Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

UNICEF sendir sjúkragögn til Beslan og Vladikavkaz

UNICEF hefur sent út tvo bílfarma af sjúkragögnum til sjúkrahúsa í Beslan og Vladikavkaz til þess að annast þau hundruð barna sem særðust í Beslan-gíslatökunni. Gögnin, að virði um 6,5 milljóna íslenskra króna, munu ná til svæðisins í dag, miðvikudaginn 8. september. Sending þessi fylgir í kjölfar mats Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), UNICEF, Alþjóða Rauða krossins og svissnesku þróunarsamvinnustofnunarinnar á þörfum fyrir sjúkragögn á svæðinu. Matsteymið heimsótti þrjú sjúkrahús í Vladikavkaz og eitt í Beslan. Flest þeirra barna sem særðust í gíslatökunni (215 af þeim 330 sem voru lögð inn á sjúkrahús) eru á barnaspítalanum í Vladikavkaz.

Fyrsti vörubíllinn með sjúkragögnum fór frá Moskvu 6. september og er áætlað að hann nái til svæðisins í dag, miðvikudaginn 8. september. Gögnin munu vera flutt beint til starfsfólks hinna fjögurra sjúkrahúsa í grennd við Beslan. Seinni vörubíllinn mun koma til svæðisins fimmtudaginn 9. september.

Sjúkragögnin innihalda:
- 30.000 sáraumbúðir
- 90.000 sprautur
- 3.000 æðaleggi
- 10.000 pör af skurðstofuhönskum
- 10.000 lök
- 100 teppi
- 100 dýnur
- 20 sjúkrarúm
- 1500 stykki af gerlaeyðandi sápu

Einnig dreifði starfsfólk UNICEF birgðum af grunnsjúkragögnum, meðal annars verkjalyfjum, sýklalyfjum, sáraumbúðum og öðrum nauðsynjum til tveggja sjúkrahúsa í Vladikavkaz, þann 4. september.

Ekki er vitað hvaða aðstoð rússnesk yfirvöld munu sækjast eftir, en þangað til hefur UNICEF í huga þríþætta neyðaraðstoð: veitingu grunnsjúkragagna, sálræna og félagslega meðferð fyrir börnin og fjölskyldur þeirra og stuðning við menntakerfið á svæðinu.