Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Angóla stefnir að því að útrýma mænusótt

Í sömu viku og mænusóttarfaraldur skall á þremur Afríkulöndum tók Angóla skref á átt að útrýmingu mænusóttar í landinu. Skrefið var tekið með því að hefja bólusetningarherferð þar sem fimm milljónir barna verða bólusettar.

„Tímasetning herferðarinnar er afar mikilvæg,“ segir Mario Ferrari, fulltrúi UNICEF í Angóla. „Angóla er að sigra stríðið gegn mænusótt, ekki eitt einasta tilfelli hefur verið tilkynnt síðastliðin þrjú ár, en með tilliti til hins nýja faraldurs í Afríku er nauðsynlegt að vera vel á verði.“

Í vikunni staðfestu faraldsfræðingar frá Heimssamtökum um útrýmingu mænusóttar (Global Polio Eradication Initiative) að tilfelli mænusóttar hefðu greinst í Gíneu, Malí og Súdan. Síðan í janúar ársins 2003 hafa tólf lönd sem áður voru laus undan mænusótt fengið yfir sig nýjan mænusóttarfaraldur, þar með talið Botsvana, sem er einungis 60 km frá syðri landamærum Angóla.

Þriggja daga landsherferð Angóla í að útrýma mænusótt nýtur stuðnings í öllum stigum samfélagsins. Meira en 150 tonnum af bólusetningartækjum hefur verið dreift um allt landið, 12.000 bólusetningarteymi og 47.000 sjálfboðaliðar úr samfélaginu hafa boðið fram krafta sína og tekið höndum saman við kirkju- og leikhópa.

Heilbrigðismálaráðuneyti Angóla, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og UNICEF hófu bólusetningarherferðir gegn mænusótt í Angóla árið 1996 og herferðirnar hafa verið haldnar ár hvert síðan. Þó að útrýmingu mænusóttar hafi verið hamlað vegna borgarastríðs í landinu hefur bæði tilfellum mænusóttar og útbreiðsla mænusóttarvírussins minnkað til muna.

„Angóla getur og mun sigrast á mænusótt,“ sagði Ferrari, fulltrúi UNICEF í Angóla. „Auðvitað munu enn vera til staðar baráttumál í málefnum barna, en með áframhaldandi stuðningi alþjóðasamfélagsins og vaxandi skuldbindingar stjórnmálamanna er ég sannfærður um að útrýming mænusóttar verður einn hlekkur í keðju sigra okkar.“