á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Í dag lenti flugstjórinn og stjórnarformaður South East Asian Airlines, Iren Dornier, sögulegum flugbát af gerðinni Dornier DO24 ATT í Reykjavík. Dornier flýgur nú hringinn í kringum heiminn en nákvæmlega 75 ár eru liðin frá því afi hans og hönnuður flugvélarinnar, Claude Dornier (1884-1969), fór ferð með slíkri flugvél sem þá þótti mikið afrek á sviði flugsmíði.
Heimsreisu sína kallar Dornier “Kayang Kaya! (We can do it!) Historic Flight for Dreams” og með henni vill hann vekja athygli á UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Er flugvélin merkt UNICEF. Söfnunarfé Dornier, sem kemur frá honum sjálfum og stórfyrirtækjum, mun renna til verkefna UNICEF um allan heim en í dag. Dornier vill hvetja fólk til umhugsunar um aðstæður barna um allan heim.
UNICEF Ísland vill vekja athygli á því að einstaklingar geta styrkt Barnahjálpina með því að gerast heimsforeldrar. Heimsforeldrar leggja fram mánaðarlegt fjárframlag sem rennur til verkefna UNICEF um allan heim. Hægt er að skrá sig sem heimsforeldri á http://www.unicef.is/ og í gegnum síma 562 6262.
Flugbátur Dornier var hannaður til að lenda við erfiðar aðstæður og er sögulega þekktur fyrir að vera sérstaklega góður við björgun á sjó. Á sínum tíma þótti flugbátur Claude Dornier (eldri) sá stærsti, þyngsti og öflugasti í heimi og jafnframt sá nýstárlegasti. Gerð af þessum flugbáti var notaður allt til 8. áratugarins og þá hjá sjóbjörgunarsveit Spánverja.
Dornier yngri hóf heimsreisu sína þann 16. apríl sl. á Filippseyjum og ef allt gengur að óskum mun henni ljúka í mars 2005. Eftir Íslandsheimsóknina mun Dornier fljúga til Grænlands, Kanada og því næst suður til Bandaríkjanna og Suður-Ameríku o.s.frv. Hann mun koma við á um 50 stöðum í yfir 40 löndum. Flugvélin stendur við Hótel Loftleiði fram á morgun föstudag.