UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
Milljóna evra safnað í Mjúkdýraleiðangri IKEA 2011
12.4 milljónir evra söfnuðust í Mjúkdýraleiðangri IKEA á heimsvísu fyrir UNICEF og Save the Children. Þar af söfnuðust 22.594 evrur, eða 3.648.480 krónur, á Íslandi.
IKEA gefur eina evru fyrir hvert mjúkdýr og hverja barnamáltíð sem seldust í yfir 300 IKEA verslunum um allan heim á tímabilinu 1. nóvember til 23. desember 2011.
UNICEF biður um fjármagn til þess að veita börnum neyðarhjálp
Í dag kallar UNICEF eftir 1,28 milljörðum Bandríkjadala, 157 milljörðum króna, til að fjármagna neyðarhjálp í ár en í því felst að koma börnum í yfir 25 löndum til hjálpar. UNICEF birti í dag skýrslu sína, Humanitarian Action Report, en þar er þörfin í ólíkum löndum greind og farið yfir hvaða leiðir UNICEF telur færar til hjálpar.
Gefandi gjafakarfa slær í gegn: Jólagjöf sem sannarlega skiptir máli
Óvenjuleg jólagjöf fyrir bágstödd börn hefur heldur betur slegið í gegn á aðventunni. Hér er um að ræða svokallaða gefandi gjafakörfu: Fulla af bóluefnum, námsgögnum, lyfjum og fleiru. Gefandinn fær fallegt gjafabréf en hjálpargögn eru send á vettvang. Gefðu jólagjöf sem er sönn gjöf!
Dagur rauða nefsins: Ómetanlegt framlag til bágstaddra barna
Landsmenn tóku afar vel í söfnunarátakið dag rauða nefsins sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð fyrir í gær. Um 1650 manns hringdu inn á meðan á söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF stóð og vildu ýmist gerast heimsforeldrar eða hækka framlag sitt. Margir hafa auk þess skráð sig á heimasíðunni í dag.
Myndbönd frá degi rauða nefsins: Páll Óskar, Stingum af, grín og glens!
Myndbönd frá degi rauða nefsins eru á leið á netið! Nú þegar er myndband Páls Óskars við UNICEF-lagið "Megi það byrja með mér" farið út, sem og ný útgáfa af lagi Mugisons "Stingum af". Hjartnæmt myndband um valdeflingu stúlkna sömuleiðis!
Skemmtun sem skiptir máli: Spennandi dagskrá í kvöld
Dagur rauða nefsins er í dag. Hápunkturinn er metnaðarfullur skemmti- og söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 19.30 en þar kemur saman landslið skemmtikrafta, leikara og grínista.
Rauðnefjað starfsfólk Samskipa styður við bágstödd börn
Hjá Samskipum átti starfsfólk saman notalega jólastund og setti upp rauð nef í tilefni af degi rauða nefsins. Fátt er skemmtilegra en að gleðjast saman og gleðja um leið aðra!
Björgunarsveitafólk stígur villtan dans á degi rauða nefsins
Nú standa yfir æfingar á frábæru dansatriði sem enginn má missa af. Á degi rauða nefsins stígur björgunarsveitafólk á svið og dansar í þágu góðs málefnis! Fimm meðlimir Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar og þyrluflugmaður úr Landhelgisgæslunni æfðu sig í gær.
Palli segir frá ferðinni til Síerra Leóne: Vísir og Kastljós
Dagbókarbrot Páls Óskars um Síerra Leóne-ferðina er hægt að lesa á Vísi. Palli var líka í frábæru viðtali í Kastljósinu þar sem hann spjallaði um hjálparstarf, upplifun sína af Síerra Leóne og dag rauða nefsins.
Börn eiga skilið allt það besta: Páll Óskar og Halldóra Geirharðs
Páll Óskar Hjálmtýsson og Halldóra Geirharðsdóttir hafa kynnt sér aðstæður barna og starf UNICEF á vettvangi í Síerra Leóne, Úganda og Haítí. Um helgina mátti lesa um upplifun þeirra í Fréttablaðinu og Sunnudagsmogganum.
Skreppur, Skotta og Skjóða slá í gegn
Grallaralegu rauðu nefin Skreppur, Skotta og Skjóða hafa fengið frábærar viðtökur meðal landsmanna. Hægt er að nálgast nefin í Bónus, Hagkaup, útibúum MP banka og hjá Te & Kaffi, auk þess sem skátafélög um land allt leggja UNICEF lið.
Jólakortin seld um allt land. Jólakúlan einnig komin
Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í verslunum Pennans/Eymundssonar, A4, Bókabúð Máls og menningar, Iðu og Bóksölu stúdenta.
Salan á rauðu nefjunum hefst í dag: Frú Vigdís setti upp fyrsta nefið
Dagur rauða nefsins er 9. desember og í dag hefst sala á rauðu nefjunum! Það var frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra, sem setti upp fyrsta nefið. Nefin í ár eru einstaklega skemmtileg og Vigdís valdi hana Skottu! Einnig verða þau Skjóða og Skreppur til sölu.
Mjúkdýraleiðangur IKEA til styrktar menntun barna
Söfnunaráakið Mjúkdýraleiðangurinn stendur nú yfir í verslun IKEA á Íslandi. Átakið er hluti af alþjóðlegu verkefni IKEA þar sem ein evra af hverju mjúkdýri sem viðskiptavinir kaupa fyrir jólin rennur til menntaverkefna á vegum UNICEF og Barnaheilla. Á heimsvísu hefur verkefnið stuðlað að betra lífi fyrir rúmlega átta milljón börn.
Söfnun vegna neyðarhjálpar í Austur-Afríku enn í gangi
Þrátt fyrir að mikilvægur árangur hafi náðst á neyðarsvæðunum í austanverðri Afríku eru tugir þúsunda barna enn í bráðri lífshættu. Vannæring er enn langt yfir neyðarmörkum og hætta er á að líshættulegir sjúkdómar breiðist út. Íslendingar geta enn lagt sitt af mörkum til neyðaraðgerða UNICEF með því að hringja í sérstök söfnunarsímanúmer.
MH-ingar gefa til hjálparstarfs í austanverðri Afríku
Árleg góðgerðarvika var haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð í síðustu viku. Nemendur sýndu þar mikla hugmyndaauðgi og beittu frumlegum söfnunaraðferðum. Söfnuðust alls 300.000 krónur sem renna til neyðaraðgerða UNICEF í austanverðri Afríku.
Greiðsluseðlar sendir á heimsforeldra vegna mistaka
Vegna kerfislægra mistaka hjá viðskiptabanka UNICEF á Íslandi voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslum. Við biðjumst innilegrar velvirðingar á þessum mistökum. Millifærsla af reikningi á að eiga sér stað með eðlilegum hætti. Tekið skal fram að UNICEF á Íslandi ber engan kostnað af mistökunum.
Fyrst og fremst hungursneyð barna: Meðferðarhorfur þó afar góðar
Hungursneyð hefur nú verið lýst yfir í sex héruðum í suðurhluta Sómalíu og búist er við að fleiri héruð muni fylgja í kjölfarið. UNICEF hefur þungar áhyggjur af ástandinu – enda er þetta fyrst og fremst hungursneyð barna.
Hasar og gleði á Klambratúni: Framlög renna til Austur-Afríku
Um helgina fór fram Íslandsmeistaramótið í brennibolta á Klambratúni. Sólin skein, fjöldi fólks fylgdist með, keppnin var afar hörð og hasarinn mikill - en gleðin sömuleiðis alls ráðandi! Sigurvegarinn var liðið Hot Shots úr Hafnarfirði. Allur ágóði af mótinu rann í neyðarsöfnun UNICEF fyrir þurrkasvæðin í Austur-Afríku.
Með mörg kíló af klinki í strætó: Léku á þverflautur og söfnuðu fé
Það voru fagrir flaututónar sem mættu gestum og gangandi í miðborg Reykjavíkur á laugardaginn. Þar voru komnar engar aðrar en vinkonurnar Andrea, Diljá og Hugrún sem léku á þverflauturnar sínar til að safna fé til styrktar börnum í Austur-Afríku. Söfnunin gekk einstaklega vel.
Metupphæð hjá hlaupurum: "Mikils metið," segir svæðisstjóri UNICEF
Aldrei hafa fleiri hlaupið til styrktar UNICEF á Íslandi en í áheitahlaupinu sem fram fór í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið á laugardag. Hlaupararnir söfnuðu auk þess metupphæð: Einni milljón króna. „Stuðningur sem þessi kemur á mikilvægum tíma og er mikils metinn,“ segir svæðisstjóri UNICEF í Austur-Afríku.
Fimm klukkutímar voru tíu mínútur: "Gaman að safna fyrir góðu málefni!"
Katrín Lind Birgisdóttir og Vilborg Lóa Jónsdóttir afhentu í dag fé sem þær söfnuðu með nærri fimm klukkustunda tombólu á Völlunum í Hafnarfirði á föstudag. Vinkonurnar gengu í hús, söfnuðu munum og fengu meðal annars heilt safn af tölvuleikjum! Tombólan gekk vonum framar.
Vel heppnuð tombóla á Ormsteiti um helgina: Gaf leikföng og gamla muni
Valný Lára Jónsdóttir Kjerúlf er 12 ára gömul og býr á Egilsstöðum. Hún safnaði saman gamla dótinu sínu og ýmsum munum og hélt tombólu á hátíðinni Ormsteiti nú um helgina. Valný Lára vildi koma vannærðum börnum í Austur-Afríku til aðstoðar.
