93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.
Þú ert hér:
Beðið eftir fullgildinu alþjóðlegra sáttmála á Íslandi
Ný skýrsla UNICEF um viðbrögð stjórnvalda við mansali barna var kynnt sameiginlega á öllum Norðurlöndunum í dag. Í skýrslunni, Child Trafficking in the Nordic Countries: Rethinking strategies and national responses, kemur fram að aðgerðir gegn mansali geti verið of einangraðar sem hefur leitt til þess að mál sumra barna falli ekki inn í kerfið.
Milljóna evra safnað í Mjúkdýraleiðangri IKEA 2011
12.4 milljónir evra söfnuðust í Mjúkdýraleiðangri IKEA á heimsvísu fyrir UNICEF og Save the Children. Þar af söfnuðust 22.594 evrur, eða 3.648.480 krónur, á Íslandi.
IKEA gefur eina evru fyrir hvert mjúkdýr og hverja barnamáltíð sem seldust í yfir 300 IKEA verslunum um allan heim á tímabilinu 1. nóvember til 23. desember 2011.
Davíð & Golíat gefur UNICEF á Íslandi ESET-vírusvörn
Fyrirtækið Davíð & Golíat hefur styrkt starfssemi UNICEF á Íslandi með gjöf á ESET Smart security hugbúnaði. Yngvi Tómasson segir að með þessu vilji fyrirtækið endurspegla þá stefnu sem það hefur haft frá upphafi og felur í sér að veita góðgerðafélögum sérkjör og styðja við góð málefni.
Mikið fjallað um jarðskjálftann á Haítí: Margt áunnist á tveimur árum
Tveimur árum eftir að jarðskjálftinn á Haítí lagði stóran hluta landsins í rúst er margvíslegar góðar fréttir að finna frá landinu. Fjallað var um stöðuna á Haítí og starf UNICEF í sjö-fréttatíma RÚV, í Fréttablaðinu, Speglinum, á Vísi og víðar.
Magnað að kynnast þrautseigju fólks: Ólöf býr í Pakistan
Ólöf Magnúsdóttir vinnur fyrir UNICEF í Pakistan og kom í stutta heimsókn til Íslands um jólin. Ólöf sagði frá í morgunútvarpi Rásar 2 nú í morgun og í dag er einnig viðtal við hana í Morgunblaðinu. „Vissulega er þetta stundum erfitt, en þetta gerir mig líka mjög þakkláta, til dæmis fyrir að eiga heima á Íslandi,“ sagði hún.
Gleðilegt ár! Upp er runnið árið 2012, fullt af tækifærum og verkefnum! Við hjá UNICEF á Íslandi tökum nýja árinu fagnandi og þökkum innilega fyrir stuðninginn á árinu 2011. Mikið var um að vera hjá okkur á árinu - en ekkert af því hefði getað orðið að veruleika án allra þeirra fjölmörgu sem lögðu okkur lið.
Börn frá fræðslu um kynferðislegt ofbeldi: Skref í rétta átt
Alþingi samþykkti í gær að veita 25 milljónum króna í vitundarvakningu gegn kynferðislegu ofbeldi á næsta ári. Meðal annars fá öll börn í öðrum og tíunda bekk fá fræðslu um kynferðislegt ofbeldi. UNICEF á Íslandi fagnar tíðindunum. Þetta er skref í rétta átt!
White Signal vann jólalagakeppni Rásar 2: Jólanótt sló í gegn!
Hljómsveitin White Signal söng sig inn í hjörtu landsmanna á degi rauða nefsins fyrir viku. Í gær gerðust síðan þau tíðindi að hljómsveitin vann hvorki meira né minna en jólalagakeppni Rásar 2 með laginu Jólanótt! Lagið varð til í kjölfar lagasmíðanna fyrir dag rauða nefsins. Hjartanlega til hamingju krakkar!
Gefandi gjafakarfa slær í gegn: Jólagjöf sem sannarlega skiptir máli
Óvenjuleg jólagjöf fyrir bágstödd börn hefur heldur betur slegið í gegn á aðventunni. Hér er um að ræða svokallaða gefandi gjafakörfu: Fulla af bóluefnum, námsgögnum, lyfjum og fleiru. Gefandinn fær fallegt gjafabréf en hjálpargögn eru send á vettvang. Gefðu jólagjöf sem er sönn gjöf!
Dagur rauða nefsins: Ómetanlegt framlag til bágstaddra barna
Landsmenn tóku afar vel í söfnunarátakið dag rauða nefsins sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð fyrir í gær. Um 1650 manns hringdu inn á meðan á söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF stóð og vildu ýmist gerast heimsforeldrar eða hækka framlag sitt. Margir hafa auk þess skráð sig á heimasíðunni í dag.
Myndbönd frá degi rauða nefsins: Páll Óskar, Stingum af, grín og glens!
Myndbönd frá degi rauða nefsins eru á leið á netið! Nú þegar er myndband Páls Óskars við UNICEF-lagið "Megi það byrja með mér" farið út, sem og ný útgáfa af lagi Mugisons "Stingum af". Hjartnæmt myndband um valdeflingu stúlkna sömuleiðis!
Nefjaskreytt kaka með kaffinu: Stemmning hjá MP banka!
Dagur rauða nefsins er í dag og starfsmenn MP banka gæddu sér á flottri köku í morgun í tilefni af því! Boðið var upp á köku skreytta með Skjóðu, Skottu og Skrepp auk þess sem starfsmenn höfðu tækifæri til að láta gott af sér leiða í brandarakeppni þar sem bankinn styrkti UNICEF um moskítónet fyrir hvern brandara !
Skemmtun sem skiptir máli: Spennandi dagskrá í kvöld
Dagur rauða nefsins er í dag. Hápunkturinn er metnaðarfullur skemmti- og söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 19.30 en þar kemur saman landslið skemmtikrafta, leikara og grínista.
Rauðnefjað starfsfólk Samskipa styður við bágstödd börn
Hjá Samskipum átti starfsfólk saman notalega jólastund og setti upp rauð nef í tilefni af degi rauða nefsins. Fátt er skemmtilegra en að gleðjast saman og gleðja um leið aðra!
Björgunarsveitafólk stígur villtan dans á degi rauða nefsins
Nú standa yfir æfingar á frábæru dansatriði sem enginn má missa af. Á degi rauða nefsins stígur björgunarsveitafólk á svið og dansar í þágu góðs málefnis! Fimm meðlimir Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar og þyrluflugmaður úr Landhelgisgæslunni æfðu sig í gær.
Palli segir frá ferðinni til Síerra Leóne: Vísir og Kastljós
Dagbókarbrot Páls Óskars um Síerra Leóne-ferðina er hægt að lesa á Vísi. Palli var líka í frábæru viðtali í Kastljósinu þar sem hann spjallaði um hjálparstarf, upplifun sína af Síerra Leóne og dag rauða nefsins.
Björgunarsveitir og þingmenn hnýta á sig dansskóna fyrir UNICEF
Dagur rauða nefsins nálgast og ótal sjálfboðaliðar leggja nú hönd á plóg við að setja saman metnaðarfulla dagskrá fyrir skemmti- og söfnunarþátt UNICEF á Stöð 2! Strangar dansæfingar eru meðal annars hafnar bæði hjá björgunarsveitarfólki og þingmönnum ...
Börn eiga skilið allt það besta: Páll Óskar og Halldóra Geirharðs
Páll Óskar Hjálmtýsson og Halldóra Geirharðsdóttir hafa kynnt sér aðstæður barna og starf UNICEF á vettvangi í Síerra Leóne, Úganda og Haítí. Um helgina mátti lesa um upplifun þeirra í Fréttablaðinu og Sunnudagsmogganum.
Allir geta lagt sitt af mörkum: Páll Óskar í forsíðuviðtali
Í Fréttatímanum í dag má lesa magnað viðtal við Pál Óskar Hjálmtýsson sem í haust heimsótti Síerra Leóne ásamt UNICEF. Páll Óskar segir frá upplifun sinni af ferðinni og þeirri sannfæringu sinni að allir geti lagt sitt af mörkum til að bæta heiminn.
Skreppur, Skotta og Skjóða slá í gegn
Grallaralegu rauðu nefin Skreppur, Skotta og Skjóða hafa fengið frábærar viðtökur meðal landsmanna. Hægt er að nálgast nefin í Bónus, Hagkaup, útibúum MP banka og hjá Te & Kaffi, auk þess sem skátafélög um land allt leggja UNICEF lið.
Lag Páls Óskars og Redd Lights fyrir UNICEF vekur athygli
Lag dags rauða nefsins í ár er komið í spilun! Lagið er hvorki meira né minna en eftir Pál Óskar Hjálmtýsson og Redd Lights og Palli semur bæði textann og flytur lagið. Textinn þykir sérstaklega áhrifamikill en lagið heitir Megi það byrja með mér.
MP banki og UNICEF undirrita samstarfssamning
MP banki og UNICEF á Íslandi hafa undirritað þjónustu- og samstarfssamning. Samningurinn tryggir UNICEF lægsta mögulega bankakostnað, auk þess sem MP banki mun styðja verkefni UNICEF á Íslandi. Fyrsta verkefnið er dagur rauða nefsins!
Jólakortin seld um allt land. Jólakúlan einnig komin
Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í verslunum Pennans/Eymundssonar, A4, Bókabúð Máls og menningar, Iðu og Bóksölu stúdenta.
Vel gekk á ráðstefnu Evrópuráðsins: Stjórnlög unga fólksins kynnt
Stjórnlög unga fólksins voru í forgrunni á ráðstefnu Evrópuráðsins sem nýverið fór fram í Mónakó. Þar voru samankomnir ráðherrar Evrópuráðsins og ræddu þeir hvernig byggja mætti upp barnvænni Evrópu. Kristinn Jóhannsson, 16 ára, var í pallborði fyrir Íslands hönd.
Salan á rauðu nefjunum hefst í dag: Frú Vigdís setti upp fyrsta nefið
Dagur rauða nefsins er 9. desember og í dag hefst sala á rauðu nefjunum! Það var frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra, sem setti upp fyrsta nefið. Nefin í ár eru einstaklega skemmtileg og Vigdís valdi hana Skottu! Einnig verða þau Skjóða og Skreppur til sölu.
Áskorun um úrbætur í málefnum barna send til stjórnvalda
Niðurstöður barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, vegna framkvæmdar Íslands á barnasáttmála SÞ, voru nýverið kynntar á vegum innanríkisráðuneytisins. Sama dag sendu UNICEF á Íslandi, Barnaheill og Mannréttindaskrifstofa Íslands frá sér sameiginlega áskorun til stjórnvalda um úrbætur í málefnum barna hérlendis.
Mjúkdýraleiðangur IKEA til styrktar menntun barna
Söfnunaráakið Mjúkdýraleiðangurinn stendur nú yfir í verslun IKEA á Íslandi. Átakið er hluti af alþjóðlegu verkefni IKEA þar sem ein evra af hverju mjúkdýri sem viðskiptavinir kaupa fyrir jólin rennur til menntaverkefna á vegum UNICEF og Barnaheilla. Á heimsvísu hefur verkefnið stuðlað að betra lífi fyrir rúmlega átta milljón börn.
Stjórnlög unga fólksins vekja athygli út fyrir landsteinana
Stjórnlög unga fólksins verða í forgrunni á ráðstefnu Evrópuráðsins sem hefst í Mónakó á sunnudag! Þar verða samankomnir ráðherrar Evrópuráðsins og ætla þeir að ræða hvernig byggja megi upp barnvænni Evrópu. Kristinn Jóhannsson, 16 ára, verður í pallborði strax á eftir opnunarræðunni og kynnir Stjórnlög unga fólksins.
Brosað með súkkulaði og stutt við bágstödd börn
Listakonan Helga Birgisdóttir, Gegga, er meðal annars þekkt fyrir hönnun sína á svokölluðum smiler. Nýjasta útgáfa hennar af smiler er óvenjuleg fyrir þær sakir að efniviðurinn er súkkulaði. Fólk getur því ekki einungis brosað út að eyrum heldur bragðað gæðasúkkulaði og stutt um leið við bágstödd börn á þurrkasvæðunum í Austur-Afríku.
Kort til styrktar bágstöddum börnum: Fara í sölu í dag
Tíminn flýgur og nóvember er handan við hornið! Þau sem vilja vera tímanlega í jólaundirbúningnum þurfa ekki að óttast því jólakort UNICEF eru á leið í sölu í dag. Einn af starfsmönnunum okkar er í þessum töluðu orðum að fara með kortin í verslanir!
Eins árs en samt orðinn foreldri: Halldór Andrésson
Halldór Andrésson er nýorðinn eins árs. Þrátt fyrir ungan aldur er hann farinn að láta til sín taka við að gera heiminn að betri stað. Daginn sem Halldór fagnaði sínum fyrsta afmælisdegi gerðist hann nefnilega heimsforeldri. Við bjóðum Halldór velkominn í hópinn!
Karpov í heimsókn á skrifstofu UNICEF: Mikill árangur náðst!
Góður gestur heimsótti skrifstofu okkar um daginn! Eins og frægt er orðið var Anatoly Karpov á landinu en hann er einmitt góðgerðarsendiherra UNICEF í Mið- og Austur-Evrópu. Sérstakt baráttumál hans er joðbæting salts en joð gegnir veigamiklu hlutverki í þroska barna.
Greiðsluseðlar sendir á heimsforeldra vegna mistaka
Vegna kerfislægra mistaka hjá viðskiptabanka UNICEF á Íslandi voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslum. Við biðjumst innilegrar velvirðingar á þessum mistökum. Millifærsla af reikningi á að eiga sér stað með eðlilegum hætti. Tekið skal fram að UNICEF á Íslandi ber engan kostnað af mistökunum.
Sigur Rós í Svasílandi: Ljósmyndir að utan
UNICEF í Svasílandi vinnur nú að endurbótum á heimasíðu sinni og var að setja inn ljósmyndir frá heimsókn Sigur Rósar til landsins. Haustið 2006 fór hljómsveitin á vettvang að skoða HIV-verkefni UNICEF og heimsótti m.a. miðstöð fyrir börn sem misst höfðu foreldra sína af völdum alnæmis.
Fimm þúsund eplum pakkað í taupoka frá Úganda
Málshátturinn margar hendur vinna létt verk átti svo sannarlega við í dag þegar um 30 sjálfboðaliðar frjálsra félagasamtaka sem starfa að alþjóðlegri þróunarsamvinnu komu saman til að pakka 5.000 eplum í taupoka sem saumaðir voru í Úganda. Fylgist vel með á morgun þegar eplunum verður dreift!
