126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Alvogen styrkir menntaverkefni í Madagaskar
Lyfjafyrirtækið Alvogen mun næstu þrjú ár styðja menntaverkefni UNICEF í Madagaskar en það miðar meðal annars að því að veita stúlkum tækifæri til að ganga í skóla. Mun færri stúlkur en drengir ganga í skóla þar í landi og verkefninu er ætlað að fjölga stúlkum í efri bekkjum grunnskóla.
Rúmar 10,5 milljónir evra söfnuðust í Mjúkdýraleiðangri IKEA á heimsvísu fyrir UNICEF og Save the Children. Þar af söfnuðust 11.820 evrur á Íslandi en auk þess gáfu viðskiptavinir IKEA á Íslandi 333 mjúkdýr söfnun fyrir börn á Barnaspítala Hringsins.
Flóðin í Sindh, Balochista og Punjab héruðunum í Pakistan hafa sett líf þúsunda barna úr skorðum á svæðinu sem fyrir var berskjaldað vegna fátæktar og árvissra flóða.
„Hjálparstarf á heimsvísu“ í heimsókn til UNICEF
Okkur hjá UNICEF finnst fátt eins skemmtilegt og að fá til okkar ungt fólk sem langar til þess að kynnast starfinu betur. Í vikunni fengum við til okkar frábæran hóp frá Kvennaskólanum í Reykjavík sem Bergsteinn verkefnastjóri fræddi um samtökin og starfið.
Hér má finna yfirlit yfir Sannar gjafir frá fyrri hluta ársins 2012. Þarna eru svo sannarlega á ferð gleðilegar fréttir. Þessar gjafir hafa nú verið sendar til tæplega 40 landa til þeirra barna sem mest þurfa á að halda.
UNICEF vinnur að því, ásamt samstarfsaðilum sínum í Sýrlandi, að koma flóttabörnum til hjálpar með heilsugæslu og læknisaðstoð auk þess að útvega þeim matvæli og annars konar hjálpargögn.
Þessar frábæru konur eru hluti Betadeildar Delta Kappa Gamma á Akureyri. Þær styrktu UNICEF myndarlega á dögunum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Samstarfsverkefni UNICEF og IKEA tíu ára
Í septembermánuði munu UNICEF og IKEA fagna tíu ára löngu samstarfsverkefni sínu sem hefur hjálpað yfir 74 milljónum barna í átt að betri framtíð fyrir þau og fjölskyldur þeirra.
Flóttabörn frá Sýrlandi fá hjálp
Yfir 110 þúsund manns hafa flúið frá Sýrlandi og yfir til Jórdaníu, Líbanons, Tyrklands og Írak, þar sem þau fá hjálp. Helmingurinn af þeim eru börn og ungmenni. UNICEF í Jórdaníu hefur komið á fót svokölluðum „barnvænum svæðum" á þremur stöðum. Auk þess dreifir UNICEF þessa stundina 3 þúsund hreinlætispökkum fyrir ungabörn en þá hefur alls 9 þúsund pökkum verið dreift.
Heimurinn sameinast um að draga úr barnadauða
Tíðni barnadauða í heiminum hefur lækkað um meira en 50% á fjörutíu árum. Á alþjóðlegum fundi sem hefst í dag er stefnt að því að draga enn frekar úr barnadauða. Alltof mörg börn láta lítið af einföldum orsökum sem vel mætti koma í veg fyrir.
Nemendur Dalvíkurskóla safna yfir hálfri milljón!
Dalvíkurskóli hefur verið einn af öflugustu skólum landsins í UNICEF-hreyfingunni. Í ár tók allur skólinn þátt og nemendur söfnuðu rétt um 540 þúsundum krónum! UNICEF sendir út hjartans þakkir fyrir stuðninginn og fagnar því að UNICEF dagurinn sé nú orðinn að föstum lið í skóladagatali Dalvíkurskóla.
Árangur og erfiði á Sahel-svæðinu
Alþjóðleg neyðarsöfnun UNICEF fyrir Sahel-svæðið hefur gengið vonum framar og alls hafa safnast um 1,4 milljarðar króna - yfir 20 milljónir hafa safnast á Íslandi. Nú þegar þurrkatímabilið er gengið í garð er þó búist við að ástandið muni versna. Auk þess hefur hjálparstarf UNICEF þurft að taka mið af flóttafólki frá Malí, en vopnuð átök þar hafa leitt til aukins vanda á svæðinu.
