hátíðlegur um allan heim 2. október næstkomandi. Af þessu tilefni mun fjöldi samtaka standa fyrir myndun mannlegs friðarmerkis á Klambratúni klukkan 20 að kvöldi þess dags.


 


Aðgengi að HIV þjónustu eykst á alþjóðavísu

29.sep.2010

Aðgengi að HIV þjónustu hefur aukist í lág- og meðaltekjulöndum, samkvæmt nýrri skýrslu sem kynnt var í gær. Skýrslan, Towards Universal Access, er gefin út af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), UNICEF og UNAIDS.


 


Fimm milljónir úr neyðarsjóði til hjálparstarfs í Pakistan

22.sep.2010

Í ljósi gríðarlegs umfangs neyðarinnar í Pakistan hefur UNICEF á Íslandi ákveðið að verja fimm milljónum króna úr neyðarsjóði sínum til UNICEF í Pakistan. Bætist sú upphæð við þær sex milljónir sem safnast hafa frá íslenskum almenningi á undandförnum vikum. Yfir tíu milljónir barna þurfa á aðstoð að halda. 


 


Oddi styður UNICEF til góðra verka

21.sep.2010

Í dag skrifuðu Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF, og Arnar Árnason, markaðsstjóri Prentsmiðjunnar Odda, undir samstarfssamning sem felst í að Oddi styrkir Barnahjálpina með því að veita veglegan afslátt af allri hönnun og prentun á fræðslu- og kynningarefni ásamt prentun á jólakortum Barnahjálparinnar.


 


Ný skýrsla frá UNICEF á Íslandi um mansal

20.sep.2010

UNICEF áætlar að um 2.400 börn fari árlega frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Ný íslensk rannsókn varpar skýrara ljósi á umfang og eðli mansalsins og bendir á leiðir til úrbóta. Jónína Einarsdóttir, mannfræðingur, kynnir niðurstöður rannsóknarinnar á Jafnréttisdögum H.Í. þriðjud. 21. september, kl. 12-13, í Árnagarði 311.


 


Barnadauði lækkar um þriðjung frá árinu 1990

17.sep.2010

Nýjustu áætlanir Sameinuðu þjóðanna á barnadauða benda til að færri börn deyi fyrir fimm ára aldur í dag en árið 1990.Samkvæmt þessum áætlunum hefur dregið úr barnadauða (undir 5 ára) um allan heim frá 12,4 milljónum árið 1990 til 8,1 milljón á árinu 2009.


 


Menntun og leikur mikilvægur börnum á neyðarsvæðum í Pakistan

14.sep.2010

Á undanförnum vikum hafa gríðarleg flóð sett líf um 20,5 milljóna Pakistana úr skorðum. Þar á meðal eru milljónir berskjalda barna. UNICEF hefur gripið til aðgerða til að tryggja þessum börnum öruggt og uppbyggjandi umhverfi.


 


Vantar eldhuga á Akureyri til að kynna starf UNICEF

13.sep.2010

 alt=UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki á Akureyri sem vill leggja málstað samtakanna lið frá miðjum september og fram í nóvember. Starfið felst í því að ganga í hús á Eyjafjarðarsvæðinu, kynna starf UNICEF, og bjóða fólki að skrá sig sem mánaðarlega styrktaraðila.


 


Enn ríkir mikil neyð í Pakistan

08.sep.2010

Á hverjum degi flæðir vatn yfir ný svæði í Pakistan. Talið er að fjöldi þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á flóðunum sé nú orðinn um 20,5 milljónir. Meðal þeirra sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna eru um þrjár milljónir barna undir fimm ára aldri.


 


Ný rannsókn sýnir að fjármagn nýtist betur ef lögð er áhersla á þá fátækustu

07.sep.2010

Alþjóðsamfélagið getur komið milljónum til hjálpar með því að fjárfesta fyrst og fremst í þeim börnum og samfélögum sem minnst mega sín, samkvæmt nýrri rannsókn UNICEF sem kemur út í dag.


 


Hönnuðir styrktu UNICEF á LungA-hátíðinni

02.sep.2010

Sett var á fót milliliðalaus verslun, eða svokölluð PopUp verslun, á LungA á Seyðisfirði í júlí síðastliðnum og gáfu hönnuðir 10% af söluverði valdra vara til styrktar UNICEF. UNICEF kann hönnuðunum bestu þakkir fyrir stuðninginn. 