Þróunarsamvinna ber ávöxt: Átaksverkefni frjálsra félagasamtaka
Frjáls félagasamtök á Íslandi sem starfa að alþjóðlegri þróunarsamvinnu standa að kynningu á þróunarmálum í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands nú í vikunni. Markmiðið er að auka skilning og þekkingu almennings á málefnum þróunarlanda.
Hasar og gleði á Klambratúni: Framlög renna til Austur-Afríku
Um helgina fór fram Íslandsmeistaramótið í brennibolta á Klambratúni. Sólin skein, fjöldi fólks fylgdist með, keppnin var afar hörð og hasarinn mikill - en gleðin sömuleiðis alls ráðandi! Sigurvegarinn var liðið Hot Shots úr Hafnarfirði. Allur ágóði af mótinu rann í neyðarsöfnun UNICEF fyrir þurrkasvæðin í Austur-Afríku.
Með mörg kíló af klinki í strætó: Léku á þverflautur og söfnuðu fé
Það voru fagrir flaututónar sem mættu gestum og gangandi í miðborg Reykjavíkur á laugardaginn. Þar voru komnar engar aðrar en vinkonurnar Andrea, Diljá og Hugrún sem léku á þverflauturnar sínar til að safna fé til styrktar börnum í Austur-Afríku. Söfnunin gekk einstaklega vel.
Metupphæð hjá hlaupurum: "Mikils metið," segir svæðisstjóri UNICEF
Aldrei hafa fleiri hlaupið til styrktar UNICEF á Íslandi en í áheitahlaupinu sem fram fór í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið á laugardag. Hlaupararnir söfnuðu auk þess metupphæð: Einni milljón króna. „Stuðningur sem þessi kemur á mikilvægum tíma og er mikils metinn,“ segir svæðisstjóri UNICEF í Austur-Afríku.
Fimm klukkutímar voru tíu mínútur: "Gaman að safna fyrir góðu málefni!"
Katrín Lind Birgisdóttir og Vilborg Lóa Jónsdóttir afhentu í dag fé sem þær söfnuðu með nærri fimm klukkustunda tombólu á Völlunum í Hafnarfirði á föstudag. Vinkonurnar gengu í hús, söfnuðu munum og fengu meðal annars heilt safn af tölvuleikjum! Tombólan gekk vonum framar.
Vel heppnuð tombóla á Ormsteiti um helgina: Gaf leikföng og gamla muni
Valný Lára Jónsdóttir Kjerúlf er 12 ára gömul og býr á Egilsstöðum. Hún safnaði saman gamla dótinu sínu og ýmsum munum og hélt tombólu á hátíðinni Ormsteiti nú um helgina. Valný Lára vildi koma vannærðum börnum í Austur-Afríku til aðstoðar.
Áheitahlaup, ljósmyndir, leikföng og fiðluleikur á Menningarnótt!
Óhætt er að segja að Reykjavík hafi iðað af lífi á laugardag. Um borg og bý studdu ótal manns neyðaraðgerðir UNICEF á þurrkasvæðunum í austurhluta Afríku – og það með margvíslegum hætti: Hlaupum, ljósmyndum, bílskúrssölu og fiðluleik! Við þökkum öllu þessu frábæra fólki hjartanlega fyrir framlagið.
Spilar á fiðlu á menningarnótt til styrktar börnum í Austur-Afríku
Ágústa Dómhildur Karlsdóttir, fiðlunemi með meiru, ætlar að styrkja hjálparstarf UNICEF í Austur-Afríku á óvenjulegan hátt á menningarnótt á morgun. Milli klukkan 15-18 mun Ágústa „böska“ fyrir utan Eymundsson á Skólavörðustíg, þ.e. spila og safna framlögum í fiðlukassann sinn. Öll framlög sem safnast munu svo renna óskipt til UNICEF.
Ilmur Kristjánsdóttir biðlar til fólks um að styðja neyðarsöfnun UNICEF
Í nýju myndbandi með leikkonunni Ilmi Kristjánsdóttur biðlar hún til Íslendinga um að koma lífshættulega vannærðum börnum í Austur-Afríku til aðstoðar og styrkja hjálparstarf UNICEF. Myndbandið var frumsýnt í Íslandi í dag í gærkvöldi. Það hefur einnig birst í fjölmörgum vefmiðlum.
Metþátttaka í áheitahlaupum í Reykjavíkurmaraþoni
Aldrei hafa fleiri hlaupið til styrktar UNICEF á Íslandi en hafa nú skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer á laugardag. Skráning er enn í fullum gangi og fer fram á www.hlaupastyrkur.is. Yfir 80 manns hafa þegar skráð sig fyrir UNICEF!
Um sextíu manns ætla að hlaupa fyrir UNICEF: Áheit til Austur-Afríku
Reykjavíkurmaraþonið fer fram laugardaginn 20. ágúst og sem fyrr má búast við mjög góðri þátttöku. Eins og undanfarin ár gefst þátttakendum kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis og hafa nú þegar tæplega sextíu hlauparar valið að safna áheitum fyrir UNICEF. Öll áheit til UNICEF munu renna beint til neyðaraðgerða samtakanna í Austur-Afríku.
Heimsmethafi í heimsókn: Hægt að koma breytingum til leiðar
Tegla Loroupe frá Keníu er margfaldur heimsmethafi í maraþoni, og hálfmaraþoni. Hún er jafnframt góðgerðarsendiherra hjá UNICEF. Tegla er á Íslandi vegna friðarhlaupsins og heimsótti okkur á skrifstofuna í dag. Hún er frá norðvesturhluta Keníu - þar sem þurrkarnir miklu hafa valdið verulegum erfiðleikum.
Áheitasöfnun vegna Reykjavíkurmaraþons hafin
Undanfarin ár hafa þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu getað fengið vini og vandamenn til að heita á sig til styrktar góðgerðarfélagi að eigin vali. Þessi möguleiki hefur aukið skemmtanagildi hlaupsins. Við hvetjum sem flesta til að hlaupa fyrir UNICEF og leggja starfi okkar þannig lið.
Líf og fjör á Austurvelli: Salvör Nordal fékk fyrstu skýrsluna afhenda
Það var líf og fjör á Austurvelli í hádeginu þegar fulltrúar úr stjórnlagaráði voru ausnir hugmyndum frá ungmennum - í orðsins fyllstu merkingu! Salvör Nordal tók við skýrslu með niðurstöðum af þingi ungmennaráða sem haldið var í vor.
„Ekki má gleymast að hlusta á raddir unga fólksins“
Formanni stjórnalagaráðs, Salvöru Nordal, voru nú í hádeginu afhentar niðurstöður frá þingi ungmennaráða um stjórnarskrána sem fram fór í vor. Með þessu gefst stjórnlagaráði einstakt tækifæri til að kynna sér sjónarmið ungmenna á aldrinum 13-18 ára við endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Mikil umfjöllun um skýrslu UNICEF um stöðu barna á Íslandi
Skýrsla UNICEF um stöðu barna á Íslandi hefur fengið mikla athygli og jákvæðar undirtektir. Í leiðara Fréttablaðsins var m.a. bent á að því bæri að fagna þegar teknar væru saman og birtar upplýsingar sem gæfu mynd af stöðu barna.
Ársfundur fór vel fram: Ársskýrsla kynnt og skýrsla um stöðu barna
Ársfundur UNICEF á Íslandi fór fram í gær og var þar farið yfir starfið árið 2010. Á fundinum var ársskýrsla UNICEF kynnt og ný skýrsla um stöðu barna á Íslandi. Á aðalfundi var Svanhildur Konráðsdóttir endurkjörin stjórnarformaður.
Ný skýrsla UNICEF: Ýmsar brotalamir í málefnum barna á Íslandi
Út er komin skýrsla á vegum UNICEF um stöðu barna á Íslandi. Er um viðamikið yfirlit að ræða og í fyrsta sinn sem heildstæð samantekt af þessu tagi er gerð um stöðu barna á Íslandi og þær ógnir sem að þeim steðja.
Sunnudagurinn 29. maí nk. er á Íslandi helgaður börnum. Markmið dagsins er að hvetja til samveru barna og fjölskyldna þeirra, minna á yngstu þegna landsins, koma málefnum barna á framfæri og leyfa röddum þeirra að hljóma.
Ársfundur UNICEF á Íslandi í dag: Ný skýrsla um íslensk börn kynnt
Ársfundur UNICEF á Íslandi verður haldinn í dag, fimmtudag klukkan 17.00 í Þjóðminjasafni Íslands. Farið verður yfir starf samtakanna árið 2010 en auk þess verður heildræn skýrsla um stöðu barna á Íslandi kynnt á fundinum.
UNICEF í Malaví og ÞSSÍ hefja samstarf
UNICEF og Þróunarsamvinnustofnun Íslands, ÞSSÍ, hafa tekið upp formlegt samstarf í Malaví. Verkefnið snýr að bættri vatns- og hreinlætisaðstöðu við skóla í Mangochi-héraði. UNICEF er meðal annars falin gerð fimm vatnsbóla við skóla á svæðinu.
Akureyringar bætast í hópinn: MA-nemar skrá heimsforeldra
Sjálfboðaliðar úr Menntaskólanum á Akureyri kynntu á dögunum heimsforeldraverkefni UNICEF fyrir Akureyringum. Árangurinn lét ekki á sér standa. Alls skráðu 26 Norðlendingar sig sem heimsforeldrar!
Stjórnlagaráð tekur tillit til athugasemda UNICEF
Svokölluð A-nefnd stjórnlagaráðs brást í vikunni við erindi UNICEF um réttindi barna í stjórnarskránni sem nú er unnið að því að skrifa. UNICEF sendi inn athugasemdir vegna þeirrar greinar sem snýr að börnum og tók ráðið tillit til þeirra. Tillögur voru kynntar í gær.
Metárangur hjá UNICEF-hreyfingunni – yfir 4500 taka þátt!
Skráning í grunnskólaverkefni UNICEF á Íslandi, UNICEF-hreyfinguna, gengur vonum framar og stöðugt bætist í hóp skráðra þátttakenda. Aldrei hafa fleiri nemendur tekið þátt og er fjöldinn núna kominn yfir 4500! Skráning stendur enn yfir.
Lætur strax gott af sér leiða! Elí fékk óvenjulegar skírnargjafir
Elí er ungur drengur sem fékk óvenjulegar skírnargjafir: Ungbarnavigt, fjögur moskínónet, námsgögn, bóluefni og vatnshreinsitöflur! Elí er sá Íslendingur sem hefur fengið flestar sannar gjafir frá UNICEF. Grein um hann birtist í Fréttablaðinu í dag.
Móðurást hjá UNICEF! Kaffi og kökur á vegum Puzzled by Iceland
Á mæðradaginn nú á sunnudag hefst sala á púsli til styrktar UNICEF sem ber heitið Móðurást. Það er fyrirtækið Puzzled by Iceland sem stendur að baki þessu. Eigendur fyrirtækisins bjóða að því tilefni í fjölskylduvænt kaffi í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum. Kaffið hefst kl 3.
Góður gangur hjá Stjórnlögum unga fólksins! Yfir 40 þingmenn taka þátt
Þátttaka í Stjórnlögum unga fólksins er afar mikil og verkefnið hefur fengið miklar og góðar undirtekir. Yfir 40 ungmenni taka þátt í þinginu í Iðnó á morgun! Nær öll sveitarfélög á landinu sem starfrækja ungmennaráð senda fulltrúa á þingið og fjögur sveitarfélög til viðbótar eru með slík ráð í burðarliðnum og senda þátttakendur.
Stjórnlög unga fólksins – leyfum rödd ungmenna að heyrast
UNICEF, umboðsmaður barna og Reykjavíkurborg standa nú fyrir Stjórnlögum unga fólksins. Vefsíðan www.stjornlogungafolksins.is hefur verið opnuð og um næstu helgi verður stjórnlagaþing ungmennaráða haldið í Reykjavík. Markmiðið er að tryggja að skoðanir barna og ungmenna heyrist við endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Skuggaskýrsla um stöðu barna á Íslandi - stjórnvöld fylgi áætlunum
UNICEF á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Barnaheill – Save the Children á Íslandi, hafa skrifað svokallaða skuggaskýrslu um stöðu barna á Íslandi með tilliti til ákvæða Barnasáttmála SÞ. Hún verður send nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Ýmissa úrbóta er þörf.
Verðlaunamynd um hrikaleg örlög barnahermanna í Úganda
Margverðlaunaða heimildarmyndin Stríðsbörnin, sem fjallar um barnahermenn í Úganda, verður sýnd í Bíó Paradís fimmtudaginn 10. febrúar kl. 20.00 að viðstöddum höfundi myndarinnar Bryan Single. Stríðsbörnin (www.childrenofwarfilm.com) er mynd um örlög barna sem hneppt hafa verið í ánauð sem hermenn.
Heimildamynd um verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá
Heimildamynd Dúa Landmark Landið sem gleymdist fjallar um Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku og verkefni UNICEF þar í landi. Myndin verður sýnd á Afríkudögum í Bíó Paradís næstkomandi fimmtudag, 27. janúar, kl. 20.00. Afríkudagar eru á vegum samtakanna Afríka 20:20 og verður sjónum aðallega beint að sunnanverðri Afríku dagana 22.-28. janúar.
Málþing um börn sem heltast úr lestinni í efnameiri löndum
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, stendur að málþingi um skýrsluna "The children left behind" eða „Börn skilin útundan“ í samstarfi við Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, þriðjudaginn 18. janúar kl. 12-13 í Odda stofu 201.
Góðar fréttir af mjúkdýraleiðangrinum
Fyrsta nóvember á nýliðnu ári hóf IKEA um allan heim söfnunarátakið Mjúkdýraleiðangurinn. Leiðangurinn stóð til 23. desember og gaf IKEA eina evru fyrir hvert mjúkdýr sem seldist á tímabilinu. Söfnunarféð rann til UNICEF og Barnaheillar – Save the Children sem nota féð til að styðja við menntun bágstaddra barna í heiminum.
Delta Kappa Gamma styrkir menntun
Íslensk landsdeild Delta Kappa Gamma hefur afhent UNICEF á Íslandi framlag sem rennur til verkefnis sem miðar að því að tryggja börnum menntun í fátækustu ríkjum Afríku, Schools for Africa. Íslenska landsdeildin bætist þar með í hóp annarra landsdeilda Delta Kappa Gamma sem styrkja þetta mikilvæga verkefni.
Á Þorláksmessu komu systkini færandi hendi á skrifstofu UNICEF á Íslandi. Yngsti meðlimurinn í systkinahópnum, Baldur Kár, var nýlega skírður og ákvaðu foreldrarnir að afþakka allar skírnargjafir en hvöttu fólk þess í stað að styrkja bágstödd börn í gegnum UNICEF.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!
UNICEF á Íslandi óskar heimsforeldrum og öðrum styrktaraðilum sínum gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári. Barnahjálpin sendir einnig hugheilar kveðjur til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg í söfnunarátakinu Degi rauða nefsins eða lögðu starfinu lið með einhverjum hætti á liðnu ári.