Fótboltafélagið Barselóna og UNICEF styrkja samstarf sitt
Fótboltafélag Barselóna (FCB) og UNICEF halda samstarfi sínu áfram til að bæta líf milljóna barna í gegnum íþróttir og leiki. Fótboltafélagið mun styrkja UNICEF um 1,5 milljón evra með það að markmiði að ná til barna í 16 þúsund skólum í fjórum löndum, þ.e. Brasilíu, Kína, Gana og Suður-Afríku.
Hátt í 4500 börn taka þátt í UNICEF-hreyfingunni
„Skráning skóla í UNICEF-hreyfinguna hefur aldrei verið meiri, en 25 skólar hafa nú þegar tilkynnt þátttöku. Það þýðir að hátt í 4500 börn fá fræðslu um jafnaldra sína í þróunarlöndunum og fá tækifæri til að taka þátt í að bæta aðstæður þeirra," segir Bergsteinn Jónsson, verkefnastjóri UNICEF á Íslandi.
Yfirvofandi fæðuskortur í Níger
Aukinn fæðuskortur í Níger getur leitt til vannæringar þúsunda barna um allt land ef ekkert verður að gert. Ef ekki er til nóg af fæðu munu börn, sérstaklega þau sem eru undir fimm ára aldri, eiga á hættu á að látast af völdum vannæringar eða öðrum tengdum kvillum. Við segjum sögu Zöru og Oumou í fréttinni.
Mjúkdýraleiðangur IKEA til styrktar menntun barna
Söfnunaráakið Mjúkdýraleiðangurinn stendur nú yfir í verslun IKEA á Íslandi. Átakið er hluti af alþjóðlegu verkefni IKEA þar sem ein evra af hverju mjúkdýri sem viðskiptavinir kaupa fyrir jólin rennur til menntaverkefna á vegum UNICEF og Barnaheilla. Á heimsvísu hefur verkefnið stuðlað að betra lífi fyrir rúmlega átta milljón börn.
UNICEF fordæmir ofbeldi gegn jemenskum börnum
Að minnsta kosti 94 börn hafa látið lífið í átökum í Jemen síðan þau brutust út fyrr á þessu ári. Átökin bæta gráu ofaná svart fyrr börn í Jemen þar sem tíðni vannæringar barna var fyrir ein sú hæsta í heiminum. UNICEF harmar að ofbeldi skuli bitna á börnum.
Skólaárið hófst formlega á Haítí síðstliðinn mánudag, 3. október. Eins og mörgum er enn í fersku minni skók gríðarsterkur jarðskjálfti landið fyrir rúmu einu og hálfu ári með þeim afleiðingum að nánast allt daglegt líf fór úr skorðum, þar með talið skólastarf.
Sögulegur dagur fyrir alla Afríku: Nýtt ríki lítur dagsins ljós
Á morgun mun stærsta ríki Afríku skiptast upp og nýtt ríki líta formlega dagsins ljós: Suður-Súdan. Hið nýja ríkið verður eitt það fátækasta í heimi og jafnframt sá staður þar sem einna áhættusamast verður fyrir börn að fæðast. UNICEF sinnir afar umfangsmiklu hjálparstarfi í Suður-Súdan.
Ný skýrsla UNICEF: Ýmsar brotalamir í málefnum barna á Íslandi
Út er komin skýrsla á vegum UNICEF um stöðu barna á Íslandi. Er um viðamikið yfirlit að ræða og í fyrsta sinn sem heildstæð samantekt af þessu tagi er gerð um stöðu barna á Íslandi og þær ógnir sem að þeim steðja.
Metárangur hjá UNICEF-hreyfingunni – yfir 4500 taka þátt!
Skráning í grunnskólaverkefni UNICEF á Íslandi, UNICEF-hreyfinguna, gengur vonum framar og stöðugt bætist í hóp skráðra þátttakenda. Aldrei hafa fleiri nemendur tekið þátt og er fjöldinn núna kominn yfir 4500! Skráning stendur enn yfir.