Áheitahlaup, ljósmyndir, leikföng og fiðluleikur á Menningarnótt!
Óhætt er að segja að Reykjavík hafi iðað af lífi á laugardag. Um borg og bý studdu ótal manns neyðaraðgerðir UNICEF á þurrkasvæðunum í austurhluta Afríku – og það með margvíslegum hætti: Hlaupum, ljósmyndum, bílskúrssölu og fiðluleik! Við þökkum öllu þessu frábæra fólki hjartanlega fyrir framlagið.
Spilar á fiðlu á menningarnótt til styrktar börnum í Austur-Afríku
Ágústa Dómhildur Karlsdóttir, fiðlunemi með meiru, ætlar að styrkja hjálparstarf UNICEF í Austur-Afríku á óvenjulegan hátt á menningarnótt á morgun. Milli klukkan 15-18 mun Ágústa „böska“ fyrir utan Eymundsson á Skólavörðustíg, þ.e. spila og safna framlögum í fiðlukassann sinn. Öll framlög sem safnast munu svo renna óskipt til UNICEF.
Ilmur Kristjánsdóttir biðlar til fólks um að styðja neyðarsöfnun UNICEF
Í nýju myndbandi með leikkonunni Ilmi Kristjánsdóttur biðlar hún til Íslendinga um að koma lífshættulega vannærðum börnum í Austur-Afríku til aðstoðar og styrkja hjálparstarf UNICEF. Myndbandið var frumsýnt í Íslandi í dag í gærkvöldi. Það hefur einnig birst í fjölmörgum vefmiðlum.
Innilegar þakkir til Íslendinga frá starfsfólki UNICEF á vettvangi
Tekið er eftir því hjá starfsmönnum UNICEF á vettvangi hve vel Íslendingar hafa brugðist við neyðarákallinu vegna ástandsins í Austur-Afríku. Starfsfólk UNICEF í Dadaab í Keníu vill meðal annars koma á framfæri innilegum þökkum fyrir stuðninginn.
Metþátttaka í áheitahlaupum í Reykjavíkurmaraþoni
Aldrei hafa fleiri hlaupið til styrktar UNICEF á Íslandi en hafa nú skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer á laugardag. Skráning er enn í fullum gangi og fer fram á www.hlaupastyrkur.is. Yfir 80 manns hafa þegar skráð sig fyrir UNICEF!
531 tonn af hjálpargögnum til Austur-Afríku það sem af er ágústmánuði
Fyrstu 12 dagana í ágúst hafa 26 birgðaflutningavélar flogið með 531 tonn af hjálpargögnum frá UNICEF til þurrkasvæðanna á austurodda Afríku. Megináhersla hefur verið lögð á að senda næringarbætt mauk fyrir vannærð börn ásamt næringarbættu maís- og sojamjöli sem gera má úr graut.
Um sextíu manns ætla að hlaupa fyrir UNICEF: Áheit til Austur-Afríku
Reykjavíkurmaraþonið fer fram laugardaginn 20. ágúst og sem fyrr má búast við mjög góðri þátttöku. Eins og undanfarin ár gefst þátttakendum kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis og hafa nú þegar tæplega sextíu hlauparar valið að safna áheitum fyrir UNICEF. Öll áheit til UNICEF munu renna beint til neyðaraðgerða samtakanna í Austur-Afríku.
UNICEF kallar eftir sterkari viðbrögðum alþjóðasamfélagsins vegna neyðarinnar á Horni Afríku
Í ljósi versnandi neyðarástands á Horni Afríku vara Sameinuðu þjóðirnar við því að á næstu tveimur mánuðum gæti ástandið um gjörvalla Suður-Sómalíu orðið að hungursneyð. Ótal mannslíf eru í húfi; engu að síður eru viðbrögð alþjóðasamfélagsins ennþá hæg.
„Það eru bókstaflega mörgþúsund börn hérna sem þarfnast hjálpar“
„Þetta er erfitt.“ Þannig lýsir starfsmaður UNICEF sem staddur er í Dadaab-flóttamannabúðunum í Keníu upplifun sinni. Frásögn hans af aðstæðum í búðunum er nöturleg en hann segir starfsfólk UNICEF engu að síður halda í jákvæðnina með því að einbeita sér að því sem gera þarf til að hjálpa eins mörgum börnum og mögulegt er.
Hjálpargögn UNICEF komast til skila í Sómalíu, Keníu og Eþíópíu
UNICEF hefur dreift 1300 tonnum af hjálpargögnum í suðurhluta Sómalíu það sem af er mánuðinum. Þar á meðal eru 653 tonn af svokallaðri UNIMIX-blöndu sem inniheldur meðal annars maís, mjólkurduft, sojamjöl, vítamín og steinefni. Úr blöndunni er búinn til næringarríkur grautur fyrir börn.
Fjöldi barna í bráðri lífshættu eykst: Börn of veikburða til að taka brjóst
Fjöldi barna í bráðri lífshættu vegna alvarlegrar vannæringar eykst enn í þeim ríkjum Austur-Afríku þar sem neyðarástandi hefur verið lýst yfir. Fjöldi barnanna er nú kominn yfir 700.000 en var áður hálf milljón. Alls eru 2,23 milljónir barna vannærðar. UNICEF hefur þungar áhyggjur af þróuninni.
Endurspeglar hve grafalvarlegt ástandið er
Neyðin í Sómalíu, Keníu, Eþíópíu og Djíbúti heldur áfram að vekja sterk viðbrögð á Íslandi. Sífellt átakanlegri fréttir og myndir berast nú af neyðarsvæðunum og heimsbyggðin gerir sér æ betur grein fyrir hvers konar hörmungar eiga sér stað í þessum löndum.
Sameinuðu þjóðirnar lýsa yfir hungursneyð í Sómalíu
Hvergi í heiminum er vannæring nú meiri en í Sómalíu. Í morgun lýstu Sameinuðu þjóðirnar formlega yfir hungursneyð í tveimur héruðum landsins: Í Bakool og í Neðri-Shabelle. Neyðin bitnar mest á börnum. Þriðja hvert barn í Sómalíu er vannært.
76 tonn af lífsnauðsynlegum hjálpargögnum á leiðinni til Keníu
Í morgun tók flutningavél frá birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn á loft. Ferðinni er heitið til Keníu og eru 76 tonn af hjálpargögnum í sendingunni. Búist er við vélin lendi í höfuðborginni Nairobi skömmu eftir miðnætti að staðartíma.
Nýjar myndir frá þurrkasvæðunum - myndir frá norðvesturhluta Keníu
Úti á landi, í litlum þorpum og á meðal hirðingja í Keníu eru afleiðingar þurrkanna miklu hvað alvarlegastar. Um helgina fór framkvæmdastjóri UNICEF á heimsvísu til Turkana-héraðs þar sem vannæring hefur stóraukist: Hún er nú komin upp í 37%. Við vorum að fá sendar sláandi ljósmyndir úr ferðinni.
Ástandið í Austur-Afríku versnar enn: UNICEF eykur við neyðaraðstoðina
Enn versnar ástandið í Austur-Afríku eftir mestu þurrka í yfir hálfa öld. UNICEF hefur þungar áhyggjur af stöðunni og hefur aukið enn við mannúðaraðgerðir sínar á svæðinu. Hálf milljón barna er lífshættulega vannærð og í þörf fyrir tafarlausa aðstoð. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi hefur gengið vel.
Neyðin í Austur-Afríku vekur sterk viðbrögð á Íslandi
Íslenskir fjölmiðlar hafa á undanförnum dögum fjallað um neyðina í Austur-Afríku. Í máli þeirra hefur komið skýrt fram að börn eru í sérstakri hættu – þau líða hungur og vannæringu og hættan á farsóttum eykst frá degi til dags. Fréttirnar hafa snert djúpt við fjölmörgum Íslendingum sem hafa styrkt hjálparstarf UNICEF ötullega.
UNICEF á Íslandi með söfnun vegna neyðarástandsins í Austur-Afríku
UNICEF á Íslandi kallar eftir stuðningi almennings vegna neyðaraðgerða í Austur-Afríku. Mestu þurrkar á svæðinu í yfir hálfa öld, ásamt hækkandi matvælaverði, ógna lífi og heilsu tíu milljóna manna. Þar af þjást yfir tvær milljónir ungra barna af vannæringu. Um 500 þúsund þeirra eru nú þegar talin lífshættulega vannærð.
Áheitasöfnun vegna Reykjavíkurmaraþons hafin
Undanfarin ár hafa þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu getað fengið vini og vandamenn til að heita á sig til styrktar góðgerðarfélagi að eigin vali. Þessi möguleiki hefur aukið skemmtanagildi hlaupsins. Við hvetjum sem flesta til að hlaupa fyrir UNICEF og leggja starfi okkar þannig lið.
Akureyringar bætast í hópinn: MA-nemar skrá heimsforeldra
Sjálfboðaliðar úr Menntaskólanum á Akureyri kynntu á dögunum heimsforeldraverkefni UNICEF fyrir Akureyringum. Árangurinn lét ekki á sér standa. Alls skráðu 26 Norðlendingar sig sem heimsforeldrar!