Sannar gjafir fáanlegar á Íslandi
UNICEF á Íslandi hefur sett á markað gjafir sem geta breytt lífi nauðstaddra barna, eða svokallaðar „Sannar gjafir“. Um er að ræða raunverulegar gjafir sem fólki býðst að kaupa í vefverslun UNICEF, en þeim er síðan dreift árið um kring til barna og fjölskyldna þeirra í samfélögum þar sem þörfin er mest.
Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í verslunum Pennans/Eymundssonar, A4, Bókabúð Máls og menningar, Bóksölu stúdenta og víðar.
Þau leiðu mistök áttu sér stað við skuldfærslu vegna framlaga heimsforeldra af VISA-kortum nú eftir mánaðarnótin að rangur skýringartexti birtist í heimabanka. Skal áréttað að um er að ræða venjubundna skuldfærslu vegna styrks heimsforeldra og alls ótengda Degi rauða nefsins sem fram fór síðastliðinn föstudag. Mistökin verða leiðrétt á prentuðu yfirliti frá VISA.
Greiðsluseðlar sendir út fyrir mistök
Vegna kerfislægra mistaka voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslusamningi. UNICEF á Íslandi biður innilegrar velvirðingar á þessum mistökum sem nú hefur verið komið fyrir. Millifærsla af reikningi verður framkvæmd sjálfkrafa síðar í dag og því skal ekki greiða fyrrnefnda greiðsluseðla.
Landsmenn tóku vel í söfnunarátak UNICEF, Dag rauða nefsins
Landsmenn tóku vel í söfnunarátakið Dag rauða nefsins sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð fyrir í gær. Alls söfnuðust 173 milljónir króna og hátt í 2000 manns bættust í hóp heimsforeldra, mánaðarlegra styrktaraðila Barnahjálparinnar.
Landssöfnun Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) Dagur rauða nefsins er í dag! Í kvöld mun landslið leikara og grínista sameina krafta sína í stórum skemmti- og söfnunarþætti í opinni dagskrá á stöð 2. Gamanið hefst á slaginu 20.00.
Greiðsluseðlar sendir út fyrir mistök
Vegna kerfislægra mistaka voru sendir greiðsluseðlar til þeirra heimsforeldra sem styrkja UNICEF með beingreiðslusamningi. UNICEF á Íslandi biður innilegrar velvirðingar á þessum mistökum sem nú hefur verið komið fyrir. Millifærsla af reikningi verður framkvæmd sjálfkrafa síðar í dag og því skal ekki greiða fyrrnefnda greiðsluseðla.
Dagur rauða nefsins á föstudaginn
Dagur rauða nefsins nálgast nú óðfluga. Hápunkturinn er skemmti- og fjáröflunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2 á föstudaginn. Nú fer hver að vera síðastur að tryggja sér rautt nef til styrktar bágstöddum börnum en nefin fást í verslunum Bónuss og Hagkaups og útibúum Íslandsbanka. Auk þess taka skátar og íþróttafélög um land allt þátt í átakinu með nefjasölu.
Söfnunarsími opnar á Bylgjunni
Bylgjan mun opna söfnunarsíma UNICEF, 562 6262, í tengslum við Dag rauða nefsins næstkomandi mánudag. Þannig getur fólk byrjað að skrá sig sem heimsforeldra strax á mánudaginn þrátt fyrir að hápunkti átaksins verði ekki náð fyrr en í sjónvarpsútsendingunni á Stöð 2 föstudaginn 3. desember.
Retro Stefson með lag Dags rauða nefsins í ár
Lag Dags rauða nefsins í ár er í flutningi hinnar stórskemmtilegu og fjölhæfu hljómsveitar Retro Stefson. Lagið heitir einfaldlega Dagur rauða nefsins og hefur m.a. að geyma smellna tóna og barnakór.
Borgarstjórn hrinti af stað sölu nefjanna
Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, keypti fyrstu rauðu nefin, ásamt borgarstjórn, í gær og hrinti þannig af stað söfnunarátaki UNICEF, Degi rauða nefsins, með glæsibrag. Átakið nær hámarki 3. desember þar sem söfnunar- og skemmtidagskrá verður í opinni dagskrá á Stöð 2.
Jólakort UNICEF eru nú komin í verslanir um land allt. Að senda UNICEF-jólakort til vina og vandamanna er hefð á mörgum heimilum enda eiga kortin sér yfir hálfrar aldra sögu á Íslandi. Útsölustaðir hafa aldrei verið fleiri en í ár en jólakortin má nálgast á pósthúsum og í verslunum Pennans/Eymundssonar, A4, Bókabúð Máls og menningar, Bóksölu stúdenta og víðar.
Breytt heimasíða UNICEF á Íslandi
Heimasíða UNICEF á Íslandi hefur gengið í gegnum margvíslegar
breytingar á undanförnum dögum. Með breytingunum viljum við tryggja
enn betra aðgengi stuðningsaðila okkar, og allra áhugasamra, að
upplýsingum um starfsemi UNICEF hér heima og erlendis.
Mjúkdýraleiðangur í IKEA hefst í dag
IKEA á Íslandi tekur í fyrsta skipti þátt í alþjóðlegu söfnunarátaki fyrir UNICEF og Save the Children með því að selja mjúkdýr til styrktar samtökunum. Átakið á sér langa sögu og hefur styrkt fjölda verkefna fyrir bágstödd börn víða um heim.
Kaupmenn í einn dag fyrir UNICEF
Smáralind bauð á dögunum börnum að gerast kaupmenn í einn dag og safna fyrir góðgerðarfélag að eigin vali. Dagurinn heppnaðist vel þar sem 101 barn mætti og safnaði fyrir góðu málefni. Fulltrúi UNICEF tók við ágóðanum sem rann til samtakanna, alls 3.120 krónur
Foreldrar og aðstandendur Skóla ehf gefa til neyðaraðstoðar
Skólar ehf reka fimm leikskóla á Suðvesturhorni landsins. Nýverið stóð fyrirtækið fyrir söfnun meðal starfsfólks og foreldra barna á leikskólunum vegna neyðaraðstoðar UNICEF á Haítí. Alls söfnuðust 101.500 krónur en auk þess lögðu Skólar til mótframlag upp á sömu upphæð. Skólar bættu svo um betur með 100.000 króna gjöf vegna neyðaraðstoðar í Pakistan.
Stúlkur styrkja börn í Pakistan
Vinkonurnar Karítas Gyða Sigurðardóttir og Helga Guðný Hallsdóttir, 10 ára, komu við hjá UNICEF í dag og afhentu styrk að upphæð 3130 krónum til neyðarstarfsins í Pakistan. Þær söfnuðu fénu með því að selja leikföng, sem þær áttu sjálfar, fyrir utan Bókasafn Hafnarfjarðar og Ísbúð Vesturbæjar í Hafnarfirði.
Leitum að eldhugum í kynningarstörf
UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki sem vill leggja málstað samtakanna lið í október og nóvember. Starfið felst í því að ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu, kynna starf UNICEF, og bjóða fólki að skrá sig sem mánaðarlega styrktaraðila.
Minnt á dag án ofbeldis 2. október
Alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna án ofbeldis (e. Day of Nonviolence) er haldinn hátíðlegur um allan heim 2. október næstkomandi. Af þessu tilefni mun fjöldi samtaka standa fyrir myndun mannlegs friðarmerkis á Klambratúni klukkan 20 að kvöldi þess dags.
Fimm milljónir úr neyðarsjóði til hjálparstarfs í Pakistan
Í ljósi gríðarlegs umfangs neyðarinnar í Pakistan hefur UNICEF á Íslandi ákveðið að verja fimm milljónum króna úr neyðarsjóði sínum til UNICEF í Pakistan. Bætist sú upphæð við þær sex milljónir sem safnast hafa frá íslenskum almenningi á undandförnum vikum. Yfir tíu milljónir barna þurfa á aðstoð að halda.
Oddi styður UNICEF til góðra verka
Í dag skrifuðu Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF, og Arnar Árnason, markaðsstjóri Prentsmiðjunnar Odda, undir samstarfssamning sem felst í að Oddi styrkir Barnahjálpina með því að veita veglegan afslátt af allri hönnun og prentun á fræðslu- og kynningarefni ásamt prentun á jólakortum Barnahjálparinnar.
Ný skýrsla frá UNICEF á Íslandi um mansal
UNICEF áætlar að um 2.400 börn fari árlega frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Ný íslensk rannsókn varpar skýrara ljósi á umfang og eðli mansalsins og bendir á leiðir til úrbóta. Jónína Einarsdóttir, mannfræðingur, kynnir niðurstöður rannsóknarinnar á Jafnréttisdögum H.Í. þriðjud. 21. september, kl. 12-13, í Árnagarði 311.
Vantar eldhuga á Akureyri til að kynna starf UNICEF
UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki á Akureyri sem vill leggja málstað samtakanna lið frá miðjum september og fram í nóvember. Starfið felst í því að ganga í hús á Eyjafjarðarsvæðinu, kynna starf UNICEF, og bjóða fólki að skrá sig sem mánaðarlega styrktaraðila.
Hönnuðir styrktu UNICEF á LungA-hátíðinni
Sett var á fót milliliðalaus verslun, eða svokölluð PopUp verslun, á LungA á Seyðisfirði í júlí síðastliðnum og gáfu hönnuðir 10% af söluverði valdra vara til styrktar UNICEF. UNICEF kann hönnuðunum bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Fjórar milljónir pakistanskra barna í bráðri hættu
Samkvæmt nýjustu áætlunum stjórnvalda í Pakistan hafa um 20 milljónir íbúa orðið fyrir áföllum í kjölfar flóðanna. Af þeim eru yfir átta milljónir barna undir 18 ára aldri. Fjórar milljónir þeirra eru í mikilli hættu á að smitast af lífshættulegum sjúkdómum.
Mál og menning hefur sölu á UNICEF-leikföngum
Undanfarin ár hefur UNICEF á Íslandi selt vandaða gjafavöru til styrktar hjálparstarfi í þágu bágstaddra barna. Bókabúð Máls og menningar hefur nú tekið til sölu fjölmargar vörur úr leikfangalínu UNICEF og mun þegar nær dregur jólum einnig taka til sölu jólakort og fleiri gjafavörur.
Þakkir til hlaupara sem söfnuðu áheitum fyrir UNICEF
Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er nú lokið en um 6000 hlauparar tóku þátt í öllum vegalengdum. UNICEF á Íslandi vill þakka öllum þeim hlaupurum sem söfnuðu áheitum fyrir UNICEF sem og þeim sem á þá hétu. Þegar þetta er skrifað hefur samtals 219.600 krónum verið heitið á UNICEF-hlaupara.
Ein milljón hefur safnast fyrir hjálparstarf í Pakistan
UNICEF á Íslandi hóf í gær söfnun fyrir hjálparstarf UNICEF á flóðasvæðunum í Pakistan. Ljóst er að fjölmargir Íslendingar ætla að svara kallinu en á fyrsta sólarhringnum hefur safnast yfir ein milljón króna. UNICEF metur mikils hvert framlag og hvetur sem flesta að taka þátt í söfnuninni.
Söfnun á Íslandi vegna hjálparstarfs í Pakistan
UNICEF hefur hafið söfnun meðal almennings á Íslandi vegna neyðaraðstoðar á flóðasvæðunum í Pakistan. Hægt er að styrkja hjálparstarfið með því að hringja í sérsök söfnunarnúmer: 908-1000, 908-3000 eða 908-5000. Einnig er hægt að styrkja hér á heimasíðu okkar.
Synti yfir Hafnafjarðarhöfn til styrktar UNICEF
Hinn 23 ára Hafnfirðingur Stefán Helgi Waagfjörð heimsótti nýverið skrifstofu UNICEF á Íslandi með 75.000 króna gjöf til samtakanna. Peningunum safnaði Stefán með því að fá vini og vandamenn til að heita á sig og synda svo yfir Hafnafjarðarhöfn í júlí.
Einn albesti hlaupari landsins hleypur fyrir UNICEF
Einn albesti hlaupari landsins um árabil, Björn Margeirsson, safnar áheitum fyrir UNICEF í Reykjavíkurmaraþoninu. Hægt er að heita á Björn sem og aðra hlaupara sem valið hafa UNICEF sem sitt góðgerðarfélag og styrkja þannig gott málefni með skemmtilegum hætti.
Greiðsluseðlar sendir út vegna mistaka
Fyrir mistök hjá Íslandsbanka voru sendir út greiðsluseðlar heim til allra heimsforeldra sem eru með beingreiðslur í maí, júní og júlí. UNICEF biðst velvirðingar á þessum tæknilegu mistökum og biður heimsforeldra vinsamlegast að henda greiðsluseðlunum. Greiðslur eru innheimtar rafrænt. UNICEF mun ekki bera kostnað af þessum póstsendingum bankans.
Bæklingur um erfðagjafir til UNICEF kominn út
Það færist í vöxt að fólk kjósi að ánafna hluta eigna sinna til góðgerðamála eftir sinn dag. UNICEF á Íslandi hefur nú tekið saman bækling til þess að skýra mikilvægi erfðagjafa fyrir framtíðarstarf samtakanna, auk þess sem bæklingurinn inniheldur svör við spurningum um erfðagjafir til hjálparsamtaka.
Ný íslensk skýrsla um mansal í Gíneu-Bissá
UNICEF áætlar að á hverju ári fari fjöldi barna frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Skýrsla þessi byggist á rannsókn sem gerð var að ósk UNICEF í Gíneu-Bissá til að afla upplýsinga um ástæður, umfang og afleiðingar þessa og hvort um eiginlegt mansal barna sé að ræða.
Sextíu og fjórir nýir heimsforeldrar á Akranesi
Á undanfarinni viku hafa 64 Skagamenn gerst heimsforeldrar. Bætast þeir þar með í hóp rúmlega 300 Akurnesinga sem styrkja UNICEF með mánaðarlegum framlögum í gegnum heimsforeldraverkefnið og styðja þannig við starf samtakanna í þágu bágstaddra barna um allan heim.
Nýr stjórnarformaður UNICEF á Íslandi
Svanhildur Konráðsdóttir er nýr stjórnarformaður UNICEF á Íslandi, en hún hefur setið í stjórn samtakanna í þrjú ár. Tilkynnt var um þetta á aðalfundi UNICEF á Íslandi í Þjóðminjasafninu í dag. Hún tekur við af Þórunni Sigurðardóttur sem setið hefur í stjórn UNICEF á Íslandi frá stofnun samtakanna, þar af sem formaður síðustu tvö ár.
