Vissir þú að...

UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.

Þú ert hér:  

Þátttaka barna

 

Vel gekk á ráðstefnu Evrópuráðsins: Stjórnlög unga fólksins kynnt

28.nov.2011

Stjórnlög unga fólksins voru í forgrunni á ráðstefnu Evrópuráðsins sem nýverið fór fram í Mónakó. Þar voru samankomnir ráðherrar Evrópuráðsins og ræddu þeir hvernig byggja mætti upp barnvænni Evrópu. Kristinn Jóhannsson, 16 ára, var í pallborði fyrir Íslands hönd.


 


Stjórnlög unga fólksins vekja athygli út fyrir landsteinana

16.nov.2011

Stjórnlög unga fólksins verða í forgrunni á ráðstefnu Evrópuráðsins sem hefst í Mónakó á sunnudag! Þar verða samankomnir ráðherrar Evrópuráðsins og ætla þeir að ræða hvernig byggja megi upp barnvænni  Evrópu. Kristinn Jóhannsson, 16 ára, verður í pallborði strax á eftir opnunarræðunni og kynnir Stjórnlög unga fólksins.

 

 


 


Eins árs en samt orðinn foreldri: Halldór Andrésson

19.okt.2011

Halldór Andrésson er nýorðinn eins árs. Þrátt fyrir ungan aldur er hann farinn að láta til sín taka við að gera heiminn að betri stað. Daginn sem Halldór fagnaði sínum fyrsta afmælisdegi gerðist hann nefnilega heimsforeldri. Við bjóðum Halldór velkominn í hópinn!


 


„Ekki má gleymast að hlusta á raddir unga fólksins“

10.jun.2011

Formanni stjórnalagaráðs, Salvöru Nordal, voru nú í hádeginu afhentar niðurstöður frá þingi ungmennaráða um stjórnarskrána sem fram fór í vor. Með þessu gefst stjórnlagaráði einstakt tækifæri til að kynna sér sjónarmið ungmenna á aldrinum 13-18 ára við endurskoðun stjórnarskrárinnar.


 


Metárangur hjá UNICEF-hreyfingunni – yfir 4500 taka þátt!

11.maí.2011

Skráning í grunnskólaverkefni UNICEF á Íslandi, UNICEF-hreyfinguna, gengur vonum framar og stöðugt bætist í hóp skráðra þátttakenda. Aldrei hafa fleiri nemendur tekið þátt og er fjöldinn núna kominn yfir 4500! Skráning stendur enn yfir.


 


Góður gangur hjá Stjórnlögum unga fólksins! Yfir 40 þingmenn taka þátt

15.apr.2011

Þátttaka í Stjórnlögum unga fólksins er afar mikil og verkefnið hefur fengið miklar og góðar undirtekir. Yfir 40 ungmenni taka þátt í þinginu í Iðnó á morgun! Nær öll sveitarfélög á landinu sem starfrækja ungmennaráð senda fulltrúa á þingið og fjögur sveitarfélög til viðbótar eru með slík ráð í burðarliðnum og senda þátttakendur.


 


Stjórnlög unga fólksins – leyfum rödd ungmenna að heyrast

13.apr.2011

UNICEF, umboðsmaður barna og Reykjavíkurborg standa nú fyrir Stjórnlögum unga fólksins. Vefsíðan www.stjornlogungafolksins.is hefur verið opnuð og um næstu helgi verður stjórnlagaþing ungmennaráða haldið í Reykjavík. Markmiðið er að tryggja að skoðanir barna og ungmenna heyrist við endurskoðun stjórnarskrárinnar.


 


Fjárfesting í ungmennum getur rofið múra fátæktar

25.feb.2011

Mikilvægt er að auka fjárveitingar til málaflokka sem tengjast ungmennum á aldrinum 10-19 ára. Þannig er mögulegt að rjúfa múra fátæktar og ójafnræðis. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum, SOWC 2011.


 


Skírnargjafir í þágu UNICEF

03.jan.2011

Á Þorláksmessu komu systkini færandi hendi á skrifstofu UNICEF á Íslandi. Yngsti meðlimurinn í systkinahópnum, Baldur Kár, var nýlega skírður og ákvaðu foreldrarnir að afþakka allar skírnargjafir en hvöttu fólk þess í stað að styrkja bágstödd börn í gegnum UNICEF.


