árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Beðið eftir fullgildinu alþjóðlegra sáttmála á Íslandi
Ný skýrsla UNICEF um viðbrögð stjórnvalda við mansali barna var kynnt sameiginlega á öllum Norðurlöndunum í dag. Í skýrslunni, Child Trafficking in the Nordic Countries: Rethinking strategies and national responses, kemur fram að aðgerðir gegn mansali geti verið of einangraðar sem hefur leitt til þess að mál sumra barna falli ekki inn í kerfið.
UNICEF fordæmir ofbeldi gegn jemenskum börnum
Að minnsta kosti 94 börn hafa látið lífið í átökum í Jemen síðan þau brutust út fyrr á þessu ári. Átökin bæta gráu ofaná svart fyrr börn í Jemen þar sem tíðni vannæringar barna var fyrir ein sú hæsta í heiminum. UNICEF harmar að ofbeldi skuli bitna á börnum.
Ný lög samþykkt gegn afskurði kynfæra stúlkna í Gíneu-Bissá
Stjórnvöld í Gíneu-Bissá gafa samþykkt algjört bann við afskurði kynfæra stúlkna í landinu. Nýju löginn eru mikið fagnaðarefni en þau koma í kjölfarið á umræðu sem staðið hefur yfir þarlendis undanfarin 16 ár. Stærsta áskorunin er þó eftir: Að tryggja að lögunum sé í raun fylgt.
Verulega dregið úr barnadauða á síðustu tveimur áratugum
Samkvæmt nýju mati UNICEF og WHO hefur þeim börnum yngri en fimm ára sem deyja árlega fækkað úr 12 milljónum í 7,6 milljónir á tímabilinu 1990 til 2010. Þetta þýðir að á síðasta ári dóu daglega 12.000 færri börn undir fimm ára aldri en árið 1990.
Ný skýrsla UNICEF: Ýmsar brotalamir í málefnum barna á Íslandi
Út er komin skýrsla á vegum UNICEF um stöðu barna á Íslandi. Er um viðamikið yfirlit að ræða og í fyrsta sinn sem heildstæð samantekt af þessu tagi er gerð um stöðu barna á Íslandi og þær ógnir sem að þeim steðja.
Stjórnlagaráð tekur tillit til athugasemda UNICEF
Svokölluð A-nefnd stjórnlagaráðs brást í vikunni við erindi UNICEF um réttindi barna í stjórnarskránni sem nú er unnið að því að skrifa. UNICEF sendi inn athugasemdir vegna þeirrar greinar sem snýr að börnum og tók ráðið tillit til þeirra. Tillögur voru kynntar í gær.
Skuggaskýrsla um stöðu barna á Íslandi - stjórnvöld fylgi áætlunum
UNICEF á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Barnaheill – Save the Children á Íslandi, hafa skrifað svokallaða skuggaskýrslu um stöðu barna á Íslandi með tilliti til ákvæða Barnasáttmála SÞ. Hún verður send nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Ýmissa úrbóta er þörf.
Fjárfesting í ungmennum getur rofið múra fátæktar
Mikilvægt er að auka fjárveitingar til málaflokka sem tengjast ungmennum á aldrinum 10-19 ára. Þannig er mögulegt að rjúfa múra fátæktar og ójafnræðis. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, SOWC 2011.
Verðlaunamynd um hrikaleg örlög barnahermanna í Úganda
Margverðlaunaða heimildarmyndin Stríðsbörnin, sem fjallar um barnahermenn í Úganda, verður sýnd í Bíó Paradís fimmtudaginn 10. febrúar kl. 20.00 að viðstöddum höfundi myndarinnar Bryan Single. Stríðsbörnin (www.childrenofwarfilm.com) er mynd um örlög barna sem hneppt hafa verið í ánauð sem hermenn.
Málþing um börn sem heltast úr lestinni í efnameiri löndum
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, stendur að málþingi um skýrsluna "The children left behind" eða „Börn skilin útundan“ í samstarfi við Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, þriðjudaginn 18. janúar kl. 12-13 í Odda stofu 201.