Mikil aukning framlaga - UNICEF á Íslandi fær viðurkenningu
Heimsforeldrar UNICEF eru orðnir hátt í 17.000 talsins. Á nýafstöðnum aðalfundi UNICEF sem haldinn var í Bern fékk UNICEF á Íslandi viðurkenningu frá UNICEF alþjóðlega fyrir mestu aukningu framlaga árið 2010! Viðurkenningin er mikil hvatning.
Móðurást hjá UNICEF! Kaffi og kökur á vegum Puzzled by Iceland
Á mæðradaginn nú á sunnudag hefst sala á púsli til styrktar UNICEF sem ber heitið Móðurást. Það er fyrirtækið Puzzled by Iceland sem stendur að baki þessu. Eigendur fyrirtækisins bjóða að því tilefni í fjölskylduvænt kaffi í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum. Kaffið hefst kl 3.
Söfnun vegna neyðaraðstoðar við börn í Líbíu
Óróleiki og átök í Líbíu ógna lífi og velferð mörg þúsund barna í landinu. Yfir þrjú hundruð þúsund manns hafa flúið yfir til nágrannaríkjanna Egyptalands og Túnis. Sem fyrr eru börn sérstaklega berskjalda þegar neyðarástand ríkir. UNICEF hefur hafið söfnun til styrktar börnum á svæðinu.
UNICEF í viðbragðsstöðu vegna flóðbylgjunnar á Kyrrahafinu
UNICEF er í mikilli viðbragðsstöðu vegna hinnar ógnarstóru flóðbylgju sem ferðast nú um Kyrrahafið í kjölfar gríðaröflugs jarðskjálfta við Japansstrendur í morgun. Hjálparstarfsfólk á vegum samtakanna bíður nú átekta eftir því að áhrif bylgjunnar komi betur í ljós.
Þörf á 1,4 milljörðum USD til neyðaraðstoðar árið 2011
Í árlegri skýrslu UNICEF kemur fram að samtökin áætla að þurfa um 1,4 milljarða bandaríkjadala til að koma börnum og konum til hjálpar á 32 svæðum þar sem samtökin telja að þörfin á neyðaraðstoð sé sérstaklega aðkallandi.
Aurora styrkir menntun í Síerra Leóne fjórða árið í röð
Velgerðasjóðurinn Aurora úthlutaði í dag 40 milljónum króna til styrktar verkefnum UNICEF á sviði menntunar í Afríkuríkinu Síerra Leóne. Meðal markmiða verkefnisins sem Aurora styrkir er að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga.
Góðar fréttir af mjúkdýraleiðangrinum
Fyrsta nóvember á nýliðnu ári hóf IKEA um allan heim söfnunarátakið Mjúkdýraleiðangurinn. Leiðangurinn stóð til 23. desember og gaf IKEA eina evru fyrir hvert mjúkdýr sem seldist á tímabilinu. Söfnunarféð rann til UNICEF og Barnaheillar – Save the Children sem nota féð til að styðja við menntun bágstaddra barna í heiminum.
Delta Kappa Gamma styrkir menntun
Íslensk landsdeild Delta Kappa Gamma hefur afhent UNICEF á Íslandi framlag sem rennur til verkefnis sem miðar að því að tryggja börnum menntun í fátækustu ríkjum Afríku, Schools for Africa. Íslenska landsdeildin bætist þar með í hóp annarra landsdeilda Delta Kappa Gamma sem styrkja þetta mikilvæga verkefni.
Sannar gjafir fáanlegar á Íslandi
UNICEF á Íslandi hefur sett á markað gjafir sem geta breytt lífi nauðstaddra barna, eða svokallaðar „Sannar gjafir“. Um er að ræða raunverulegar gjafir sem fólki býðst að kaupa í vefverslun UNICEF, en þeim er síðan dreift árið um kring til barna og fjölskyldna þeirra í samfélögum þar sem þörfin er mest.
Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í verslunum Pennans/Eymundssonar, A4, Bókabúð Máls og menningar, Bóksölu stúdenta og víðar.
Greiðsluseðlar sendir út fyrir mistök
Vegna kerfislægra mistaka voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslusamningi. UNICEF á Íslandi biður innilegrar velvirðingar á þessum mistökum sem nú hefur verið komið fyrir. Millifærsla af reikningi verður framkvæmd sjálfkrafa síðar í dag og því skal ekki greiða fyrrnefnda greiðsluseðla.
Landsmenn tóku vel í söfnunarátak UNICEF, Dag rauða nefsins
Landsmenn tóku vel í söfnunarátakið Dag rauða nefsins sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð fyrir í gær. Alls söfnuðust 173 milljónir króna og hátt í 2000 manns bættust í hóp heimsforeldra, mánaðarlegra styrktaraðila Barnahjálparinnar.
Landssöfnun Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) Dagur rauða nefsins er í dag! Í kvöld mun landslið leikara og grínista sameina krafta sína í stórum skemmti- og söfnunarþætti í opinni dagskrá á stöð 2. Gamanið hefst á slaginu 20.00.
Greiðsluseðlar sendir út fyrir mistök
Vegna kerfislægra mistaka voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslusamningi. UNICEF á Íslandi biður innilegrar velvirðingar á þessum mistökum sem nú hefur verið komið fyrir. Millifærsla af reikningi verður framkvæmd sjálfkrafa síðar í dag og því skal ekki greiða fyrrnefnda greiðsluseðla.
Dagur rauða nefsins á föstudaginn
Dagur rauða nefsins nálgast nú óðfluga. Hápunkturinn er skemmti- og fjáröflunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 á föstudaginn. Nú fer hver að vera síðastur að tryggja sér rautt nef til styrktar bágstöddum börnum en nefin fást í verslunum Bónuss og Hagkaups og útibúum Íslandsbanka. Auk þess taka skátar og íþróttafélög um land allt þátt í átakinu með nefjasölu.
Söfnunarsími opnar á Bylgjunni
Bylgjan mun opna söfnunarsíma UNICEF, 562 6262, í tengslum við Dag rauða nefsins næstkomandi mánudag. Þannig getur fólk byrjað að skrá sig sem heimsforeldra strax á mánudaginn þrátt fyrir að hápunkti átaksins verði ekki náð fyrr en í sjónvarpsútsendingunni á Stöð 2 föstudaginn 3. desember.
Retro Stefson með lag Dags rauða nefsins í ár
Lag Dags rauða nefsins í ár er í flutningi hinnar stórskemmtilegu og fjölhæfu hljómsveitar Retro Stefson. Lagið heitir einfaldlega Dagur rauða nefsins og hefur m.a. að geyma smellna tóna og barnakór.
Borgarstjórn hrinti af stað sölu nefjanna
Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, keypti fyrstu rauðu nefin, ásamt borgarstjórn, í gær og hrinti þannig af stað söfnunarátaki UNICEF, Degi rauða nefsins, með glæsibrag. Átakið nær hámarki 3. desember þar sem söfnunar- og skemmtidagskrá verður í opinni dagskrá á Stöð 2.
Jólakort UNICEF eru nú komin í verslanir um land allt. Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í verslunum Pennans/Eymundssonar, A4, Bókabúð Máls og menningar, Bóksölu stúdenta og víðar.
Mjúkdýraleiðangur í IKEA hefst í dag
IKEA á Íslandi tekur í fyrsta skipti þátt í alþjóðlegu söfnunarátaki fyrir UNICEF og Save the Children með því að selja mjúkdýr til styrktar samtökunum. Átakið á sér langa sögu og hefur styrkt fjölda verkefna fyrir bágstödd börn víða um heim.
Kaupmenn í einn dag fyrir UNICEF
Smáralind bauð á dögunum börnum að gerast kaupmenn í einn dag og safna fyrir góðgerðarfélag að eigin vali. Dagurinn heppnaðist vel þar sem 101 barn mætti og safnaði fyrir góðu málefni. Fulltrúi UNICEF tók við ágóðanum sem rann til samtakanna, alls 3.120 krónur
Seldu málverk til styrktar börnum
Frændsystkinin Franklín Máni Arnarsson og Vala Karítas Guðbjartsdóttir gerðu listaverk og seldu til styrktar UNICEF á dögunum. Málverkasýning var haldin í fjölskylduboði og í kjölfarið seld. Þau Franklín og Vala söfnuðu alls 6.500 krónum.
Stúlkur styrkja börn í Pakistan
Vinkonurnar Karítas Gyða Sigurðardóttir og Helga Guðný Hallsdóttir, 10 ára, komu við hjá UNICEF í dag og afhentu styrk að upphæð 3130 krónum til neyðarstarfsins í Pakistan. Þær söfnuðu fénu með því að selja leikföng, sem þær áttu sjálfar, fyrir utan Bókasafn Hafnarfjarðar og Ísbúð Vesturbæjar í Hafnarfirði.
Leitum að eldhugum í kynningarstörf
UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki sem vill leggja málstað samtakanna lið í október og nóvember. Starfið felst í því að ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu, kynna starf UNICEF, og bjóða fólki að skrá sig sem mánaðarlega styrktaraðila.
Fimm milljónir úr neyðarsjóði til hjálparstarfs í Pakistan
Í ljósi gríðarlegs umfangs neyðarinnar í Pakistan hefur UNICEF á Íslandi ákveðið að verja fimm milljónum króna úr neyðarsjóði sínum til UNICEF í Pakistan. Bætist sú upphæð við þær sex milljónir sem safnast hafa frá íslenskum almenningi á undandförnum vikum. Yfir tíu milljónir barna þurfa á aðstoð að halda.
