þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.
Þú ert hér:
Beðið eftir fullgildinu alþjóðlegra sáttmála á Íslandi
Ný skýrsla UNICEF um viðbrögð stjórnvalda við mansali barna var kynnt sameiginlega á öllum Norðurlöndunum í dag. Í skýrslunni, Child Trafficking in the Nordic Countries: Rethinking strategies and national responses, kemur fram að aðgerðir gegn mansali geti verið of einangraðar sem hefur leitt til þess að mál sumra barna falli ekki inn í kerfið.
UNICEF biður um fjármagn til þess að veita börnum neyðarhjálp
Í dag kallar UNICEF eftir 1,28 milljörðum Bandríkjadala, 157 milljörðum króna, til að fjármagna neyðarhjálp í ár en í því felst að koma börnum í yfir 25 löndum til hjálpar. UNICEF birti í dag skýrslu sína, Humanitarian Action Report, en þar er þörfin í ólíkum löndum greind og farið yfir hvaða leiðir UNICEF telur færar til hjálpar.
Tvö ár frá skjálfta: Ástandið á Haítí smám saman breyst til batnaðar
Tveimur árum eftir jarðskjálftann mikla á Haítí 12. janúar 2010 hefur staða barna í landinu smám saman breyst til batnaðar. Ríkið er enn veikburða, margvíslegar áskoranir eru framundan og fátækt í landinu mikil en þýðingarmikla sigra er víða að finna. Í dag kynnir UNICEF skýrslu um stöðuna á Haítí.
Ógnir gegn börnum á netinu: Ný skýrsla frá UNICEF
Ný skýrsla frá rannsóknamiðstöð UNICEF sýnir að netið hefur aukið umfang kynferðisofbeldis gegn börnum og getuna til að valda skaða. Skýrslan var kynnt í dag og meðal þess sem í henni kemur fram er að börn þurfa vernd gegn því sem kallað er „þríhöfða þurs“.
Líf og fjör á Austurvelli: Salvör Nordal fékk fyrstu skýrsluna afhenda
Það var líf og fjör á Austurvelli í hádeginu þegar fulltrúar úr stjórnlagaráði voru ausnir hugmyndum frá ungmennum - í orðsins fyllstu merkingu! Salvör Nordal tók við skýrslu með niðurstöðum af þingi ungmennaráða sem haldið var í vor.
Mikil umfjöllun um skýrslu UNICEF um stöðu barna á Íslandi
Skýrsla UNICEF um stöðu barna á Íslandi hefur fengið mikla athygli og jákvæðar undirtektir. Í leiðara Fréttablaðsins var m.a. bent á að því bæri að fagna þegar teknar væru saman og birtar upplýsingar sem gæfu mynd af stöðu barna.
Ársfundur fór vel fram: Ársskýrsla kynnt og skýrsla um stöðu barna
Ársfundur UNICEF á Íslandi fór fram í gær og var þar farið yfir starfið árið 2010. Á fundinum var ársskýrsla UNICEF kynnt og ný skýrsla um stöðu barna á Íslandi. Á aðalfundi var Svanhildur Konráðsdóttir endurkjörin stjórnarformaður.
Ný skýrsla UNICEF: Ýmsar brotalamir í málefnum barna á Íslandi
Út er komin skýrsla á vegum UNICEF um stöðu barna á Íslandi. Er um viðamikið yfirlit að ræða og í fyrsta sinn sem heildstæð samantekt af þessu tagi er gerð um stöðu barna á Íslandi og þær ógnir sem að þeim steðja.
Ársfundur UNICEF á Íslandi í dag: Ný skýrsla um íslensk börn kynnt
Ársfundur UNICEF á Íslandi verður haldinn í dag, fimmtudag klukkan 17.00 í Þjóðminjasafni Íslands. Farið verður yfir starf samtakanna árið 2010 en auk þess verður heildræn skýrsla um stöðu barna á Íslandi kynnt á fundinum.
Skuggaskýrsla um stöðu barna á Íslandi - stjórnvöld fylgi áætlunum
UNICEF á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Barnaheill – Save the Children á Íslandi, hafa skrifað svokallaða skuggaskýrslu um stöðu barna á Íslandi með tilliti til ákvæða Barnasáttmála SÞ. Hún verður send nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Ýmissa úrbóta er þörf.
