Vissir þú að...

hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!

Þú ert hér:  

Tvær milljónir barna bólusettar gegn mislingum í Darfur

Tvær milljónir barna á átakasvæðum Darfur-héraðsins í Súdan hafa verið bólusettar gegn mislingum. Um 500.000 barna eru þó án bólusetningar vegna þess að of hættulegt hefur reynst fyrir heilbrigðisstarfsmenn að ná til þeirra, samkvæmt heimildum stofnanna Sameinuðu þjóðanna þann 9. júlí.

Haft hefur verið eftir framkvæmdastjóra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Carol Bellamy, að starfsfólk á vegum súdönsku ríkisstjórnarinnar, UNICEF og Alþjóða Heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hafi farið eins langt inn í héraðið og hægt var miðað við öryggisástand svæðisins. Metið var að hálf milljón barna hafi orðið af bólusetningum gegn þessum oft lífshættulega sjúkdómi, mislingum.

Bellamy sagði að henni væri sérstaklega umhugað um stöðu mála í vesturhluta Darfur og skoraði á súdönsk stjórnvöld, uppreisnar- og skæruliðahópa að tryggja öryggi heilbrigðisstarfsmanna á svæðinu.

Fjöldi mislingatilfella, og fjöldi dauðsfalla tengdum þeim, hefur stóraukist sérstaklega meðal barna sem búa í búðum fyrir uppflosnaða íbúa Súdan. Fjöldi uppflosnaðra innan síns heimalands í Súdan er talinn vera yfir einni milljón manna og 170.000 aðrir hafa flúið til nágrannalandsins Chad vegna átakanna í Darfur-héraðinu.

Í einum búðunum í norðurhluta Darfur hafa 22 dauðsföll, mestmegnis af völdum niðurgangs, verið tilkynnt í síðustu viku. Á sama tíma hefur næringarskortur aukist meðal barna í öðrum búðum á sama svæði.

Matvælaáætlun SÞ (WFP) hefur tilkynnt að samningar hafi náðst við Líbíu um að flytja mat yfir landamærin til Chad. Simon Pluess, talsmaður Matvælaáætlunarinnar sagði að óöryggi á svæðinu og regntíminn hafi gert hjálparstarfsmönnum erfitt fyrir í starfi sínu.

Eftir miðjan júlí mun Flóttamannastofnun SÞ (UNHCR) flytja næstum 180 tonn af hjálpargögnum til Chad frá Danmörku. Hjálpargögnin innihalda teppi, eldhúsáhöld, plastlök og dósamat. Stofnunin mun opna sínar níundu öruggu búðir í austurhluta Chad í næstu viku, fjarri landamærum Súdan og skæruliðaógninni.