 


Mjúkdýraleiðangur í IKEA hefst í dag

01.nov.2010

IKEA á Íslandi tekur í fyrsta skipti þátt í alþjóðlegu söfnunarátaki fyrir UNICEF og Save the Children með því að selja mjúkdýr til styrktar samtökunum. Átakið á sér langa sögu og hefur styrkt fjölda verkefna fyrir bágstödd börn víða um heim.


 


Kaupmenn í einn dag fyrir UNICEF

27.okt.2010

Smáralind bauð á dögunum börnum að gerast kaupmenn í einn dag og safna fyrir góðgerðarfélag að eigin vali. Dagurinn heppnaðist vel þar sem 101 barn mætti og safnaði fyrir góðu málefni. Fulltrúi UNICEF tók við ágóðanum sem rann til samtakanna, alls 3.120 krónur


 


Seldu málverk til styrktar börnum

12.okt.2010

Frændsystkinin Franklín Máni Arnarsson og Vala Karítas Guðbjartsdóttir gerðu listaverk og seldu til styrktar UNICEF á dögunum. Málverkasýning var haldin í fjölskylduboði og í kjölfarið seld. Þau Franklín og Vala söfnuðu alls 6.500 krónum.


 


Aðeins 40% íslenskra barna þekkja réttindi sín

21.apr.2010

Íslensk og dönsk ungmenni telja sig vita minnst um réttindi sín, en 40 prósent íslenskra ungmenna telja sig ekki þekkja þau, miðað við 68% finnskra barna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem byggir á könnun á viðhorfum 12-16 ára barna til réttinda og þátttöku. Efni skýrslunnar verður kynnt á hádegisfundi (kl. 12-13) í dag á Laugavegi 42.


 


Norræn könnun um réttindi barna til þátttöku

20.apr.2010

UNICEF á Íslandi mun halda hádegisfund á morgun, miðvikudaginn 21. apríl  kl. 12-13, á skrifstofu samtakanna að Laugavegi 42, þar sem kynntar verða helstu niðurstöður könnunar sem gerð var meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund barna. Könnunin var gerð frá ágúst 2009 til febrúar 2010.


 


Útvarpsþáttur ungmenna um Barnasáttmálann

30.sep.2009

Ungmenni hvaðanæva að af landinu munu næstu 12 fimmtudaga fjalla um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í nýjum útvarpsþáttum sem hefja göngu sína á Rás 1 á morgun. Í ár er þvi fagnað að tuttugu ár eru frá því að þessi mikilvægi mannréttindasáttmáli var samþykktur.


 


Ungmenni ræða stöðu barna á J8-fundinum

09.jul.2009

Ungt fólk víðsvegar að úr heiminum er nú saman komið í Róm til að sitja hinn svokallaða J8-fund. Fundurinn fer fram samhliða fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims, G8, og er af frumkvæði UNICEF. Fulltrúar þátttakenda munu ávarpa leiðtoga G8-ríkjanna í dag.


 


Sýning á vegum umboðsmanns barna

20.maí.2009

Hátt í þrjúþúsund grunn- og leikskólanemendur hafa í vetur tekið þátt í verkefni á vegum umboðsmanns barna þar sem þau tjá sig í myndrænu og rituðu máli um hvernig það er að vera barn á Íslandi. Sýning á verkum barnanna opnar í Gerðubergi föstudaginn 22. maí.


 


Hönnuðu boli til styrktar UNICEF

18.maí.2009

Sjö ungmenni tóku sig til á dögunum og hönnuðu boli til styrktar UNICEF. Innblástur hönnunarinnar sóttu þau til þriggja af greinum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Er óhætt að segja að mjög vel hafi tekist til hjá þessum ungu og upprennandi hönnuðum.


 


Réttindaganga og áheitahlaup á sumardaginn fyrsta

22.apr.2009

Fjölmenni verður á Miklatúni á sumardaginn fyrsta þegar börn og unglingar frá frístundamiðstöðinni Kampi safnast saman og hlaupa til stuðnings UNICEF auk þess að minna á réttindi sín.


 


Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið

20.apr.2009
Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er nú lokið, en hún fór fram á Ísafirði, Egilsstöðum og í Reykjavík. Verkefnið var unnið af UNICEF í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Haldnar voru þriggja daga vinnusmiðjur þar sem ungt fólk lærði að vinna í fjölmiðlum og búa til fréttir og annað efni sem svo var birt eða flutt í viðkomandi samstarfsmiðlum.