Fjárfesting í ungmennum getur rofið múra fátæktar
Mikilvægt er að auka fjárveitingar til málaflokka sem tengjast ungmennum á aldrinum 10-19 ára. Þannig er mögulegt að rjúfa múra fátæktar og ójafnræðis. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, SOWC 2011.
Málþing um börn sem heltast úr lestinni í efnameiri löndum
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, stendur að málþingi um skýrsluna "The children left behind" eða „Börn skilin útundan“ í samstarfi við Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, þriðjudaginn 18. janúar kl. 12-13 í Odda stofu 201.
Retro Stefson með lag Dags rauða nefsins í ár
Lag Dags rauða nefsins í ár er í flutningi hinnar stórskemmtilegu og fjölhæfu hljómsveitar Retro Stefson. Lagið heitir einfaldlega Dagur rauða nefsins og hefur m.a. að geyma smellna tóna og barnakór.
Aðgengi að HIV þjónustu eykst á alþjóðavísu
Aðgengi að HIV þjónustu hefur aukist í lág- og meðaltekjulöndum, samkvæmt nýrri skýrslu sem kynnt var í gær. Skýrslan, Towards Universal Access, er gefin út af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), UNICEF og UNAIDS.
Oddi styður UNICEF til góðra verka
Í dag skrifuðu Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF, og Arnar Árnason, markaðsstjóri Prentsmiðjunnar Odda, undir samstarfssamning sem felst í að Oddi styrkir Barnahjálpina með því að veita veglegan afslátt af allri hönnun og prentun á fræðslu- og kynningarefni ásamt prentun á jólakortum Barnahjálparinnar.
Ný skýrsla frá UNICEF á Íslandi um mansal
UNICEF áætlar að um 2.400 börn fari árlega frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Ný íslensk rannsókn varpar skýrara ljósi á umfang og eðli mansalsins og bendir á leiðir til úrbóta. Jónína Einarsdóttir, mannfræðingur, kynnir niðurstöður rannsóknarinnar á Jafnréttisdögum H.Í. þriðjud. 21. september, kl. 12-13, í Árnagarði 311.
Barnadauði lækkar um þriðjung frá árinu 1990
Nýjustu áætlanir Sameinuðu þjóðanna á barnadauða benda til að færri börn deyi fyrir fimm ára aldur í dag en árið 1990.Samkvæmt þessum áætlunum hefur dregið úr barnadauða (undir 5 ára) um allan heim frá 12,4 milljónum árið 1990 til 8,1 milljón á árinu 2009.
Ný rannsókn sýnir að fjármagn nýtist betur ef lögð er áhersla á þá fátækustu
Alþjóðsamfélagið getur komið milljónum til hjálpar með því að fjárfesta fyrst og fremst í þeim börnum og samfélögum sem minnst mega sín, samkvæmt nýrri rannsókn UNICEF sem kemur út í dag.
Ungmenni Austur-Evrópu og Mið-Asíu upplifa skömm og útskúfun
HIV veirunni er líkt við neðanjarðar farsótt í Austur-Evrópu og Mið-Asíu samkvæmt nýrri skýrslu sem UNICEF kynnir í dag. Veiran breiðist hratt út og er eiturlyfjaneysla, áhættusöm kynhegðun og neikvæður félagslegur stimpill sem fylgir því að sækja sér ráðgjöf og meðferð, eins og bensín á bálið.
Ný íslensk skýrsla um mansal í Gíneu-Bissá
UNICEF áætlar að á hverju ári fari fjöldi barna frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Skýrsla þessi byggist á rannsókn sem gerð var að ósk UNICEF í Gíneu-Bissá til að afla upplýsinga um ástæður, umfang og afleiðingar þessa og hvort um eiginlegt mansal barna sé að ræða.
Dregur úr dauðsföllum vegna malaríu
Mikill árangur hefur náðst á síðustu árum í báráttunni gegn malaríu, ekki síst í sunnanverðri Afríku. Í stað þess að sjúkdómurinn valdi dauða afrísks barns á þrjátíu sekúndna fresti, eins og verið hefur um árabil, er nú nær að tala um 40-45 sekúndur.