Te & kaffi veita UNICEF veglegan styrk
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, veitti fyrir helgi viðtöku rúmlega 1,4 milljónum króna frá Sigmundi Dýrfjörð, framkvæmdastjóra Te & Kaffis. Þessi upphæð bætist við rúmar fjórar milljónir sem þegar hafa safnast í sameiginlegu fjáröflunarverkefni UNICEF og Te & kaffis.
Metþátttaka í UNICEF-hreyfingunni
Grunnskólaverkefni UNICEF á Íslandi, UNICEF-hreyfingin, eflist með hverju árinu sem líður. Það sem af er þessu ári hafa 25 skólar og frístundaheimili skráð sig til þátttöku, en hægt er að framkvæma verkefnið hvenær árs sem er. Tæplega fjögur þúsund nemendur hafa tekið þátt í verkefninu í ár.
Rausnarleg gjöf frá fermingarstúlku
Harpa Hrönn Hjaltalín Arnarsdóttir leit við á skrifstofu UNICEF á dögunum með góðan glaðning. Harpa Hrönn, sem fermdist í vor, tók þá ákvörðun að láta 40 þúsund krónur af fermingarpeningunum renna til starfsemi UNICEF í þágu þurfandi barna. UNICEF á Íslandi kann henni bestu þakkir fyrir frábært framtak.
Nemendur í M.A. styrkja UNICEF
Nemendur í félagsfræðiáfanganum FÉL313, félagsfræði þróunarlanda, í Menntaskólanum á Akureyri hafa á þessari önn staðið fyrir söfnun til styrktar UNICEF. Tveir viðburðir voru haldnir í skólanum, bíókvöld og tölvuleikjamót, og rann ágóðinn óskiptur til UNICEF, samtals 133.086 kr.
Átak í skráningu heimsforeldra
Ýtt hefur verið úr vör átaki í nýskráningu heimsforeldra. Á næstu misserum mun starfsfólk frá UNICEF ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að kynna UNICEF og bjóða fólki að ganga til liðs við heimsforeldraverkefni samtakanna. Þessa dagana er starfsfólkið á ferli í Grafarvogi.
Þátttakendur í RVK-maraþoni geta hlaupið fyrir UNICEF
Líkt og undanfarin ár gefst þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis. Allir hlauparar geta valið að tengja sig tilteknu góðgerðarfélagi, hvetja svo vini og vandamenn til að heita á sig og renna áheitin til félagsins.
Dreifing hjálpargagna hefur tafist vegna eldgossins
Eins og flestum er kunnugt hefur eldgosið í Eyjafjallajökli valdið miklum truflunum á flugsamgöngum. UNICEF hefur m.a. ekki getað komið hjálpargögnum á vettvang víða um heim. Birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn vinnur náið með samstarfsaðilum til að finna aðrar leiðir fyrir hjálpargögn í þeim tilgangi að minnka áhrif flugbannsins á hjálparstarfið.
Aðeins 40% íslenskra barna þekkja réttindi sín
Íslensk og dönsk ungmenni telja sig vita minnst um réttindi sín, en 40 prósent íslenskra ungmenna telja sig ekki þekkja þau, miðað við 68% finnskra barna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem byggir á könnun á viðhorfum 12-16 ára barna til réttinda og þátttöku. Efni skýrslunnar verður kynnt á hádegisfundi (kl. 12-13) í dag á Laugavegi 42.
Norræn könnun um réttindi barna til þátttöku
UNICEF á Íslandi mun halda hádegisfund á morgun, miðvikudaginn 21. apríl kl. 12-13, á skrifstofu samtakanna að Laugavegi 42, þar sem kynntar verða helstu niðurstöður könnunar sem gerð var meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund barna. Könnunin var gerð frá ágúst 2009 til febrúar 2010.
Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.
Aurora styrkir UNICEF í Síerra Leóne um 40 milljónir
Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur tilkynnt þá ákvörðun sína að veita 40 milljónum króna til verkefna UNICEF á sviði menntunar í Vestur-Afríkuríkinu Síerra Leóne. Meðal markmiða verkefnisins sem Aurora styrkir með svo rausnarlegum hætti er að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði.
Sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF hafa verið til sölu undanfarnar tvær vikur í mörgum af stærri matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu sem og minni útsölustöðum. Um er að ræða sérpökkuð súkkulaðiegg með íslenskum málsháttum um börn. Nú þegar rúmar tvær vikur eru til páska hafa yfir tvö þúsund egg selst.
UNICEF-páskaegg komin í verslanir
Sérstök góðgerðarpáskaegg til styrktar UNICEF verða til sölu í flestum stærri matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu fyrir þessa páska. Um er að ræða lítil sérpökkuð súkkulaðiegg með íslenskum málsháttum um börn. Páskaeggin verða auk þess á boðstólum á fjölmörgum kaffihúsum og í smærri verslunum. Söluverð páskaeggjanna er 500 krónur.
Nemendur FSN styrkja hjálparstarf UNICEF á Haití
Fjölbrautaskóli Snæfellinga hélt upp á Sólardaga í febrúar. Þá er hefðbundið skólastarf brotið upp með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá fyrir nemendur. Nokkrir þeirra ákváðu að láta gott af sér leiða í leiðinni og söfnuðu um 50 þúsund krónum fyrir starf UNICEF í þágu þurfandi barna á Haítí.
250.000 krónur söfnuðust á tónleikum fyrir Haítí
Tónlistarvefurinn Gogoyoko og tónleikastaðurinn Sódóma Reykjavík, í samstarfi við Hljóð X og sex íslenskar hljómsveitir, stóðu fyrir tónleikum í gær til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí. Alls söfnuðust 250.000 krónur og renna þær óskiptar til hjálparstarfsins.
Tónleikar til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí
Gogoyoko og Sódóma Reykjavík standa að tónleikum til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí í kvöld, fimmtudaginn 28. janúar. Sex hljómsveitir koma fram og gefa þær allar vinnu sína. Miðaverð er hóflegt, 1.000 krónur, og rennur andvirðið óskipt til UNICEF auk þess sem tekið er á móti frjálsum framlögum á staðnum.
UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla
UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Fjölmargir hafa komið að starfinu með einum eða öðrum hætti á árinu sem er að líða. Fyrir hönd þeirra barna sem njóta góðs af stuðningi heimsforeldra og annarra styrktaraðila færum við ykkur kærar þakkir.
| UNIMA á Íslandi og UNICEF efna til fjölskylduhátíðar sunnudaginn 20. desember. Boðið verður upp á alls sex brúðuleikhússýningar yfir daginn sem allar eru ætlaðar fyrir börn á leikskólaaldri og fyrsta bekk grunnskóla. Miðaverð er 500 krónur og eru allir velkomnir. | ![]() |
Árangur framar björtustu vonum
Árangur af Degi rauða nefsins, söfnunarátaki UNICEF, var framar björtustu vonum. Söfnuðust vel yfir 150 milljónir og yfir 2000 einstaklingar gengu í lið heimsforeldra. Einnig seldust yfir 5000 trúðanef, og mýmargir notuðu þau til þess að gleðja samferðafólk sitt!
Dagur rauða nefsins er í dag. Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg til að gera daginn að veruleika en hápunkturinn er útsending frá Borgarleikhúsinu í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld. Þar munu grínistar og annað listafólk láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að skemmta Íslendingum og safna styrkjum fyrir verkefni UNICEF um allan heim.
Hætt‘essu væli og Brostu á gogoyoko tónlistarvefnum
Lag Ljótu hálfvitanna, „Hætt‘essu væli“, sem er sérstaklega samið fyrir dag rauða nefsins er nú fáanlegt á tónlistarvefnum gogoyoko.com. Þar er einnig að finna lag Baggalúts, „Brostu“, sem hljómsveitin samdi fyrir dag rauða nefins 2006. Allur ágóði rennur til UNICEF.
Trúðakennsla á Youtube í tilefni dags rauða nefsins
Landsins þekktustu trúðatæknar hafa búið til fimm myndbönd þar sem er farið yfir nokkur grunnatriði trúðalistarinnar. Myndböndin er hægt að nálgast á vefsíðunni Youtube. Markmiðið er að gera sem flestum Íslendingum kleift að rækta sinn innri trúð en tilefnið er dagur rauða nefsins, söfnunarátak sem UNICEF og skari listafólks stendur fyrir.
Dagur rauða nefsins á Facebook
Hægt að gerast aðdáandi dags rauða nefsins á Facebook. Á síðunni er að finna nýjustu fréttir í aðdraganda stóra dagsins sem og skemmtilegt efni frá því að dagur rauða nefsins var haldinn í fyrsta sinn hérlendis árið 2006. Við hvetjum sem flesta Facebook-notendur til að gerast aðdáendur.
Dagur rauða nefsins 4. desember
Þann 4. desember næstkomandi tekur fjöldi listamanna höndum saman með UNICEF og standa fyrir Degi rauða nefsins. Um kvöldið verður söfnunarþáttur í opinni dagskrá Stöðvar 2 þar sem grínistar láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að safna fé fyrir bágstödd börn um allan heim
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 20 ára
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er 20 ára í dag, föstudaginn 20. nóvember. Barnasáttmálinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á því að börn hafi sjálfstæð réttindi, óháð foreldrum eða forsjáraðilum og að þau þarfnist sérstakrar umönnunar og verndar umfram hina fullorðnu.
Margt á döfinni vegna 20 ára afmælis Barnasáttmálans
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna verður 20 ára föstudaginn 20. nóvember. Í tilefni af tímamótunum hafa ungmennaráð umboðsmanns barna, Barnaheilla og UNICEF sameinað krafta sína og munu halda mikilvægi sáttmálans á lofti með fjölbreyttum hætti vikuna 15. til 20. nóvember.
Ungbarnadauði fátíðastur á Íslandi
Hvergi í heiminum var ungbarnadauði fátíðari árið 2007 en á Íslandi, eða 1,5 af 1.000 lifandi fæddum. Þetta er meðal þeirra upplýsinga sem finna má í Landshögum 2009, hagtöluárbók Hagstofu Íslands, sem kom út sl. mánudag.
Jólabúð UNICEF opnaði í dag, mánudaginn 2. nóvember, að Laugavegi 42. Í búðinni er hægt að nálgast úrval fallegra jólakorta, vandaðrar gjafavöru og skemmtilegra leikfanga. Jólakort UNICEF hafa verið seld á Íslandi í hálfa öld.
Mannlegt friðarmerki á Klambratúni í kvöld
Alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna án ofbeldis (e. Day of Nonviolence) er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag. Af þessu tilefni mun fjöldi samtaka standa fyrir myndun mannlegs friðarmerkis á Klambratúni klukkan 20 í kvöld.
Fjallað um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó í Speglinum
Í útvarpsþættinum Speglinum á Rás 2 í gær var talað við hjónin Pál Ásgeir Davíðsson og Bergljótu Arnalds en þau dvöldu í Austur-Kongó í hittifyrra. Þar heyrðu þau m.a. átakanlegar sögur þolenda frá fyrstu hendi og kynntust öflugu starfi UNICEF.
Útvarpsþáttur ungmenna um Barnasáttmálann
Ungmenni hvaðanæva að af landinu munu næstu 12 fimmtudaga fjalla um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í nýjum útvarpsþáttum sem hefja göngu sína á Rás 1 á morgun. Í ár er þvi fagnað að tuttugu ár eru frá því að þessi mikilvægi mannréttindasáttmáli var samþykktur.
Opinn fundur um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó
V-dagurinn á Íslandi og UNICEF standa fyrir opnum fundi um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó. Fundurinn fer fram í húsakynnum UNICEF á Laugavegi 42 í Reykjavík fimmtudaginn 1. október milli klukkan 12.10 og 13.00.
Utanríkisráðuneytið styrkir starf UNICEF í Austur-Kongó
UNICEF á Íslandi hefur fengið átta milljónir króna úthlutað frá utanríkisráðuneytinu vegna langvinns neyðarátands í Austur-Kongó. Styrkurinn rennur til verkefna UNICEF gegn kynferðisofbeldi og aðstoðar við konur og stúlkur sem orðið hafa fyrir nauðgunum í landinu.
V-dagurinn og UNICEF taka höndum saman
Í dag ýttu V-dagssamtökin á Íslandi og UNICEF úr vör sameiginlegu átaki til að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gagnvart konum og stúlkum í Austur-Kongó. Á sama tíma verða samtökin með söfnun meðal íslensks almennings til styrktar verkefnum í þágu ungra kynferðisbrotaþolenda í landinu.
UNICEF-styrktarspjöld á kaffihúsum Te & kaffi
Viðskiptavinum Te & kaffi býðst nú að styrkja starfsemi UNICEF með því að kaupa sérstök styrktarspjöld í sérsverslunum og á kaffihúsum fyrirtækisins. Spjöldin kosta 250 eða 500 krónur. Það gera sér fæstir grein fyrir hve miklu slíkar upphæðir geta skipt fyrir bágstödd börn.
Aldrei fleiri íslenskir heimsforeldrar
Aldrei hafa fleiri Íslendingar styrkt starf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og nú. Í ágústbyrjun voru heimsforeldrar UNICEF á Íslandi yfir 14.000 talsins. Það er því ljóst að þrátt fyrir þrengingar á Íslandi ætla Íslendingar ekki að gleyma þeim börnum sem búa við sárustu neyðina.
Allir styrktarsamningar við UNICEF á Íslandi heiðraðir
Vegna efnahagsþrenginganna á Íslandi og tengdrar umræðu vill UNICEF á Íslandi m.a. koma á framfæri að allir styrktarsamningar sem fyrirtæki, sjóðir og einstaklingar hafa gert við UNICEF hafa verið heiðraðir og að engir fjármunir UNICEF á Íslandi töpuðust við fall bankanna á haustdögum 2008.
Átak í nýskráningu heimsforeldra
Í sumar mun starfsfólk frá UNICEF ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að kynna UNICEF og bjóða fólki að ganga til liðs við heimsforeldraverkefni okkar. Heimsforeldrar styrkja samtökin mánaðarlega og nýtist styrkurinn í þágu þeirra barna sem mesta hafa þörfina.
Söfnun vegna neyðarástands í Pakistan
UNICEF á Íslandi hefur hafið söfnun vegna átakanna í Pakistan. Áætlað er að yfir helmingur þeirra sem eru á flótta undan átökum í norðvesturhluta landsins séu börn. Flóttafólk streymir inn í flóttamannabúðir og nærliggjandi samfélög
UNICEF auglýsir eftir starfskröftum
UNICEF leitar að ábyrgu, kraftmiklu og jákvæðu fólki, 18 ára og eldra, sem vill leggja málstað samtakanna lið í sumar og fram á haust á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felst í því að ganga í hús, kynna starf UNICEF, bjóða fólki að skrá sig sem heimsforeldri og styðja þannig fjölda þurfandi barna um allan heim.