 


UNICEF útvegar vatn á flóðasvæðunum

31.ágúst.2010

Ástandið er enn gríðarlega slæmt á flóðasvæðunum í Pakistan og neyðaraðgerða er enn þörf. UNICEF útvegar um tveimur milljónum manna heilnæmt vatn á hverjum degi. Söfnunarsímanúmer UNICEF eru 908-1000, 908-3000 og 908-5000. 


 


Fjórar milljónir pakistanskra barna í bráðri hættu

26.ágúst.2010

Samkvæmt nýjustu áætlunum stjórnvalda í Pakistan hafa um 20 milljónir íbúa orðið fyrir áföllum í kjölfar flóðanna. Af þeim eru yfir átta milljónir barna undir 18 ára aldri. Fjórar milljónir þeirra eru í mikilli hættu á að smitast af lífshættulegum sjúkdómum.


 


Tekjur af lagi Bjarkar til hjálparstarfs UNICEF í Pakistan

24.ágúst.2010

Aðdáendur Bjarkar Guðmundsdóttur geta nú hlaðið niður laginu „The Comet Song“ á iTunes og stutt um leið hjálparstarf UNICEF í Pakistan. Allar tekjur af laginu renna til hjálparstarfsins. Björk hefur áður lagt UNICEF lið með svipuðum hætti og er dyggur stuðningsaðili samtakanna.


 


Mál og menning hefur sölu á UNICEF-leikföngum

24.ágúst.2010

Undanfarin ár hefur UNICEF á Íslandi selt vandaða gjafavöru til styrktar hjálparstarfi í þágu bágstaddra barna. Bókabúð Máls og menningar hefur nú tekið til sölu fjölmargar vörur úr leikfangalínu UNICEF og mun þegar nær dregur jólum einnig taka til sölu jólakort og fleiri gjafavörur.


 


Innsýn í ástandið á flóðasvæðunum í Pakistan

23.ágúst.2010

Yfirmaður UNICEF í Suður-Asíu, Daniel Tool,  heimsótti flóðasvæðin í Pakistan í síðustu viku. Hann lýsir því sem fyrir augu bar í persónulegri dagbók sinni. Lýsingarnar veita innsýn inn í skelfilegt ástand sem blasir við milljónum barna og fjölskyldum þeirra.


 


Þakkir til hlaupara sem söfnuðu áheitum fyrir UNICEF

21.ágúst.2010

Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er nú lokið en um 6000 hlauparar tóku þátt í öllum vegalengdum. UNICEF á Íslandi vill þakka öllum þeim hlaupurum sem söfnuðu áheitum fyrir UNICEF sem og þeim sem á þá hétu. Þegar þetta er skrifað hefur samtals 219.600 krónum verið heitið á UNICEF-hlaupara.


 


Yfirlýsing vegna neyðarástandsins í Pakistan

20.ágúst.2010

Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF, hefur gefið út yfirlýsingu vegna neyðarástandsins í Pakistan. Í yfirlýsingunni brýnir Lake þörfina fyrir stóraukin framlög til hjálparstarfs í þágu pakistanskra barna ef koma á í veg fyrir að „flóðin sem hafa lagt heimili þeirra í rúst leggi ekki einnig framtíð þeirra í rúst“.


 


Ein milljón hefur safnast fyrir hjálparstarf í Pakistan

19.ágúst.2010

UNICEF á Íslandi hóf í gær söfnun fyrir hjálparstarf UNICEF á flóðasvæðunum í Pakistan. Ljóst er að fjölmargir Íslendingar ætla að svara kallinu en á fyrsta sólarhringnum hefur safnast yfir ein milljón króna. UNICEF metur mikils hvert framlag og hvetur sem flesta að taka þátt í söfnuninni.


 


Söfnun á Íslandi vegna hjálparstarfs í Pakistan

18.ágúst.2010

UNICEF hefur hafið söfnun meðal almennings á Íslandi vegna neyðaraðstoðar á flóðasvæðunum í Pakistan. Hægt er að styrkja hjálparstarfið með því að hringja í sérsök söfnunarnúmer: 908-1000, 908-3000 eða 908-5000. Einnig er hægt að styrkja hér á heimasíðu okkar.


 


Synti yfir Hafnafjarðarhöfn til styrktar UNICEF

18.ágúst.2010

Hinn 23 ára Hafnfirðingur Stefán Helgi Waagfjörð heimsótti nýverið skrifstofu UNICEF á Íslandi með 75.000 króna gjöf til samtakanna. Peningunum safnaði Stefán með því að fá vini og vandamenn til að heita á sig og synda svo yfir Hafnafjarðarhöfn í júlí.


