Vissir þú að...

UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.

Þú ert hér:  

UNICEF styrkir skuldbindingu sína við börn í Írak

Eitt ár er nú liðið síðan mannskæð sprengjuárás var gerð á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad þar sem margir starfsmenn létu lífið, þar á meðal einn starfsmaður Barnahjálparinnar. UNICEF sendi frá sér tilkynningu í dag um að skuldbinding stofnunarinnar við hag barna í Írak væri sterkari en nokkru sinni.

UNICEF starfsmaður lést í sprengingunni

UNICEF starfsmaðurinn sem lét lífið þegar sprengja féll á höfuðstöðvar SÞ í Bagdad hét Christopher Klein-Beekman og var hann 31 árs gamall. Klein-Beekman var kanadískur og starfaði sem yfirmaður skrifstofu UNICEF í Írak.

„Orkan og dugnaðurinn sem einkenndi Chris ásamt skuldbindingu hans við börnin í Írak mun aldrei gleymast,“ sagði Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF. „Atburðirnir sem hafa átt sér stað eftir þennan harmleik hafa aðeins styrkt okkur í því að bæta hag íraskra barna – núna frekar en nokkru sinni fyrr.“

Stuðningur við bágstödd börn í Írak

Nær helmingur íbúa Írak er undir 18 ára aldri. Jafnvel áður en átökin áttu sér stað voru fjölmörg börn í landinu varnarlaus gegn sjúkdómum, vannæringu og misnotkun. Tíðni barnadauða í Írak var með þeim hæstu í heiminum, en eitt af hverjum átta íröskum börnum dóu fyrir fimm ára afmælið sitt.

Núverandi öryggisástand gerir hið áður slæma ástand barna í Írak enn verra. Síðan átökin hófust hafa hundruð barna látið lífið og þúsundir hafa særst. Skólar eru margir lokaðir og foreldrar halda börnum sínum heima af ótta við það að börnunum verði rænt eða þau meidd á leiðinni í skólann.
Ofbeldi í Írak er daglegt brauð. Í apríl var tilkynnt að fleiri en hundrað börn hefðu látist í Fallujah og Basra af völdum átaka – sum á leið sinni í skólann.

„Börnin í Írak hafa þjáðst nóg,“ sagði Carol Bellamy. „Þau hafa gengið í gegnum þrjú stríð, tólf ár af viðskiptahindrunum og lifa undir gríðarlega erfiðum aðstæðum, oft við langvarandi ótta við ofbeldi.“

UNICEF stendur við skuldbindingar sínar við börn í Írak

Þrátt fyrir hömlur á starfsemi UNICEF vegna öryggisaðstæðna, hefur starfslið stofnunarinnar unnið sleitulaust til þess að styðja við írösk börn. Með hjálp íraskra stjórnvalda hefur UNICEF bólusett þúsundir barna, útvegað námsefni fyrir grunnskóla, bætt vatnsból og skólplagnir, frætt börn um hvernig ber að varast jarðsprengjur og byggt miðstöðvar fyrir bágstödd börn.
UNICEF hefur starfað í Írak síðan árið 1983.