Ári eftir jarðskjálftann er enn þörf á grundvallarþjónustu fyrir börn á Haítí
Einu ári eftir að jarðskjálfinn mikli reið yfir Haítí þann 12. janúar þjást allt að 4 milljónir barna vegna lélegs aðgengis að vatni, hreinlæti, heilsugæslu og menntun. UNICEF minnist tímamótanna og fer yfir árangur hjálparstarfsins og þær miklu áskoranir sem framundan eru í skýrslu sinni „Children in Haiti: One Year After - The long road from relief to recovery”.
Tólf jemensk börn hafa látið lífið af völdum sprengna á þessu ári
Að minnsta kosti 12 börn létu lífið vegna sprengna í Jemen á þessu ári og hátt í 20 börn slösuðust alvarlega. Fyrr í mánuðinum slasaðist unglingspiltur þegar hann átti við jarðsprengju sem hann fann nálægt heimili sínu í Sa'ada héraði. Hann missti fjóra fingur
þegar sprengjan sprakk í höndunum á honum.
Ný skýrsla frá UNICEF á Íslandi um mansal
UNICEF áætlar að um 2.400 börn fari árlega frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Ný íslensk rannsókn varpar skýrara ljósi á umfang og eðli mansalsins og bendir á leiðir til úrbóta. Jónína Einarsdóttir, mannfræðingur, kynnir niðurstöður rannsóknarinnar á Jafnréttisdögum H.Í. þriðjud. 21. september, kl. 12-13, í Árnagarði 311.
Ný íslensk skýrsla um mansal í Gíneu-Bissá
UNICEF áætlar að á hverju ári fari fjöldi barna frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Skýrsla þessi byggist á rannsókn sem gerð var að ósk UNICEF í Gíneu-Bissá til að afla upplýsinga um ástæður, umfang og afleiðingar þessa og hvort um eiginlegt mansal barna sé að ræða.
Yfirlýsing frá framkvæmdastjóra UNICEF vegna réttarhalda yfir barnahermanni í Guantanamó-flóa
Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fyrirhugaðra réttarhalda yfir Omar Khadr sem var handtekinn og færður til Guantanamo-flóa vegna glæpa sem hann er sagður hafa framið 15 ára gamall.
Aðeins 40% íslenskra barna þekkja réttindi sín
Íslensk og dönsk ungmenni telja sig vita minnst um réttindi sín, en 40 prósent íslenskra ungmenna telja sig ekki þekkja þau, miðað við 68% finnskra barna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem byggir á könnun á viðhorfum 12-16 ára barna til réttinda og þátttöku. Efni skýrslunnar verður kynnt á hádegisfundi (kl. 12-13) í dag á Laugavegi 42.
Norræn könnun um réttindi barna til þátttöku
UNICEF á Íslandi mun halda hádegisfund á morgun, miðvikudaginn 21. apríl kl. 12-13, á skrifstofu samtakanna að Laugavegi 42, þar sem kynntar verða helstu niðurstöður könnunar sem gerð var meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund barna. Könnunin var gerð frá ágúst 2009 til febrúar 2010.
Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF, gaf út yfirlýsingu í dag vegna alþjóðlegs baráttudags kvenna, 8. mars. Hún segir m.a. frá heimsókn sinni í miðstöð fyrir stúlkur sem bjargað hefur verið frá vændi í Gvatemala. Dagurinn minnir okkur á að mikið verk er óunnið, ekki síst við að tryggja stúlkum og konum vernd gegn ofbeldi og mistnokun.
Árleg skýrsla UNICEF tileinkuð Barnasáttmálnum
Sérstök útgáfa árlegrar skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum (e. The State of the World's Children) er kynnt í dag. Í skýrslunni er sérstaklega fjallað um áhrif Barnasáttála Sameinuðu þjóðanna og þær áskoranir sem enn standa í vegi fyrir að réttindi barna séu uppfyllt
Margt á döfinni vegna 20 ára afmælis Barnasáttmálans
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna verður 20 ára föstudaginn 20. nóvember. Í tilefni af tímamótunum hafa ungmennaráð umboðsmanns barna, Barnaheilla og UNICEF sameinað krafta sína og munu halda mikilvægi sáttmálans á lofti með fjölbreyttum hætti vikuna 15. til 20. nóvember.