 


Hjálpargögn berast til Pakistan

16.ágúst.2010

Hjálpargögn frá UNICEF berast nú í auknum mæli til barna og fjölskyldna þeirra á flóðasvæðunum í Pakistan í þessum verstu náttúruhamförum sem dunið hafa á landinu í manna minnum. Hægt er að leggja neyðaraðgerðum UNICEF í Pakistan lið með því að leggja inn á söfnunarreikning UNICEF á Íslandi, 515-26-102040, kennitala 481203-2950.


 


Einn albesti hlaupari landsins hleypur fyrir UNICEF

12.ágúst.2010

Einn albesti hlaupari landsins um árabil, Björn Margeirsson, safnar áheitum fyrir UNICEF í Reykjavíkurmaraþoninu. Hægt er að heita á Björn sem og aðra hlaupara sem valið hafa UNICEF sem sitt góðgerðarfélag og styrkja þannig gott málefni með skemmtilegum hætti.


 


Sex milljónir barna í Pakistan orðið fyrir áhrifum flóða

10.ágúst.2010

Talið er að yfir 14 milljónir manna í Pakistan hafi orðið fyrir beinum áhrifum af mannskæðum flóðum í landinu, þar af sex milljónir barna. Neyðinni líkt við það skelfingarástand sem skapaðist í kjölfar jarðskjálftanna árið 2005.


 


UNICEF sendir neyðargögn vegna flóðanna í Pakistan og Afganistan

03.ágúst.2010

UNICEF sendir nú hjálpargögn til þeirra milljóna manna sem hafa orðið illa úti í flóðunum í nokkrum héruðum í norðurhluta Pakistans og Afganistan. Flóðin eru þau verstu á svæðinu í yfir 80 ár og hafa nú þegar 3,2 milljónir manna, þ.á m. 1,4 milljónir barna, orðið fyrir áhrifum af þeim.


 


Alþjóðleg brjóstagjafavika hefst

30.jul.2010

UNICEF fagnar nú upphafi alþjóðlegrar brjóstagjafaviku. Sérstök áhersla er lögð á átakið í Sómalíu þar sem eitt af hverjum fimm börnum deyr fyrir fimm ára aldur, en brjóstagjöf getur dregið úr barnadauða um allt að 20 prósent og fækkað sjúkdómum.


 


Börn og ungmenni til umræðu á HIV/alnæmis-ráðstefnunni í Vín

26.jul.2010

Alþjóðlega ráðstefnan um HIV/alnæmi, AIDS 2010, lagði áherslu á mikilvægi þess að koma í veg fyrir smit frá móður til barns. Sérfræðingar UNICEF í HIV/alnæmi komu saman frá yfir 35 löndum á ráðstefnunni sem nú er að ljúka.


 


Ungmenni Austur-Evrópu og Mið-Asíu upplifa skömm og útskúfun

19.jul.2010

 alt=HIV veirunni er líkt við neðanjarðar farsótt í Austur-Evrópu og Mið-Asíu samkvæmt nýrri skýrslu sem UNICEF kynnir í dag. Veiran breiðist hratt út og er eiturlyfjaneysla, áhættusöm kynhegðun og neikvæður félagslegur stimpill sem fylgir því að sækja sér ráðgjöf og meðferð, eins og bensín á bálið.


 


Leo Messi spilar nýtt hlutverk sem velgjörðasendiherra UNICEF

16.jul.2010

Leo Messi, hjá knattspyrnuliðinu Barselóna og argentíska landsliðinu, fór í fyrstu vettvangsheimsókn sína í gær með UNICEF síðan hann var skipaður velgjörðasendiherra samtakanna í mars síðastliðnum.


 


Sex mánuðum frá jarðskjálftanum á Haítí eru börn enn í hættu og þurfa aðstoð

12.jul.2010

Sex mánuðum eftir að einn stærsti jarðskjálfti í 200 ár á Haítí olli mikilli eyðilegginu er það hjálparstarfsfólki mikil áskorun að mæta þörfum þeirra 800 þúsund barna og fjölskyldna þeirra sem þurfa á hjálp að halda. UNICEF veitir viðamikla neyðaraðstoð.


 


Greiðsluseðlar sendir út vegna mistaka

09.jul.2010

Fyrir mistök hjá Íslandsbanka voru sendir út greiðsluseðlar heim til allra heimsforeldra sem eru með beingreiðslur í maí, júní og júlí. UNICEF biðst velvirðingar á þessum tæknilegu mistökum og biður heimsforeldra vinsamlegast að henda greiðsluseðlunum. Greiðslur eru innheimtar rafrænt. UNICEF mun ekki bera kostnað af þessum póstsendingum bankans.


