Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Bólusetningar

 

Tímamót í baráttunni við lömunarveiki á Indlandi

27.jan.2012

Merkileg tímamót hafa orðið í baráttunni við lömunarveiki á Indlandi. Rúmt ár er síðan síðasta tilfellið í landinu kom upp. Alistair Gretarsson, upplýsingafulltrúi hjá UNICEF á Indlandi, er að vonum glaður með að lömunarveikilaust Indland sé í augsýn. (Gríðarlega mikilvægt sé að ná að útrýma sjúkdómnum um allan heim.)


 


UNICEF náði til nærri 60% barna í heimi: Ný birgðaskýrsla er komin út

05.jul.2011

Árið 2010 sendi UNICEF vel yfir 2 milljarða skammta af bóluefni á vettvang – og náði þar með til 58% barna í heimi. Þetta kemur fram í nýrri birgðaskýrslu UNICEF fyrir 2010. Þar kemur einnig fram að nærri 400 milljónum taflna með ormalyfi var dreift. Þetta er einungis hægt með góðri skipulagningu!


 


Yfir 2 milljörðum skammta af bóluefni dreift til barna um allan heim

04.maí.2011

UNICEF starfar í nærri 160 löndum og árið 2010 var í ótal horn að líta hjá samtökunum. Alls var rúmlega tveimur milljörðum skammta af bóluefni dreift á árinu og það í nærri 90 löndum. Þar af var einn milljarður barna bólusettur gegn taugaveiki.


 


1,7 milljón börn bólusett gegn mislingum þrátt fyrir ólgu og átök

08.mar.2011

Dagana 7.-11. mars standa UNICEF og WHO fyrir umfangsmiklu bólusetningarátaki í Abidjan, stærstu borg Fílabeinsstrandarinnar. Áætlað er að rúmlega 1,7 milljón börn verði bólusett gegn mislingum.


 


Dreifing hjálpargagna hefur tafist vegna eldgossins

23.apr.2010

Eins og flestum er kunnugt hefur eldgosið í Eyjafjallajökli valdið miklum truflunum á flugsamgöngum. UNICEF hefur m.a. ekki getað komið hjálpargögnum á vettvang víða um heim. Birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn vinnur náið með samstarfsaðilum til að finna aðrar leiðir fyrir hjálpargögn í þeim tilgangi að minnka áhrif flugbannsins á hjálparstarfið.


 


Viðamikið bólusetningarátak hafið á Haítí

04.feb.2010

UNICEF hefur hafið umfangsmikið bólusetningarátak á Haítí í samstarfi við heilbrigðistráðuneyti landins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO). Átakinu er ætlað að ná til rúmlega hálfrar milljónar barna undir sjö ára aldri sem verða bólusett gegn mislingum, rauðum hundum, barnaveiki, stífkrampa og kíghósta.


 


Dauðsföllum vegna mislinga fækkar á heimsvísu

10.des.2009

Dauðsföllum af völdum mislinga í heiminum fækkaði úr 733 þúsundum árið 2000 í 164 þúsund í fyrra, eða um 78% á tímabilinu. Á síðustu árum hafa 700 milljónir barna verið bólusettar gegn sjúkdómnum og er talið að þær aðgerðir hafi komið í veg fyrir dauða 4,3 milljóna barna.


 


Aldrei fleiri börn bólusett

26.okt.2009

Samkvæmt nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú fleiri börn bólusett gegn banvænum sjúkdómum en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir það munu að minnsta kosti 24 milljón kornabörn fara á mis við þessa mikilvægu heilsuvernd án frekara fjármagns og bætts aðgengis.


 


UNICEF bólusetur gegn mislingum í Gíneu-Bissá

14.jul.2009

Dagana 3. til 7. júlí stóð UNICEF í Gíneu-Bissá, ásamt fleiri samtökum, fyrir viðamiklu heilsuátaki í þágu bissáskra barna undir fimm ára aldri. Áætlað er að um 25.000 börn hafi fengið A-vítamín, aformunarlyf og bólusetningu gegn mislingum.