 


Fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Egilsstöðum

07.apr.2009

Fréttaritaraþjálfun unga fólksins, sem miðar að því að hvetja ungt fólk til þátttöku og virkni í samfélaginu, verður haldin á Egilsstöðum dagana 16.-18. apríl. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Fréttaritaraþjálfun unga fólksins er öllum ungmennum í 8.-10. bekk opin. Sækja um hér


 


Ungir fréttaritarar útskrifast í Reykjavík

01.apr.2009

Alls luku 17 ungmenni fréttaritaraþjálfun unga fólksins í Reykjavík um síðustu helgi. Framleidd voru tvö innslög fyrir útvarp og tvær blaðagreinar. Því miður reyndist ekki unnt að fá inn nógu margar umsóknir í fréttaritaraþjálfun á Akureyri sem átti að vera nú um næstu helgi, þannig að henni hefur verið aflýst. Næsta þjálfun er á Egilsstöðum 16.-18. apríl. Sækja um hér.


 


Fréttaritaraþjálfun unga fólksins í Reykjavík

24.mar.2009

Fréttaritaraþjálfun unga fólksins verður haldin í Reykjavík dagana 26.-28. mars á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42. Verkefnið er í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið og fá þátttakendur efni birt eða útvarpað í þeim miðlum. Gert er ráð fyrir fimmtudegi og föstudegi frá kl. 17 til 20, og laugardegi kl. 11 til 13. Sækja um hér


 


Fréttaritaraþjálfun unga fólksins lokið á Ísafirði

18.mar.2009

Um helgina luku 19 manns fréttaritaraþjálfun unga fólksins á Ísafirði með glans. Þau framleiddu þrjú innslög fyrir útvarp og þrjár greinar fyrir Morgunblaðið, þar af hefur ein þegar birst. Sjá hér. Nú er tekið við umsóknum í næstu fréttaritaraþjálfun sem haldin verður í Reykjavík dagana 26.-28. mars. Sækja um hér


 


Samantekt um breytta stöðu barna á Íslandi

12.mar.2009

UNICEF á Íslandi hefur að undanförnu haft samband við aðila sem vinna að málefnum barna á Íslandi. Markmiðið var að kanna hvort farið sé að gæta áhrifa efnahagsþrenginganna sem Ísland gengur nú í gegnum á börn. Í kölfarið hefur UNICEF gert samantekt.


 


Fréttaritaraþjálfun á Ísafirði - skráning stendur yfir

05.mar.2009

Skráning ungs fólks í fréttaritaraþjálfun UNICEF stendur nú sem hæst. Tekið er við umsóknum til 11. mars í þjálfunina á Ísafirði, en til 24. mars í Reykjavík. Hámarksfjöldi þátttakenda er 30 manns. Þjálfunin verður haldin á Akureyri og Egilsstöðum í apríl. Ísafjarðarbær styrkir verkefnið um 30 þúsund krónur, auk þess sem öll aðstaða er útveguð af bænum.


 


Fréttaritaraþjálfun fyrir ungt fólk á Íslandi hefst

27.feb.2009

Fréttaritaraþjálfun ungmenna um allt land ýtt úr vör í samstarfi við Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. UNICEF á Íslandi og Ríkisútvarpið undirrita samstarfsyfirlýsingu með það að markmiði að hvetja börn og ungmenna til að koma skoðunum sínum á framfæri. Þjálfunin og önnur verkefni eru framkvæmd í tilefni 20 ára afmæli Barnasáttmálans í ár.


 


Heimsdagur barna í fjölmiðlum

26.feb.2009

Næstkomandi sunnudag, 1. mars, fagnar UNICEF Heimsdegi barna í fjölmiðlum (e. International Children's Day of Broadcasting) en á þeim degi hvetja samtökin alla fjölmiðla að leyfa röddum barna og ungmenna að heyrast. Í ár mun Ríkisútvarpið - Rás 1 og 2 - helga daginn börnum. Sjá á www.ruv.is. UNICEF hvetur alla til að leggja við hlustir!


 


UNICEF fær 43,5 milljónir króna styrk frá Auroru

13.feb.2009

Stjórn Auroru velgerðasjóðs hefur úthlutað alls 111,5 milljónum króna í styrki til sex verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar. UNICEF fær úthlutað alls 40 milljónum til menntaverkefnis í Síerra Leóne og 3,5 milljónum til útvarpsverkefnis ungmenna í Mósambík.


