hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Í lok október komu 20 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum til að taka þátt í einnar-mínútu-myndbanda-vinnustofu sem UNICEF Ísland hélt, með stuðningi menntamálaráðuneytisins. Slíkar vinnusmiðjur eru haldnar um alla Evrópu og í nóvember ár hvert er haldin samkeppni milli einnar mínútu myndbandanna í Hollandi. Tvær myndir sem unnar voru á Íslandi voru valdar í úrslit. Það voru myndir Sofiu frá Finnlandi og Mikaels frá Svíþjóð.
Á meðan á dvöl ungmennanna stóð hér á landi gerði Ríkisútvarpið 25 mínútna heimildamynd um vinnusmiðjuna í samstarfi við SVT í Svíþjóð og YLE á Finnlandi. Eftirvinnsla heimildamyndarinnar er nú lokið og verður hún sýnd von bráðar á öllum Norðurlöndunum.