Velgjörðasendiherrar UNICEF tala fyrir réttindum barna
| Velgjörðasendiherrar UNICEF hafa tekið höndum saman í tilefni 20 ára afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og koma fram í myndböndum sem ætlað er að draga athygli að þessum merka áfanga í réttindum barna. |
![]() |
Fjallað um kynferðisofbeldi í Austur-Kongó í Speglinum
Í útvarpsþættinum Speglinum á Rás 2 í gær var talað við hjónin Pál Ásgeir Davíðsson og Bergljótu Arnalds en þau dvöldu í Austur-Kongó í hittifyrra. Þar heyrðu þau m.a. átakanlegar sögur þolenda frá fyrstu hendi og kynntust öflugu starfi UNICEF.
Útvarpsþáttur ungmenna um Barnasáttmálann
Ungmenni hvaðanæva að af landinu munu næstu 12 fimmtudaga fjalla um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í nýjum útvarpsþáttum sem hefja göngu sína á Rás 1 á morgun. Í ár er þvi fagnað að tuttugu ár eru frá því að þessi mikilvægi mannréttindasáttmáli var samþykktur.
Í síðustu viku minntist UNICEF dags afrískra barna. Um leið fögnuðu samtökin þeim mikla árangri sem náðst hefur í að bæta lífsafkomu barna í fjölda Afríkulanda á undangengnum árum – þó gríðarlegt verk sé enn óunnið.
Hönnuðu boli til styrktar UNICEF
Sjö ungmenni tóku sig til á dögunum og hönnuðu boli til styrktar UNICEF. Innblástur hönnunarinnar sóttu þau til þriggja af greinum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Er óhætt að segja að mjög vel hafi tekist til hjá þessum ungu og upprennandi hönnuðum.
Málþing: Þrælkun eða þroskandi vinna?
Laugardaginn 9. maí nk. kl. 10-13 verður haldið málþing í Þjóðminjasafni Íslands um vinnu barna. Málþingið er haldið á vegum Þjóðminjasafnsins og UNICEF á Íslandi í tengslum við sýninguna Þrælkun, þroski, þrá? sem nú stendur yfir í safninu.
Ár liðið frá hamförunum í Mjanmar
Eitt ár er liðið frá því að hvirfilbylurinn Nargis reið yfir Mjanmar. UNICEF brást umsvifalaust við og hóf hjálparstarf fyrir nauðstödd börn og fjölskyldur þeirra. Þó svo að kastljós fjölmiðlanna hafi beinst annað er starfsfólk UNICEF enn að störfum í landinu þar sem það tekst daglega á við eftirmála hamrafaranna.
Hundrað þúsund óbreyttir borgarar á flótta í Sri Lanka
Um hundrað þúsund óbreyttir borgarar, þar af þriðjungur börn, hafa flúið undan sókn stjórnarhers Sri Lanka inn á eina svæðið sem enn er undir stjórn skæruliða Tamíl-tígranna. Tugir þúsunda eru innikróaðir á átakasvæðinu.
Réttindaganga og áheitahlaup á sumardaginn fyrsta
Fjölmenni verður á Miklatúni á sumardaginn fyrsta þegar börn og unglingar frá frístundamiðstöðinni Kampi safnast saman og hlaupa til stuðnings UNICEF auk þess að minna á réttindi sín.