 


Samráðsfundur um starf ungmennaráða

09.des.2008
Miðvikudaginn 26. nóvember var haldinn í fyrsta skipti á landsvísu samráðsfundur um stofnun og starf ungmennaráða. UNICEF á Íslandi, Akureyrarbær og Íþrótta og tómstundaráð Reykjavíkur  stóðu fyrir fundinum sem haldinn var á Akureyri.


 


Heimsþing gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum

25.nov.2008
Um 3000 þátttakendur frá yfir 125 löndum koma saman á heimsþingi í Rio de Janeiro í Brasilíu dagana 25.-28. nóvember til að deila reynslu sinni og hugmyndum í baráttunni gegn kynferðislegri misnotkun á börnum.


 


„Bestu bolir í heimi“

17.nov.2008
Sala er hafin á „bestu bolum í heimi“ til styrktar UNICEF. Hönnun bolanna er sem fyrr í höndum Kron kron og grafíska hönnuðarins Harðar Kristbjörnssonar og vísar hún í að veröldin sé eins og völundarhús þar sem sumir rati rétta leið að góðu lífi á meðan aðrir sitji fastir í öngstræti fátæktar. Bolirnir fást í Kron kron og jólabúð UNICEF að Laugavegi 42 og kosta 2800 kr.


 


3700 börn safna þremur milljónum fyrir UNICEF

25.ágúst.2008
Tæplega fjögur þúsund börn létu slagvirði ekki aftra sér og tóku þátt í Latabæjarhlaupi Glitnis sl. laugardag. Þátttökugjöld barnanna runnu óskipt til UNICEF og því má segja að hver þátttakandi hafi lagt sitt af mörkum til hjálpar bágstöddum jafnöldrum sínum víða um heim.

 


Ungir leiðtogar frá öllum heimshornum sameinast fyrir J8 fundinn

01.jul.2008
Á morgun mun ungt fólk frá öllum G8 löndunum og þróunarlöndum hefja fjórða árlega „Junior 8“ fundinn í Chitose í Japan. Málefnin, sem tekin verða fyrir, eru svipuð þeim sem leiðtogar G8 munu taka fyrir á fundi sínum í næstu viku í Japan.

 


Barnasáttmálinn verður fullorðinn

16.nov.2007
Útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, verður 18 ára þriðjudaginn 20. nóvember. Af því tilefni mun UNICEF efna til málþings í Norræna húsinu á afmælisdaginn frá kl. 14.00 til 16.30. © UNICEF

 


Loftbelgjabolirnir uppseldir ... en önnur sending er komin til landsins!

05.okt.2007

Loftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir fást áfram í Kronkron og Spútnik í Kringlunni, en einnig í Gyllta kettinum.


 


Tónleikar ungmennaráða UNICEF og ÍTR gengu vel

21.sep.2007

Tónleikar ungmennaráða UNICEF Ísland og Reykjavíkur í mið-og vesturbæ gengu vonum framar. Hljómsveitirnar Jeff who?, Reykjavík, Soundspell, Skakkamanage, Retro Stefson og Grrrrr tróðu upp og var ekki annað að sjá en tónleikagestir skemmtu sér vel. Allar hljómsveitirnar gáfu vinnu sína og þakka ungmennaráðin þeim vel fyrir.


 


Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða!

17.sep.2007

Ungmennaráð Íþrótta og tómstundaráðs miðbæjar og vesturbæjar í samstarfi við ungmennaráð UNICEF á Íslandi stefna að því að halda tónleika til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna miðvikudaginn 19. september 2007 í Listasafni Reykjavíkur. Tónleikarnir bera yfirskriftina: Hausttónleikar ÍTR og UNICEF: Grípum til aðgerða!


 


Sóley og María gefa til bágstaddra barna

27.ágúst.2007

Vinkonurnar Sóley Vera, 12 ára, og María, sem er 11 að verða 12 ára, héldu tombólu og seldu varning í Firðinum og fyrir utan Krónuna í Hafnarfirði á dögunum. Þær söfnuðu alls 8262 krónum sem þær gáfu til UNICEF. Þær seldu eigið dót og söfnuðu því hjá öðrum til að selja eða bjóða upp á tombólunni.


 


Tombóla til styrktar börnum

23.ágúst.2007

Bjartur, sem er 9 ára, hélt á dögunum tombólu fyrir utan Pétursbúð í Vesturbænum og safnaði hann alls 2815 krónum. Hann mætti vaskur á skrifstofu UNICEF á Laugaveginn og afhenti framkvæmdastjóra UNICEF, Stefáni Inga Stefánssyni, söfnunarféð. UNICEF kann Bjarti bestu þakkir fyrir framlagið og hvetur fleiri börn til að styrkja jafnaldra sína, sem eiga um sárt að binda, með þessum hætti.


