Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

UNICEF fordæmir ofbeldi gegn jemenskum börnum

Að minnsta kosti 94 börn hafa látið lífið í átökum í Jemen síðan þau brutust út fyrr á þessu ári. Átökin bæta gráu ofaná svart fyrr börn í Jemen þar sem tíðni vannæringar barna var fyrir ein sú hæsta í heiminum. UNICEF harmar að ofbeldi skuli bitna á börnum.

Í gær sendi framkvæmdastjóri UNICEF, Anthony Lake, frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir meðal annars:

„UNICEF harmar að börn lendi á milli stríðandi fylkinga í Jemen og hvetur alla hlutaðeigandi til að gera sitt ítrasta til að hlífa óbreyttum borgurum, sérstaklega konum og börnum. Að minnsta kosti 94 börn hafa látið lífið og 240 hafa særst vegna skot- eða sprengjuárása í Jemen frá því að óeirðir hófust fyrr á árinu.

Frásagnir sem samstarfsaðilar okkar hafa staðfest herma að að minnsta kosti tvö börn hafi látist í þessari viku. Þann 2. október lést sjö ára stúlka eftir að hafa fengið í sig sprengjubrot í höfuðborginni Sana‘a. Þrettán ára drengur lést af sömu orsökum 4. október. UNICEF fordæmir ofbeldi gegn börnum hvar sem það á sér stað.

Á þessum árstíma ættu jemensk börn að vera önnum kafin við að byrja aftur í skóla. En þess í stað mæta þeim vopnaðir menn frekar en kennarar, byssukúlur í stað bóka. Neyðin í landinu fer vaxandi.“

Lesa má yfirlýsingu Lakes í heild sinni hér.

Nánar má kynna sér stöðu barna í Jemen og verkefni UNICEF í landinu hér.