 


Vernd barna á HM

05.jul.2010

Nú þegar Heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla nær hámarki eru verkefni UNICEF og samstarfsaðila um vernd barna í fullum gangi. Verkefni UNICEF í tengslum við mótið eru fimm; stofnun barnvænna staða, þjálfun félagsráðgjafa, Rauða spjalds-átakið, kynning á siðareglum í ferðamannaiðnaðinum og íþróttahátíðir.


 


Bæklingur um erfðagjafir til UNICEF kominn út

25.jun.2010

Það færist í vöxt að fólk kjósi að ánafna hluta eigna sinna til góðgerðamála eftir sinn dag. UNICEF á Íslandi hefur nú tekið saman bækling til þess að skýra mikilvægi erfðagjafa fyrir framtíðarstarf samtakanna, auk þess sem bæklingurinn inniheldur svör við spurningum um erfðagjafir til hjálparsamtaka.


 


UNICEF dreifir 40 tonnum af hjálpargögnum í Kirgistan

22.jun.2010

Þrátt fyrir auknar áhyggjur af öryggismálum hefur UNICEF hafið stórfellda dreifingu hjálpargagna til fólks á flótta undan ofbeldinu í Kirgistan. Á sama tíma hefur hluti af fjölskyldum af kynþætti Úsbeka, sem flúðu yfir til nágrannalandsins Úsbekistan, fengið pláss í flóttamannabúðum sem UNICEF styður.


 


Átök í Kirgistan splundra fjölskyldum

18.jun.2010

Um 400 þúsund manns hafa nú misst heimili sín vegna átakanna í Suður-Kirgistan. UNICEF hefur varað við því að fjölskyldur tvístrist og að börn verði ein og umkomulaus.Yfirmaður UNICEF í Kirgistan, Jonathon Veitch, sagði að 90% flóttafólks væru konur, börn og eldra fólk.


 


Ný íslensk skýrsla um mansal í Gíneu-Bissá

16.jun.2010

UNICEF áætlar að á hverju ári fari fjöldi barna frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Skýrsla þessi byggist á rannsókn sem gerð var að ósk UNICEF í Gíneu-Bissá til að afla upplýsinga um ástæður, umfang og afleiðingar þessa og hvort um eiginlegt mansal barna sé að ræða.


 


Sextíu og fjórir nýir heimsforeldrar á Akranesi

15.jun.2010

Á undanfarinni viku hafa 64 Skagamenn gerst heimsforeldrar. Bætast þeir þar með í hóp rúmlega 300 Akurnesinga sem styrkja UNICEF með mánaðarlegum framlögum í gegnum heimsforeldraverkefnið og styðja þannig við starf samtakanna í þágu bágstaddra barna um allan heim.


 


UNICEF sendir hjálpargögn til landamæra Kyrgistan

15.jun.2010

UNICEF sendi í gær hjálpargögn með sex vörubílum frá Tashkent, höfuðborg Úsbekistan, til flóttafólks sem flúið hefur átökin í Kyrgistan. Um er að ræða 76 tjöld, 2.210 teppi, 25 heilsugæslupakka sem innihalda sárabindi, sápur, klúta, bleyjur, o.fl., um 500 pakka með eldhúsáhöldum, 1.100 boli, 900 pakka af vatnshreinsitöflum og 1764 vatnsdunka.


 


Nýr stjórnarformaður UNICEF á Íslandi

14.jun.2010

Svanhildur Konráðsdóttir er nýr stjórnarformaður UNICEF á Íslandi, en hún hefur setið í stjórn samtakanna í þrjú ár. Tilkynnt var um þetta á aðalfundi UNICEF á Íslandi í Þjóðminjasafninu í dag. Hún tekur við af Þórunni Sigurðardóttur sem setið hefur í stjórn UNICEF á Íslandi frá stofnun samtakanna, þar af sem formaður síðustu tvö ár.


 


Te & kaffi veita UNICEF veglegan styrk

08.jun.2010

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, veitti fyrir helgi viðtöku rúmlega 1,4 milljónum króna frá Sigmundi Dýrfjörð, framkvæmdastjóra Te & Kaffis. Þessi upphæð bætist við rúmar fjórar milljónir sem þegar hafa safnast í sameiginlegu fjáröflunarverkefni UNICEF og Te & kaffis.