Góður gangur hjá Stjórnlögum unga fólksins! Yfir 40 þingmenn taka þátt
Þátttaka í Stjórnlögum unga fólksins er afar mikil og verkefnið hefur fengið miklar og góðar undirtekir. Yfir 40 ungmenni taka þátt í þinginu í Iðnó á morgun! Nær öll sveitarfélög á landinu sem starfrækja ungmennaráð senda fulltrúa á þingið og fjögur sveitarfélög til viðbótar eru með slík ráð í burðarliðnum og senda þátttakendur.
Stjórnlög unga fólksins – leyfum rödd ungmenna að heyrast
UNICEF, umboðsmaður barna og Reykjavíkurborg standa nú fyrir Stjórnlögum unga fólksins. Vefsíðan www.stjornlogungafolksins.is hefur verið opnuð og um næstu helgi verður stjórnlagaþing ungmennaráða haldið í Reykjavík. Markmiðið er að tryggja að skoðanir barna og ungmenna heyrist við endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Kvennadagur: Mikilvægt að unglingsstúlkur hljóti menntun
Í dag er alþjóðlegum degi kvenna fagnað í hundraðasta skiptið. UNICEF vill nota tækifærið og vekja athygli að þeim 515 milljón unglingsstúlkum í þróunarlöndunum sem geta hjálpað samfélögum sínum að blómstra fái þær menntun og tækifæri til að þroska hælfileika sína.
Fjölskyldur byggja upp líf sitt eftir flóðin á Sri Lanka
Fjölskyldur hafa nú byrjað að snúa aftur heim eftir flóðin á Sri Lanka fyrr á árinu. 96% skóla í þeim samfélögum sem urðu illa úti í flóðunum hafa verið teknir í notkun á ný en mörg börn hafa þó misst allar skólabækur sínar og enn er þörf á að gera við skólabyggingar.
Aurora styrkir menntun í Síerra Leóne fjórða árið í röð
Velgerðasjóðurinn Aurora úthlutaði í dag 40 milljónum króna til styrktar verkefnum UNICEF á sviði menntunar í Afríkuríkinu Síerra Leóne. Meðal markmiða verkefnisins sem Aurora styrkir er að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði, einkum með þarfir stúlkubarna í huga.
Málþing um börn sem heltast úr lestinni í efnameiri löndum
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, stendur að málþingi um skýrsluna "The children left behind" eða „Börn skilin útundan“ í samstarfi við Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, þriðjudaginn 18. janúar kl. 12-13 í Odda stofu 201.
Góðar fréttir af mjúkdýraleiðangrinum
Fyrsta nóvember á nýliðnu ári hóf IKEA um allan heim söfnunarátakið Mjúkdýraleiðangurinn. Leiðangurinn stóð til 23. desember og gaf IKEA eina evru fyrir hvert mjúkdýr sem seldist á tímabilinu. Söfnunarféð rann til UNICEF og Barnaheillar – Save the Children sem nota féð til að styðja við menntun bágstaddra barna í heiminum.
Delta Kappa Gamma styrkir menntun
Íslensk landsdeild Delta Kappa Gamma hefur afhent UNICEF á Íslandi framlag sem rennur til verkefnis sem miðar að því að tryggja börnum menntun í fátækustu ríkjum Afríku, Schools for Africa. Íslenska landsdeildin bætist þar með í hóp annarra landsdeilda Delta Kappa Gamma sem styrkja þetta mikilvæga verkefni.
Ný íslensk skýrsla um mansal í Gíneu-Bissá
UNICEF áætlar að á hverju ári fari fjöldi barna frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Skýrsla þessi byggist á rannsókn sem gerð var að ósk UNICEF í Gíneu-Bissá til að afla upplýsinga um ástæður, umfang og afleiðingar þessa og hvort um eiginlegt mansal barna sé að ræða.
Aurora styrkir UNICEF í Síerra Leóne um 40 milljónir
Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur tilkynnt þá ákvörðun sína að veita 40 milljónum króna til verkefna UNICEF á sviði menntunar í Vestur-Afríkuríkinu Síerra Leóne. Meðal markmiða verkefnisins sem Aurora styrkir með svo rausnarlegum hætti er að byggja upp barnvænt menntakerfi og skólahúsnæði.
Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF, gaf út yfirlýsingu í dag vegna alþjóðlegs baráttudags kvenna, 8. mars. Hún segir m.a. frá heimsókn sinni í miðstöð fyrir stúlkur sem bjargað hefur verið frá vændi í Gvatemala. Dagurinn minnir okkur á að mikið verk er óunnið, ekki síst við að tryggja stúlkum og konum vernd gegn ofbeldi og mistnokun.
UNICEF kemur börnum á Samóa-eyjum aftur í skóla
UNICEF vinnur nú náið með menntayfirvöldum á Samóa-eyjum við að tryggja að þarlend börn geti haldið skólagöngu sinni áfram eins fljótt og auðið er. Öflug flóðbylgja gekk nýlega yfir eyjarnar og er skólaganga mikilvægur þáttur í að koma lífi barnanna aftur í eðlilegar skorður.
Ár liðið frá jarðskjálftanum í Sichuan
Ár er nú liðið frá því að jarðskjálfti af stærðargráðunni 8,0 á Richter-skala reið yfir Sichuan-umdæmi í Kína. Á undanförnum tólf mánuðum hefur UNICEF varið 20 milljónum bandaríkjadala í neyðaraðstoð vegna hamfaranna.
Ár liðið frá hamförunum í Mjanmar
Eitt ár er liðið frá því að hvirfilbylurinn Nargis reið yfir Mjanmar. UNICEF brást umsvifalaust við og hóf hjálparstarf fyrir nauðstödd börn og fjölskyldur þeirra. Þó svo að kastljós fjölmiðlanna hafi beinst annað er starfsfólk UNICEF enn að störfum í landinu þar sem það tekst daglega á við eftirmála hamrafaranna.
Samantekt um breytta stöðu barna á Íslandi
UNICEF á Íslandi hefur að undanförnu haft samband við aðila sem vinna að málefnum barna á Íslandi. Markmiðið var að kanna hvort farið sé að gæta áhrifa efnahagsþrenginganna sem Ísland gengur nú í gegnum á börn. Í kölfarið hefur UNICEF gert samantekt.
UNICEF fær 43,5 milljónir króna styrk frá Auroru
Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur úthlutað alls 111,5 milljónum króna í styrki til sex verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar. UNICEF fær úthlutað alls 40 milljónum til menntaverkefnis í Síerra Leóne og 3,5 milljónum til útvarpsverkefnis ungmenna í Mósambík.
UNICEF dreifir skólagögnum til barna á Gaza
UNICEF dreifir nú skólagögnum til þeirra hundruða barna sem streyma aftur í skólana á Gaza. Samtökin vinna hörðum höndum að því að koma á fót sérstökum svæðum þar sem börn geta fundið til öryggis og verndar. Þetta er allt gert til þess að koma lífi barna í sem eðlilegast horf á ný. Þú getur styrkt hjálparstarf UNICEF á Gaza með því að smella hér
Yfir 10.000 skólar í Sichuan urðu fyrir miklu tjóni
| Samkvæmt nýjum upplýsingum urðu yfir 10.000 skólabyggingar í Sichuan fyrir miklu tjóni í jarðskjálftanum sem reið yfir héraðið þann 12. maí síðastliðinn. Þar af eyðilögðust næstum 7.000 skólar gjörsamlega. UNICEF áætlar að fjöldi þeirra barna sem líða fyrir ástandið hlaupi á milljónum. | ![]() |
Tolli málar 100 hús fyrir UNICEF
| Listamaðurinn Tolli hefur á undanförnum vikum málað eitthundrað „skólabyggingar“ fyrir UNICEF. Þessi glæsilega húsaþyrping verður til sýnis í Saltfélaginu 18.-25. apríl. Húsin verða þá gefin UNICEF-verndurum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem greiða mánaðarlega til UNICEF. |
Bráðabirgðaskólar UNICEF í Kenía
| Þegar fjölskylda Yvonne flúði ofbeldið í þorpinu þeirra, missti hin átta ára gamla stúlka heimili sitt, dýrmætu plasthálsfestina sína, skólabúninginn sinn og skólastofuna. UNICEF vinnur nú að því að tryggja börnum bráðabirgðamenntun í tjaldskólum í Kenía. |
Tíðni barnadauða aldrei verið lægri – hægt að ná meiri árangri að mati UNICEF