Oddi styður UNICEF til góðra verka
Í dag skrifuðu Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF, og Arnar Árnason, markaðsstjóri Prentsmiðjunnar Odda, undir samstarfssamning sem felst í að Oddi styrkir Barnahjálpina með því að veita veglegan afslátt af allri hönnun og prentun á fræðslu- og kynningarefni ásamt prentun á jólakortum Barnahjálparinnar.
Vantar eldhuga á Akureyri til að kynna starf UNICEF
UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki á Akureyri sem vill leggja málstað samtakanna lið frá miðjum september og fram í nóvember. Starfið felst í því að ganga í hús á Eyjafjarðarsvæðinu, kynna starf UNICEF, og bjóða fólki að skrá sig sem mánaðarlega styrktaraðila.
Fjórar milljónir pakistanskra barna í bráðri hættu
Samkvæmt nýjustu áætlunum stjórnvalda í Pakistan hafa um 20 milljónir íbúa orðið fyrir áföllum í kjölfar flóðanna. Af þeim eru yfir átta milljónir barna undir 18 ára aldri. Fjórar milljónir þeirra eru í mikilli hættu á að smitast af lífshættulegum sjúkdómum.
Tekjur af lagi Bjarkar til hjálparstarfs UNICEF í Pakistan
Aðdáendur Bjarkar Guðmundsdóttur geta nú hlaðið niður laginu „The Comet Song“ á iTunes og stutt um leið hjálparstarf UNICEF í Pakistan. Allar tekjur af laginu renna til hjálparstarfsins. Björk hefur áður lagt UNICEF lið með svipuðum hætti og er dyggur stuðningsaðili samtakanna.
Mál og menning hefur sölu á UNICEF-leikföngum
Undanfarin ár hefur UNICEF á Íslandi selt vandaða gjafavöru til styrktar hjálparstarfi í þágu bágstaddra barna. Bókabúð Máls og menningar hefur nú tekið til sölu fjölmargar vörur úr leikfangalínu UNICEF og mun þegar nær dregur jólum einnig taka til sölu jólakort og fleiri gjafavörur.
Innsýn í ástandið á flóðasvæðunum í Pakistan
Yfirmaður UNICEF í Suður-Asíu, Daniel Tool, heimsótti flóðasvæðin í Pakistan í síðustu viku. Hann lýsir því sem fyrir augu bar í persónulegri dagbók sinni. Lýsingarnar veita innsýn inn í skelfilegt ástand sem blasir við milljónum barna og fjölskyldum þeirra.
Þakkir til hlaupara sem söfnuðu áheitum fyrir UNICEF
Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er nú lokið en um 6000 hlauparar tóku þátt í öllum vegalengdum. UNICEF á Íslandi vill þakka öllum þeim hlaupurum sem söfnuðu áheitum fyrir UNICEF sem og þeim sem á þá hétu. Þegar þetta er skrifað hefur samtals 219.600 krónum verið heitið á UNICEF-hlaupara.
Ein milljón hefur safnast fyrir hjálparstarf í Pakistan
UNICEF á Íslandi hóf í gær söfnun fyrir hjálparstarf UNICEF á flóðasvæðunum í Pakistan. Ljóst er að fjölmargir Íslendingar ætla að svara kallinu en á fyrsta sólarhringnum hefur safnast yfir ein milljón króna. UNICEF metur mikils hvert framlag og hvetur sem flesta að taka þátt í söfnuninni.
Einn albesti hlaupari landsins hleypur fyrir UNICEF
Einn albesti hlaupari landsins um árabil, Björn Margeirsson, safnar áheitum fyrir UNICEF í Reykjavíkurmaraþoninu. Hægt er að heita á Björn sem og aðra hlaupara sem valið hafa UNICEF sem sitt góðgerðarfélag og styrkja þannig gott málefni með skemmtilegum hætti.
Sex mánuðum frá jarðskjálftanum á Haítí eru börn enn í hættu og þurfa aðstoð
Sex mánuðum eftir að einn stærsti jarðskjálfti í 200 ár á Haítí olli mikilli eyðilegginu er það hjálparstarfsfólki mikil áskorun að mæta þörfum þeirra 800 þúsund barna og fjölskyldna þeirra sem þurfa á hjálp að halda. UNICEF veitir viðamikla neyðaraðstoð.
Greiðsluseðlar sendir út vegna mistaka
Fyrir mistök hjá Íslandsbanka voru sendir út greiðsluseðlar heim til allra heimsforeldra sem eru með beingreiðslur í maí, júní og júlí. UNICEF biðst velvirðingar á þessum tæknilegu mistökum og biður heimsforeldra vinsamlegast að henda greiðsluseðlunum. Greiðslur eru innheimtar rafrænt. UNICEF mun ekki bera kostnað af þessum póstsendingum bankans.
Bæklingur um erfðagjafir til UNICEF kominn út
Það færist í vöxt að fólk kjósi að ánafna hluta eigna sinna til góðgerðamála eftir sinn dag. UNICEF á Íslandi hefur nú tekið saman bækling til þess að skýra mikilvægi erfðagjafa fyrir framtíðarstarf samtakanna, auk þess sem bæklingurinn inniheldur svör við spurningum um erfðagjafir til hjálparsamtaka.
Sextíu og fjórir nýir heimsforeldrar á Akranesi
Á undanfarinni viku hafa 64 Skagamenn gerst heimsforeldrar. Bætast þeir þar með í hóp rúmlega 300 Akurnesinga sem styrkja UNICEF með mánaðarlegum framlögum í gegnum heimsforeldraverkefnið og styðja þannig við starf samtakanna í þágu bágstaddra barna um allan heim.
Te & kaffi veita UNICEF veglegan styrk
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, veitti fyrir helgi viðtöku rúmlega 1,4 milljónum króna frá Sigmundi Dýrfjörð, framkvæmdastjóra Te & Kaffis. Þessi upphæð bætist við rúmar fjórar milljónir sem þegar hafa safnast í sameiginlegu fjáröflunarverkefni UNICEF og Te & kaffis.
Metþátttaka í UNICEF-hreyfingunni
Grunnskólaverkefni UNICEF á Íslandi, UNICEF-hreyfingin, eflist með hverju árinu sem líður. Það sem af er þessu ári hafa 25 skólar og frístundaheimili skráð sig til þátttöku, en hægt er að framkvæma verkefnið hvenær árs sem er. Tæplega fjögur þúsund nemendur hafa tekið þátt í verkefninu í ár.
Rausnarleg gjöf frá fermingarstúlku
Harpa Hrönn Hjaltalín Arnarsdóttir leit við á skrifstofu UNICEF á dögunum með góðan glaðning. Harpa Hrönn, sem fermdist í vor, tók þá ákvörðun að láta 40 þúsund krónur af fermingarpeningunum renna til starfsemi UNICEF í þágu þurfandi barna. UNICEF á Íslandi kann henni bestu þakkir fyrir frábært framtak.
Nemendur í M.A. styrkja UNICEF
Nemendur í félagsfræðiáfanganum FÉL313, félagsfræði þróunarlanda, í Menntaskólanum á Akureyri hafa á þessari önn staðið fyrir söfnun til styrktar UNICEF. Tveir viðburðir voru haldnir í skólanum, bíókvöld og tölvuleikjamót, og rann ágóðinn óskiptur til UNICEF, samtals 133.086 kr.
Átak í skráningu heimsforeldra
Ýtt hefur verið úr vör átaki í nýskráningu heimsforeldra. Á næstu misserum mun starfsfólk frá UNICEF ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að kynna UNICEF og bjóða fólki að ganga til liðs við heimsforeldraverkefni samtakanna. Þessa dagana er starfsfólkið á ferli í Grafarvogi.
Dregur úr dauðsföllum vegna malaríu
Mikill árangur hefur náðst á síðustu árum í báráttunni gegn malaríu, ekki síst í sunnanverðri Afríku. Í stað þess að sjúkdómurinn valdi dauða afrísks barns á þrjátíu sekúndna fresti, eins og verið hefur um árabil, er nú nær að tala um 40-45 sekúndur.
Þátttakendur í RVK-maraþoni geta hlaupið fyrir UNICEF
Líkt og undanfarin ár gefst þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis. Allir hlauparar geta valið að tengja sig tilteknu góðgerðarfélagi, hvetja svo vini og vandamenn til að heita á sig og renna áheitin til félagsins.
Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.
Sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF hafa verið til sölu undanfarnar tvær vikur í mörgum af stærri matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu sem og minni útsölustöðum. Um er að ræða sérpökkuð súkkulaðiegg með íslenskum málsháttum um börn. Nú þegar rúmar tvær vikur eru til páska hafa yfir tvö þúsund egg selst.
UNICEF-páskaegg komin í verslanir
Sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF verða til sölu í flestum stærri matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu fyrir þessa páska. Um er að ræða lítil sérpökkuð súkkulaðiegg með íslenskum málsháttum um börn. Páskaeggin verða auk þess á boðstólum á fjölmörgum kaffihúsum og í smærri verslunum. Söluverð páskaeggjanna er 500 krónur.
Nemendur FSN styrkja hjálparstarf UNICEF á Haití
Fjölbrautaskóli Snæfellinga hélt upp á Sólardaga í febrúar. Þá er hefðbundið skólastarf brotið upp með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá fyrir nemendur. Nokkrir þeirra ákváðu að láta gott af sér leiða í leiðinni og söfnuðu um 50 þúsund krónum fyrir starf UNICEF í þágu þurfandi barna á Haítí.