Sýning á vegum umboðsmanns barna
Hátt í þrjúþúsund grunn- og leikskólanemendur hafa í vetur tekið þátt í verkefni á vegum umboðsmanns barna þar sem þau tjá sig í myndrænu og rituðu máli um hvernig það er að vera barn á Íslandi. Sýning á verkum barnanna opnar í Gerðubergi föstudaginn 22. maí.
Hönnuðu boli til styrktar UNICEF
Sjö ungmenni tóku sig til á dögunum og hönnuðu boli til styrktar UNICEF. Innblástur hönnunarinnar sóttu þau til þriggja af greinum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Er óhætt að segja að mjög vel hafi tekist til hjá þessum ungu og upprennandi hönnuðum.
Málþing: Þrælkun eða þroskandi vinna?
Laugardaginn 9. maí nk. kl. 10-13 verður haldið málþing í Þjóðminjasafni Íslands um vinnu barna. Málþingið er haldið á vegum Þjóðminjasafnsins og UNICEF á Íslandi í tengslum við sýninguna Þrælkun, þroski, þrá? sem nú stendur yfir í safninu.
Réttindaganga og áheitahlaup á sumardaginn fyrsta
Fjölmenni verður á Miklatúni á sumardaginn fyrsta þegar börn og unglingar frá frístundamiðstöðinni Kampi safnast saman og hlaupa til stuðnings UNICEF auk þess að minna á réttindi sín.
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið
| Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er nú lokið, en hún fór fram á Ísafirði, Egilsstöðum og í Reykjavík. Verkefnið var unnið af UNICEF í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Haldnar voru þriggja daga vinnusmiðjur þar sem ungt fólk lærði að vinna í fjölmiðlum og búa til fréttir og annað efni sem svo var birt eða flutt í viðkomandi samstarfsmiðlum. | ![]() |
Vodafone á Íslandi styrkir UNICEF
Vodafone mun styrkja UNICEF á Íslandi á næstu tveimur árum með mánaðarlegu fjárframlagi upp á 50 þúsund krónur og aðstoða við fjáröflun af ýmsu tagi, UNICEF að kostnaðarlausu. Vodafone og UNICEF skrifuðu undir styrktarsamning í dag.
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Egilsstöðum
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins, sem miðar að því að hvetja ungt fólk til þátttöku og virkni í samfélaginu, verður haldin á Egilsstöðum dagana 16.-18. apríl. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er öllum ungmennum í 8.-10. bekk opin. Sækja um hér
Ungir fréttaritarar útskrifast í Reykjavík
Alls luku 17 ungmenni fréttaritaraþjálfun unga fólksins í Reykjavík um síðustu helgi. Framleidd voru tvö innslög fyrir útvarp og tvær blaðagreinar. Því miður reyndist ekki unnt að fá inn nógu margar umsóknir í fréttaritaraþjálfun á Akureyri sem átti að vera nú um næstu helgi, þannig að henni hefur verið aflýst. Næsta þjálfun er á Egilsstöðum 16.-18. apríl. Sækja um hér.
Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim.
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins í Reykjavík
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins verður haldin í Reykjavík dagana 26.-28. mars á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið og fá þátttakendur efni birt eða útvarpað í þeim miðlum. Gert er ráð fyrir fimmtudegi og föstudegi frá kl. 17 til 20, og laugardegi kl. 11 til 13. Sækja um hér
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið á Ísafirði
Um helgina luku 19 manns fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Ísafirði með glans. Þau framleiddu þrjú innslög fyrir útvarp og þrjár greinar fyrir Morgunblaðið, þar af hefur ein þegar birst. Sjá hér. Nú er tekið við umsóknum í næstu fréttaritaraþjálfun sem haldin verður í Reykjavík dagana 26.-28. mars. Sækja um hér
Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna yrði lögfestur á Íslandi. Ísland og Noregur verða þá einu löndin sem lögfest hafa sáttmálann, þó að flest lönd heims hafi staðfest hann. Í framhaldinu fer fram endurskoðun á barnaverndarlögum með sáttmálann í huga.
Barnasáttmáli S.þ. lögfestur á Íslandi?
Næstkomandi mánudag mun fara fram atkvæðagreiðsla á alþingi um þingsályktunartillögu sem fjallar um lögfestingu Barnasáttmálans. UNICEF á Íslandi fagnar þessu. M.a. er lagt til að frumvarp til laga verði sett fram fyrir 20. nóvember 2009, en þá verða liðin 20 ár síðan hann var fyrst samþykktur á allsherjarþingi S.þ.
Samantekt um breytta stöðu barna á Íslandi
UNICEF á Íslandi hefur að undanförnu haft samband við aðila sem vinna að málefnum barna á Íslandi. Markmiðið var að kanna hvort farið sé að gæta áhrifa efnahagsþrenginganna sem Ísland gengur nú í gegnum á börn. Í kölfarið hefur UNICEF gert samantekt.
Fréttaritaraþjálfun á Ísafirði - skráning stendur yfir
Skráning ungs fólks í fréttaritaraþjálfun UNICEF stendur nú sem hæst. Tekið er við umsóknum til 11. mars í þjálfunina á Ísafirði, en til 24. mars í Reykjavík. Hámarksfjöldi þátttakenda er 30 manns. Þjálfunin verður haldin á Akureyri og Egilsstöðum í apríl. Ísafjarðarbær styrkir verkefnið um 30 þúsund krónur, auk þess sem öll aðstaða er útveguð af bænum.
Fréttaritaraþjálfun fyrir ungt fólk á Íslandi hefst
Fréttaritaraþjálfun ungmenna um allt land ýtt úr vör í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. UNICEF á Íslandi og Ríkisútvarpið undirrita samstarfsyfirlýsingu með það að markmiði að hvetja börn og ungmenna til að koma skoðunum sínum á framfæri. Þjálfunin og önnur verkefni eru framkvæmd í tilefni 20 ára afmæli Barnasáttmálans í ár.
Næstkomandi sunnudag, 1. mars, fagnar UNICEF Heimsdegi barna í fjölmiðlum (e. International Children's Day of Broadcasting) en á þeim degi hvetja samtökin alla fjölmiðla að leyfa röddum barna og ungmenna að heyrast. Í ár mun Ríkisútvarpið - Rás 1 og 2 - helga daginn börnum. Sjá á www.ruv.is. UNICEF hvetur alla til að leggja við hlustir!
UNICEF fær 43,5 milljónir króna styrk frá Auroru
Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur úthlutað alls 111,5 milljónum króna í styrki til sex verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar. UNICEF fær úthlutað alls 40 milljónum til menntaverkefnis í Síerra Leóne og 3,5 milljónum til útvarpsverkefnis ungmenna í Mósambík.
Opnað fyrir söfnunarsímanúmer til styrktar Gaza
Í gær var opnað fyrir söfnunarsímanúmer til stuðnings hjálparstarfi UNICEF á Gaza. Símanúmerin eru 908-1000 fyrir 1000 króna framlag, 908-3000 fyrir 3000 króna framlag og 908-5000 fyrir 5000 króna framlag. Fyrir rúmri viku var söfnunarreikningur opnaður og nema framlög frá almenningi á Íslandi til hjálparstarfsins nú um 1,2 milljónum króna.
UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla
| UNICEF óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakkar styrktaraðilum sínum fyrir samfylgdina á liðnu ári. Fyrir hönd þeirra barna sem njóta góðs af stuðningi heimsforeldra og annarra styrktaraðila færum við ykkur kærar þakkir. Gleðileg jól og farsælt komandi ár! |
|
| Allar dagbækur UNICEF eru uppseldar, þ.e. viðskipta,- ljósmynda,- og listaverkadagbækur, stórar sem smáar. Enn er þó hægt að fá úrval leikfanga og vandaðrar gjafavöru, auk jólakorta. Jólabúð UNICEF er á Laugavegi 42 og nk. laugardag, 20. desember, verður útibú sett upp í jólaþorpi Hafnarfjarðar. |
|
Góð umönnun á fyrstu árum ævi barna skiptir sköpum
| Umtalsverðar breytingar hafa orðið á umönnun ungra barna í ríkustu löndum heims, segir í nýrri skýrslu sem UNICEF kynnti í dag. Ísland uppfyllir níu af tíu viðmiðum sem skýrslan setur fram í samanburði sínum á umönnun ungra barna í efnalega vel stæðum löndum. |
|
Samráðsfundur um starf ungmennaráða
| Miðvikudaginn 26. nóvember var haldinn í fyrsta skipti á landsvísu samráðsfundur um stofnun og starf ungmennaráða. UNICEF á Íslandi, Akureyrarbær og Íþrótta og tómstundaráð Reykjavíkur stóðu fyrir fundinum sem haldinn var á Akureyri. |
|
Hjálpargögn og ljósmyndir til sýnis í jólabúð UNICEF
| Í tilefni af opnun jólabúðar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, verður sett upp sýning með hjálpargögnum og ljósmyndum dagana 28. nóvember til 5. desember. Af því tilefni býður UNICEF alla velkomna í jólabúðina að Laugavegi 42 (2. hæð) föstudaginn 28. nóvember kl. 13-14. Kaffi, músík og með’í! |
|
Jólakúla og látúnsskraut er uppselt
| Bæði jólakúla UNICEF og látúnsskrautið í ár er uppselt á Íslandi og á heimsvísu. Jólakúlur og látúnsskraut síðustu ára eru einnig uppseld og því ófáanleg. Nóg er til af öðru jólaskrauti s.s. handgerðum dúfum frá Indlandi og kertum frá Suður-Afríku. Úrval leikfanga er mikið og því úr mörgu að velja í jólapakkana fyrir þau yngstu. |
|
| Sala er hafin á „bestu bolum í heimi“ til styrktar UNICEF. Hönnun bolanna er sem fyrr í höndum Kron kron og grafíska hönnuðarins Harðar Kristbjörnssonar og vísar hún í að veröldin sé eins og völundarhús þar sem sumir rati rétta leið að góðu lífi á meðan aðrir sitji fastir í öngstræti fátæktar. Bolirnir fást í Kron kron og jólabúð UNICEF að Laugavegi 42 og kosta 2800 kr. |
|
Jólabúð UNICEF fer vel af stað
| Jólabúð UNICEF hefur farið vel af stað. Jólakúlan, sem er hönnuð sérstaklega fyrir UNICEF á hverju ári, er nánast uppseld. Eins hvetjum við þá sem vilja tryggja sér látúnsskraut að kíka við í jólabúðinni sem fyrst. Jólabúðin er opin alla virka daga kl. 12-18 að Laugavegi 42. |
|
| Sala á jólakortum, leikföngum og gjafavörum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefst í dag mánudaginn 3. nóvember með opnun jólabúðar UNICEF að Laugavegi 42. Allur ágóði af sölu jólakorta og gjafa rennur til verkefna UNICEF fyrir börn um allan heim. Nánar á www.unicef.is/jolakort. |
|
Ekkert af fjárframlögum til UNICEF hefur tapast
| Fjárhagur UNICEF á Íslandi stendur vel þrátt fyrir lægðina sem nú gengur yfir í efnahagslífinu og þrot bankanna. Glitnir er viðskiptabanki UNICEF og eru allar innistæður geymdar inni á öruggum bankareikningum. Ekkert af fjárframlögum til UNICEF hefur því tapast. | ![]() |
Sala jólakorta fyrir fyrirtæki er hafin!
| Sala á glæsilegum jólakortum og gjafavörum UNICEF til fyrirtækja og stofnana er hafin. UNICEF hvetur fyrirtæki og stofnanir til að panta með góðum fyrirvara og bendum við á að þau sem panta kort fyrir 1. nóvember fá 10% afslátt. Jólabúð UNICEF opnar að Laugavegi 42 þann 3. nóvember. |
Hlaupa fimm maraþon og styrkja UNICEF
| Hlaupahópurinn Reykjavik Road Runners ætlar að hlaupa í fimm stærstu maraþonum heimsins á næstu tveimur árum. Mun hópurinn nota tækifærið og safna áheitum til styrktar UNICEF. Upphafsmenn hópsins eru hlaupararnir Pétur Ívarsson og Guðmundur Guðnason en eru aðrir velkomnir að slást í hópinn. | ![]() |
| Á næstu tveimur vikum mun fjölda íslenskra fyrirtækja standa til boða að kaupa gæðakaffi frá Te & Kaffi og styrkja í leiðinni UNICEF. 20% af andvirði kaffisins rennur til UNICEF og verður söfnunarfénu varið í hjálparstarf samtakanna fyrir börn um allan heim. |
![]() |
3700 börn safna þremur milljónum fyrir UNICEF
| Tæplega fjögur þúsund börn létu slagvirði ekki aftra sér og tóku þátt í Latabæjarhlaupi Glitnis sl. laugardag. Þátttökugjöld barnanna runnu óskipt til UNICEF og því má segja að hver þátttakandi hafi lagt sitt af mörkum til hjálpar bágstöddum jafnöldrum sínum víða um heim. |
Latabæjarhlaup til styrktar UNICEF
|
Latabæjarhlaupið verður haldið laugardaginn 23. ágúst nk. Yfirskrift hlaupsins er „Börn hlaupa fyrir börn“ en eins og í fyrra verður hlaupið til styrktar UNICEF.
|
|
| Um þessar mundir fer UNICEF um Austurland til að safna heimsforeldrum og kynna starfsemi Barnahjálparinnar. Farið verður um Seyðisfjörð, Reyðarfjörð, Eskifjörð og fleiri góða staði í dag og á Egilsstaði á fimmtudag og föstudag. Skemmtileg sýning verður sett upp fyrir utan Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum. | ![]() |
| Þessar fjórar harðduglegu stelpur, Birta Haraldsdóttir, Elín Ísold Pálsdóttir, Sunna Margrét Tryggvadóttir og Dóróthea María Jóhannsdóttir, héldu á dögunum tombólu fyrir utan Bónus á Laugaveginum. Þær söfnuðu alls 1075 krónum fyrir UNICEF. | ![]() |
UNICEF leitar að götukynningarfólki til starfa
| UNICEF á Íslandi leitar eftir hressu og áræðanlegu ungu fólki til fjáröflunar- og kynningarstarfa í júlí og fyrri helming ágústmánaðar. Um er að ræða starf götukynna sem skrá heimsforeldra í Reykjavík og nágrenni, sem og úti á landi. Jákvæðni, traust og áræðanleiki er skilyrði. | ![]() |
| UNICEF ætlar að gera víðreisn um landið í sumar og safna heimsforeldrum. Hringferðin hefst á Ísafirði og nú er hópur vaskra “götukynna” kominn til Vestfjarða þar sem þeir munu vera með athyglisverða sýningu, rölta í hús og kynna barnahjálpina fyrir gangandi vegfarendum. | ![]() |
Útgáfa á veggspjöldum með ákvæðum Barnasáttmálans
| Umboðsmaður barna, Barnaheill og UNICEF á Íslandi hafa gefið út tvö veggspjöld með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í styttri útgáfu. Veggspjöldin eru ætluð til notkunar í skólastarfi. |
Vegna fréttar Stöðvar 2 um Vatnsviku UNICEF
Vegna fréttar Stöðvar 2 um kostnað við Vatnsviku UNICEF 2008 vill UNICEF á Íslandi árétta að samtökin báru engan kostnað vegna söfnunarátaksins og að allt söfnunarféð rennur óskert til vatnsverkefna í þróunarlöndunum.