| Í nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, The State of the World’s Children 2008, er lögð áhersla á leiðir til að draga úr þeim fjölda barna sem deyr fyrir fimm ára aldur. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Genf í dag, 22. janúar. (http://www.unicef.org/sowc08). | ![]() |
| Í kjölfar forsetakosninganna í Kenía 27. desember brutust út heiftarleg átök. Rekja má yfir 700 dauðsföll til ofbeldisverka eftir kosningarnar og yfir 250 þúsund manns eru nú á vergangi. UNICEF leiðir hjálparstarfið á sviði vatns,- hreinlætis,- og menntaverkefna og dreifir hjálpargögnum. |
Þróun í þágu barna - ný skýrsla UNICEF
| Í nýrri skýrslu sem gefin var út í vikunni af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna er að finna upplýsingar um hvernig þjóðum heims miðar að því að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan nefnist Progress for Children, eða Þróun í þágu barna. | ![]() |
Barnasáttmálinn verður fullorðinn
| Útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, verður 18 ára þriðjudaginn 20. nóvember. Af því tilefni mun UNICEF efna til málþings í Norræna húsinu á afmælisdaginn frá kl. 14.00 til 16.30. | ![]() |
UNICEF og Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) ætla í sameiningu að koma tugum þúsunda flóttabarna frá Írak aftur í skóla. Kostnaður við slíkt verkefni hljóðar upp á 129 milljónir dollara eða 8 milljarða íslenskra króna. Írösk börn hafa í stórum hópum þurft að flýja heimaland sitt, heimili og aðra fjölskyldumeðlimi, þau hafa mörg hver lent í sálrænum áföllum og misst úr námi meira og minna síðan stríðið hófst árið 2003.
Þrír skólar tóku þátt í tilraunaverkefni UNICEF nú í vor. Verkefnið ber yfirskriftina UNICEF-hreyfingin. UNICEF hreyfingunni er ætlað að koma til móts við þann áhuga á starfsemi UNICEF sem við hjá landsnefndinni höfum fundið hjá kennurum og skólabörnum.
Ný rannsókn á aðstæðum barna í Írak dregur upp nokkuð dökka mynd af lífi barna í landinu. Írösk börn þurfa að horfast í augu við aukið óöryggi í landinu þar sem jafnvel skólaganga getur falið í sér hættur. Fjöldi einstæðra mæðra hefur aukist vegna ofbeldisins og sömuleiðis fjöldi flóttafólks. Fyrstu niðurstöður rannsóknar yfirvalda í Írak og UNICEF benda til þess að aðstæður barna í landinu eru ekki góðar.
Í dag kynnir UNICEF skýrslu um velferð barna og ungmenna í þeim löndum sem eru efnahagslega best sett í heiminum, „An overview of child well-being in rich countries“. Í ljós kemur að heilsufar barna og ungmenna á Íslandi er gott og lendir Ísland í öðru sæti á eftir Svíum í þeim þætti skýrslunnar. Ísland er í meðallagi í menntamálum en athygli vekur að um 10% 15 ára ungmenna á Íslandi eru einmana og finnast þeir utangarðs í samfélaginu.
Fyrsti bekkur Nesskóla býr til rauð nef
Fyrsti bekkir Nesskóla Neskaupstað ákváðu í tilefni Dags rauða nefsins að fræðast um hvað dagurinn gengi út á. Nefnilega að gera góðverk og gefa til þeirra sem minna mega sín í þessum heimi. Börnin í Nesskóla fræddust um börnin í Afríku, skoðuðu myndir og kennararnir sögðu þeim frá því hvers vegna þessi dagur væri haldinn.
Tvær flugur í einu höggi - áhrifarík neyðaraðstoð í Líbanon
Verið er að veita mikla neyðaraðstoð í Líbanon og hefur UNICEF þróað nýjar og áhrifaríkar leiðir til að ná sem mestum árangri fyrir sem minnst fé. Strax eftir að sprengjuárásum Ísraela lauk hóf UNICEF að dreifa miðum og hengja upp veggspjöld sem miðuðu að því að fræða fólk um hvernig UXO-klasasprengjur líta út og hvernig á að bera sig að ef fólk finnur slíkar sprengjur.