Mánuður frá jarðsjálftanum á Haítí
Mánuður er nú liðinn frá því að öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí með skelfilegum afleiðinum fyrir fjölda fólks. Sameinuðu þjóðirnar áætla að yfir þrjár milljónir manna – þriðjungur íbúa á Haíti – hafi orðið fyrir miklum skaða. Afleiðingar hörmunganna bætast ofan á langvarandi fátækt og óstöðugleika á Haítí.
250.000 krónur söfnuðust á tónleikum fyrir Haítí
Tónlistarvefurinn Gogoyoko og tónleikastaðurinn Sódóma Reykjavík, í samstarfi við Hljóð X og sex íslenskar hljómsveitir, stóðu fyrir tónleikum í gær til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí. Alls söfnuðust 250.000 krónur og renna þær óskiptar til hjálparstarfsins.
UNICEF hefur þungar áhyggjur af öryggi barna á Haítí
Þúsundir barna hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar í kjölfar jarðskjálftans á Haítí. Þessi börn eru afar berskjalda gegn ofbeldi og misnotkun. UNICEF leggur mikla áherslu á að tryggja varnarlausum börnum nauðsynlega vernd samhliða því að koma nauðsynlegum hjálpargögnum til ungra eftirlifenda.
| UNIMA á Íslandi og UNICEF efna til fjölskylduhátíðar sunnudaginn 20. desember. Boðið verður upp á alls sex brúðuleikhússýningar yfir daginn sem allar eru ætlaðar fyrir börn á leikskólaaldri og fyrsta bekk grunnskóla. Miðaverð er 500 krónur og eru allir velkomnir. | ![]() |
Dagur rauða nefsins er í dag. Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg til að gera daginn að veruleika en hápunkturinn er útsending frá Borgarleikhúsinu í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld. Þar munu grínistar og annað listafólk láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að skemmta Íslendingum og safna styrkjum fyrir verkefni UNICEF um allan heim.
Hætt‘essu væli og Brostu á gogoyoko tónlistarvefnum
Lag Ljótu hálfvitanna, „Hætt‘essu væli“, sem er sérstaklega samið fyrir dag rauða nefsins er nú fáanlegt á tónlistarvefnum gogoyoko.com. Þar er einnig að finna lag Baggalúts, „Brostu“, sem hljómsveitin samdi fyrir dag rauða nefins 2006. Allur ágóði rennur til UNICEF.
Trúðakennsla á Youtube í tilefni dags rauða nefsins
Landsins þekktustu trúðatæknar hafa búið til fimm myndbönd þar sem er farið yfir nokkur grunnatriði trúðalistarinnar. Myndböndin er hægt að nálgast á vefsíðunni Youtube. Markmiðið er að gera sem flestum Íslendingum kleift að rækta sinn innri trúð en tilefnið er dagur rauða nefsins, söfnunarátak sem UNICEF og skari listafólks stendur fyrir.
Dagur rauða nefsins á Facebook
Hægt að gerast aðdáandi dags rauða nefsins á Facebook. Á síðunni er að finna nýjustu fréttir í aðdraganda stóra dagsins sem og skemmtilegt efni frá því að dagur rauða nefsins var haldinn í fyrsta sinn hérlendis árið 2006. Við hvetjum sem flesta Facebook-notendur til að gerast aðdáendur.
Dagur rauða nefsins 4. desember
Þann 4. desember næstkomandi tekur fjöldi listamanna höndum saman með UNICEF og standa fyrir Degi rauða nefsins. Um kvöldið verður söfnunarþáttur í opinni dagskrá Stöðvar 2 þar sem grínistar láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að safna fé fyrir bágstödd börn um allan heim
Jólabúð UNICEF opnaði í dag, mánudaginn 2. nóvember, að Laugavegi 42. Í búðinni er hægt að nálgast úrval fallegra jólakorta, vandaðrar gjafavöru og skemmtilegra leikfanga. Jólakort UNICEF hafa verið seld á Íslandi í hálfa öld.
Opinn fundur um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó
V-dagurinn á Íslandi og UNICEF standa fyrir opnum fundi um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó. Fundurinn fer fram í húsakynnum UNICEF á Laugavegi 42 í Reykjavík fimmtudaginn 1. október milli klukkan 12.10 og 13.00.
Utanríkisráðuneytið styrkir starf UNICEF í Austur-Kongó
UNICEF á Íslandi hefur fengið átta milljónir króna úthlutað frá utanríkisráðuneytinu vegna langvinns neyðarátands í Austur-Kongó. Styrkurinn rennur til verkefna UNICEF gegn kynferðisofbeldi og aðstoðar við konur og stúlkur sem orðið hafa fyrir nauðgunum í landinu.
V-dagurinn og UNICEF taka höndum saman
Í dag ýttu V-dagssamtökin á Íslandi og UNICEF úr vör sameiginlegu átaki til að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gagnvart konum og stúlkum í Austur-Kongó. Á sama tíma verða samtökin með söfnun meðal íslensks almennings til styrktar verkefnum í þágu ungra kynferðisbrotaþolenda í landinu.
UNICEF-styrktarspjöld á kaffihúsum Te & kaffi
Viðskiptavinum Te & kaffi býðst nú að styrkja starfsemi UNICEF með því að kaupa sérstök styrktarspjöld í sérsverslunum og á kaffihúsum fyrirtækisins. Spjöldin kosta 250 eða 500 krónur. Það gera sér fæstir grein fyrir hve miklu slíkar upphæðir geta skipt fyrir bágstödd börn.
Aldrei fleiri íslenskir heimsforeldrar
Aldrei hafa fleiri Íslendingar styrkt starf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og nú. Í ágústbyrjun voru heimsforeldrar UNICEF á Íslandi yfir 14.000 talsins. Það er því ljóst að þrátt fyrir þrengingar á Íslandi ætla Íslendingar ekki að gleyma þeim börnum sem búa við sárustu neyðina.
Átak í nýskráningu heimsforeldra
Í sumar mun starfsfólk frá UNICEF ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að kynna UNICEF og bjóða fólki að ganga til liðs við heimsforeldraverkefni okkar. Heimsforeldrar styrkja samtökin mánaðarlega og nýtist styrkurinn í þágu þeirra barna sem mesta hafa þörfina.
Söfnun vegna neyðarástands í Pakistan
UNICEF á Íslandi hefur hafið söfnun vegna átakanna í Pakistan. Áætlað er að yfir helmingur þeirra sem eru á flótta undan átökum í norðvesturhluta landsins séu börn. Flóttafólk streymir inn í flóttamannabúðir og nærliggjandi samfélög
Hönnuðu boli til styrktar UNICEF
Sjö ungmenni tóku sig til á dögunum og hönnuðu boli til styrktar UNICEF. Innblástur hönnunarinnar sóttu þau til þriggja af greinum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Er óhætt að segja að mjög vel hafi tekist til hjá þessum ungu og upprennandi hönnuðum.
Ár liðið frá jarðskjálftanum í Sichuan
Ár er nú liðið frá því að jarðskjálfti af stærðargráðunni 8,0 á Richter-skala reið yfir Sichuan-umdæmi í Kína. Á undanförnum tólf mánuðum hefur UNICEF varið 20 milljónum bandaríkjadala í neyðaraðstoð vegna hamfaranna.
Vodafone á Íslandi styrkir UNICEF
Vodafone mun styrkja UNICEF á Íslandi á næstu tveimur árum með mánaðarlegu fjárframlagi upp á 50 þúsund krónur og aðstoða við fjáröflun af ýmsu tagi, UNICEF að kostnaðarlausu. Vodafone og UNICEF skrifuðu undir styrktarsamning í dag.
Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.
UNICEF hefur áhyggjur af versnandi heilsu barna á Gaza og aukningu á tilfellum niðurgangs í kjölfar þess að fleiri heimili hafa orðið háð matar- og peningagjöfum. UNICEF reynir því að veita aðgang að hreinu vatni og hreinlæti, auk þess að dreifa næringu til barna. Styrkja hjálparstarf UNICEF á Gaza hér
UNICEF fær 43,5 milljónir króna styrk frá Auroru
Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur úthlutað alls 111,5 milljónum króna í styrki til sex verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar. UNICEF fær úthlutað alls 40 milljónum til menntaverkefnis í Síerra Leóne og 3,5 milljónum til útvarpsverkefnis ungmenna í Mósambík.
Mest þörf á sálrænni aðstoð á Gaza
Samkvæmt könnun Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna á Gaza hafa átökin haft mikil áhrif á efnahagslegt, félagslegt og sálrænt líf Gazabúa. Könnunin sýnir fram á að tveir þriðju fjölskyldna telji sig þurfa á hjálp að halda. Þar kemur einnig fram að börn sýni merki álags, þ.e. væti rúmið, fái martraðir, séu árásargjarnari og þjáist af kvíða.
Opnað fyrir söfnunarsímanúmer til styrktar Gaza
Í gær var opnað fyrir söfnunarsímanúmer til stuðnings hjálparstarfi UNICEF á Gaza. Símanúmerin eru 908-1000 fyrir 1000 króna framlag, 908-3000 fyrir 3000 króna framlag og 908-5000 fyrir 5000 króna framlag. Fyrir rúmri viku var söfnunarreikningur opnaður og nema framlög frá almenningi á Íslandi til hjálparstarfsins nú um 1,2 milljónum króna.
