UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Velgjörðarsendiherra UNICEF Harry Belafonte sést hér umkringdur börnum í Senegal, en hann fór þangað fyrr á árinu til að hjálpa UNICEF að vekja athygli á mikilvægi þess að skrá öll börn.
Talið er að aðeins 60% barna undir fimm ára aldri í Senegal eigi fæðingarvottorð. ,,Að neita börnum um þessa löglegu pappíra, nafni þeirra og persónuskilríkjum, er það sama og að hætta lífi þeirra og neita þeim um framtíð sem borgarar í samfélaginu,” sagði Belafonte við þetta tækifæri. Belafonte heimsótti skráningarskrifstofur sem eru hluti af átaki UNICEF í 25 löndum og miðar að því að auka skráningu barna.