Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Yfirlýsing frá Carol Bellamy um gíslatöku barna í Rússlandi

„Beslan-gíslatakan stendur fyrir nýja og letjandi lágkúru – börn notuð sem gíslar og neitað um mat og vatn í þrjá hrollvekjandi daga,“ sagði framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy.

„Gíslatakan er ótæk, óskiljanleg, óhugsandi. Harmleikurinn er sá að þessi atburður er einungis sá nýjasti í vaxandi öldu ofbeldis sem beint er gegn börnum. Nú er kominn tími til þess að gera úttekt á og grandskoða heim okkar og hvernig komið er fram við börn,“ sagði Bellamy.

„Við endurtökum í sífellu okkar fyrra kall um það að börn verði aldrei notuð í pólitískum tilgangi og að skólinn verði aldrei vettvangur ofbeldis,“ sagði Bellamy, þar sem rætt var við hana í Hong Kong.

„Ef við virðum ekki friðhelgi æskunnar, þá eigum við ekkert eftir,“ bætti hún við.