 


Metþátttaka í UNICEF-hreyfingunni

02.jun.2010

Grunnskólaverkefni UNICEF á Íslandi, UNICEF-hreyfingin, eflist með hverju árinu sem líður. Það sem af er þessu ári hafa 25 skólar og frístundaheimili skráð sig til þátttöku, en hægt er að framkvæma verkefnið hvenær árs sem er. Tæplega fjögur þúsund nemendur hafa tekið þátt í verkefninu í ár.


 


Rausnarleg gjöf frá fermingarstúlku

02.jun.2010

Harpa Hrönn Hjaltalín Arnarsdóttir leit við á skrifstofu UNICEF á dögunum með góðan glaðning. Harpa Hrönn, sem fermdist í vor, tók þá ákvörðun að láta 40 þúsund krónur af fermingarpeningunum renna til starfsemi UNICEF í þágu þurfandi barna. UNICEF á Íslandi kann henni bestu þakkir fyrir frábært framtak.


 


Nemendur í M.A. styrkja UNICEF

01.jun.2010

Nemendur í félagsfræðiáfanganum FÉL313, félagsfræði þróunarlanda, í Menntaskólanum á Akureyri hafa á þessari önn staðið fyrir söfnun til styrktar UNICEF. Tveir viðburðir voru haldnir í skólanum, bíókvöld og tölvuleikjamót, og rann ágóðinn óskiptur til UNICEF, samtals 133.086 kr.


 


Yfirlýsing frá framkvæmdastjóra UNICEF vegna réttarhalda yfir barnahermanni í Guantanamó-flóa

28.maí.2010

Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fyrirhugaðra réttarhalda yfir Omar Khadr sem var handtekinn og færður til Guantanamo-flóa vegna glæpa sem hann er sagður hafa framið 15 ára gamall.


 


Átak í skráningu heimsforeldra

25.maí.2010

Ýtt hefur verið úr vör átaki í nýskráningu heimsforeldra. Á næstu misserum mun starfsfólk frá UNICEF ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að kynna UNICEF og bjóða fólki að ganga til liðs við heimsforeldraverkefni samtakanna. Þessa dagana er starfsfólkið á ferli í Grafarvogi.


 


Nýr framkvæmdastjóri tekur við hjá UNICEF

02.maí.2010

Anthony Lake tók við sem framkvæmdastjóri UNICEF í gær. Hann er sjötti framkvæmdastjóri UNICEF í 64 ára sögu samtakanna. Lake hefur yfir 45 ára reynslu af opinberri stjórnsýslu í Bandaríkjunum og innan alþjóðasamtaka.


 


Dregur úr dauðsföllum vegna malaríu

28.apr.2010

Mikill árangur hefur náðst á síðustu árum í báráttunni gegn malaríu, ekki síst í sunnanverðri Afríku. Í stað þess að  sjúkdómurinn valdi dauða afrísks barns á þrjátíu sekúndna fresti, eins og verið hefur um árabil, er nú nær að tala um 40-45 sekúndur.


 


Þátttakendur í RVK-maraþoni geta hlaupið fyrir UNICEF

26.apr.2010

Líkt og undanfarin ár gefst þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis. Allir hlauparar geta valið að tengja sig tilteknu góðgerðarfélagi, hvetja svo vini og vandamenn til að heita á sig og renna áheitin til félagsins.


 


Dreifing hjálpargagna hefur tafist vegna eldgossins

23.apr.2010

Eins og flestum er kunnugt hefur eldgosið í Eyjafjallajökli valdið miklum truflunum á flugsamgöngum. UNICEF hefur m.a. ekki getað komið hjálpargögnum á vettvang víða um heim. Birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn vinnur náið með samstarfsaðilum til að finna aðrar leiðir fyrir hjálpargögn í þeim tilgangi að minnka áhrif flugbannsins á hjálparstarfið.


 


Aðeins 40% íslenskra barna þekkja réttindi sín

21.apr.2010

Íslensk og dönsk ungmenni telja sig vita minnst um réttindi sín, en 40 prósent íslenskra ungmenna telja sig ekki þekkja þau, miðað við 68% finnskra barna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem byggir á könnun á viðhorfum 12-16 ára barna til réttinda og þátttöku. Efni skýrslunnar verður kynnt á hádegisfundi (kl. 12-13) í dag á Laugavegi 42.


