126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Eftir gríðarleg flóð hafa mörg fátækustu börn heims reynt að endurbyggja líf sitt um leið og þau standa frammi fyrir mikilli sjúkdómahættu. Hin gríðarlegu áhrif hinna áframhaldandi monsún rigninga ógna þeim árangri í enduruppbyggingu sem íbúar Bangladess hafa náð. Bangladess er eitt þéttbýlasta land í heimi og flóðin hafa því haft geigvænleg áhrif á líf landsmanna.
Milljónir heimila hafa misst aðgang að hreinu drykkjarvatni, fæði og skjóli. Börn sem eru á vergangi, þyrst og vannærð eru sérstaklega varnarlaus gegn sjúkdómum og niðurgangi á næstu vikum og mánuðum.
Mikilvægi heilsugæslu og hreinlætis
UNICEF einbeitir sér að því að mæta brýnustu þörfum þeirra barna sem orðið hafa hvað verst úti vegna flóðanna. Stofnunin vill þó um leið tryggja að ekki verði litið undan almennri heilsugæslu, menntun og hreinlæti. Verkefni UNICEF á flóðasvæðum Bangladess beinast einna helst að því að útvega hreint drykkjarvatn, aðstoða við hreinlætisaðgerðir, útvega kornabörnum nauðsynlega næringu og koma á forvörnum gegn sjúkdómum og annast sjúka.
„Það áfall sem börn og fjölskyldur þeirra hafa orðið fyrir í Bangladess mun halda áfram að ógna tilveru þeirra og velferð komandi mánuði, ef ekki ár,“ sagði Morten Giersing, talsmaður UNICEF í Bangladess. „Við vitum að það eru að minnsta kosti ein milljón vannærðra barna á flóðasvæðum í Bangladess. Við erum nú að grípa til aðgerða sem gera okkur kleift að nálgast þau börn sem verst eru haldin eftir flóðin og veita þeim grunnheilsugæslu og –næringu. Nú þegar flóðvatnið er að ganga tilbaka er hætta á að vatnsmengun aukist með tilheyrandi kvillum, eins og niðurgangi. “
UNICEF veitir birgðum til flóðasvæðanna
UNICEF hefur þegar svarað beiðnum frá stjórnvöldum í Bangladess með því að veita nauðsynlegar birgðir til landsins. Birgðir þessar innihalda eina milljón pakka af nauðsynlegum söltum fyrir börn sem þjást af niðurgangi, 25.000 poka af næringu í æð ásamt vatnsbrúsum og hreinlætisvörum fyrir matarskýli og heilsugæslustöðvar.