UNICEF biður um einn milljarð USD til neyðarhjálpar
Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Humanitarian Action Report 2009, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega milljarð bandaríkjadala til að aðstoða börn og konur á neyðarsvæðum víða um heim.
Neyðarsöfnun hafin fyrir hjálparstarfi á Gaza
Eftir átökin á Gaza síðastliðnar þrjár vikur er ljóst að einn þriðji látinna - um 412 - voru börn, auk þess sem 1855 börn særðust. Gríðarleg eyðilegging blasir við og uppbyggingarstarfið er stórvaxið. UNICEF á Íslandi hefur því ákveðið að hefja neyðarsöfnun. Reikningur UNICEF á Íslandi fyrir Gaza er 515-26-102040 / kt. 481203-2950.
Framlögum heimsforeldra seinkar
| Vegna tæknilegra mistaka reyndist ekki unnt að millifæra greiðslur þeirra heimsforeldra, sem greiða sitt mánaðarlega fjárframlag í beingreiðslum, um þessi mánaðarmót. Verið er að vinna í málinu og ættu greiðslurnar að ganga í gegn á næstu dögum. |
|
| Allar dagbækur UNICEF eru uppseldar, þ.e. viðskipta,- ljósmynda,- og listaverkadagbækur, stórar sem smáar. Enn er þó hægt að fá úrval leikfanga og vandaðrar gjafavöru, auk jólakorta. Jólabúð UNICEF er á Laugavegi 42 og nk. laugardag, 20. desember, verður útibú sett upp í jólaþorpi Hafnarfjarðar. |
|
Hjálpargögn og ljósmyndir til sýnis í jólabúð UNICEF
| Í tilefni af opnun jólabúðar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, verður sett upp sýning með hjálpargögnum og ljósmyndum dagana 28. nóvember til 5. desember. Af því tilefni býður UNICEF alla velkomna í jólabúðina að Laugavegi 42 (2. hæð) föstudaginn 28. nóvember kl. 13-14. Kaffi, músík og með’í! |
|
Jólakúla og látúnsskraut er uppselt
| Bæði jólakúla UNICEF og látúnsskrautið í ár er uppselt á Íslandi og á heimsvísu. Jólakúlur og látúnsskraut síðustu ára eru einnig uppseld og því ófáanleg. Nóg er til af öðru jólaskrauti s.s. handgerðum dúfum frá Indlandi og kertum frá Suður-Afríku. Úrval leikfanga er mikið og því úr mörgu að velja í jólapakkana fyrir þau yngstu. |
|
| Sala er hafin á „bestu bolum í heimi“ til styrktar UNICEF. Hönnun bolanna er sem fyrr í höndum Kron kron og grafíska hönnuðarins Harðar Kristbjörnssonar og vísar hún í að veröldin sé eins og völundarhús þar sem sumir rati rétta leið að góðu lífi á meðan aðrir sitji fastir í öngstræti fátæktar. Bolirnir fást í Kron kron og jólabúð UNICEF að Laugavegi 42 og kosta 2800 kr. |
|
Jólabúð UNICEF fer vel af stað
| Jólabúð UNICEF hefur farið vel af stað. Jólakúlan, sem er hönnuð sérstaklega fyrir UNICEF á hverju ári, er nánast uppseld. Eins hvetjum við þá sem vilja tryggja sér látúnsskraut að kíka við í jólabúðinni sem fyrst. Jólabúðin er opin alla virka daga kl. 12-18 að Laugavegi 42. |
|
| Sala á jólakortum, leikföngum og gjafavörum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefst í dag mánudaginn 3. nóvember með opnun jólabúðar UNICEF að Laugavegi 42. Allur ágóði af sölu jólakorta og gjafa rennur til verkefna UNICEF fyrir börn um allan heim. Nánar á www.unicef.is/jolakort. |
|
Ekkert af fjárframlögum til UNICEF hefur tapast
| Fjárhagur UNICEF á Íslandi stendur vel þrátt fyrir lægðina sem nú gengur yfir í efnahagslífinu og þrot bankanna. Glitnir er viðskiptabanki UNICEF og eru allar innistæður geymdar inni á öruggum bankareikningum. Ekkert af fjárframlögum til UNICEF hefur því tapast. | ![]() |
Sala jólakorta fyrir fyrirtæki er hafin!
| Sala á glæsilegum jólakortum og gjafavörum UNICEF til fyrirtækja og stofnana er hafin. UNICEF hvetur fyrirtæki og stofnanir til að panta með góðum fyrirvara og bendum við á að þau sem panta kort fyrir 1. nóvember fá 10% afslátt. Jólabúð UNICEF opnar að Laugavegi 42 þann 3. nóvember. |
Hlaupa fimm maraþon og styrkja UNICEF
| Hlaupahópurinn Reykjavik Road Runners ætlar að hlaupa í fimm stærstu maraþonum heimsins á næstu tveimur árum. Mun hópurinn nota tækifærið og safna áheitum til styrktar UNICEF. Upphafsmenn hópsins eru hlaupararnir Pétur Ívarsson og Guðmundur Guðnason en eru aðrir velkomnir að slást í hópinn. | ![]() |
| Á næstu tveimur vikum mun fjölda íslenskra fyrirtækja standa til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim. |
![]() |
3700 börn safna þremur milljónum fyrir UNICEF
| Tæplega fjögur þúsund börn létu slagvirði ekki aftra sér og tóku þátt í Latabæjarhlaupi Glitnis sl. laugardag. Þátttökugjöld barnanna runnu óskipt til UNICEF og því má segja að hver þátttakandi hafi lagt sitt af mörkum til hjálpar bágstöddum jafnöldrum sínum víða um heim. |
| Um þessar mundir fer UNICEF um Austurland til að safna heimsforeldrum og kynna starfsemi Barnahjálparinnar. Farið verður um Seyðisfjörð, Reyðarfjörð, Eskifjörð og fleiri góða staði í dag og á Egilsstaði á fimmtudag og föstudag. Skemmtileg sýning verður sett upp fyrir utan Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum. | ![]() |
Íslendingar gáfu 3 milljónir til hjálparstarfs
| Hvirfilbylurinn Nargis reið yfir suðausturhluta Mjanmar 3. apríl síðastliðinnmeð þeim skelfilegu afleiðingum að rúmlega 84 þúsund manns létu lífið og 54 þúsunda er enn saknað. | ![]() |
| Þessar fjórar harðduglegu stelpur, Birta Haraldsdóttir, Elín Ísold Pálsdóttir, Sunna Margrét Tryggvadóttir og Dóróthea María Jóhannsdóttir, héldu á dögunum tombólu fyrir utan Bónus á Laugaveginum. Þær söfnuðu alls 1075 krónum fyrir UNICEF. | ![]() |
UNICEF leitar að götukynningarfólki til starfa
| UNICEF á Íslandi leitar eftir hressu og áræðanlegu ungu fólki til fjáröflunar- og kynningarstarfa í júlí og fyrri helming ágústmánaðar. Um er að ræða starf götukynna sem skrá heimsforeldra í Reykjavík og nágrenni, sem og úti á landi. Jákvæðni, traust og áræðanleiki er skilyrði. | ![]() |
| UNICEF ætlar að gera víðreisn um landið í sumar og safna heimsforeldrum. Hringferðin hefst á Ísafirði og nú er hópur vaskra “götukynna” kominn til Vestfjarða þar sem þeir munu vera með athyglisverða sýningu, rölta í hús og kynna barnahjálpina fyrir gangandi vegfarendum. | ![]() |
Vegna fréttar Stöðvar 2 um Vatnsviku UNICEF
Vegna fréttar Stöðvar 2 um kostnað við Vatnsviku UNICEF 2008 vill UNICEF á Íslandi árétta að samtökin báru engan kostnað vegna söfnunarátaksins og að allt söfnunarféð rennur óskert til vatnsverkefna í þróunarlöndunum.