 


Norræn könnun um réttindi barna til þátttöku

20.apr.2010

UNICEF á Íslandi mun halda hádegisfund á morgun, miðvikudaginn 21. apríl  kl. 12-13, á skrifstofu samtakanna að Laugavegi 42, þar sem kynntar verða helstu niðurstöður könnunar sem gerð var meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund barna. Könnunin var gerð frá ágúst 2009 til febrúar 2010.


 


Kaffi til styrktar UNICEF

19.apr.2010

Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.


 


Robbie Williams vekur athygli á neyð barna á Haítí

16.apr.2010

Nú þegar þrír mánuðir eru liðnir frá hamförunum á Haítí vekur breski söngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Robbie Williams, athygli á neyð barna í landinu. Hann hvetur fólk til að gera allt sem það getur til að veita börnum þar hjálparhönd


 


Þúsaldarmarkmið um heilnæmt vatn innan seilingar

31.mar.2010

Í nýlegri skýrslu WHO og UNICEF eru settar fram niðurstöður sem kalla á blendin viðbrögð. Annars vegar er þar fjallað um góðan árangur við að tryggja sem flestum heilnæmt vatn. Hins vegar kemur fram að almennur aðgangur að fullnægjandi hreinlætisaðstöðu sé fjarlægt markmið.


 


UNICEF sameinar fjölskyldur á Haítí

25.mar.2010

Starfsmaður UNICEF hitti hinn átta ára gamla Jefferson í miðstöð fyrir umkomulaus börn í hjarta Port-au-Prince á Haítí. Jefferson hafði dvalið þar í tvær vikur, einn af þúsund börnum sem höfðu orðið viðskila við fjölskyldur sínar í kjölfar jarðskjálftans mikla 12. janúar síðastliðinn. Horfa á vídeó.


 


Aurora styrkir UNICEF í Síerra Leóne um 40 milljónir

20.mar.2010

Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur tilkynnt þá ákvörðun sína að veita 40 milljónum króna til verkefna UNICEF á sviði menntunar í Vestur-Afríkuríkinu Síerra Leóne. Meðal markmiða verkefnisins sem Aurora styrkir með svo rausnarlegum hætti er að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði.


 


Yfir tvöþúsund páskaegg seld

15.mar.2010

Sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF hafa verið til sölu undanfarnar tvær vikur í mörgum af stærri matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu sem og minni útsölustöðum. Um er að ræða sérpökkuð súkkulaðiegg með íslenskum málsháttum um börn. Nú þegar rúmar tvær vikur eru til páska hafa yfir tvö þúsund egg selst.


 


UNICEF veitir einni milljón barna í Chile aðstoð

12.mar.2010

UNICEF mun veita einni milljón barna aðstoð eftir jarðskjálftana í Chile sem hófust 27. febrúar síðastliðinn. Það er enn óljóst hversu eyðileggingin er mikil eftir harða jarðskjálftann í gær. Talið er að yfir 500 manns hafi látist eftir fyrri skjálftann. UNICEF mun veita aðstoð á sviði vatns og hreinlætis, menntunar og verndar.


 


Lionel Messi nýr velgjörðasendiherra UNICEF

11.mar.2010

Í dag verður einn vinsælasti knattsyrnumaður heims, hinn argentínski Lionel Messi, útnefndur sem velgjörðarsendiherra UNICEF. Messi bætist þar með í hóp heimskunnra einstaklinga sem kjósa að nota frægð sína í þágu bágstaddra barna um allan heim og vekja athygli á starfi UNICEF.


 


Yfirlýsing vegna 8. mars

08.mar.2010

Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF, gaf út yfirlýsingu í dag vegna alþjóðlegs baráttudags kvenna, 8. mars. Hún segir m.a. frá heimsókn sinni í miðstöð fyrir stúlkur sem bjargað hefur verið frá vændi í Gvatemala. Dagurinn minnir okkur á að mikið verk er óunnið, ekki síst við að tryggja stúlkum og konum vernd gegn ofbeldi og mistnokun.


 


Viðbrögð vegna jarðskjálftanna í Chile

02.mar.2010

UNICEF er í viðbragðsstöðu eftir jarðskjálftann á Chile síðastliðinn laugardag, sem mældist 8,8 á Richter-skala. Talið er að um 700 manns hafi látist í jarðskjálftanum og 1,5 m. manna hafa misst heimili sín, auk þess sem skólar, sjúkrahús, vegir og aðrar byggingar eyðilögðust.UNICEF hefur ekki hafið alþjóðlega söfnun vegna skjálftanna.