 


Ár liðið frá jarðskjálftanum í Sichuan

11.maí.2009

Ár er nú liðið frá því að jarðskjálfti af stærðargráðunni 8,0 á Richter-skala reið yfir Sichuan-umdæmi í Kína. Á undanförnum tólf mánuðum hefur UNICEF varið 20 milljónum bandaríkjadala í neyðaraðstoð vegna hamfaranna.


 


Dauðsföll vegna mislinga lækka um 74%

05.des.2008
Dauðsföll af völdum mislinga hafa lækkað um 74% á heimsvísu , frá 750 þúsund til 197 þúsund, frá árinu 2000 til 2007. Að auki hefur dauðsföllum vegna mislinga fækkað um 90% í Miðausturlöndum frá 96 þúsund niður í 10 þúsund á sama tímabili.


 


Mikil neyð flóttafólks í Austu-Kongó

10.nov.2008
Ástandið fer versnandi dag frá degi í Austur-Kongó. Bardagar hamla hjálparstarfi en þó hafa UNICEF og aðrar hjálparstofnanir hafið víðtæka neyðaraðstoð til að veita þúsundum flóttafólks helstu lífsnauðsynjar. Neyðaraðstoð UNICEF er á sviði vatns, hreinlætis, næringar, bólusetningar og verndar.


 


David Beckham heimsækir verkefni UNICEF í Síerra Leóne

31.jan.2008
Fótboltastjarnan og velgjörðarsendiherrann David Beckham var nýlega í heimsókn í Síerra Leóne þar sem hann skoðaði verkefni UNICEF. Að sögn Beckham fór hann til Síerra Leóne til þess að beina athygli að málefnum bágstaddra barna.
 

 


Tíðni barnadauða aldrei verið lægri – hægt að ná meiri árangri að mati UNICEF

22.jan.2008
Í nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, The State of the World’s Children 2008, er lögð áhersla á leiðir til að draga úr þeim fjölda barna sem deyr fyrir fimm ára aldur. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Genf í dag, 22. janúar. (http://www.unicef.org/sowc08).

 


Nýjar rannsóknir sýna að í fyrsta skipti eru dauðsföll barna færri en 10 milljónir á ári

13.sep.2007

Nýjar alþjóðlegar tölur sýna að mikill árangur hefur náðst í baráttunni við barnadauða, þar á meðal hefur dánartíðni barna undir fimm ára lækkað verulega. Dauðsföll meðal barna telja nú 9,7-10 milljónir á ári og hafa aldrei verið færri, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn. Til samanburðar dóu 13 milljónir barna á árinu 1990.


 


Átak gegn stífkrampa stendur yfir í Gíneu-Bissá

30.maí.2007

Átak gegn stífkrampa stendur nú yfir í fyrsta skipti í Gíneu-Bissá. Ætlunin er að útrýma stífkrampa í mæðrum og nýfæddum börnum. Forsætisráðherra landsins hrinti átakinu af stað um helgina. Um 330 þúsund stúlkur og konur frá 15 til 49 ára verða bólusettar þökk sé stuðningi frá UNICEF.


 


Dregið úr ungbarnadauða í Síerra Leóne

16.apr.2007

Í heilsugæsluátaki sem hófst í dag í Síerra Leóne er áætlað að gefa 1,2 milljón kvenna á aldrinum 15-49 ára bólusetningu gegn stífkrampa og 85 þúsund börn frá 0-59 mánaða munu fá A-vítamín og lyf við ormum í maga.


 


Mikill vatnsskortur í Líbanon

22.ágúst.2006

Fyrstu athuganir benda til að allt vatnskerfi í suðurhluta Líbanon sé mikið skemmt eftir mánaðarlöng átök þar. Af tólf stöðum, sem urðu fyrir árásum, voru vatnsleiðslur á tíu þeirra illa skemmdar eða gersamlega eyðilagðar, samkvæmt fréttum frá fulltrúum UNICEF í Líbanon.