 


Hátt í 3,5 milljónir króna söfnuðust í Latabæjarhlaupi

20.ágúst.2007

Um 4223 börn og foreldrar þeirra lögðu leið sína að Háskóla Íslands til að taka þátt í Latabæjarhlaupinu síðastliðinn Laugardag. Vel var staðið að hlaupinu og þóttist takast vel til í alla staði. Börnin voru þó mestu sigurvegararnir þar sem þau söfnuðu hátt í 3,5 milljónum króna til styrktar verkefna UNICEF um allan heim.


 


Íþróttaálfurinn hitar upp fyrir Latabæjarhlaupið

13.ágúst.2007

Eftivæntingin var mikil fyrir utan Háskóla Íslands þegar loftfar íþróttaálfsins lenti þar um helgina. Hann var kominn til að hita upp fyrir Latabæjarmaraþonið með nokkrum börnum. Mikið fjör fylgdi upphituninni og fékk íþróttaálfurinn krakkana til að gera alls kyns kúnstnir eins og handahlaup og kollhnís sem endar í spíkati.


 


Menntun flóttabarna frá Írak

27.jul.2007

UNICEF og Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) ætla í sameiningu að koma tugum þúsunda flóttabarna frá Írak aftur í skóla. Kostnaður við slíkt verkefni hljóðar upp á 129 milljónir dollara eða 8 milljarða íslenskra króna. Írösk börn hafa í stórum hópum þurft að flýja heimaland sitt, heimili og aðra fjölskyldumeðlimi, þau hafa mörg hver lent í sálrænum áföllum og misst úr námi meira og minna síðan stríðið hófst árið 2003.


 


Fyrsti bekkur Nesskóla býr til rauð nef

01.des.2006

Fyrsti bekkir Nesskóla Neskaupstað ákváðu í tilefni Dags rauða nefsins að fræðast um hvað dagurinn gengi út á. Nefnilega að gera góðverk og gefa til þeirra sem minna mega sín í þessum heimi. Börnin í Nesskóla fræddust um börnin í Afríku, skoðuðu myndir og kennararnir sögðu þeim frá því hvers vegna þessi dagur væri haldinn.


 


Leikskólakrakkar selja myndir til styrktar UNICEF

22.jun.2006

Nemendur og kennarar leikskólans Vesturbergs héldu Listahátíð þann 11.maí í Listasafni Reykjanesbæjar, Duushúsum. Haldin var myndlistasýning með myndum eftir leikskólakrakkana að dagskrá lokinni og stóð sýningin yfir í nokkra daga. Verkin hafa síðan verið til sölu og seldust upp nú í júní og rann ágóðinn til UNICEF Ísland.


 


Börn safna handa börnum

30.maí.2006

Í tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla fór fram söfnun í vikunni 15.-19.maí sem að stóðu nemendur og starfsfólk skólans til styrktar UNICEF. Söfnunarbaukur var í sal skólans alla vikuna og var vel gætt af nemendum skólans, en þeir sáu til þess að söfnunin færi vel fram. Hvatt var til þess að hver og einn kæmi með sem svarar 70 kr.


 


Barnasáttmálinn kynntur í 6. bekk

05.apr.2006

UNICEF Ísland dreifir nú í annað sinn bæklingnum „Öll börn eiga rétt“ um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda og Námsgagnastofnun. Bæklingnum er dreift til allra 6. bekkinga á landinu og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur.


 


Nemendur FAS styrkja UNICEF

03.apr.2006

Nemendur FAS, Framhaldskóla Austur-Skaftafellssýslu héldu styrktartónleika í nóvember síðastliðnum og söfnuðu 100 þúsund krónum sem runnu til UNICEF. Fyrir tónleikana fengu þau menningarverðlaun Hornafjarðar í febrúar.


 


Ungmenni taka þátt í baráttunni gegn alnæmi

23.mar.2006

Samkvæmt tölum frá UNAIDS breiðist HIV hraðast út í Austur Asíu en á nokkru öðru svæði í heiminum. ,,Við erum á krossgötum á þessu svæði og til að bregðast við með öflugum hætti verður að taka tillit til barna og ungmenna og þau verða að taka þátt,” sagði svæðisstjóri UNICEF í Austur Asíu, Anupama Rao Singh, við opnun ráðstefnu um börn og HIV/alnæmi í Austur Asíu og Kyrrahafinu sem hófst í Hanoi í Víetnam í gær.