Aðeins 40% íslenskra barna þekkja réttindi sín
Íslensk og dönsk ungmenni telja sig vita minnst um réttindi sín, en 40 prósent íslenskra ungmenna telja sig ekki þekkja þau, miðað við 68% finnskra barna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem byggir á könnun á viðhorfum 12-16 ára barna til réttinda og þátttöku. Efni skýrslunnar verður kynnt á hádegisfundi (kl. 12-13) í dag á Laugavegi 42.
Norræn könnun um réttindi barna til þátttöku
UNICEF á Íslandi mun halda hádegisfund á morgun, miðvikudaginn 21. apríl kl. 12-13, á skrifstofu samtakanna að Laugavegi 42, þar sem kynntar verða helstu niðurstöður könnunar sem gerð var meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund barna. Könnunin var gerð frá ágúst 2009 til febrúar 2010.
UNICEF biður um einn milljarð USD til neyðarhjálpar
Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Humanitarian Action Report 2009, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega milljarð bandaríkjadala til að aðstoða börn og konur á neyðarsvæðum víða um heim.
Hætta steðjar að þunguðum konum í þróunarlöndum
Konur í fátækustu ríkjum heims eru 300 sinnum líklegri til að deyja við barnsburð eða af orsökum sem rekja má til þungunar en konur í iðnríkjum, samkvæmt árlegri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, State of the World’s Children.
Góð umönnun á fyrstu árum ævi barna skiptir sköpum
| Umtalsverðar breytingar hafa orðið á umönnun ungra barna í ríkustu löndum heims, segir í nýrri skýrslu sem UNICEF kynnti í dag. Ísland uppfyllir níu af tíu viðmiðum sem skýrslan setur fram í samanburði sínum á umönnun ungra barna í efnalega vel stæðum löndum. |
|
HIV-prófun og meðferð bjargar lífi nýfæddra barna
| Því fyrr sem nýfædd börn greinast og fá meðferð við HIV/alnæmi því meiri lífslíkur eiga þau, samkvæmt nýrri skýrslu fjögurra hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var í dag. Skýrslan, sem ber heitið Children and AIDS: Third stocktaking report. |
|
Ný skýrsla vekur athygli á dauða kvenna við barnsburð
| Í nýrri skýrslu sem kynnt var sl. föstudag af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, er athyglinni beint að þeirri hættu sem konur í þróunarlöndunum búa við á meðan á meðgöngu stendur og í fæðingu. 99 prósent mæðradauða á sér stað í þróunarlöndunum. | |
Ný skýrsla um baráttuna gegn HIV/alnæmi
| Í nýrri skýrslu UNICEF, UNAIDS og WHO kemur fram að sífellt fleiri börn og þungaðar konur með HIV/alnæmi fá meðhöndlun. |
| Samkvæmt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) hafa sextíu og tvö prósent Afríkubúa ekki aðgang að viðunandi salernisaðstöðu, þ.e. klósetti sem heldur skólpi frá snertingu við umhverfi fólks. |
Þörfin á neyðaraðstoð er mikil
| Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Humanitarian Action Report 2008, kemur fram að UNICEF þarf rúmlega 58 milljarða króna til að koma börnum og konum til hjálpar á neyðarsvæðum. |
Tíðni barnadauða aldrei verið lægri – hægt að ná meiri árangri að mati UNICEF
| Í nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, The State of the World’s Children 2008, er lögð áhersla á leiðir til að draga úr þeim fjölda barna sem deyr fyrir fimm ára aldur. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í Genf í dag, 22. janúar. (http://www.unicef.org/sowc08). | ![]() |
Þróun í þágu barna - ný skýrsla UNICEF
| Í nýrri skýrslu sem gefin var út í vikunni af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna er að finna upplýsingar um hvernig þjóðum heims miðar að því að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan nefnist Progress for Children, eða Þróun í þágu barna. | ![]() |
Barnasáttmálinn verður fullorðinn
| Útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, verður 18 ára þriðjudaginn 20. nóvember. Af því tilefni mun UNICEF efna til málþings í Norræna húsinu á afmælisdaginn frá kl. 14.00 til 16.30. | ![]() |
UNICEF stendur fyrir opnum fundi með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne
Mánudaginn 24. september stendur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir opnum hádegisfundi í Iðnó með Ishmael Beah, fyrrum herdreng frá Síerra Leóne. Þar mun Ishmael lesa upp úr bók sinni Um langan veg: frásögn herdrengs og fjalla um reynslu sína af borgarastyrjöldinni í Síerra Leóne. Fundurinn stendur frá 12:10 til 13:10
Nýjar rannsóknir sýna að í fyrsta skipti eru dauðsföll barna færri en 10 milljónir á ári
Nýjar alþjóðlegar tölur sýna að mikill árangur hefur náðst í baráttunni við barnadauða, þar á meðal hefur dánartíðni barna undir fimm ára lækkað verulega. Dauðsföll meðal barna telja nú 9,7-10 milljónir á ári og hafa aldrei verið færri, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn. Til samanburðar dóu 13 milljónir barna á árinu 1990.