 


Ástandið í Líbanon versnar dag frá degi - lélegar samgöngur hamla hjálparstarfi

04.ágúst.2006

Ástandið í Líbanon versnar dag frá degi eftir að Ísraelar hófu árás á suðurhluta landsins 12. júlí síðastliðinn. UNICEF hóf strax víðtæka neyðaraðstoð þrátt fyrir að erfitt sé að komast að vissum svæðum þar sem allir vegir og flugvellir hafa verið eyðilagðir. Þegar þetta er ritað er tala látinna 860 og 3265 liggja særðir vegna átakanna, en ljóst er að fleiri munu liggja í valnum ef heldur áfram sem horfir.


 


Íslenskir aðilar styrkja alheimsátak gegn mænusótt

04.maí.2006

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi tilkynnti í dag um rúmlega 20,5 milljóna króna styrk frá Hreini Loftssyni hrl., Lýsi hf., Frímúrarareglunni á Íslandi, Eimskipi, Samherja, Klofningi, Íslensku umboðssölunni, Sölku-Fiskmiðlun, Norlandiu, Ice-Group og Félagsbúinu Miðhrauni til bólusetningarverkefnis UNICEF gegn mænusótt í Nígeríu.


 


Unicef 60 ára

16.mar.2006

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, var stofnuð í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1946 og fagnar því 60 ára afmæli sínu í ár. Á þessum áratugum hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn.


 


Börn í Bangladess fá bólusetningu

10.mar.2006

Í síðasta mánuði fóru bólusetningarteymi, stutt af UNICEF, um Bangladess í stærsta bólusetningarverkefni gegn mislingum í heimi. Áætlað er að ná til 33,5 milljóna barna. Teymin fóru á alla staði sem börn eru að finna; í skóla, garða, stofnanir, íbúðahverfi, strætóa og lestarstöðvar.


 


Baráttan gegn mænusótt í Nígeríu heldur áfram

14.feb.2006

Baráttan gegn mænusótt í Nígeríu heldur áfram þar sem áætlað er að útrýma sjúkdómnum árið 2007. Ljóst er að UNICEF og samstarfsaðilar hafa mikið verk fyrir höndum til að það megi nást. UNICEF í Nígeríu sendi upplýsingar um stöðu mála þar í landi. Þann 3. febrúar 2006 höfðu 786 mænusóttartilfelli verið staðfest í 21 héraði í Nígeríu fyrir 2005. Til samanburðar voru tilfellin 779 í 30 héruðum árið 2004.


 


Björk í Banda Aceh

06.feb.2006

Björk Guðmundsdóttir fór til Banda Aceh, á norðanverðri Súmötru í Indónesíu, dagana 26.-27. janúar. Tilgangur heimsóknar hennar var að heimsækja verkefni og uppbyggingarstarf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eftir flóðbylgjuna sem reið yfir löndin við Indlandshaf fyrir rúmu ári síðan.


 


Ár liðið frá hamförunum við Indlandshaf

28.des.2005

Annan í jólum var eitt ár liðið frá flóðbylgjunni við Indlandshaf. Hamfarirnar sem fylgdu voru geigvænlegar og kölluðu á neyðaraðstoð af þeirri stærðargráðu sem engin dæmi voru fyrir. Ríkisstjórnir og einstaklingar um allan heim sýndu mikið örlæti og hjálparstofnanir eins og UNICEF fengu liðstyrk hvaðan æva að úr heiminum.


 


Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu

29.sep.2005

Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Um 27 milljónir barna og 40 milljónir þungaðra kvenna eru ekki bólusett ár hvert og í 41 landi eru færri börn bólusett í dag en fyrir áratug síðan.