Formannsskipti hjá UNICEF á Íslandi
Aðalfundur íslenskrar landsnefndar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) var haldinn miðvikudaginn 21. maí. Einar Benediktsson fyrrum sendiherra, sem gegnt hefur formennsku allt frá stofnun UNICEF á Íslandi í mars 2004, lét af embætti og við tók Þórunn Sigurðardóttir, fráfarandi listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.
|
Aðalfundur íslenskrar landsnefndar UNICEF verður haldinn í dag, miðvikudaginn 21. maí, klukkan 16-18. Fundurinn fer fram í Þjóðminjasafni Íslands. Allir þeir sem hafa áhuga á starfi UNICEF eru hjartanlega velkomnir. |
Svikapóstur frá meintu UNICEF-netfangi
|
UNICEF á Íslandi hefur fengið ábendingu um að svikatölvupóstur, sem virðist vera frá alþjóðlegum starfsmanni UNICEF, hafi borist hérlendum aðilum. Viðtakanda póstsins er boðið gull og grænir skógar taki hann að sér að gerast milligöngumaður um móttöku og innlausn fjármuna. |
Tolli málar 100 hús fyrir UNICEF
| Listamaðurinn Tolli hefur á undanförnum vikum málað eitthundrað „skólabyggingar“ fyrir UNICEF. Þessi glæsilega húsaþyrping verður til sýnis í Saltfélaginu 18.-25. apríl. Húsin verða þá gefin UNICEF-verndurum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem greiða mánaðarlega til UNICEF. |
| Nokkrir þjóðþekktir Íslendingar komu saman að Gvendarbrunnum í Heiðmörk þriðjudaginn 8. apríl og báru vatn um 800 metra leið. Tilgangur vatnsburðarins var að vekja athylgi á Vatnsviku UNICEF og þeirri staðreynd að víða um heim þarf að sækja vatn um langa vegalengd. |
| Í VATNSVIKU UNICEF gefst almenningi kostur á að styrkja vatnsverkefni UNICEF í þróunarlöndunum með því að leggja fram fjárframlög í gegnum heimasíðuna www.vatnsvika.is. Jafnframt stendur gestum valdra veitingastaða til boða að styðja við framtakið og greiða 250 krónur fyrir glasið af kranavatni. |
OR og UNICEF undirrita samstarfssamning
| UNICEF á Íslandi og Orkuveita Reykjavíkur hafa bundist samtökum um að safna fé til að afla drykkjarvatns fyrir börn um víða veröld. Talið að um 6.000 börn láti lífið á hverjum degi vegna sjúkdóma sem rekja má til neyslu á óheilnæmu vatni. |
Vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá lokið
| Íslensk sendinefnd var stödd í opinberri vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá dagana 3.–9. mars. Tilgangur heimsóknarinnar var að efla tengslin milli landanna tveggja en fyrir fjórum árum hóf UNICEF á Íslandi að styrkja þróunarverkefni í hinu sárfátæka Vestur-Afríkuríki. |
Vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá
| Fyrir fjórum árum hóf UNICEF Ísland að styrkja þróunarverkefni í litla Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá. Af þessum ástæðum stendur nú yfir opinber vináttuheimsókn til Gíneu-Bissá (3. – 9. mars) í þeim tilgangi að efla enn frekar tengslin milli landanna tveggja. |
Tónlist til styrktar UNICEF í Síerra Leóne
| Á síðunni www.steinssonproject.com er hægt að hala niður hljómplötunni Backtracking Eighties, er inniheldur fræg endurútsett popplög frá níunda áratugnum, án endurgjalds og um leið styrkja menntaverkefni UNICEF með fjárframlagi að eigin vali. |
| Í dag verður tónlistarverkefninu The Steinsson Project hleypt af stokkunum á vefsvæðinu www.steinssonproject.com. Á síðunni er hægt að hala niður hljómplötunni Backtracking Eighties án endurgjalds og um leið styrkja menntaverkefni UNICEF með fjárframlagi að eigin vali. |
Styrkur frá Bridgesambandi Íslands
| Bridgesamband Íslands styrkti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, um 27.500 krónur á dögunum. Upphæðin safnaðist á góðgerðarkvöldi Miðvikudagsklúbbs Bridgesambandsins, en kvöldið var haldið sem hluti af alþjóðlegu móti. UNICEF þakkar Bridgesambandinu kærlega fyrir gjöfina! |
Aurora velgerðarsjóðurinn styrkir verkefni UNICEF í Síerra Leóne
| Aurora velgerðarsjóðurinn veitti á dögunum 120 milljónum íslenskra króna til verkefna UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Síerra Leóne. |
| Fimmtudaginn 24. janúar stendur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir opnum hádegisfundi með Geert Cappelaere, yfirmanni UNICEF í Síerra Leóne og Dr. Minkailu Bah, menntamálaráðherra Síerra Leóne. Hádegisfundurinn verður haldinn í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42, 2. hæð. | ![]() |
| Jólabúð UNICEF opnar í dag mánudaginn 3. desember á skrifstofu UNICEF Ísland að Laugavegi 42, 2. hæð. Þar er hægt að nálgast úrval jólakorta og vandaðra gjafavara. Pdf-skjal af kynningarbæklingi fyrir einstaklinga. Pdf-skjal af kynningarbæklingi fyrir fyrirtæki og stofnanir. | ![]() |
Barnasáttmálinn verður fullorðinn
| Útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, verður 18 ára þriðjudaginn 20. nóvember. Af því tilefni mun UNICEF efna til málþings í Norræna húsinu á afmælisdaginn frá kl. 14.00 til 16.30. | ![]() |
| Loftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir eru seldir í Kronkron og á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42. | ![]() |
Loftbelgjabolirnir uppseldir ... en önnur sending er komin til landsins!
Loftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir fást áfram í Kronkron og Spútnik í Kringlunni, en einnig í Gyllta kettinum.
UNICEF stendur fyrir opnum fundi með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne
Mánudaginn 24. september stendur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir opnum hádegisfundi í Iðnó með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne. Þar mun Ishmael lesa upp úr bók sinni Um langan veg: frásögn herdrengs og fjalla um reynslu sína af borgarastyrjöldinni í Síerra Leóne. Fundurinn stendur frá 12:10 til 13:10
Tónleikar ungmennaráða UNICEF og ÍTR gengu vel
Tónleikar ungmennaráða UNICEF Ísland og Reykjavíkur í mið-og vesturbæ gengu vonum framar. Hljómsveitirnar Jeff who?, Reykjavík, Soundspell, Skakkamanage, Retro Stefson og Grrrrr tróðu upp og var ekki annað að sjá en tónleikagestir skemmtu sér vel. Allar hljómsveitirnar gáfu vinnu sína og þakka ungmennaráðin þeim vel fyrir.
Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða!
Ungmennaráð Íþrótta og tómstundaráðs miðbæjar og vesturbæjar í samstarfi við ungmennaráð UNICEF á Íslandi stefna að því að halda tónleika til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna miðvikudaginn 19. september 2007 í Listasafni Reykjavíkur. Tónleikarnir bera yfirskriftina: Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða!
Íslenska ríkið styður verkefni UNICEF um að koma íröskum börnum aftur í skóla
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 10 milljónum króna til sameiginlegs átaks Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og UNICEF til aðstoðar börnum sem eru meðal íraskra flóttamanna í Sýrlandi, Jórdaníu, Egyptalandi og Líbanon. Áætlað er að meðal íraskra flóttamanna sé um hálf milljón barna á skólaaldri sem hafa lítinn sem engann aðgang að menntun.
Sóley og María gefa til bágstaddra barna
Vinkonurnar Sóley Vera, 12 ára, og María, sem er 11 að verða 12 ára, héldu tombólu og seldu varning í Firðinum og fyrir utan Krónuna í Hafnarfirði á dögunum. Þær söfnuðu alls 8262 krónum sem þær gáfu til UNICEF. Þær seldu eigið dót og söfnuðu því hjá öðrum til að selja eða bjóða upp á tombólunni.
Bjartur, sem er 9 ára, hélt á dögunum tombólu fyrir utan Pétursbúð í Vesturbænum og safnaði hann alls 2815 krónum. Hann mætti vaskur á skrifstofu UNICEF á Laugaveginn og afhenti framkvæmdastjóra UNICEF, Stefáni Inga Stefánssyni, söfnunarféð. UNICEF kann Bjarti bestu þakkir fyrir framlagið og hvetur fleiri börn til að styrkja jafnaldra sína, sem eiga um sárt að binda, með þessum hætti.
Hátt í 3,5 milljónir króna söfnuðust í Latabæjarhlaupi
Um 4223 börn og foreldrar þeirra lögðu leið sína að Háskóla Íslands til að taka þátt í Latabæjarhlaupinu síðastliðinn Laugardag. Vel var staðið að hlaupinu og þóttist takast vel til í alla staði. Börnin voru þó mestu sigurvegararnir þar sem þau söfnuðu hátt í 3,5 milljónum króna til styrktar verkefna UNICEF um allan heim.
Í dag hefst sala á bolum til styrktar UNICEF sem bera nafnið „bestu bolir í heimi“. Hönnun bolanna var í höndum Kronkron og vísar hún í að öll getum við risið upp gegn því misrétti sem mörg börn eru beitt. Nýstofnað ungmennaráð UNICEF og íslenskir hönnuðir taka höndum saman og gera þessa boli sem geta breytt lífi barna.
Íþróttaálfurinn hitar upp fyrir Latabæjarhlaupið
Eftivæntingin var mikil fyrir utan Háskóla Íslands þegar loftfar íþróttaálfsins lenti þar um helgina. Hann var kominn til að hita upp fyrir Latabæjarmaraþonið með nokkrum börnum. Mikið fjör fylgdi upphituninni og fékk íþróttaálfurinn krakkana til að gera alls kyns kúnstnir eins og handahlaup og kollhnís sem endar í spíkati.
Starfsmenn UNICEF Ísland safna áheitum
Allt starfsfólk UNICEF Ísland ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis laugardaginn 18. ágúst næstkomandi. Fremstur í flokki fer framkvæmdastjórinn Stefán Ingi Stefánsson sem hyggst hlaupa heilt maraþon eða 42,2 km. Aðrir starfsmenn hlaupa allt frá 3 km upp í 21,1.
Þrír skólar tóku þátt í tilraunaverkefni UNICEF nú í vor. Verkefnið ber yfirskriftina UNICEF-hreyfingin. UNICEF hreyfingunni er ætlað að koma til móts við þann áhuga á starfsemi UNICEF sem við hjá landsnefndinni höfum fundið hjá kennurum og skólabörnum.
UNICEF fær styrk úr Menningarsjóði Landsbankans
UNICEF hefur hlotið styrk úr Menningarsjóði Landsbankans að upphæð 1.000.000 króna en styrkirnir voru afhentir með viðhöfn í Iðnó í gær. Stjórn Menningarsjóðs ákvað að tileinka úthlutun ársins þeim 75 málefnum og félögum sem eru í þjónustunni Leggðu góðu málefni lið í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans og er UNICEF eitt þeirra félaga.
Unnið úr umsóknum um skrifstofustarf
UNICEF þakkar þeim rúmlega 60 umsækjendum sem sóttu um hlutastarf á skrifstofu okkar. Við erum hætt að taka við umsóknum og erum að vinna úr þeim sem okkur hefur borist. Ráðningarferlinu verður lokið fyrir 20. apríl. Við svörum öllum umsóknum og förum með þær sem trúnaðarmál.
Frá hugsjónum til framkvæmda - málþing um þróunarsamvinnu
Átta mannúðarsamtök hafa tekið höndum saman um að halda fyrsta málþing hér á landi um hlutverk félagasamtaka í þróunarsamvinnu föstudaginn 23. mars kl. 9-16 í Norræna húsinu. Samtökin sem koma að málþinginu eru ABC barnahjálp, Barnaheill, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, Kristniboðssambandið, SOS barnaþorp, UNICEF og UNIFEM á Íslandi.
UNICEF auglýsir eftir starfskrafti á skrifstofu
UNICEF á Íslandi óskar eftir að ráða starfskraft í hlutastarf (50%) á skrifstofu. Um er að ræða almennt skrifstofustarf, s.s. textavinna, gagnaskráning, fundahald, umsjón með daglegum rekstri, móttöku og fleira. Viðkomandi þarf að hafa haldgóða tölvukunnáttu og góða þekkingu á íslenskri og enskri tungu.
Fyrirtækin Byko, Elko, Húsgagnahöllin og Intersport halda knattspyrnumót á morgun, laugardag, kl. 19 í Fífunni, knattspyrnuvelli Breiðabliks. Deild 150 í timburverslun Byko í Breiddinni ákváðu að styrkja UNICEF og fara að fordæmi knattspyrnufélags Barselóna og merkja búningana Barnahjálpinni.
Við vekjum athygli á því að ljósmyndir Sigur Rósar úr ferð þeirra til Svasílands á vegum UNICEF eru komnar inn á alþjóðlega vefsíðu þeirra. Njótið vel!
Á dögunum héldu nemendur Menntaskólans í Reykjavík árlega áheitasöfnun sína Gleði til góðgerða og söfnuðust alls 254.874 krónur sem runnu óskertar til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Nemendur fengu viðurkenningarskjal í tilefni þessa og UNICEF þakkaði þeim kærlega fyrir framlagið og fyrir að vekja athygli á málstaðnum með stórskemmtilegri söfnun.
Hinar vinsælu ljósmyndadagbækur UNICEF eru að seljast upp. Dagbækurnar eru vandaðar með ljósmyndum af börnum frá öllum heimshornum. Hver vika fær eina opnu og er bókin gormuð en þó með þykkri kápu. Annað upplag sem pantað var er nú að klárast, en fólk getur keypt þær á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42, 2. hæð. Hringið í síma 552 6304 til að fá nánari upplýsingar.
UNICEF óskar landsmönnum gleðilegs nýs árs
UNICEF óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Fjölmargir hafa komið að starfinu með einum eða öðrum hætti á árinu sem er að líða. UNICEF þakkar bakhjörlum, heimsforeldrum og þeim sem stutt hafa börn víða um heim á liðnu ári í gegnum UNICEF.