Hver sekúnda skiptir máli fyrir börnin í Mjanmar
|
Flugvélar lentu með þrjár milljónir vatnshreinsitaflna frá UNICEF í Yangoon í gær. Áætlað er að fljúga með lyf, sjúkragögn og matvæli fyrir vannærð börn á næstu þremur dögum. Nýjar myndir voru að berast frá hamfarasvæðunum sem sýna glöggt það neyðarástand sem skapast hefur af völdum fellibylsins fyrir rúmri viku síðan. Leggið neyðarsöfnun UNICEF lið fyrir börnin í Mjanmar. |
![]() |
Tolli málar 100 hús fyrir UNICEF
| Listamaðurinn Tolli hefur á undanförnum vikum málað eitthundrað „skólabyggingar“ fyrir UNICEF. Þessi glæsilega húsaþyrping verður til sýnis í Saltfélaginu 18.-25. apríl. Húsin verða þá gefin UNICEF-verndurum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem greiða mánaðarlega til UNICEF. |
| Í VATNSVIKU UNICEF gefst almenningi kostur á að styrkja vatnsverkefni UNICEF í þróunarlöndunum með því að leggja fram fjárframlög í gegnum heimasíðuna www.vatnsvika.is. Jafnframt stendur gestum valdra veitingastaða til boða að styðja við framtakið og greiða 250 krónur fyrir glasið af kranavatni. |
OR og UNICEF undirrita samstarfssamning
| UNICEF á Íslandi og Orkuveita Reykjavíkur hafa bundist samtökum um að safna fé til að afla drykkjarvatns fyrir börn um víða veröld. Talið að um 6.000 börn láti lífið á hverjum degi vegna sjúkdóma sem rekja má til neyslu á óheilnæmu vatni. |
Tónlist til styrktar UNICEF í Síerra Leóne
| Á síðunni www.steinssonproject.com er hægt að hala niður hljómplötunni Backtracking Eighties, er inniheldur fræg endurútsett popplög frá níunda áratugnum, án endurgjalds og um leið styrkja menntaverkefni UNICEF með fjárframlagi að eigin vali. |
Styrkur frá Bridgesambandi Íslands
| Bridgesamband Íslands styrkti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, um 27.500 krónur á dögunum. Upphæðin safnaðist á góðgerðarkvöldi Miðvikudagsklúbbs Bridgesambandsins, en kvöldið var haldið sem hluti af alþjóðlegu móti. UNICEF þakkar Bridgesambandinu kærlega fyrir gjöfina! |
| Jólabúð UNICEF opnar í dag mánudaginn 3. desember á skrifstofu UNICEF Ísland að Laugavegi 42, 2. hæð. Þar er hægt að nálgast úrval jólakorta og vandaðra gjafavara. Pdf-skjal af kynningarbæklingi fyrir einstaklinga. Pdf-skjal af kynningarbæklingi fyrir fyrirtæki og stofnanir. | ![]() |
| Ingvar komst á topp Ama Dablam föstudaginn 19. október ásamt Simoni Yates. Viðar þurfti því miður að snúa við í búðum eitt þar sem hann átti erfitt með hæðaraðlögun. Þeir félagar áttu góða daga í Katmandú áður en þeir héldu af stað að skoða verkefni UNICEF í Chitwan síðastliðinn sunnudag. | ![]() |
| Loftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir eru seldir í Kronkron og á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42. | ![]() |
Loftbelgjabolirnir uppseldir ... en önnur sending er komin til landsins!
Loftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir fást áfram í Kronkron og Spútnik í Kringlunni, en einnig í Gyllta kettinum.
Tónleikar ungmennaráða UNICEF og ÍTR gengu vel
Tónleikar ungmennaráða UNICEF Ísland og Reykjavíkur í mið-og vesturbæ gengu vonum framar. Hljómsveitirnar Jeff who?, Reykjavík, Soundspell, Skakkamanage, Retro Stefson og Grrrrr tróðu upp og var ekki annað að sjá en tónleikagestir skemmtu sér vel. Allar hljómsveitirnar gáfu vinnu sína og þakka ungmennaráðin þeim vel fyrir.
Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða!
Ungmennaráð Íþrótta og tómstundaráðs miðbæjar og vesturbæjar í samstarfi við ungmennaráð UNICEF á Íslandi stefna að því að halda tónleika til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna miðvikudaginn 19. september 2007 í Listasafni Reykjavíkur. Tónleikarnir bera yfirskriftina: Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða!
Bjartur, sem er 9 ára, hélt á dögunum tombólu fyrir utan Pétursbúð í Vesturbænum og safnaði hann alls 2815 krónum. Hann mætti vaskur á skrifstofu UNICEF á Laugaveginn og afhenti framkvæmdastjóra UNICEF, Stefáni Inga Stefánssyni, söfnunarféð. UNICEF kann Bjarti bestu þakkir fyrir framlagið og hvetur fleiri börn til að styrkja jafnaldra sína, sem eiga um sárt að binda, með þessum hætti.
Hátt í 3,5 milljónir króna söfnuðust í Latabæjarhlaupi
Um 4223 börn og foreldrar þeirra lögðu leið sína að Háskóla Íslands til að taka þátt í Latabæjarhlaupinu síðastliðinn Laugardag. Vel var staðið að hlaupinu og þóttist takast vel til í alla staði. Börnin voru þó mestu sigurvegararnir þar sem þau söfnuðu hátt í 3,5 milljónum króna til styrktar verkefna UNICEF um allan heim.
Í dag hefst sala á bolum til styrktar UNICEF sem bera nafnið „bestu bolir í heimi“. Hönnun bolanna var í höndum Kronkron og vísar hún í að öll getum við risið upp gegn því misrétti sem mörg börn eru beitt. Nýstofnað ungmennaráð UNICEF og íslenskir hönnuðir taka höndum saman og gera þessa boli sem geta breytt lífi barna.
Starfsmenn UNICEF Ísland safna áheitum
Allt starfsfólk UNICEF Ísland ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis laugardaginn 18. ágúst næstkomandi. Fremstur í flokki fer framkvæmdastjórinn Stefán Ingi Stefánsson sem hyggst hlaupa heilt maraþon eða 42,2 km. Aðrir starfsmenn hlaupa allt frá 3 km upp í 21,1.
UNICEF kallar eftir auknum fjárframlögum til hjálpar börnum í Írak
Í yfirlýsingu sem UNICEF sendi frá sér í gær kalla samtökin eftir 42 milljónum bandaríkjadala til að standa undir nauðsynlegu hjálparstarfi í þágu írakskra barna á næstu sex mánuðum. Um að ræða aðstoð við börn sem staðsett eru í Írak og eins börn sem hafa flúið með fjölskyldum sínum til Jórdaníu og Sýrlands.
Við vekjum athygli á því að ljósmyndir Sigur Rósar úr ferð þeirra til Svasílands á vegum UNICEF eru komnar inn á alþjóðlega vefsíðu þeirra. Njótið vel!
Á dögunum héldu nemendur Menntaskólans í Reykjavík árlega áheitasöfnun sína Gleði til góðgerða og söfnuðust alls 254.874 krónur sem runnu óskertar til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Nemendur fengu viðurkenningarskjal í tilefni þessa og UNICEF þakkaði þeim kærlega fyrir framlagið og fyrir að vekja athygli á málstaðnum með stórskemmtilegri söfnun.
Hinar vinsælu ljósmyndadagbækur UNICEF eru að seljast upp. Dagbækurnar eru vandaðar með ljósmyndum af börnum frá öllum heimshornum. Hver vika fær eina opnu og er bókin gormuð en þó með þykkri kápu. Annað upplag sem pantað var er nú að klárast, en fólk getur keypt þær á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42, 2. hæð. Hringið í síma 552 6304 til að fá nánari upplýsingar.
Fyrsti bekkur Nesskóla býr til rauð nef
Fyrsti bekkir Nesskóla Neskaupstað ákváðu í tilefni Dags rauða nefsins að fræðast um hvað dagurinn gengi út á. Nefnilega að gera góðverk og gefa til þeirra sem minna mega sín í þessum heimi. Börnin í Nesskóla fræddust um börnin í Afríku, skoðuðu myndir og kennararnir sögðu þeim frá því hvers vegna þessi dagur væri haldinn.
Rauðu nefin komin í verslanir um allt land
Rauðu trúðanefin eru komin í verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar Essó um allt land. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF um allan heim... Þannig að ef þú kaupir nef gleður þú ekki aðeins þá sem sjá þig, heldur getur þú glatt börn í sárri neyð.
Borgarstjórn setur formlega sölu á rauðum nefjum af stað
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, ásamt allri borgarstjórn, lögðu sitt af mörkum í dag og keyptu rauð trúðanef. Með þessu opnaði borgarstjórn formlega söluna á rauðu nefjunum. Rauðu nefin koma í allar verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar ESSO í dag og kosta 500 krónur.
Fimm fyrirtæki gerast bakhjarlar UNICEF á Íslandi
Í dag skrifa fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins; Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip, undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi til næstu þriggja ára. Samningurinn hljóðar upp á 60 milljónir króna. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.
Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar UNICEF... með rautt nef!
Í dag skrifuðu fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi. Samningarnir hljóða upp á 60 milljónir króna og ná til næstu þriggja ára. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.
Dagur rauða nefsins í fyrsta skipti á Íslandi
Í næstu viku hefst söfnunarátak UNICEF Dagur rauða nefsins sem nær hámarki með sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 þann 1. desember. Lag Baggalúts „Brostu“ verður kynnt í þætti Hemma Gunn í kvöld (2. nóv), en það var samið sérstaklega fyrir átakið.
Nú er lóan komin að kveða burt snjóinn og sumardagurinn fyrsti á næsta leyti. Á þeim degi gefa margir sumargjöf og eru dúkkurnar sem gleðja tilvalin sem slík. Þær voru saumaðar síðasta sumar af konum í 90 kvenfélögum víðsvegar að af landinum til styrktar stúlkum í Gínea-Bissá.
Nemendur FAS, Framhaldskóla Austur-Skaftafellssýslu héldu styrktartónleika í nóvember síðastliðnum og söfnuðu 100 þúsund krónum sem runnu til UNICEF. Fyrir tónleikana fengu þau menningarverðlaun Hornafjarðar í febrúar.
Neyðarástand ríkir í 29 löndum
UNICEF þarf 805 milljónir bandaríkjadollara til að hjálpa börnum og konum í aðstæðum sem samtökin skilgreina sem neyðarástand. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF um neyðarástand, Humanitarian Action Report, sem kynnt var í dag, en þar er sérstaklega fjallað um ástandið í 29 löndum.
Dúkkur Kvenfélagasambands Íslands og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú komnar í sölu bæði á Akureyri og Egilsstöðum. Þegar hefur nær helmingur af 800 dúkkum selst og því hafa safnast 2 milljónir króna sem mun hjálpa stúlkum í skóla í Gíneu-Bissá. Vegna fjölda eftirspurna var dúkkunum komið í sölu úti á landi.
Dúkkurnar komnar norður á Akureyri!