Um þessar mundir eru íslensk börn að byrja í skóla á ný eftir sumarfrí. Í Líbanon er ástandið viðkvæmt en samkvæmt UNICEF liggur nú mikið við að skólastarf í Líbanon raskist sem minnst. UNICEF styrkir verkefni ríkisstjórnar Líbanon sem eiga að tryggja það að börn byrji í skólanum á réttum tíma.
Þurrkar ógna börnum í austurhluta Afríku
Á síðastliðnum árum hafa þurrkar í austurhluta Afríku sífellt versnað. Árið 2000 dóu tæplega 100.000 manns vegna þurrka í sama héraðinu. Meirihluti þeirra sem þurrkarnir hafa áhrif á eru hirðingjarnir og fjölskyldur þeirra sem flakka um löndin Sómalíu, Eþíópíu, Kenía, Djibouti og Erítreu í leit að æti fyrir hjarðir sínar.
UNICEF Ísland vekur athygli á nýrri heimildamynd Dúa J. Landmark um Vestur Afríkuríkið Gíneu-Bissá, menningu þess, stöðu barna og verkefni UNICEF. Myndin verður frumsýnd í Sjónvarpinu 11. apríl kl. 21:15 og endursýnd á Páskadag 16. apríl kl. 11:05. Myndin er mjög sláandi og sýnir vel hvernig fólk reynir að draga fram lífið þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Barnasáttmálinn kynntur í 6. bekk
UNICEF Ísland dreifir nú í annað sinn bæklingnum „Öll börn eiga rétt“ um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda og Námsgagnastofnun. Bæklingnum er dreift til allra 6. bekkinga á landinu og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur.
Vinningshafi Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi styrkir UNICEF
UNICEF Ísland barst óvæntur styrkur frá vinningshafa Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi, Hjalta Vigfússyni 12 ára, að upphæð 15 þúsund krónur. Er það UNICEF Ísland sérstaklega mikill heiður að veita þessum styrk móttöku þar sem Stóra upplestrarkeppnin vinnur að því að efla vitund og styrk ungmenna líkt og Barnahjálpin gerir víðsvegar um heiminn.
Ungmenni taka þátt í baráttunni gegn alnæmi
Samkvæmt tölum frá UNAIDS breiðist HIV hraðast út í Austur Asíu en á nokkru öðru svæði í heiminum. ,,Við erum á krossgötum á þessu svæði og til að bregðast við með öflugum hætti verður að taka tillit til barna og ungmenna og þau verða að taka þátt,” sagði svæðisstjóri UNICEF í Austur Asíu, Anupama Rao Singh, við opnun ráðstefnu um börn og HIV/alnæmi í Austur Asíu og Kyrrahafinu sem hófst í Hanoi í Víetnam í gær.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, var stofnuð í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1946 og fagnar því 60 ára afmæli sínu í ár. Á þessum áratugum hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn.
Skólar opna aftur á Fílabeinsströndinni
Ríkisstjórn Fílabeinsstrandarinnar hefur ákveðið að taka upp próf að nýju og mun það gera 80 þúsund nemum kleift að taka þau próf sem nauðsynleg eru til að halda áfram menntun sinni. Vegna mikilla óeirða í landinu hefur réttur barna til náms verið margbrotinn.
Flóðbylgjukynslóðin er vongóð um framtíðina
Börn í Indónesíu eiga hvað erfiðast uppdráttar eftir flóðbylgjuna og í þeim fjórum löndum sem tóku þátt í könnuninni hafa börn áhyggjur af öðrum jarðskjálfta og annarri flóðbylgju.
Einu ári eftir að flóðbylgjan breytti lífi þeirra á hörmulegan hátt eru börn á Indlandi, Sri Lanka og Taílandi vongóð um framtíðina, meðan börn í Indónesíu hafa þurft meiri tíma til þess að jafna sig.
Dúkkur Kvenfélagasambands Íslands og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú komnar í sölu bæði á Akureyri og Egilsstöðum. Þegar hefur nær helmingur af 800 dúkkum selst og því hafa safnast 2 milljónir króna sem mun hjálpa stúlkum í skóla í Gíneu-Bissá. Vegna fjölda eftirspurna var dúkkunum komið í sölu úti á landi.
