UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.
Þú ert hér:
Á síðasta ári hafa 1,2 milljónir manna, helmingurinn af þeim börn, verið flæmd frá heimilum sínum í Darfur-héraði í Súdan. Þar til í febrúar 2004 var mannúðaraðstoð haldið niðri og átökin hafa síðan þá þróast í það sem Sameinuðu þjóðirnar kalla „versta neyðarástand í heiminum í dag“.
Carol Bellamy, framkvæmdarstjóri UNICEF, fór í heimsókn til Darfur í byrjun júní þessa árs til þess að meta þörfina á aðstoð. UNICEF og önnur hjálparsamtök auka nú neyðaraðstoð sína með miklum hraði til að koma til móts við vandann. UNICEF leggur áherslu á að tryggja aðgengi að hreinu vatni, veita fólki grunnheilsugæslu, skjól og menntun. UNICEF dreifir einnig sérstökum pakka með hreinlætisvörum til fjölskyldna. UNICEF hefur komið upp 25 miðstöðvum sem munu sjá um almenna matvæladreifingu auk þess að veita næringu til vannærðra barna.
UNICEF hefur einnig hrint af stað bólusetningarátaki gegn mislingum og lömunarveiki í Darfur-héraði. UNICEF mun einnig veita börnum A-vítamín bætiefni. Áætlað er að 2 milljónir barna muni fá bólusetningu gegn mislingum, sem er helsti dánarvaldur barna í þróunarlöndunum í dag.
Á slíkum tímum er einnig mikilvægt að menntun geti haft sinn vanagang. Næstu þrjá mánuði mun Barnahjálpin aðstoða við uppbyggingu á 158 tímabundnum skólastofum og mun sjá fyrir kennsluefni fyrir 34 þúsund nemendur.
Lesa má meira um störf UNICEF í Súdan hér.
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, ræddi ástand flóttamanna í Súdan og Chad í Samfélaginu í nærmynd á Rás 1 milli klukkan 11 og 12, þann 1. júlí.