Þúsaldarmarkmiðum SÞ miðar hægt
Í vikunni var kynnt skýrsla Sameinuðu þjóðanna í tilefni þess að nú er það tímabil hálfnað sem alþjóðasamfélagið gaf sér til að uppfylla hin átta mikilvægu markmið í þróunarsamvinnu sem kennd eru við Þúsaldarmarkmiðin um þróun. Alþjóðasamfélagið hefur náð athyglisverðum árangri á ýmsum sviðum í þeirri viðleitni að frelsa milljónir manna úr viðjum fátæktar.
Niðurstöður úr skýrslu UNICEF um hag barna á Vesturlöndum
Í vefriti menntamálaráðuneytisins er vakin athygli á því að niðurstaða um framtíðarstarfsvæntingar ungmenna hér á landi í nýrri skýrslu UNICEF um hag barna í ríku löndunum er ekki í samræmi við nýjustu kannanir sem gerðar hafa verið hér á landi. Þess ber að geta að UNICEF styðst við eldri kannanir en þær nýjustu sem hafa verið gerðar hérlendis.
Í dag kynnir UNICEF skýrslu um velferð barna og ungmenna í þeim löndum sem eru efnahagslega best sett í heiminum, „An overview of child well-being in rich countries“. Í ljós kemur að heilsufar barna og ungmenna á Íslandi er gott og lendir Ísland í öðru sæti á eftir Svíum í þeim þætti skýrslunnar. Ísland er í meðallagi í menntamálum en athygli vekur að um 10% 15 ára ungmenna á Íslandi eru einmana og finnast þeir utangarðs í samfélaginu.
Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna Humanitarian Action Report 2007, sem kynnt var í dag, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega 43 milljarða (635 milljónir usd) til að aðstoða börn og konur á 33 neyðarsvæðum víða um heim. Þetta eru annars vegar vel þekkt svæði eins og Darfur og hins vegar lönd á borð við Haítí, Eritreu og Mið-Afríkulýðveldið, sem ekki er fjallað mikið um í fjölmiðlum.
Mikið hefur áunnist, en margt á enn eftir að gera
Brátt verða tvö ár liðin frá því flóðbylgja fór yfir strendur landa við Indlandshaf og skók samfélögin þar, sem og alla heimsbyggðina. Af því tilefni gefur UNICEF út skýrslu þar sem kemur fram hvað hefur áunnist á þessum tveimur árum, farið er yfir aðstæður barna í dag og hver næstu skrefin verða í hjálparstarfinu.
Eflum vald kvenna til hjálpar börnum
Ný skýrla um aðstæður barna um allan heim. Samkvæmt skýrslunni leiðir jafnrétti kynjanna til „tvöfalds arðs“ fyrir bæði konur og börn og er nauðsynlegt fyrir heilbrigði og þróun fjölskyldna, samfélaga og þjóða.
Svasíland með augum Sigur Rósar
Á haustdögum ferðaðist hljómsveitin Sigur Rós til Svasílands á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi til að kynna sér HIV-verkefni samtakanna þar í landi. Ferðin hafði mikil áhrif á hljómsveitina og ákváðu þeir að efna til sýningar á ljósmyndunum sem þeir tóku í heimsókninni. Sýningin ber yfirskriftina: Yfirgefna kynslóðin: Svasíland með augum Sigur Rósar.
