UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.
Þú ert hér:
Í tilefni af 15 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og heimsforeldraátaki UNICEF Ísland mun velgjörðarsendiherra UNICEF og stórsöngvarinn Harry Belafonte heimsækja landið 18.-21. nóvember. Belafonte var skipaður velgjörðarsendiherra UNICEF þann 4. mars 1987. Síðan þá hefur hann heimsótt verkefni UNICEF og glatt börn um allan heim.
Á meðan á Íslandsdvöl Harry Belafonte stendur mun hann m.a. opna ljósmyndasýningu um UNICEF í Smáralindinni á afmæli Barnasáttmálans þann 20. nóvember. Þar gefst almenningi kostur á að sjá Belafonte. Þar verða einnig fulltrúar úr nýstofnuðu ungmennaráði UNICEF sem munu kynna sitt fyrsta verkefni.