Ár liðið frá hamförunum við Indlandshaf
Annan í jólum var eitt ár liðið frá flóðbylgjunni við Indlandshaf. Hamfarirnar sem fylgdu voru geigvænlegar og kölluðu á neyðaraðstoð af þeirri stærðargráðu sem engin dæmi voru fyrir. Ríkisstjórnir og einstaklingar um allan heim sýndu mikið örlæti og hjálparstofnanir eins og UNICEF fengu liðstyrk hvaðan æva að úr heiminum.
Þau börn sem njóta góðs af verkefnum UNICEF í Gíneu-Bissá voru þeirrar gæfu aðnjótandi fyrir nokkru að fá veglegan styrk frá þremur íslenskum fyrirtækjum, Baugi Group, FL Group og Fons. Eins og kunnugt er héldu styrktaraðilar okkar veislu þar sem boðsgestir gátu veitt styrki til verkefna UNICEF í þessu sjötta fátækasta ríki í heimi, Gíneu-Bissá.
Baugur Group, FL Group og Fons gefa 135 milljónir til menntaverkefnis í Gíneu-Bissá
Fyrirtækin Baugur Group, FL Group og Fons skrifuðu í morgun undir stærsta styrktarsamning fyrirtækja sem gerður hefur verið í þágu góðgerðarmála á Íslandi. Styrkurinn hljóðar upp á 135 milljónir króna og munu nær 100 þúsund börn í Gíneu-Bissá njóta góðs af styrknum, auk kennara, skóla og samfélagsins alls.
Pétur Björnsson styrkir verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá
Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri og eigandi Vífilfells, hefur veitt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Gíneu-Bissá 5 milljóna króna styrk. Fjárstuðningnum verður varið alfarið til verkefnis sem miðar að því að styrkja framleiðslu joðbætts salts í landinu og um leið veita stúlkum og ungum mæðrum menntun.
Þann 1. september 2004, fyrir ári síðan, réðust gíslatökumenn inn í skóla númer eitt í Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi. Tilhlökkun barna og foreldra við upphaf nýs skólaárs breyttist fljótt í martröð. Þremur dögum síðar voru yfir 170 börn látin ásamt hundruðum fullorðinna.
Skýrsla UNICEF eftir sex mánuði
Ný skýrsla UNICEF um neyðaraðgerðir- og þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum við Indlandshaf er komin út nú þegar 6 mánuðir eru liðnir frá atburðunum þar sem yfir 200 þúsund manns misstu lífið og sem skildu um 1,5 milljón börn eftir hjálparþurfi.
Mismunandi þarfir landanna við Indlandshaf
Hvert þeirra átta landa sem lentu í flóðbylgjunum við Indlandshaf hafa mismunandi þarfir, allt frá því að endurbyggja skóla til að koma á viðunandi vatns- og hreinlætiskerfi. UNICEF styrkir hvert land fyrir sig og fer eftir heildaráætlun hverrar ríkisstjórnar um uppbyggingu.
Samantekt á aðgerðum UNICEF í Asíu
Nú, þegar hálft ár er liðið frá hamförunum við Indlandshaf, gefst hjálparstofnunum tækifæri á að líta yfir árangur starfs síns og verkefnin framundan. UNICEF Ísland hefur þegar sent yfir 11,5 milljónir króna til hamfarasvæðanna af rúmlega 18 milljónum sem UNICEF Ísland hafði til ráðstöfunar frá Neyðarhjálp úr norðri.
Of mörg börn ganga ekki í skóla
Þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í menntun barna í þróunarlöndunum ganga of mörg börn ekki í skóla, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF. Skýrslan, sem nefnist „Progress for Children”, fjallar um jafnrétti kynjanna og grunnmenntun. Hún er samstarfsverkefni margra aðila innan alþjóðasamfélagsins sem vilja stuðla að því að menntun sé jafn aðgengileg stúlkum sem drengjum.
UNICEF vill tryggja öryggi barna í skólastofum í Nepal nú þegar nýtt skólaár er að hefjast þar í landi. Nýtt skólaár á að vera tækifæri til að tryggja það að ofbeldi og ótti verði ekki hluti af skólanáminu, segir fulltrúi UNICEF í Suður-Asíu.
