UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Um 24 tilfelli heilahimnubólgu varð vart í norðurhluta Búrúndí í síðustu viku. Líkja hjálparstofnanir SÞ þessu við faraldur og hafa UNICEF, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) og ríkisstjórn Búrúndí stofnað til samstarfs til að reyna að koma í veg fyrir að fleiri börn smitist.
UNICEF veitir sjúkum börnum umönnun og hefur, í samstarfi við WHO og ríkisstjórn Búrúndí, hafið stórt bólusetningarátak í landinu. Áætlað er að um 400 þúsund manns verði bólusett í þessarri viku, en næstum 77 þúsund voru bólusett í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá WHO er heilahimnubólgu-,,beltið” í suðurhluta Afríku að færa sig enn sunnar í álfuna.