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið
| Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er nú lokið, en hún fór fram á Ísafirði, Egilsstöðum og í Reykjavík. Verkefnið var unnið af UNICEF í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Haldnar voru þriggja daga vinnusmiðjur þar sem ungt fólk lærði að vinna í fjölmiðlum og búa til fréttir og annað efni sem svo var birt eða flutt í viðkomandi samstarfsmiðlum. | ![]() |
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Egilsstöðum
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins, sem miðar að því að hvetja ungt fólk til þátttöku og virkni í samfélaginu, verður haldin á Egilsstöðum dagana 16.-18. apríl. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er öllum ungmennum í 8.-10. bekk opin. Sækja um hér
Ungir fréttaritarar útskrifast í Reykjavík
Alls luku 17 ungmenni fréttaritaraþjálfun unga fólksins í Reykjavík um síðustu helgi. Framleidd voru tvö innslög fyrir útvarp og tvær blaðagreinar. Því miður reyndist ekki unnt að fá inn nógu margar umsóknir í fréttaritaraþjálfun á Akureyri sem átti að vera nú um næstu helgi, þannig að henni hefur verið aflýst. Næsta þjálfun er á Egilsstöðum 16.-18. apríl. Sækja um hér.
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins í Reykjavík
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins verður haldin í Reykjavík dagana 26.-28. mars á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið og fá þátttakendur efni birt eða útvarpað í þeim miðlum. Gert er ráð fyrir fimmtudegi og föstudegi frá kl. 17 til 20, og laugardegi kl. 11 til 13. Sækja um hér
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið á Ísafirði
Um helgina luku 19 manns fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Ísafirði með glans. Þau framleiddu þrjú innslög fyrir útvarp og þrjár greinar fyrir Morgunblaðið, þar af hefur ein þegar birst. Sjá hér. Nú er tekið við umsóknum í næstu fréttaritaraþjálfun sem haldin verður í Reykjavík dagana 26.-28. mars. Sækja um hér
Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna yrði lögfestur á Íslandi. Ísland og Noregur verða þá einu löndin sem lögfest hafa sáttmálann, þó að flest lönd heims hafi staðfest hann. Í framhaldinu fer fram endurskoðun á barnaverndarlögum með sáttmálann í huga.
Barnasáttmáli S.þ. lögfestur á Íslandi?
Næstkomandi mánudag mun fara fram atkvæðagreiðsla á alþingi um þingsályktunartillögu sem fjallar um lögfestingu Barnasáttmálans. UNICEF á Íslandi fagnar þessu. M.a. er lagt til að frumvarp til laga verði sett fram fyrir 20. nóvember 2009, en þá verða liðin 20 ár síðan hann var fyrst samþykktur á allsherjarþingi S.þ.
Samantekt um breytta stöðu barna á Íslandi
UNICEF á Íslandi hefur að undanförnu haft samband við aðila sem vinna að málefnum barna á Íslandi. Markmiðið var að kanna hvort farið sé að gæta áhrifa efnahagsþrenginganna sem Ísland gengur nú í gegnum á börn. Í kölfarið hefur UNICEF gert samantekt.
Fréttaritaraþjálfun á Ísafirði - skráning stendur yfir
Skráning ungs fólks í fréttaritaraþjálfun UNICEF stendur nú sem hæst. Tekið er við umsóknum til 11. mars í þjálfunina á Ísafirði, en til 24. mars í Reykjavík. Hámarksfjöldi þátttakenda er 30 manns. Þjálfunin verður haldin á Akureyri og Egilsstöðum í apríl. Ísafjarðarbær styrkir verkefnið um 30 þúsund krónur, auk þess sem öll aðstaða er útveguð af bænum.
Fréttaritaraþjálfun fyrir ungt fólk á Íslandi hefst
Fréttaritaraþjálfun ungmenna um allt land ýtt úr vör í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. UNICEF á Íslandi og Ríkisútvarpið undirrita samstarfsyfirlýsingu með það að markmiði að hvetja börn og ungmenna til að koma skoðunum sínum á framfæri. Þjálfunin og önnur verkefni eru framkvæmd í tilefni 20 ára afmæli Barnasáttmálans í ár.
Næstkomandi sunnudag, 1. mars, fagnar UNICEF Heimsdegi barna í fjölmiðlum (e. International Children's Day of Broadcasting) en á þeim degi hvetja samtökin alla fjölmiðla að leyfa röddum barna og ungmenna að heyrast. Í ár mun Ríkisútvarpið - Rás 1 og 2 - helga daginn börnum. Sjá á www.ruv.is. UNICEF hvetur alla til að leggja við hlustir!
