á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, er nú í heimsókn í Líberíu. Hún mun heimsækja Jah Tondo-búðirnar fyrir fólk sem hefur flosnað frá heimilum sínum og Don Bosco-áfangaheimilið fyrir börn sem hafa verið neydd til hermennsku.
Í Don Bosco-búðunum talaði Bellamy við tugi ungra drengja sem hafa verið neyddir til þess að taka þátt í átökum, annaðhvort sem hermenn, njósnarar, kokkar eða burðarmenn. Börnin ganga nú í gegnum ferli afvopnunar, endurhæfingar og endurkomu inn í samfélagið og fá grunnmenntun og færniþjálfun, sálfræðimeðferð og ráðgjöf í búðunum. Um leið og fjölskyldur barnanna hafa verið fundnar fá þau að snúa aftur heim.
Í Jah Tondo-búðunum heimsótti Bellamy heilsugæslustöð sem UNICEF styrkir. Heilsugæslustöðin veitir mæðrum og börnum þeirra grunnheilsugæslu, þar með talið bólusetningar, skoðanir og fæðingarhjálp. Síðan heilsugæslunni var komið á fót árið 2002 hefur hún verið rænd tvisvar meðan á átökunum stóð í Líberíu.
Bellamy ræddi þarnæst við yfir hundrað stúlkur og konur á heilsugæslustöð fyrir fórnarlömb kynferðislegrar og kynþáttabundnar misnotkunar sem Alþjóðabjörgunarnefndin (International Rescue Committee) rekur með þjálfun og fjárstuðningi frá UNICEF. Yfir 1500 stúlkur og konur hafa fengið sálfræðimeðferð og annan stuðning síðan að stöðin opnaði.
Síðasti áfangastaður Bellamy í Jah Tondo-búðunum var matvælastöð sem UNICEF styrkir. Stöðin þjónar um 3.000 vannærðum börnum undir fimm ára aldri.
Jah Tondo-búðirnar eru nú heimili yfir 20.000 manna, þar með talið þúsunda barna sem hafa flúið frá heimilum sínum vegna átaka. UNICEF hefur reist hundruð salerna og tugi hreinlætismiðstöðva, og byggt fimm brunna og eina borholu.