Býflugan og blómið á Akureyri hefur tekið til sölu dúkkur sem kvenfélög um land allt hafa gert til styrktar stúlkum í Gíneu-Bissá. Nú geta Norðlendingar skoðað úrvalið og fest kaup í dúkkum sem gleðja bæði börn á Íslandi og í Gíneu-Bissá. Býflugan og blómið er staðsett á Glerárgötu 36.
Hinar vinsælu dúkkur Kvenfélagasambands Íslands og UNICEF eru nú til sölu í Blómabæ á Egilsstöðum. Hver dúkka kostar 5000 krónur og rennur ágóðinn til menntaverkefnis fyrir stúlkur í Gíneu-Bissá. Við hvetjum alla fyrir austan til að leggja leið sína í Blómabæ, Miðvangi 31, Egillstöðum.
Um 90 milljónir söfnuðust á fullveldishátíð til styrktar UNICEF
Á fullveldishátíð sem styrktaraðilar UNICEF, Baugur Group, FL Group og Fons, efndu til í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi söfnuðust um 90 milljónir króna. Allur ágóði af kvöldinu mun renna til verkefna UNICEF í Gíneu-Bissá. UNICEF á Íslandi er afar þakklátt fyrir þennan mikla stuðning.
Sir Roger Moore kíkir á jólakortasölu UNICEF
Sir Roger Moore mun kíkja á jólakortasölu UNICEF á morgun, laugardag, að Laugavegi 42, 2. hæð, kl. 14:00. UNICEF hefur selt jólakort í nær 60 ár eða nánast alveg frá stofnun samtakanna. Sala á þeim var ein fyrsta fjáröflun meðal almennings sem UNICEF fór í og er enn stór tekjulind samtakanna.
Jólakort og gjafavörur UNICEF eru að koma í hús og hefst salan eftir helgi í nýrri skrifstofu UNICEF Ísland að Laugavegi 42, 2. hæð, og í ýmsum ritfangaverslunum.
Fjöldi Íslendinga hefur bæst í hóp heimsforeldra
Fleiri Íslendingar hafa bæst í hóp heimsforeldra eftir söfnunarþáttinn hjá Fólk með Sirrý í gær, en skráningin gekk framar vonum. Tvær endursýningar verða á þættinum, í dag fimmtudag kl. 17:20 og á sunnudag kl. 15:10. Enn er opið fyrir söfnunarsímann 5 62 62 62.
Heimsforeldraátak UNICEF nær hámarki í söfnunarþætti í Fólk með Sirrý á SkjáEinum í kvöld. Í þættinum gefst Íslendingum kostur á að sjá með eigin augum hvernig framlögum heimsforeldra er varið og hvað lítið framlag skiptir miklu máli.
Heimsforeldrar í Fólki með Sirrý
Heimsforeldraátak UNICEF nær hápunkti næstkomandi miðvikudag, 14. september, í tveggja klukkustunda löngum söfnunarþætti hjá Sirrý á SkjáEinum, kl. 21:00-23:00. Í söfnunarþættinum verður sýnt fram á hve miklum árangri heimsforeldrar hafa náð og hvað hvert framlag skiptir miklu máli.
Fimmtudaginn, 8. sept., mun UNICEF Ísland bjóða börnum og fullorðnum, gestum og gangandi, að bragða á „Uji“, allsérstökum graut sem veittur er vannærðum börnum í Afríku og víðar. Uppákoman er í tengslum við söfnunarþátt fyrir UNICEF hjá Sirrý á SkjáEinum næstkomandi miðvikudag. Við hvetjum alla til að mæta á Ægissíðuna!!
Góðir tónleikar, gott málefni og símsvörun!
Þegar svo stórt verkefni eins og útsending Live8 var á Sirkus þarf að huga að mörgu. Heimsforeldraátak UNICEF stóð yfir alla útsendinguna, eða í 12 klukkustundir, og gafst fólki kostur á að hringja í símann 5 62 62 62. Hinum megin á línunni voru alls 23 einstaklingar og fjölskyldumeðlimir þeirra, í þjónustuveri Og Vodafone
Hlutverk heimsforeldra mikilvægt
Vegna fjölda fyrirspurna síðustu daga er vert að taka það fram að heimsforeldrar styrkja ekki eitt ákveðið barn, heldur verkefni sem hjálpa mörgum börnum. Verkefnin geta t.d. verið að bólusetja öll börn í einu landi, byggja skóla, veita aðgang að vatni og hreinlætisaðstöðu, veita umönnun til HIV-smitaðra, sjá um munaðarlaus börn, frelsa börn úr stríðum og svo mætti lengi telja.
Fjöldi nýrra heimsforeldra bættust í hópinn á meðan á útsendingu Live8-tónleikanna stóð á Sirkus um helgina. Alls skráðu sig um 600 manns í gegnum síma og á netinu og eru íslenskir heimsforeldrar því orðnir um 4300. Gert er ráð fyrir að fleiri muni skrá sig á næstu vikum þar sem heimsforeldraátak UNICEF stendur enn með auglýsingum í sjónvarpi og útvarpi.
Allsérstakur sumarglaðningur mun berast inn á hvert heimili á Íslandi fyrstu viku sumars. Um er að ræða DVD disk með teiknimyndinni Kötu – litlu lirfunni ljótu á alls sjö tungumálum. Skýringin á þessum sumarglaðningi er sú að Umhyggja – félag til styrktar langveikum börnum og UNICEF Ísland hafa tekið höndum saman.
Harry Belafonte sendir Íslendingum kveðjur
Stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, mun senda Íslendingum bréf sem fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn, 15. mars. Harry Belafonte kom til landsins á vegum UNICEF Ísland í nóvember síðastliðnum í þeim tilgangi að hvetja fólk til að gerast heimsforeldrar og láta sig málefni barna varða.
Stjörnurnar flykkjast að til að styrkja fórnarlömb flóðbylgjunnar
Sameinuðu þjóðirnar, Barnahjálp SÞ og tónlistarstöðin MTV hafa tekið höndum saman og munu halda söfnunartónleika þann 3. febrúar kl. 15:00 í Bangkok, Tælandi. Fram koma margir af þekktustu tónlistamönnum nútímans og nokkrir gamlir og góðir. Meðal þeirra eru Bryan Adams, Ashanti, Enrique Iglesias, og fleiri..,
Landssöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri" fékk frábærar viðtökur hjá landsmönnum og ljóst er að yfir 110 milljónir hafa safnast fyrir fórnarlömb hamfaranna við Indlandshaf einungis með þessari söfnun. Söfnunarþáttur í samsendri útsendingu Ríkissjónvarpsins, Stöðvar 2 og Skjás eins gekk mjög vel og sýndi hvernig samstaða og samstarf ólíkra aðila getur skipt sköpum í söfnun sem þessari.
Dagskrá söfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri
Söfnunarátakið Neyðarhjálp úr norðri stendur nú sem hæst en mun ná hámarki í söfnunarþætti á þremur sjónvarpsstöðvum samtímis á morgun, laugardag. Margir skemmtilegir atburðir eru í kringum söfnunina, það stendur nú yfir uppboð, fyrirtæki geta skorað á hvort annað, leikhúsin og bíóhúsin verða með sýningar til styrktar söfnuninni.
500 manns hafa á fyrsta degi hringt í söfnunarsíma átaksins og gefið 809.000 kr. Fyrirtæki sýna hugkvæmni m.a. getur fólk keypt kaffi frá Aceh-héraði og lagt söfnuninni þannig lið. Dagskrá á Glerártorgi á Akureyri á laugardaginn verður í höndum listamanna úr fjórðungnum. Fleiri sjálfboðaliða vantar í verslunar-miðstöðvarnar föstudag og laugardag.
Í dag, þriðjudag, hófst landssöfnun þriggja sjónvarpsstöðva, þriggja verslunarmiðstöðva, níu útvarpsstöðva, þriggja dagblaða, listamanna, fyrirtækja og almennings til hjálpar þeim sem lifðu af hamfarirnar í Asíu. Söfnunarfénu verja fimm mannúðarsamtök; Barnaheill - Save the Children, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, SOS barnaþorp og UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Samstarfshópur einstaklinga, fyrirtækja og fjölmiðla undirbýr nú landssöfnun til styrktar þeim sem þjást vegna hamfaraflóðanna í Asíu. Söfnunin hefst á mánudag og nær hámarki með sjónvarpsútsendingu laugardaginn 15. janúar. Verndari söfnunarinnar og talsmaður verður Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands.
Harry Belafonte opnar ljósmyndasýningu
Næstkomandi laugardag, þann 20. nóvember kl. 15:30, mun stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, opna ljósmyndasýningu um UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna – í Smáralindinni. Sýningin verður staðsett fyrir framan Te & kaffi (Debenhams) á neðri hæð Smáralindar.
Heimsforeldrar – söfnunarátak Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna
Um þessar mundir senda landsnefnd UNICEF á Íslandi og frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra, bréf til allra heimila landsins þar sem Íslendingum er boðið að gerast heimsforeldrar. Heimsforeldrar eru öflugt stuðningsnet fyrir þurfandi börn um allan heim sem fólk getur orðið hluti af með mánaðarlegu fjárframlagi.
Laugardaginn 24. júlí mun Viktoría Áskelsdóttir hefja tveggja vikna sund yfir Breiðafjörð. Þetta verður í fyrsta skipti sem nokkur manneskja reynir að synda yfir fjörðinn.