Stöðvum umskurð á kynfærum kvenna
Í dag er alþjóðadagur gegn umskurði á kynfærum kvenna og í tilefni þess kallar UNICEF eftir meiri aðgerðum til að stöðva megi þetta ofbeldi gagnvart stúlkubörnum. ,,70 milljónir stúlkna og kvenna sem eru lifandi í dag hafa verið umskornar," sagði Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF.
Samráðsfundur um starf ungmennaráða
| Miðvikudaginn 26. nóvember var haldinn í fyrsta skipti á landsvísu samráðsfundur um stofnun og starf ungmennaráða. UNICEF á Íslandi, Akureyrarbær og Íþrótta og tómstundaráð Reykjavíkur stóðu fyrir fundinum sem haldinn var á Akureyri. |
|
Heimsþing gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum
| Um 3000 þátttakendur frá yfir 125 löndum koma saman á heimsþingi í Rio de Janeiro í Brasilíu dagana 25.-28. nóvember til að deila reynslu sinni og hugmyndum í baráttunni gegn kynferðislegri misnotkun á börnum. |
|
Ungir leiðtogar frá öllum heimshornum sameinast fyrir J8 fundinn
| Á morgun mun ungt fólk frá öllum G8 löndunum og þróunarlöndum hefja fjórða árlega „Junior 8“ fundinn í Chitose í Japan. Málefnin, sem tekin verða fyrir, eru svipuð þeim sem leiðtogar G8 munu taka fyrir á fundi sínum í næstu viku í Japan. | ![]() |
Útgáfa á veggspjöldum með ákvæðum Barnasáttmálans
| Umboðsmaður barna, Barnaheill og UNICEF á Íslandi hafa gefið út tvö veggspjöld með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í styttri útgáfu. Veggspjöldin eru ætluð til notkunar í skólastarfi. |
Barnasáttmálinn verður fullorðinn
| Útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, verður 18 ára þriðjudaginn 20. nóvember. Af því tilefni mun UNICEF efna til málþings í Norræna húsinu á afmælisdaginn frá kl. 14.00 til 16.30. | ![]() |
UNICEF stendur fyrir opnum fundi með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne
Mánudaginn 24. september stendur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir opnum hádegisfundi í Iðnó með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne. Þar mun Ishmael lesa upp úr bók sinni Um langan veg: frásögn herdrengs og fjalla um reynslu sína af borgarastyrjöldinni í Síerra Leóne. Fundurinn stendur frá 12:10 til 13:10
Íslenska ríkið styður verkefni UNICEF um að koma íröskum börnum aftur í skóla
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita 10 milljónum króna til sameiginlegs átaks Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og UNICEF til aðstoðar börnum sem eru meðal íraskra flóttamanna í Sýrlandi, Jórdaníu, Egyptalandi og Líbanon. Áætlað er að meðal íraskra flóttamanna sé um hálf milljón barna á skólaaldri sem hafa lítinn sem engann aðgang að menntun.
UNICEF og Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) ætla í sameiningu að koma tugum þúsunda flóttabarna frá Írak aftur í skóla. Kostnaður við slíkt verkefni hljóðar upp á 129 milljónir dollara eða 8 milljarða íslenskra króna. Írösk börn hafa í stórum hópum þurft að flýja heimaland sitt, heimili og aðra fjölskyldumeðlimi, þau hafa mörg hver lent í sálrænum áföllum og misst úr námi meira og minna síðan stríðið hófst árið 2003.
Átak gegn stífkrampa stendur yfir í Gíneu-Bissá
Átak gegn stífkrampa stendur nú yfir í fyrsta skipti í Gíneu-Bissá. Ætlunin er að útrýma stífkrampa í mæðrum og nýfæddum börnum. Forsætisráðherra landsins hrinti átakinu af stað um helgina. Um 330 þúsund stúlkur og konur frá 15 til 49 ára verða bólusettar þökk sé stuðningi frá UNICEF.