Bylgjan brosir með UNICEF - Þátttaka fyrirtækja á Degi rauða nefsins
Bylgjan brosir með UNICEF á Degi rauða nefsins 1. desember og er með brandara-átak fyrir fyrirtæki og vinnustaði. Þetta er kjörið tækifæri fyrirtækja til að leggja átakinu lið og styrkja bágstödd börn víða um heim.
Svasíland með augum Sigur Rósar
Á haustdögum ferðaðist hljómsveitin Sigur Rós til Svasílands á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi til að kynna sér HIV-verkefni samtakanna þar í landi. Ferðin hafði mikil áhrif á hljómsveitina og ákváðu þeir að efna til sýningar á ljósmyndunum sem þeir tóku í heimsókninni. Sýningin ber yfirskriftina: Yfirgefna kynslóðin: Svasíland með augum Sigur Rósar.
Fyrsti bekkur Nesskóla býr til rauð nef
Fyrsti bekkir Nesskóla Neskaupstað ákváðu í tilefni Dags rauða nefsins að fræðast um hvað dagurinn gengi út á. Nefnilega að gera góðverk og gefa til þeirra sem minna mega sín í þessum heimi. Börnin í Nesskóla fræddust um börnin í Afríku, skoðuðu myndir og kennararnir sögðu þeim frá því hvers vegna þessi dagur væri haldinn.
Valgerður Sverrisdóttir heimsækir birgðastöð UNICEF
Á dögunum heimsótti Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, birgðastöð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn þar sem hún kynnti sér hvernig UNICEF pakkar og sendir hjálpargögn til barna um allan heim.
Rauðu nefin komin í verslanir um allt land
Rauðu trúðanefin eru komin í verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar Essó um allt land. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF um allan heim... Þannig að ef þú kaupir nef gleður þú ekki aðeins þá sem sjá þig, heldur getur þú glatt börn í sárri neyð.
Borgarstjórn setur formlega sölu á rauðum nefjum af stað
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, ásamt allri borgarstjórn, lögðu sitt af mörkum í dag og keyptu rauð trúðanef. Með þessu opnaði borgarstjórn formlega söluna á rauðu nefjunum. Rauðu nefin koma í allar verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar ESSO í dag og kosta 500 krónur.
Fimm fyrirtæki gerast bakhjarlar UNICEF á Íslandi
Í dag skrifa fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins; Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip, undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi til næstu þriggja ára. Samningurinn hljóðar upp á 60 milljónir króna. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.
Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar UNICEF... með rautt nef!
Í dag skrifuðu fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi. Samningarnir hljóða upp á 60 milljónir króna og ná til næstu þriggja ára. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.
Dagur rauða nefsins í fyrsta skipti á Íslandi
Í næstu viku hefst söfnunarátak UNICEF Dagur rauða nefsins sem nær hámarki með sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 þann 1. desember. Lag Baggalúts „Brostu“ verður kynnt í þætti Hemma Gunn í kvöld (2. nóv), en það var samið sérstaklega fyrir átakið.
Tímamót í sögu UNICEF á Íslandi
Framkvæmdastjóri UNICEF Ann M. Veneman heimsótti landsnefndina á Íslandi í dag föstudaginn 14. júlí. Tilefnið var að skrifa undir samstarfssamning við UNICEF Ísland til frambúðar. Þessi undirritun vakti mikla fjölmiðlaathygli enda stór tímamót fyrir landsnefndina.
Ann M. Veneman heimsækir Ísland
Framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, mun heimsækja Ísland næstkomandi föstudag. Um þessar mundir eru rúm tvö ár frá því landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi hóf störf og mun UNICEF nú gera framtíðarsamning við landsnefndina sem þýðir að landsnefndin starfar áfram undir merkjum UNICEF og skuldbindur sig til að afla fjár fyrir verkefni UNICEF og fylgja stöðlum samtakanna.
Leikskólakrakkar selja myndir til styrktar UNICEF
Nemendur og kennarar leikskólans Vesturbergs héldu Listahátíð þann 11.maí í Listasafni Reykjanesbæjar, Duushúsum. Haldin var myndlistasýning með myndum eftir leikskólakrakkana að dagskrá lokinni og stóð sýningin yfir í nokkra daga. Verkin hafa síðan verið til sölu og seldust upp nú í júní og rann ágóðinn til UNICEF Ísland.
Í tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla fór fram söfnun í vikunni 15.-19.maí sem að stóðu nemendur og starfsfólk skólans til styrktar UNICEF. Söfnunarbaukur var í sal skólans alla vikuna og var vel gætt af nemendum skólans, en þeir sáu til þess að söfnunin færi vel fram. Hvatt var til þess að hver og einn kæmi með sem svarar 70 kr.
UNICEF kynnir styrkveitingu til verkefnis í Nígeríu
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, mun kynna stuðning fjölda íslenskra fyrirtækja og einstaklinga við stórt styrktarverkefni Barnahjálparinnar í Nígeríu fimmtudaginn 4. maí nk. Um er að ræða sameiginlegt átak nokkurra fyrirtækja sem stunda viðskipti í Nígeríu, auk annarra fyrirtækja og einstaklinga.
Nú er lóan komin að kveða burt snjóinn og sumardagurinn fyrsti á næsta leyti. Á þeim degi gefa margir sumargjöf og eru dúkkurnar sem gleðja tilvalin sem slík. Þær voru saumaðar síðasta sumar af konum í 90 kvenfélögum víðsvegar að af landinum til styrktar stúlkum í Gínea-Bissá.
UNICEF Ísland vekur athygli á nýrri heimildamynd Dúa J. Landmark um Vestur Afríkuríkið Gíneu-Bissá, menningu þess, stöðu barna og verkefni UNICEF. Myndin verður frumsýnd í Sjónvarpinu 11. apríl kl. 21:15 og endursýnd á Páskadag 16. apríl kl. 11:05. Myndin er mjög sláandi og sýnir vel hvernig fólk reynir að draga fram lífið þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Barnasáttmálinn kynntur í 6. bekk
UNICEF Ísland dreifir nú í annað sinn bæklingnum „Öll börn eiga rétt“ um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda og Námsgagnastofnun. Bæklingnum er dreift til allra 6. bekkinga á landinu og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur.
Nemendur FAS, Framhaldskóla Austur-Skaftafellssýslu héldu styrktartónleika í nóvember síðastliðnum og söfnuðu 100 þúsund krónum sem runnu til UNICEF. Fyrir tónleikana fengu þau menningarverðlaun Hornafjarðar í febrúar.
Vinningshafi Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi styrkir UNICEF
UNICEF Ísland barst óvæntur styrkur frá vinningshafa Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi, Hjalta Vigfússyni 12 ára, að upphæð 15 þúsund krónur. Er það UNICEF Ísland sérstaklega mikill heiður að veita þessum styrk móttöku þar sem Stóra upplestrarkeppnin vinnur að því að efla vitund og styrk ungmenna líkt og Barnahjálpin gerir víðsvegar um heiminn.
Reynt að svindla á íslenskri ferðaþjónustu í nafni UNICEF
Vegna fréttar um að erlendir einstaklingar svindluðu pening frá aðilum í ferðaþjónustu í nafni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eða annarra samtaka vill UNICEF á Íslandi koma eftirfarandi á framfæri:
Björk Guðmundsdóttir fór til Banda Aceh, á norðanverðri Súmötru í Indónesíu, dagana 26.-27. janúar. Tilgangur heimsóknar hennar var að heimsækja verkefni og uppbyggingarstarf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eftir flóðbylgjuna sem reið yfir löndin við Indlandshaf fyrir rúmu ári síðan.
Vefsíða vegna hamfaranna við Indlandshaf
Opnuð hefur verið vefsíða vegna þess að ár liðið frá hamförunum við Indlandshaf og landssöfnuninni Neyðarhjálp úr norðri. Þar má sjá skýrslu UNICEF um hamfarirnar sem kom út í desember og aðgengilegar upplýsingar fyrir almenning og fjölmiðla.
Dúkkur Kvenfélagasambands Íslands og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú komnar í sölu bæði á Akureyri og Egilsstöðum. Þegar hefur nær helmingur af 800 dúkkum selst og því hafa safnast 2 milljónir króna sem mun hjálpa stúlkum í skóla í Gíneu-Bissá. Vegna fjölda eftirspurna var dúkkunum komið í sölu úti á landi.
UNICEF Ísland vill óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Við þökkum þann stuðning og þá velvild sem við höfum notið á árinu og lítum björtum augum til framtíðar.
Dúkkurnar komnar norður á Akureyri!
Býflugan og blómið á Akureyri hefur tekið til sölu dúkkur sem kvenfélög um land allt hafa gert til styrktar stúlkum í Gíneu-Bissá. Nú geta Norðlendingar skoðað úrvalið og fest kaup í dúkkum sem gleðja bæði börn á Íslandi og í Gíneu-Bissá. Býflugan og blómið er staðsett á Glerárgötu 36.
Hinar vinsælu dúkkur Kvenfélagasambands Íslands og UNICEF eru nú til sölu í Blómabæ á Egilsstöðum. Hver dúkka kostar 5000 krónur og rennur ágóðinn til menntaverkefnis fyrir stúlkur í Gíneu-Bissá. Við hvetjum alla fyrir austan til að leggja leið sína í Blómabæ, Miðvangi 31, Egillstöðum.
Þau börn sem njóta góðs af verkefnum UNICEF í Gíneu-Bissá voru þeirrar gæfu aðnjótandi fyrir nokkru að fá veglegan styrk frá þremur íslenskum fyrirtækjum, Baugi Group, FL Group og Fons. Eins og kunnugt er héldu styrktaraðilar okkar veislu þar sem boðsgestir gátu veitt styrki til verkefna UNICEF í þessu sjötta fátækasta ríki í heimi, Gíneu-Bissá.
Lilja Eyþórsdóttir veitir UNICEF styrk
Lilja Eyþórsdóttir veitti UNICEF styrk í dag að verðmæti 57.000 krónum og mun styrkurinn renna til menntunar stúlkna. Lilja afþakkaði blóm og gjafir í afmælisveislu sinni en óskaði í staðinn eftir því að þeir sem vildu gætu lagt 500 til 1000 kr inn á reikning til styrktar UNICEF.
Þann 1. desember, á alþjóða alnæmisdeginum, veittu Alnæmissamtökin 100.000 kr. styrk til herferðar UNICEF sem ber yfirskriftina „Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi". Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, veitti styrknum viðtöku á skrifstofu Alnæmissamtakanna.
Um 90 milljónir söfnuðust á fullveldishátíð til styrktar UNICEF
Á fullveldishátíð sem styrktaraðilar UNICEF, Baugur Group, FL Group og Fons, efndu til í Listasafni Reykjavíkur í gærkvöldi söfnuðust um 90 milljónir króna. Allur ágóði af kvöldinu mun renna til verkefna UNICEF í Gíneu-Bissá. UNICEF á Íslandi er afar þakklátt fyrir þennan mikla stuðning.
Sir Roger Moore kíkir á jólakortasölu UNICEF
Sir Roger Moore mun kíkja á jólakortasölu UNICEF á morgun, laugardag, að Laugavegi 42, 2. hæð, kl. 14:00. UNICEF hefur selt jólakort í nær 60 ár eða nánast alveg frá stofnun samtakanna. Sala á þeim var ein fyrsta fjáröflun meðal almennings sem UNICEF fór í og er enn stór tekjulind samtakanna.
Baugur Group, FL Group og Fons gefa 135 milljónir til menntaverkefnis í Gíneu-Bissá
Fyrirtækin Baugur Group, FL Group og Fons skrifuðu í morgun undir stærsta styrktarsamning fyrirtækja sem gerður hefur verið í þágu góðgerðarmála á Íslandi. Styrkurinn hljóðar upp á 135 milljónir króna og munu nær 100 þúsund börn í Gíneu-Bissá njóta góðs af styrknum, auk kennara, skóla og samfélagsins alls.
Kvenfélagasamband Íslands afhendir einnig peningagjöf
Helga Guðmundsdóttir, formaður Kvenfélagasambands Íslands, afhenti í dag Stefáni Inga Stefánssyni framkvæmdastjóra UNICEF Ísland 172.500 krónur fyrir hönd þeirra kvenfélaga sem ekki höfðu saumað dúkkur til styrktar menntaverkefnis UNICEF Í Gíneu-Bissá.
Jólakort og gjafavörur UNICEF eru að koma í hús og hefst salan eftir helgi í nýrri skrifstofu UNICEF Ísland að Laugavegi 42, 2. hæð, og í ýmsum ritfangaverslunum.
UNICEF óskar eftir að ráða verkefnastjóra fjáröflunar
UNICEF leitar að kraftmiklum verkefnastjóra í fullt starf til að hafa umsjón með fjáröflunum UNICEF auk þess að taka þátt í öðrum verkefnum við kynningu og upplýsingagjöf. Áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofuna í síma 552-6300 eða með því að senda tölvupóst á unicef@unicef.is
UNICEF Ísland hefur nú flutt í nýtt húsnæði að Laugavegi 42, 2. hæð, ásamt UNIFEM og Félagi Sameinuðu þjóðanna. Félögin voru öll áður til húsa í Skaftahlíð 24.
UNICEF veitir 2,5 milljónum króna til hjálparstarfs í Pakistan
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur sent út 2,5 milljónir króna til neyðaraðstoðar fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan. UNICEF hefur óskað eftir 20 milljónum Bandaríkjadala (yfir einum milljarði ISK) til að geta veitt neyðaraðstoð til barna og fjölskyldna sem lifðu af jarðskjálftann.
Fjöldi Íslendinga hefur bæst í hóp heimsforeldra
Fleiri Íslendingar hafa bæst í hóp heimsforeldra eftir söfnunarþáttinn hjá Fólk með Sirrý í gær, en skráningin gekk framar vonum. Tvær endursýningar verða á þættinum, í dag fimmtudag kl. 17:20 og á sunnudag kl. 15:10. Enn er opið fyrir söfnunarsímann 5 62 62 62.
Heimsforeldraátak UNICEF nær hámarki í söfnunarþætti í Fólk með Sirrý á SkjáEinum í kvöld. Í þættinum gefst Íslendingum kostur á að sjá með eigin augum hvernig framlögum heimsforeldra er varið og hvað lítið framlag skiptir miklu máli.
Heimsforeldrar í Fólki með Sirrý
Heimsforeldraátak UNICEF nær hápunkti næstkomandi miðvikudag, 14. september, í tveggja klukkustunda löngum söfnunarþætti hjá Sirrý á SkjáEinum, kl. 21:00-23:00. Í söfnunarþættinum verður sýnt fram á hve miklum árangri heimsforeldrar hafa náð og hvað hvert framlag skiptir miklu máli.
