Vissir þú að...

126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.

Þú ert hér:  

Heimsókn í birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn

Hólmfríður Anna Baldursdóttir, starfsmaður UNICEF Ísland, heimsótti á dögunum landsnefnd UNICEF í Danmörku og birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn. Birgðastöðin, sem er 25 þúsund fermetrar, pakkar og sendir vörur til allra heimshorna fyrir UNICEF. Á síðasta ári voru sendar vörur að jafnvirði um 52 milljónir dollara og gjafir, sem áætlað er að hafi kostað um 9 milljónir, frá birgðastöðinni í Kaupmannahöfn. Vörunum var pakkað í yfir 230 þúsund kassa og vógu 12 þúsund tonn. Alls veitti UNICEF birgðir fyrir allt að 709 milljónir dollara til barna í 157 löndum árið 2003.

Birgðastöðin
Birgðastöðin sérhæfir sig í að þróa og senda hjálpargögn, sérhönnuð til að mæta mismunandi þörfum mannskyns, þ.á.m. gögn til heilsugæslu og skólagögn til barna á hættusvæðum. Gögn í pakkana er hægt að setja saman, senda og dreifa á mjög stuttum tíma, en hraði getur skipt sköpum fyrir líf barna þegar neyðaraðstoð er annars vegar. Hver pakki inniheldur allar nauðsynjar fyrir viðkomandi verkefni og stað, og notkunarleiðbeiningar fylgja með svo hægt sé að nota þær strax þegar þeim er dreift til t.d. afskekktra skóla, heilsugæslustöðva og flóttamannabúða.

Handhægir pakkar

Birgðastöðin í Kaupmannahöfn hefur þróað 30 mismunandi handhæga pakka sem hægt er að dreifa til þróunarlanda með sem minnstum tilkostnaði. Algengustu pakkarnir, þegar um neyðaraðstoð er að ræða, eru heilsupakkinn (health kit), „skóli-í-einum-pakka“ (school-in-a-box), sem sést hér á myndinni til vinstri, og leikjapakkinn (recreational kit). Birgðastöðin hefur einnig aðstoðað við uppbyggingu á öðrum pökkunarstöðvum í þróunarlöndunum, sérstaklega þar sem neyðarástand ríkir. Tilgangur þess er að skapa þekkingu á viðkomandi stað og til að ýta undir sjálfbæra þróun samfélaga.

Algengustu pakkarnir
Birgðastöðin kynnti fjölda nýrra handhægra pakka árið 2003. Heilsupakkinn var sérstaklega hannaður af starfsfólki UNICEF og samstarfsaðilum til að mæta þörfum flóttafólks sem hafa enga heilsugæslu. Í pakkanum eru meðöl og önnur grundvallar sjúkragögn sem duga fyrir 10 þúsund manns í þrjá mánuði. Fjölskylduvatnspakki UNICEF inniheldur vatnsbrúsa, fötur, sápur og vatnshreinsitöflur, en hver pakki nægir fyrir tíu fjölskyldur. Fæðingarpakkinn inniheldur m.a. tæki til skurðaðgerða, gögn til sótthreinsunar og endurlífgunarbúnað ætluð heilsugæslustöðvum. Hver pakki dugir til að taka á móti 100 fæðingum, þ.á.m. 50 sérstaklega erfiðum fæðingum þar sem búast má við um 25 keisaraskurðum. Fyrir venjulegar fæðingar hefur UNICEF þróað ljósmóðurpakkann, en í honum eru lyf, endurnýtanleg sjúkragögn, gögn til sótthreinsunar og endurlífgunarbúnaður. Pakkinn dugir fyrir heilsugæslustöð til að taka á móti 50 venjulegum fæðingum. Skyndihjálparpakkinn, sem sést hér á myndinni til hægri, er hannaður til þess að hver sem er geti notað hann ef minniháttar meiðsl eiga sér stað eins og sár á fingri, bruni eða til að meðhöndla sýkingu í augum. Hægt er að nota hann t.d. heima við eða í skólum.