Börnin komin í skólana og farin að brosa aftur
Hambantota er lítið fiskiþorp á suðurströnd Sri Lanka varð illa úti í hamförunum. Bærinn var eitt sinn þekktur fyrir fiski- og saltiðnað sinn, en flóðbylgjan eyðilagði byggingar, báta og bryggjur og lamaði þar með efnahag bæjarins. Þúsundir fjölskyldna eru nú án atvinnu. UNICEF hefur hrint af stað viðamiklu átaki í þessu svæði.
Yfirlitsgrein yfir starf UNICEF á hamfarasvæðunum
UNICEF starfar í öllum þeim löndum sem urðu verst úti í hamförunum og gat því strax hafið víðtæka neyðaraðstoð. UNICEF telur að a.m.k. einn þriðji hinna látnu hafi verið börn og að yfir 1,5 milljón barna séu nú hjálparþurfi. UNICEF gerir allt til að tryggja að þörfum barna sé mætt og að sú kynslóð sem lenti í hamförunum muni fá þá aðstoð sem á þarf að halda.
Börn hafa orðið illa úti í hamförunum í Asíu
Áætlað er að börn, sem þurfa á neyðaraðstoð að halda, séu nú um 1,5 milljónir. Mörg þeirra hafa misst foreldra sína eða hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar og þurfa nauðsynlega á umhyggju og stuðningi að halda. UNICEF áætlar að meira en einn þriðji þeirra sem létust í flóðunum hafi verið börn.
Nikola segir reynslusögu sína af jarðsprengjum
Milljónir jarðsprengna og annarra sprengjuleifa eftir stríðsátök víðs vegar um heim ógna öryggi barna. Börn slasast, deyja eða missa foreldra sína af völdum jarðsprengna löngu eftir að átök líða undir lok, samkvæmt heimildum frá UNICEF.
Menntamálaráðherra heimsækir vinnusmiðju UNICEF
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri heimsóttu UNICEF við lok vinnusmiðju í gerð einnar-mínútu-myndbanda. Þau 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum sem sóttu vinnusmiðjuna sýndu gestunum afrakstur vinnu sinnar og ræddu um þau málefni sem brenna mest á ungu fólki í dag.
Heimsókn í birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn
Hólmfríður Anna Baldursdóttir, starfsmaður UNICEF Ísland, heimsótti á dögunum landsnefnd UNICEF í Danmörku og birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn. Birgðastöðin, sem er 25 þúsund fermetrar, pakkar og sendir vörur til allra heimshorna fyrir UNICEF.
UNICEF styrkir skuldbindingu sína við börn í Írak
Eitt ár er nú liðið síðan mannskæð sprengjuárás var gerð á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad þar sem margir starfsmenn létu lífið, þar á meðal einn starfsmaður Barnahjálparinnar. UNICEF sendi frá sér tilkynningu í dag um að skuldbinding stofnunarinnar við hag barna í Írak væri sterkari en nokkru sinni.
Sumarbúðir UNICEF fyrir krakka á Vesturbakkanum og Gaza
Með stuðningi UNICEF hafa nú verið settar upp sumarbúðir fyrir krakka sem búa á Vesturbakkanum og á Gaza-svæðinu og þar með gefið um 17 þúsund stúlkum og drengjum tækifæri til að leika sér á ný.
Delta Kappa Gamma styrkir UNICEF og menntun stúlkna
Delta Kappa Gamma, samtök kvenna í ýmiskonar fræðslustörfum veittu UNICEF styrk á dögunum til þess að mennta ungar stúlkur í Vestur-Afríku. Ákveðið var að láta 100 þúsund krónur renna til þessa verkefnis núna en jafnframt munu hinar níu deildir samtakanna fá það verkefni að safna áfram til þessa verkefnis næstu vetur.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og tískukeðjan H&M tilkynntu samstarf sitt við að auka forvarnir gegn HIV og alnæmi og styðja menntun stúlkna. Fyrsta skref samstarfsins felur í sér 107 milljóna króna framlag H&M til þriggja ára verkefnis UNICEF í Kambódíu.
Á síðasta ári hafa 1,2 milljónir manna, helmingurinn af þeim börn, verið flæmd frá heimilum sínum í Darfur-héraði í Súdan. Þar til í febrúar 2004 var mannúðaraðstoð haldið niðri og átökin hafa síðan þá þróast í það sem Sameinuðu þjóðirnar kalla „versta neyðarástand í heiminum í dag“.