 


UNICEF-páskaegg komin í verslanir

02.mar.2010

Sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF verða til sölu í flestum stærri matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu fyrir þessa páska. Um er að ræða lítil sérpökkuð súkkulaðiegg með íslenskum málsháttum um börn. Páskaeggin verða auk þess á boðstólum á fjölmörgum kaffihúsum og í smærri verslunum. Söluverð páskaeggjanna er 500 krónur.


 


Nemendur FSN styrkja hjálparstarf UNICEF á Haití

01.mar.2010

Fjölbrautaskóli Snæfellinga hélt upp á Sólardaga í febrúar. Þá er hefðbundið skólastarf brotið upp með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá fyrir nemendur. Nokkrir þeirra ákváðu  að láta gott af sér leiða í leiðinni og söfnuðu um 50 þúsund krónum fyrir starf UNICEF í þágu þurfandi barna á Haítí.


 


Mánuður frá jarðsjálftanum á Haítí

16.feb.2010

Mánuður er nú liðinn frá því að öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí með skelfilegum afleiðinum fyrir fjölda fólks. Sameinuðu þjóðirnar áætla að yfir þrjár milljónir manna – þriðjungur íbúa á Haíti – hafi orðið fyrir miklum skaða. Afleiðingar hörmunganna bætast ofan á langvarandi fátækt og óstöðugleika á Haítí.


 


UNICEF þarf 1,2 milljarða USD til að bregðast við neyð

08.feb.2010

Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), Humanitarian Action Report 2010, kemur fram að UNICEF þarf um 1,2 milljarða bandaríkjadala til að koma börnum og konum til hjálpar á 28 svæðum þar sem samtökin telja að þörfin á neyðaraðstoð sé sérstaklega aðkallandi.


 


Viðamikið bólusetningarátak hafið á Haítí

04.feb.2010

UNICEF hefur hafið umfangsmikið bólusetningarátak á Haítí í samstarfi við heilbrigðistráðuneyti landins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO). Átakinu er ætlað að ná til rúmlega hálfrar milljónar barna undir sjö ára aldri sem verða bólusett gegn mislingum, rauðum hundum, barnaveiki, stífkrampa og kíghósta.


 


Starfsfólk UNICEF á Haítí vinnur við erfiðar aðstæður

02.feb.2010

UNICEF hefur verið með starfsemi á Haítí frá 1949. Starfsfólk samtakanna hefur smám saman náð að aðlaga sig að erfiðum aðstæðum í kjölfar jarðskjálftans sem skók landið af svo tortímandi mætti  þann 12. janúar síðastliðinn. Hér má sjá viðtöl við starfsfólk og fá innsýn inn í þær aðstæður sem hjálparstarfsfólk glímir við.


 


Neyðin á Haítí er neyð barna

29.jan.2010

Neyðin á Haítí er að stórum hluta neyð barna. Nærri 40 prósent Haítí-búa eru yngri en 14 ára og helmingurinn er yngri en 18 ára. Ýmsar ógnir steðja að fjölda barna á hamfarasvæðinu, s.s. næringar- og vatnsskortur, sjúkdómar og misnotkun og mansals.


 


250.000 krónur söfnuðust á tónleikum fyrir Haítí

29.jan.2010

Tónlistarvefurinn Gogoyoko og tónleikastaðurinn Sódóma Reykjavík, í samstarfi við Hljóð X og sex íslenskar hljómsveitir, stóðu fyrir tónleikum í gær til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí. Alls söfnuðust 250.000 krónur og renna þær óskiptar til hjálparstarfsins.


 


Tónleikar til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí

28.jan.2010

Gogoyoko og Sódóma Reykjavík standa að tónleikum til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí í kvöld, fimmtudaginn 28. janúar. Sex hljómsveitir koma fram og gefa þær allar vinnu sína. Miðaverð er hóflegt, 1.000 krónur, og rennur andvirðið óskipt til UNICEF auk þess sem tekið er á móti frjálsum framlögum á staðnum.


 


Hin margfalda neyð barna á Haítí

25.jan.2010

Aðstoð berst nú til barna sem fóru illa út úr jarðskjálftanum sem reið yfir Haítí þann 12. janúar. Gríðarleg neyð ríkir þó enn á Haítí. Afleiðingar hörmunganna, þar með talið áhrif jarðskjálftans á heilsu og öryggi barna, bætast ofan á langvarandi ástand fátæktar og óstöðugleika á Haítí.