UNICEF í Kambódíu starfar náið með afskekktum samfélögum á landsbyggðinni við að byggja leikskóla sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu. Aðeins 14% af börnum í Kambódíu á aldrinum 3 til 5 ára fara í leikskóla. Hlutfallið er minna úti á landsbyggðinni.
Niðurstöður úr skýrslu UNICEF um hag barna á Vesturlöndum
Í vefriti menntamálaráðuneytisins er vakin athygli á því að niðurstaða um framtíðarstarfsvæntingar ungmenna hér á landi í nýrri skýrslu UNICEF um hag barna í ríku löndunum er ekki í samræmi við nýjustu kannanir sem gerðar hafa verið hér á landi. Þess ber að geta að UNICEF styðst við eldri kannanir en þær nýjustu sem hafa verið gerðar hérlendis.
Eflum vald kvenna til hjálpar börnum
Ný skýrla um aðstæður barna um allan heim. Samkvæmt skýrslunni leiðir jafnrétti kynjanna til „tvöfalds arðs“ fyrir bæði konur og börn og er nauðsynlegt fyrir heilbrigði og þróun fjölskyldna, samfélaga og þjóða.
Valgerður Sverrisdóttir heimsækir birgðastöð UNICEF
Á dögunum heimsótti Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, birgðastöð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn þar sem hún kynnti sér hvernig UNICEF pakkar og sendir hjálpargögn til barna um allan heim.
Um þessar mundir eru íslensk börn að byrja í skóla á ný eftir sumarfrí. Í Líbanon er ástandið viðkvæmt en samkvæmt UNICEF liggur nú mikið við að skólastarf í Líbanon raskist sem minnst. UNICEF styrkir verkefni ríkisstjórnar Líbanon sem eiga að tryggja það að börn byrji í skólanum á réttum tíma.
Barnasáttmálinn kynntur í 6. bekk
UNICEF Ísland dreifir nú í annað sinn bæklingnum „Öll börn eiga rétt“ um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda og Námsgagnastofnun. Bæklingnum er dreift til allra 6. bekkinga á landinu og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, var stofnuð í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1946 og fagnar því 60 ára afmæli sínu í ár. Á þessum áratugum hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn.
Skólar opna aftur á Fílabeinsströndinni
Ríkisstjórn Fílabeinsstrandarinnar hefur ákveðið að taka upp próf að nýju og mun það gera 80 þúsund nemum kleift að taka þau próf sem nauðsynleg eru til að halda áfram menntun sinni. Vegna mikilla óeirða í landinu hefur réttur barna til náms verið margbrotinn.
Bindum endi á misnotkun barna í Simbabve
Eftir fréttir þess efnis að skólastjóri hafi verið kærður vegna ásakana um hafa nauðgað sex nemendum í barnaskóla hefur UNICEF brugðist harkalega við og hafið herför gegn misnotkun barna í Simbabve. UNICEF telur það mjög alvarlegt að kynferðisofbeldi og önnur misnotkun á börnum hafi aukist í Simbabve.
Á jaðri samfélagsins - hundruð milljónir barna eru ósýnileg umheiminum
Hundruð milljónir barna þjást vegna mikillar misnotkunar og kúgunar og eru beinlínis ósýnileg gagnvart umheiminum, sagði UNICEF í dag í tengslum við kynningu á skýrslunni. Þema skýrslunnar í ár eru börn sem standa utan við samfélagið, eru ekki sýnileg umheiminum og er þar af leiðandi sérstaklega erfitt að ná til.
Börn og ungmenni leggja tillögur sínar fram við G8
Eftirfarandi eru niðurstöður C8-fundar UNICEF sem lauk í gær 5. júlí í Dunblane, Skotlandi. Fulltrúarnir, sem margir hafa reynslu af mikilli fátækt, HIV/alnæmi, stríði og vinnuþrælkun, voru 17 ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára frá þróunarlöndum og G8-ríkjum. Niðurstöðurnar voru kynntar í gær og afhendar fulltrúm G8 fundarins.
