English version

Heimsreisa Ewan McGregor með UNICEF

Skoski leikarinn Ewan McGregor og besti vinur hans, Charley Boorman, enduðu í gær rúmlega 3ja mánaða, 32.000 km heimsreisu sína á mótorhjólum. Ferðina kölluðu þeir ,,Lengri leiðina” (The Long Way Around) og hófst hún í byrjun maí í Lundúnum.

Á leiðinni tóku félagarnir höndum saman með UNICEF og komu við á fjölmörgum stöðum þar sem UNICEF er að störfum. Ferðalag þeirra félaga lá um marga ólíka menningarheima eins og Síberíu, Kazakhstan, Móngólíu, Alaska og Norður-Ameríku þvera og endilanga. Auk þess að heimsækja verkefni UNICEF víðsvegar um heiminn ákváðu félagarnir að styðja starf UNICEF með því að standa fyrir fjáröflun og almennri kynningu á barnavernd og misnotkun barna nú þegar þeir eru komnir aftur heim.

Haft var eftir Ewan að þeir félagarnir vonuðu að með því að styðja UNICEF myndi ferðalag þeirra ekki aðeins uppfylla þeirra eigin drauma og metnað heldur einnig aðstoða við að gera drauma margra þeirra barna sem búa við hættuástand að veruleika.
„Sem feður höfum við Charley skilning á þörfum barna og þessi ferð bauð okkur tækifæri til þess að hjálpa UNICEF og sjá með eigin augum það mikla starf sem Barnahjálpin er að vinna í heiminum,“ sagði Ewan McGregor.