 


Hin fjögurra ára gamla Su-Sze safnar 8.800 Bandaríkjadölum fyrir börn í Malasíu

16.ágúst.2005

Malasíubúar eru stoltir af hinni fjögurra ára gömlu Kam Su-Sze en hún hefur safnað meira en 33.000 malasískum ringitum (um 615.000 íslenskum krónum) fyrir UNICEF, með því að selja póstkort sem hún sjálf hafði myndskreytt.


 


Börn og ungmenni leggja tillögur sínar fram við G8

06.jul.2005

Eftirfarandi eru niðurstöður C8-fundar UNICEF sem lauk í gær 5. júlí í Dunblane, Skotlandi. Fulltrúarnir, sem margir hafa reynslu af mikilli fátækt, HIV/alnæmi, stríði og vinnuþrælkun, voru 17 ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára frá þróunarlöndum og G8-ríkjum. Niðurstöðurnar voru kynntar í gær og afhendar fulltrúm G8 fundarins.


 


Ungmenni hafa áhrif á G8

04.jul.2005

Um þessar mundir fer fram fyrsti C8-fundur UNICEF í Dunblane, Skotlandi, en hann hófst 3. júlí og stendur til 5. júlí, rétt áður en leiðtogar G8 ríkjanna hittast. Á fundinum munu ungmenni, undir 18 ára, frá átta af fátækustu ríkjum í heimi – Bútan, Kambódíu, Moldavíu, Jemen, Gíneu, Síerra-leone, Lesótó og Bólivíu, koma saman ásamt ungmennum frá nokkrum G8 ríkjum – Rússlandi, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og Bretlandi.


 


UNICEF Ísland eins árs!!

14.mar.2005

Laugardaginn 12. mars fagnaði landsnefnd UNICEF á Íslandi eins árs afmæli sínu. Af því tilefni var slegið upp barnaafmæli í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að Skaftahlíð 24. Boðið var upp á barnaafmælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu frumskógum Afríku. Barnakór Ísaksskóla söng afmælissönginn, Hótel jörð og lag úr Línu Langsokk.


 


Samkeppni einnar mínútu myndbanda

04.feb.2005

UNICEF vekur athygli á því að þann 1. mars er lokaskiladagur í hinni árlegu einnar-mínútu-myndbanda samkeppni. Ungmenni og fullorðnir frá öllum heimshornum geta tekið þátt. Vinnusmiðja einnar mínútu myndbanda var haldin hér á landi í október síðastliðnum en þá tóku 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum þátt með glæsilegum árangri.


 


Heimildamyndir á Íslandi til úrslita

25.nov.2004

lok október komu 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum til að taka þátt í einnar-mínútu-myndbanda-vinnustofu sem UNICEF Ísland hélt, með stuðningi menntamálaráðuneytisins. Slíkar vinnusmiðjur eru haldnar um alla Evrópu og í nóvember ár hvert er haldin samkeppni milli einnar mínútu myndbandanna í Hollandi.


 


Menntamálaráðherra heimsækir vinnusmiðju UNICEF

01.nov.2004

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri heimsóttu UNICEF við lok vinnusmiðju í gerð einnar-mínútu-myndbanda. Þau 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum sem sóttu vinnusmiðjuna sýndu gestunum afrakstur vinnu sinnar og ræddu um þau málefni sem brenna mest á ungu fólki í dag.


 


Vinnusmiðja í gerð einnar-mínútu myndbanda hefst á Íslandi

18.okt.2004

Tuttugu ungmenni frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi eru samankomin í Reykjavík til þess að vinna að framleiðslu einnar-mínútu myndbanda um lýðræði og þátttöku ungs fólks í samfélaginu. UNICEF Ísland og menntamálaráðuneytið standa fyrir vinnusmiðjunni sem stendur yfir þar til á fimmtudaginn 21. október.


 


Sumarbúðir UNICEF fyrir krakka á Vesturbakkanum og Gaza

21.jul.2004

Með stuðningi UNICEF hafa nú verið settar upp sumarbúðir fyrir krakka sem búa á Vesturbakkanum og á Gaza-svæðinu og þar með gefið um 17 þúsund stúlkum og drengjum tækifæri til að leika sér á ný.