 


Saga af baráttu feðga við mænusótt

26.sep.2005

Þó að svo miklum árangri hafi verið náð í að útrýma mænusótt hafa nokkur tilfelli verið skráð í Nígeríu og nágrannaríkjum þess. UNICEF telur að ef takist ekki að útrýma mænusótt í Nígeríu geti hún ógnað veröldinni að nýju. Sjúkdómurinn leggst á börn, kripplar þau og lamar.


 


Matvæli og bólusetningar bjarga lífi barna í Níger

19.ágúst.2005

Með börn sín á bakinu bíða mæðurnar í þorpinu Tsaki þolinmóðar eftir því að fá matvæli og læknisaðstoð, en slík þjónusta er hluti af alþjóðlegu átaki til þess að stöðva hungursneyð í þessu landi sem er svo illa hrjáð af þurrkum.


 


Bellamy kveður UNICEF eftir tíu ára setu í stól framkvæmdastjóra

28.apr.2005

Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF, lýkur tíu ára tímabili sínu sem framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, um næstu mánaðarmót. Árangur UNICEF í forystu Bellamy er ótvíræður. Hún hefur ekki bara lagt áherslu á að bjarga lífi barna, heldur einnig á að tryggja þeim góðan uppvöxt í vernduðu og barnvænu umhverfi.


 


UNICEF fagnar framlagi Gates-sjóðsins og Noregs til bólusetninga

24.jan.2005

UNICEF fagnaði í dag nýjum framlögum frá Sjóði Bill og Melindu Gates og ríkisstjórn Noregs til hnattrænna bólusetningarverkefna, en framlögin nema yfir 1 milljarði Bandaríkjadala sem deilist yfir tíu ára tímabil. UNICEF sem er leiðandi í bólusetningum barna, fagnaði þessari framtíðarskuldbindingu við bólusetningar.


 


Flogið til stuðnings UNICEF

14.okt.2004

Í dag lenti flugstjórinn og stjórnarformaður South East Asian Airlines, Iren Dornier, sögulegum flugbát af gerðinni Dornier DO24 ATT í Reykjavík. Dornier flýgur nú hringinn í kringum heiminn en nákvæmlega 75 ár eru liðin frá því afi hans og hönnuður flugvélarinnar, Claude Dornier (1884-1969), fór ferð með slíkri flugvél sem þá þótti mikið afrek á sviði flugsmíði.


 


Angóla stefnir að því að útrýma mænusótt

29.ágúst.2004

Í sömu viku og mænusóttarfaraldur skall á þremur Afríkulöndum tók Angóla skref á átt að útrýmingu mænusóttar í landinu. Skrefið var tekið með því að hefja bólusetningarherferð þar sem fimm milljónir barna verða bólusettar.


 


UNICEF styrkir skuldbindingu sína við börn í Írak

18.ágúst.2004

Eitt ár er nú liðið síðan mannskæð sprengjuárás var gerð á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad þar sem margir starfsmenn létu lífið, þar á meðal einn starfsmaður Barnahjálparinnar. UNICEF sendi frá sér tilkynningu í dag um að skuldbinding stofnunarinnar við hag barna í Írak væri sterkari en nokkru sinni.


 


UNICEF bólusetur gegn heilahimnubólgu í Búrúndí

30.jul.2004

Um 24 tilfelli heilahimnubólgu varð vart í norðurhluta Búrúndí í síðustu viku. Líkja hjálparstofnanir SÞ þessu við faraldur og hafa UNICEF, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) og ríkisstjórn Búrúndí stofnað til samstarfs til að reyna að koma í veg fyrir að fleiri börn smitist.


 


Tvær milljónir barna bólusettar gegn mislingum í Darfur

16.jul.2004

Tvær milljónir barna á átakasvæðum Darfur-héraðsins í Súdan hafa verið bólusettar gegn mislingum. Um 500.000 barna eru þó án bólusetningar vegna þess að of hættulegt hefur reynst fyrir heilbrigðisstarfsmenn að ná til þeirra, samkvæmt heimildum stofnanna Sameinuðu þjóðanna þann 9. júlí.