Fimmtudaginn, 8. sept., mun UNICEF Ísland bjóða börnum og fullorðnum, gestum og gangandi, að bragða á „Uji“, allsérstökum graut sem veittur er vannærðum börnum í Afríku og víðar. Uppákoman er í tengslum við söfnunarþátt fyrir UNICEF hjá Sirrý á SkjáEinum næstkomandi miðvikudag. Við hvetjum alla til að mæta á Ægissíðuna!!
Góðir tónleikar, gott málefni og símsvörun!
Þegar svo stórt verkefni eins og útsending Live8 var á Sirkus þarf að huga að mörgu. Heimsforeldraátak UNICEF stóð yfir alla útsendinguna, eða í 12 klukkustundir, og gafst fólki kostur á að hringja í símann 5 62 62 62. Hinum megin á línunni voru alls 23 einstaklingar og fjölskyldumeðlimir þeirra, í þjónustuveri Og Vodafone
Hlutverk heimsforeldra mikilvægt
Vegna fjölda fyrirspurna síðustu daga er vert að taka það fram að heimsforeldrar styrkja ekki eitt ákveðið barn, heldur verkefni sem hjálpa mörgum börnum. Verkefnin geta t.d. verið að bólusetja öll börn í einu landi, byggja skóla, veita aðgang að vatni og hreinlætisaðstöðu, veita umönnun til HIV-smitaðra, sjá um munaðarlaus börn, frelsa börn úr stríðum og svo mætti lengi telja.
Fjöldi nýrra heimsforeldra bættust í hópinn á meðan á útsendingu Live8-tónleikanna stóð á Sirkus um helgina. Alls skráðu sig um 600 manns í gegnum síma og á netinu og eru íslenskir heimsforeldrar því orðnir um 4300. Gert er ráð fyrir að fleiri muni skrá sig á næstu vikum þar sem heimsforeldraátak UNICEF stendur enn með auglýsingum í sjónvarpi og útvarpi.
Neyðarhjálp úr norðri - Tilkynning
Næstkomandi sunnudag, 26. júní kl. 11:00, munu hjálparsamtökin fimm, sem stóðu að söfnunarátakinu Neyðarhjálp úr norðri, efna til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu. Þá verður hálft ár liðið frá því að flóðbylgjurnar við Indlandshaf tóku líf yfir 200 þúsund manna og skildu milljónir eftir án heimilis, lifibrauðs og ástvina.
Nemendur 6. bekkjar í Gerðaskóla héldu tombólu á vorhátíð skólans á dögunum og gáfu þeir allan ágóðann til UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Bekkurinn safnaði alls 17.171 krónu og hefur fjárstuðningnum verið veitt viðtöku. UNICEF mun nota peninginn til hjálpar öðrum börnum sem minna mega sín í heiminum.
Með sól í hjarta og söng á vörum
Þessar ungu stúlkur, Bergþóra Björg, Þorbjörg Eva og Elva Dögg, eiga heima á Raufarhöfn. Í tilefni af sumarkomunni gengu þær í hús á Raufarhöfn og sungu til styrktar UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þær söfnuðu 2.616 krónum. Framlag þeirra Bergþóru, Þorbjargar og Elvu er kærkominn stuðningur við börn sem eiga um sárt að binda.
Björk gefur út geisladisk til styrktar UNICEF
Næstkomandi mánudag, 2. maí, mun geisladiskur sem Björk Guðmundsdóttir gefur út til styrktar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vera dreift í búðir hér á landi. Drifin áfram af þeim hrikalegu áhrifum sem hamfarirnar í kjölfar flóðbylgnanna í Asíu höfðu á börn á svæðinu, ákvað Björk að setja saman safn af útgáfum annarra á lagi hennar „Army of Me“.
Allsérstakur sumarglaðningur mun berast inn á hvert heimili á Íslandi fyrstu viku sumars. Um er að ræða DVD disk með teiknimyndinni Kötu – litlu lirfunni ljótu á alls sjö tungumálum. Skýringin á þessum sumarglaðningi er sú að Umhyggja – félag til styrktar langveikum börnum og UNICEF Ísland hafa tekið höndum saman.
Harry Belafonte sendir Íslendingum kveðjur
Stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, mun senda Íslendingum bréf sem fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn, 15. mars. Harry Belafonte kom til landsins á vegum UNICEF Ísland í nóvember síðastliðnum í þeim tilgangi að hvetja fólk til að gerast heimsforeldrar og láta sig málefni barna varða.
Laugardaginn 12. mars fagnaði landsnefnd UNICEF á Íslandi eins árs afmæli sínu. Af því tilefni var slegið upp barnaafmæli í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Skaftahlíð 24. Boðið var upp á barnaafmælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu frumskógum Afríku. Barnakór Ísaksskóla söng afmælissönginn, Hótel jörð og lag úr Línu Langsokk.
Íslensk ættleiðing styrkir verkefni UNICEF á flóðasvæðunum
Félagið Íslensk ættleiðing veitti í gær styrk til verkefna UNICEF á flóðasvæðunum við Indlandshaf. Styrkupphæðin er 305 þúsund krónur en það samsvarar þúsund krónum á hvert barn sem hefur verið ættleitt frá þeim löndum sem lentu í hamförunum annan í jólum.
Samkeppni einnar mínútu myndbanda
UNICEF vekur athygli á því að þann 1. mars er lokaskiladagur í hinni árlegu einnar-mínútu-myndbanda samkeppni. Ungmenni og fullorðnir frá öllum heimshornum geta tekið þátt. Vinnusmiðja einnar mínútu myndbanda var haldin hér á landi í október síðastliðnum en þá tóku 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum þátt með glæsilegum árangri.
Landssöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri" fékk frábærar viðtökur hjá landsmönnum og ljóst er að yfir 110 milljónir hafa safnast fyrir fórnarlömb hamfaranna við Indlandshaf einungis með þessari söfnun. Söfnunarþáttur í samsendri útsendingu Ríkissjónvarpsins, Stöðvar 2 og Skjás eins gekk mjög vel og sýndi hvernig samstaða og samstarf ólíkra aðila getur skipt sköpum í söfnun sem þessari.
Dagskrá söfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri
Söfnunarátakið Neyðarhjálp úr norðri stendur nú sem hæst en mun ná hámarki í söfnunarþætti á þremur sjónvarpsstöðvum samtímis á morgun, laugardag. Margir skemmtilegir atburðir eru í kringum söfnunina, það stendur nú yfir uppboð, fyrirtæki geta skorað á hvort annað, leikhúsin og bíóhúsin verða með sýningar til styrktar söfnuninni.
500 manns hafa á fyrsta degi hringt í söfnunarsíma átaksins og gefið 809.000 kr. Fyrirtæki sýna hugkvæmni m.a. getur fólk keypt kaffi frá Aceh-héraði og lagt söfnuninni þannig lið. Dagskrá á Glerártorgi á Akureyri á laugardaginn verður í höndum listamanna úr fjórðungnum. Fleiri sjálfboðaliða vantar í verslunar-miðstöðvarnar föstudag og laugardag.
Í dag, þriðjudag, hófst landssöfnun þriggja sjónvarpsstöðva, þriggja verslunarmiðstöðva, níu útvarpsstöðva, þriggja dagblaða, listamanna, fyrirtækja og almennings til hjálpar þeim sem lifðu af hamfarirnar í Asíu. Söfnunarfénu verja fimm mannúðarsamtök; Barnaheill - Save the Children, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, SOS barnaþorp og UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Nemendafélag Tækniháskólans styrkir neyðaraðstoð í Suður-Asíu
Nemendafélag Tækniháskólans færði UNICEF Ísland framlag á dögunum að upphæð 100.000 krónur. Framlagið er til stuðnings neyðar- og uppbyggingarstarfi Barnahjálparinnar á flóðasvæðunum í Suður- og Suðaustur-Asíu. UNICEF er með viðamikla starfsemi á hamfarasvæðunum og einbeitir sér sérstaklega að þörfum barna.
Samstarfshópur einstaklinga, fyrirtækja og fjölmiðla undirbýr nú landssöfnun til styrktar þeim sem þjást vegna hamfaraflóðanna í Asíu. Söfnunin hefst á mánudag og nær hámarki með sjónvarpsútsendingu laugardaginn 15. janúar. Verndari söfnunarinnar og talsmaður verður Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands.
UNICEF Ísland vill óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum þær frábæru viðtökur sem landsnefndin hefur fengið á þessu fyrsta starfsári sínu og við lítum björtum augum til framtíðar.
Þekkingarmiðlun veitir UNICEF styrk
Fyrirtækið Þekkingarmiðlun veitti UNICEF 150 þúsund króna styrk á dögunum í nafni viðskiptavina sinna í stað þess að senda þeim jólakort. Styrkurinn mun renna til menntaverkefa UNICEF, en í dag eru yfir 121 milljón börn sem njóta ekki grunnmenntunar.
Jólastyrkur frá Útflutningsráði
Útflutningsráð Íslands hefur ákveðið að veita UNICEF Ísland styrk að jafnvirði þeirri upphæð sem annars hefði farið til jólakortakaupa stofnunarinnar. Með styrkveitingunni styður Útflutningsráð Barnahjálpina til góðra starfa fyrir börn til betra lífs.
Ljósmyndasýning UNICEF fyrir framan Hagkaup
Við vekjum athygli á því að ljósmyndasýning UNICEF í Smáralindinni er nú staðsett fyrir framan Hagkaup. VIð hvetjum alla til að kíkja á þessa áhrifamiklu ljósmyndasýningu, kynnast aðstæðum barna víðsvegar í heiminum og verkefnum UNICEF.
Heimildamyndir á Íslandi til úrslita
lok október komu 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum til að taka þátt í einnar-mínútu-myndbanda-vinnustofu sem UNICEF Ísland hélt, með stuðningi menntamálaráðuneytisins. Slíkar vinnusmiðjur eru haldnar um alla Evrópu og í nóvember ár hvert er haldin samkeppni milli einnar mínútu myndbandanna í Hollandi.
Harry Belafonte opnar ljósmyndasýningu
Næstkomandi laugardag, þann 20. nóvember kl. 15:30, mun stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, opna ljósmyndasýningu um UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna – í Smáralindinni. Sýningin verður staðsett fyrir framan Te & kaffi (Debenhams) á neðri hæð Smáralindar.
Harry Belafonte a leid til landsins
Í tilefni af 15 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og heimsforeldraátaki UNICEF Ísland mun velgjörðarsendiherra UNICEF og stórsöngvarinn Harry Belafonte heimsækja landið 18.-21. nóvember. Belafonte var skipaður velgjörðarsendiherra UNICEF þann 4. mars 1987.
Menntamálaráðherra heimsækir vinnusmiðju UNICEF
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri heimsóttu UNICEF við lok vinnusmiðju í gerð einnar-mínútu-myndbanda. Þau 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum sem sóttu vinnusmiðjuna sýndu gestunum afrakstur vinnu sinnar og ræddu um þau málefni sem brenna mest á ungu fólki í dag.
Vinnusmiðja í gerð einnar-mínútu myndbanda hefst á Íslandi
Tuttugu ungmenni frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi eru samankomin í Reykjavík til þess að vinna að framleiðslu einnar-mínútu myndbanda um lýðræði og þátttöku ungs fólks í samfélaginu. UNICEF Ísland og menntamálaráðuneytið standa fyrir vinnusmiðjunni sem stendur yfir þar til á fimmtudaginn 21. október.
Í dag lenti flugstjórinn og stjórnarformaður South East Asian Airlines, Iren Dornier, sögulegum flugbát af gerðinni Dornier DO24 ATT í Reykjavík. Dornier flýgur nú hringinn í kringum heiminn en nákvæmlega 75 ár eru liðin frá því afi hans og hönnuður flugvélarinnar, Claude Dornier (1884-1969), fór ferð með slíkri flugvél sem þá þótti mikið afrek á sviði flugsmíði.
Ísland veitir tveimur milljónum króna til neyðaraðstoðar
Utanríkisráðuneytið samþykkti föstudaginn 1. október að veita tveimur milljónum króna til neyðaraðstoðar UNICEF í ríkjum Karabíska hafsins í kjölfar eyðileggingar fellibylsins Jeanne þann 18. september sl. Í aðstæðum sem þessum skiptir miklu máli að bregðast skjótt við og hafa íslensk stjórnvöld gert það aðeins viku eftir að Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, fór þess á leit við þjóðir heimsins að þær kæmu íbúum Haítí og annarra ríkja Karabíska hafsins til aðstoðar.
Heimsforeldrar – söfnunarátak Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna
Um þessar mundir senda landsnefnd UNICEF á Íslandi og frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra, bréf til allra heimila landsins þar sem Íslendingum er boðið að gerast heimsforeldrar. Heimsforeldrar eru öflugt stuðningsnet fyrir þurfandi börn um allan heim sem fólk getur orðið hluti af með mánaðarlegu fjárframlagi.
Heimsókn í birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn
Hólmfríður Anna Baldursdóttir, starfsmaður UNICEF Ísland, heimsótti á dögunum landsnefnd UNICEF í Danmörku og birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn. Birgðastöðin, sem er 25 þúsund fermetrar, pakkar og sendir vörur til allra heimshorna fyrir UNICEF.
Viktoría hefur lokið sundi yfir Breiðafjörð
Viktoría Áskelsdóttir lauk í dag, 10. ágúst, sundi sínu yfir Breiðafjörð. Tekið var vel á móti henni þegar hún kom í land í Stykkishólmi, en bæjarstjórinn var fremstur í flokki móttökuhópsins.
Viktoría hefur haldið dagbók um sund sitt yfir Breiðafjörð. Í dagbókinni lýsir Viktoría sundinu, skrifar um hugleiðingar sínar og lýsir hinni fallegu nátttúru kringum Breiðafjörðinn. Nú er aðeins ein vika eftir af sundinu og hefur Viktoríu gengið afar vel í þessari þrekraun sinni.
Laugardaginn 24. júlí mun Viktoría Áskelsdóttir hefja tveggja vikna sund yfir Breiðafjörð. Þetta verður í fyrsta skipti sem nokkur manneskja reynir að synda yfir fjörðinn.
Delta Kappa Gamma styrkir UNICEF og menntun stúlkna
Delta Kappa Gamma, samtök kvenna í ýmiskonar fræðslustörfum veittu UNICEF styrk á dögunum til þess að mennta ungar stúlkur í Vestur-Afríku. Ákveðið var að láta 100 þúsund krónur renna til þessa verkefnis núna en jafnframt munu hinar níu deildir samtakanna fá það verkefni að safna áfram til þessa verkefnis næstu vetur.
EJS, sem er einn stærsti þjónustuaðili og birgi landsins í upplýsingatækni, gaf nýlega Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna allan tölvubúnað í skrifstofu sína að Skaftahlíð 24 í Reykjavík.