Skýrsla framkvæmdarstjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum
Ofbeldi gegn börnum er oft hulið og jafnvel félagslega samþykkt samkvæmt nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn börnum sem kynnt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem gerð er heildstæð greining á ofbeldi gegn börnum um allan heim.
Neyðin í Darfur - yfirlýsing frá framkvæmdastjóra UNICEF
Eftirfarandi yfirlýsing var send frá Ann M. Veneman, framkvæmdastjóra UNICEF í dag: „Enn eru börn fórnarlömb tilgangslausra morða í Darfur. Áætlað er að 400 þúsund manns hafi týnd lífi í átökunum. Um 1,9 milljónir manna hafi þurft að flýja heimili sín og nærri 3 milljónir þurfa að treysta á alþjóðlegar hjálparstofnanir um mat, skjól og heilsugæslu.
Neyðarástand vegna átakanna í Austur-Kongó
Í nýrri skýrslu UNICEF sem kynnt var í dag kemur fram að 1200 manns láta lífið daglega sökum átakanna í Austur-Kongó. Helmingur þeirra eru börn. Talið er að tugir þúsunda íbúa hafi orðið fórnarlömb ofbeldis, en miklu fleiri hafa látist vegna sjúkdóma og vannæringar sem rekja má til átakanna.
Lítið dregið úr vannæringu barna
Samkvæmt nýrri skýrslu sem UNICEF kynnti í dag hefur lítið sem ekkert dregið úr vannæringu barna í þróunarlöndunum síðustu 16 árin. Tæpur helmingur vannærðra barna í heiminum býr í Pakistan, Bangladesh og Indlandi í Suður-Asíu. Afturför gætir hjá sumum ríkjum Miðausturlanda og framfarir eru hægar meðal barna í Afríku.
UNICEF Ísland vekur athygli á nýrri heimildamynd Dúa J. Landmark um Vestur Afríkuríkið Gíneu-Bissá, menningu þess, stöðu barna og verkefni UNICEF. Myndin verður frumsýnd í Sjónvarpinu 11. apríl kl. 21:15 og endursýnd á Páskadag 16. apríl kl. 11:05. Myndin er mjög sláandi og sýnir vel hvernig fólk reynir að draga fram lífið þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Barnasáttmálinn kynntur í 6. bekk
UNICEF Ísland dreifir nú í annað sinn bæklingnum „Öll börn eiga rétt“ um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda og Námsgagnastofnun. Bæklingnum er dreift til allra 6. bekkinga á landinu og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur.
Neyðarástand ríkir í 29 löndum
UNICEF þarf 805 milljónir bandaríkjadollara til að hjálpa börnum og konum í aðstæðum sem samtökin skilgreina sem neyðarástand. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF um neyðarástand, Humanitarian Action Report, sem kynnt var í dag, en þar er sérstaklega fjallað um ástandið í 29 löndum.
Á jaðri samfélagsins - hundruð milljónir barna eru ósýnileg umheiminum
Hundruð milljónir barna þjást vegna mikillar misnotkunar og kúgunar og eru beinlínis ósýnileg gagnvart umheiminum, sagði UNICEF í dag í tengslum við kynningu á skýrslunni. Þema skýrslunnar í ár eru börn sem standa utan við samfélagið, eru ekki sýnileg umheiminum og er þar af leiðandi sérstaklega erfitt að ná til.
Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu
Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Um 27 milljónir barna og 40 milljónir þungaðra kvenna eru ekki bólusett ár hvert og í 41 landi eru færri börn bólusett í dag en fyrir áratug síðan.
Skýrsla UNICEF eftir sex mánuði
Ný skýrsla UNICEF um neyðaraðgerðir- og þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum við Indlandshaf er komin út nú þegar 6 mánuðir eru liðnir frá atburðunum þar sem yfir 200 þúsund manns misstu lífið og sem skildu um 1,5 milljón börn eftir hjálparþurfi.
Þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum hefur gengið vonum framar; ekki hefur orðið vart við sjúkdómsfaraldra, enginn dó úr hungri, börn eru farin aftur í skóla og fólk var haldið við góða heilsu og verndað. Hjálparstofnanir hafa þó þurft að takast á við ýmis vandamál síðastliðið hálft ár.
Of mörg börn ganga ekki í skóla
Þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í menntun barna í þróunarlöndunum ganga of mörg börn ekki í skóla, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF. Skýrslan, sem nefnist „Progress for Children”, fjallar um jafnrétti kynjanna og grunnmenntun. Hún er samstarfsverkefni margra aðila innan alþjóðasamfélagsins sem vilja stuðla að því að menntun sé jafn aðgengileg stúlkum sem drengjum.
Allsérstakur sumarglaðningur mun berast inn á hvert heimili á Íslandi fyrstu viku sumars. Um er að ræða DVD disk með teiknimyndinni Kötu – litlu lirfunni ljótu á alls sjö tungumálum. Skýringin á þessum sumarglaðningi er sú að Umhyggja – félag til styrktar langveikum börnum og UNICEF Ísland hafa tekið höndum saman.
Laugardaginn 12. mars fagnaði landsnefnd UNICEF á Íslandi eins árs afmæli sínu. Af því tilefni var slegið upp barnaafmæli í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Skaftahlíð 24. Boðið var upp á barnaafmælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu frumskógum Afríku. Barnakór Ísaksskóla söng afmælissönginn, Hótel jörð og lag úr Línu Langsokk.
Um 246 milljónir barna í vinnuþrælkun
Í dag kynnti landsnefnd UNICEF á Bretlandi nýja skýrslu sína um barnaþrælkun, en samkvæmt henni eru 246 milljónir barna í ánauð vinnuþrælkunar í dag. Börn, allt niður í fimm ára gömul, eru svift frelsinu sem fylgir barnæskunni og þeim grundvallarréttindum sem öll börn eiga að hafa eins og t.d. að ganga í skóla.
Samkeppni einnar mínútu myndbanda
UNICEF vekur athygli á því að þann 1. mars er lokaskiladagur í hinni árlegu einnar-mínútu-myndbanda samkeppni. Ungmenni og fullorðnir frá öllum heimshornum geta tekið þátt. Vinnusmiðja einnar mínútu myndbanda var haldin hér á landi í október síðastliðnum en þá tóku 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum þátt með glæsilegum árangri.
Nikola segir reynslusögu sína af jarðsprengjum
Milljónir jarðsprengna og annarra sprengjuleifa eftir stríðsátök víðs vegar um heim ógna öryggi barna. Börn slasast, deyja eða missa foreldra sína af völdum jarðsprengna löngu eftir að átök líða undir lok, samkvæmt heimildum frá UNICEF.
The State of the World’s Children skýrslan 2005
Barnæska er hörmuleg lífsreynsla fyrir helming barna á jörðinni – Þessi mikilvægu ár eru eyðilögð vegna fátæktar, stríðsátaka og HIV/alnæmis. Þrátt fyrir að það sé nær algilt að vilja vernda börn og æskuárin, þá sýnir ný skýrsla UNICEF að meira en helmingur barna heimsins þjáist vegna fátæktar, stríðsátaka og HIV/alnæmis.
Heimildamyndir á Íslandi til úrslita
lok október komu 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum til að taka þátt í einnar-mínútu-myndbanda-vinnustofu sem UNICEF Ísland hélt, með stuðningi menntamálaráðuneytisins. Slíkar vinnusmiðjur eru haldnar um alla Evrópu og í nóvember ár hvert er haldin samkeppni milli einnar mínútu myndbandanna í Hollandi.
Leikmenn Manchester Utd tala fyrir hönd barna í herferð UNICEF
Stjörnuleikmenn Manchester United fótboltafélagsins og framkvæmdastjóri þeirra ljá málefnum barna rödd sína í nýrri sjónvarpsherferð UNICEF. Hin 30 sekúndna löngu myndskilaboð hvetja almenning til þess að styðja við starf UNICEF í baráttunni gegn HIV/alnæmi, mansali og misnotkun barna og stuðningi við menntun stúlkna.