Um þessar mundir fer fram fyrsti C8-fundur UNICEF í Dunblane, Skotlandi, en hann hófst 3. júlí og stendur til 5. júlí, rétt áður en leiðtogar G8 ríkjanna hittast. Á fundinum munu ungmenni, undir 18 ára, frá átta af fátækustu ríkjum í heimi – Bútan, Kambódíu, Moldavíu, Jemen, Gíneu, Síerra-leone, Lesótó og Bólivíu, koma saman ásamt ungmennum frá nokkrum G8 ríkjum – Rússlandi, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og Bretlandi.
Baugur Group, Sirkus og UNICEF á Íslandi verða í samstarfi í tengslum við Live8-útsendinguna hér á landi 2. júlí nk. Á meðan fólk um allan heim safnast saman til að láta sig misskiptingu heimsins varða, eru Íslendingar hvattir til að gerast heimsforeldrar og þannig hafa áhrif á líf barna sem hafa ekki sama aðgang að lífsgæðum og við.
Of mörg börn ganga ekki í skóla
Þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í menntun barna í þróunarlöndunum ganga of mörg börn ekki í skóla, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF. Skýrslan, sem nefnist „Progress for Children”, fjallar um jafnrétti kynjanna og grunnmenntun. Hún er samstarfsverkefni margra aðila innan alþjóðasamfélagsins sem vilja stuðla að því að menntun sé jafn aðgengileg stúlkum sem drengjum.
UNICEF vill tryggja öryggi barna í skólastofum í Nepal nú þegar nýtt skólaár er að hefjast þar í landi. Nýtt skólaár á að vera tækifæri til að tryggja það að ofbeldi og ótti verði ekki hluti af skólanáminu, segir fulltrúi UNICEF í Suður-Asíu.
Harry Belafonte sendir Íslendingum kveðjur
Stórsöngvarinn og velgjörðarsendiherra UNICEF, Harry Belafonte, mun senda Íslendingum bréf sem fylgir Morgunblaðinu miðvikudaginn, 15. mars. Harry Belafonte kom til landsins á vegum UNICEF Ísland í nóvember síðastliðnum í þeim tilgangi að hvetja fólk til að gerast heimsforeldrar og láta sig málefni barna varða.
Laugardaginn 12. mars fagnaði landsnefnd UNICEF á Íslandi eins árs afmæli sínu. Af því tilefni var slegið upp barnaafmæli í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Skaftahlíð 24. Boðið var upp á barnaafmælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu frumskógum Afríku. Barnakór Ísaksskóla söng afmælissönginn, Hótel jörð og lag úr Línu Langsokk.
Um 246 milljónir barna í vinnuþrælkun
Í dag kynnti landsnefnd UNICEF á Bretlandi nýja skýrslu sína um barnaþrælkun, en samkvæmt henni eru 246 milljónir barna í ánauð vinnuþrælkunar í dag. Börn, allt niður í fimm ára gömul, eru svift frelsinu sem fylgir barnæskunni og þeim grundvallarréttindum sem öll börn eiga að hafa eins og t.d. að ganga í skóla.
Börnin komin í skólana og farin að brosa aftur
Hambantota er lítið fiskiþorp á suðurströnd Sri Lanka varð illa úti í hamförunum. Bærinn var eitt sinn þekktur fyrir fiski- og saltiðnað sinn, en flóðbylgjan eyðilagði byggingar, báta og bryggjur og lamaði þar með efnahag bæjarins. Þúsundir fjölskyldna eru nú án atvinnu. UNICEF hefur hrint af stað viðamiklu átaki í þessu svæði.
Aðgerða krafist við að bjarga börnunum frá misnotkun
Þörf er á tafarlausum aðgerðum á flóðasvæðunum ef bjarga á börnunum frá misnotkun, vændi og ofbeldi, og til að koma í veg fyrir að þau gleymist, samkvæmt fréttum frá aðalstöðvum UNICEF þann 8. janúar. UNICEF skipuleggur lykilaðgerðir sem nauðsynlegar eru til að vernda munaðarleysingja og önnur börn.