 


Hreint drykkjarvatn og öruggt skjól á Haítí

22.jan.2010

Fimm flugfarmar af hjálpargögnum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hafa borist til Haítí síðan að jarðskjálftinn reið yfir. Síðan söfnun UNICEF á Íslandi fyrir fórnarlömb jarðskjálftans á Haítí hófst þann 14. janúar hafa um fjórar milljónir íslenskra króna safnast.


 


Frásögn starfsmanns UNICEF á Haítí

21.jan.2010

Upplýsingafulltrúi UNICEF, Tamar Hahn, er stödd á Haítí og heldur áfram að lýsa því sem fyrir augu ber. Hún heimsótti börn sem urðu viðskila við foreldra sína í jarðskjálftanum og fékk að heyra sögur þeirra. Hún skrifar einnig um aðstæður fólks og hina gríðarlegu þrautseigju Haítíbúa. Tengil á frásögn hennar má finna hér í fréttinni.


 


Varnarlaus börn á Haítí

21.jan.2010

Sterkur eftirskjálfti skók Haítí í gærmorgun og jók hann enn frekar á streitu og hræðslu barna og fjölskyldna þeirra á jarðskjálftasvæðunum. Neyðaraðstoð heldur áfram á hamfarasvæðunum. Símanúmer í söfnun UNICEF eru 908-1000, 908-3000 og 908-5000.


 


UNICEF hefur þungar áhyggjur af öryggi barna á Haítí

20.jan.2010

Þúsundir barna hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar í kjölfar jarðskjálftans á Haítí. Þessi börn eru afar berskjalda gegn ofbeldi og misnotkun. UNICEF leggur mikla áherslu á að tryggja varnarlausum börnum nauðsynlega vernd samhliða því að koma nauðsynlegum hjálpargögnum til ungra eftirlifenda.


 


Átakanleg frásögn UNICEF-starfsmanns frá Haítí

19.jan.2010

Upplýsingafulltrúi UNICEF, Tamar Hahn, er stödd á Haítí og lýsir því sem fyrir augu ber á heimasíðu UNICEF í Bretlandi. Lýsingar hennar eru vægast sagt átakanlegar. Tengil á frásögn hennar má finna hér í fréttinni.


 


2,5 milljónir króna hafa safnast

17.jan.2010

Íbúar Port-au-Prince og annara svæða á Haítí sem fóru illa út úr jarðskjálftanum þann 12. janúar sofa nú margir undir berum himni, umkringdir rústum heimila sinna.  Söfnun UNICEF á Íslandi gengur vel, en nú um helgina höfðu safnast yfir 2,5 milljónir króna. Hægt er að veita framlög hér á síðunni.


 


Neyðaraðstoð berst til Haítí

15.jan.2010

Lífsnauðsynleg hjálpargögn berast nú í stórum stíl til Haítí í gegnum birgðanet UNICEF og samstarfsstofnanna. Aukning á aðstoð er lífsnauðsynleg fyrir íbúa Haítí. Söfnun UNICEF á Íslandi er í fullum gangi, en hægt er að veita framlög hér á síðunni eða í gegnum síma 908-1000, 908-3000 og 908-5000.


 


Neyðarsöfnun fyrir Haítí

14.jan.2010

Geigvænleg eyðilegging blasir við á Haítí í kjölfar jarðskjálftans síðastliðinn þriðjudag. UNICEF hefur opnað fyrir söfnunarnúmerin 908-1000, 908-3000 og 908-5000 til stuðnings við hjálparstarf í þágu barna á Haítí. Einnig er tekið á móti framlögum hér á síðunni.


 


UNICEF í viðbragðsstöðu í kjölfar jarðskjálfta á Haítí

13.jan.2010

Afar öflugur jarðskjálfti hefur valdið miklu tjóni á Haíti. Skjálftinn átti upptök sín um 17 kílómetra frá höfuðborginni Port-au-Prince laust fyrir klukkan 22 að íslenskum tíma í gærkvöldi. Fyrstu upplýsingar benda til þess að mannfall sé mikið og skemmdir á mannvirkjum gríðarlegar. 


 


Fimm ár liðin frá flóðbylgjunum við Indlandshaf

05.jan.2010

Fimm ár eru nú liðin frá því að jarðskjálfti við strendur Indónesíu olli risaflóðbylgjum í Indlandshafi. UNICEF hefur gefið út skýrslu með samantekt yfir árangurinn af uppbyggingarstarfi í löndunum átta sem urðu fyrir mannskaða og tjóni af völdum flóðbylgnanna.