Yfirlitsgrein yfir starf UNICEF á hamfarasvæðunum
UNICEF starfar í öllum þeim löndum sem urðu verst úti í hamförunum og gat því strax hafið víðtæka neyðaraðstoð. UNICEF telur að a.m.k. einn þriðji hinna látnu hafi verið börn og að yfir 1,5 milljón barna séu nú hjálparþurfi. UNICEF gerir allt til að tryggja að þörfum barna sé mætt og að sú kynslóð sem lenti í hamförunum muni fá þá aðstoð sem á þarf að halda.
The State of the World’s Children skýrslan 2005
Barnæska er hörmuleg lífsreynsla fyrir helming barna á jörðinni – Þessi mikilvægu ár eru eyðilögð vegna fátæktar, stríðsátaka og HIV/alnæmis. Þrátt fyrir að það sé nær algilt að vilja vernda börn og æskuárin, þá sýnir ný skýrsla UNICEF að meira en helmingur barna heimsins þjáist vegna fátæktar, stríðsátaka og HIV/alnæmis.
Heimildamyndir á Íslandi til úrslita
lok október komu 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum til að taka þátt í einnar-mínútu-myndbanda-vinnustofu sem UNICEF Ísland hélt, með stuðningi menntamálaráðuneytisins. Slíkar vinnusmiðjur eru haldnar um alla Evrópu og í nóvember ár hvert er haldin samkeppni milli einnar mínútu myndbandanna í Hollandi.
Harry Belafonte a leid til landsins
Í tilefni af 15 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og heimsforeldraátaki UNICEF Ísland mun velgjörðarsendiherra UNICEF og stórsöngvarinn Harry Belafonte heimsækja landið 18.-21. nóvember. Belafonte var skipaður velgjörðarsendiherra UNICEF þann 4. mars 1987.
Leikmenn Manchester Utd tala fyrir hönd barna í herferð UNICEF
Stjörnuleikmenn Manchester United fótboltafélagsins og framkvæmdastjóri þeirra ljá málefnum barna rödd sína í nýrri sjónvarpsherferð UNICEF. Hin 30 sekúndna löngu myndskilaboð hvetja almenning til þess að styðja við starf UNICEF í baráttunni gegn HIV/alnæmi, mansali og misnotkun barna og stuðningi við menntun stúlkna.
Velgjörðasendiherra UNICEF Harry Belafonte
Velgjörðarsendiherra UNICEF Harry Belafonte sést hér umkringdur börnum í Senegal, en hann fór þangað fyrr á árinu til að hjálpa UNICEF að vekja athygli á mikilvægi þess að skrá öll börn.
Vinnusmiðja í gerð einnar-mínútu myndbanda hefst á Íslandi
Tuttugu ungmenni frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi eru samankomin í Reykjavík til þess að vinna að framleiðslu einnar-mínútu myndbanda um lýðræði og þátttöku ungs fólks í samfélaginu. UNICEF Ísland og menntamálaráðuneytið standa fyrir vinnusmiðjunni sem stendur yfir þar til á fimmtudaginn 21. október.
Framkvæmdastjóri UNICEF heimsækir fyrrverandi barnahermenn
Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, er nú í heimsókn í Líberíu. Hún mun heimsækja Jah Tondo-búðirnar fyrir fólk sem hefur flosnað frá heimilum sínum og Don Bosco-áfangaheimilið fyrir börn sem hafa verið neydd til hermennsku.
Sumarbúðir UNICEF fyrir krakka á Vesturbakkanum og Gaza
Með stuðningi UNICEF hafa nú verið settar upp sumarbúðir fyrir krakka sem búa á Vesturbakkanum og á Gaza-svæðinu og þar með gefið um 17 þúsund stúlkum og drengjum tækifæri til að leika sér á ný.
UNICEF vakti í dag athygli á eymd þúsunda barna sem hafa verið rænd frá heimilum sínum af uppreisnarhernum, LRA, í Norður-Úganda og gerð að stríðsmönnum og kynlífsþrælum. Þessi harmleikur hefur afmáð hugmyndina um áhyggjulausa og frjálsa barnæsku í huga þúsunda barna og unglinga í Úganda.