English version

Ísland veitir tveimur milljónum króna til neyðaraðstoðar

Utanríkisráðuneytið samþykkti föstudaginn 1. október að veita tveimur milljónum króna til neyðaraðstoðar UNICEF í ríkjum Karabíska hafsins í kjölfar eyðileggingar fellibylsins Jeanne þann 18. september sl. Í aðstæðum sem þessum skiptir miklu máli að bregðast skjótt við og hafa íslensk stjórnvöld gert það aðeins viku eftir að Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, fór þess á leit við þjóðir heimsins að þær kæmu íbúum Haítí og annarra ríkja Karabíska hafsins til aðstoðar. Það er mikið ánægjuefni að ríkisstjórnin skuli styðja við starf UNICEF með þessum hætti. Þessir fjármunir munu nýtast vel til að bæta aðstæður og líf barna á svæðinu.

Talið er að yfir 1500 manns hafi dáið vegna flóðanna og enn er um 900 manns saknað. Næstum 300 þúsund manns og þar af um 150 þúsund börn hafa lent illa úti vegna fellibylsins. Fjöldi fjólks eru í bráðri heilsufarslegri hættu og tíu þúsund manns hafa misst heimili sín og allar eigur sínar. Þetta er í þriðja sinn sem Haítí hefur þurft á neyðaraðstoð að halda á árinu og því eru aðstæður þar afar slæmar.

UNICEF hefur dreift sjúkragögnum, tryggt aðgang að hreinu vatni og hugað að almennu hreinlæti með því að dreifa hreinlætis-pakka (Hygienic-kit). Einnig hefur UNICEF bólusett þúsundir barna og veitt sálræna aðstoð til barna sem misst hafa heimili sín og fjölskyldna þeirra. UNICEF telur mikilvægt að skapa börnum sem eðlilegast umhverfi á erfiðum tímum og leggur því áherslu á að halda skólastarfi áfram. UNICEF hefur nú hafið metnaðarfullt skólaátak á Haítí með því að koma upp tímabundnum skólum og koma skólasamgöngum aftur í gang. UNICEF hefur gefið loforð um að endurbyggja 50 skóla í Gonaives. Auk þess verður 150 skólagögnum (school-in-a-box) dreift. Um 12 þúsund nemendur og hundruð kennara munu njóta góðs af því.
Framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy, heimsótti Haítí í síðustu viku til að kynna sér aðstæður og vekja athygli á neyðinni í landinu. UNICEF Haítí óskar nú eftir alþjóðlegum stuðningi sem verður m.a. notaður til að bólusetja börn, dreifa saltupplausnum, tryggja aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu og veita sálræna aðstoð.

Í nær 60 ár hefur UNICEF bjargað, verndað og bætt líf barna um allan heim með því að tala fyrir réttindum barna, veitt menntun, heilsugæslu, næringu, hreint vatn, og hreinlætisaðstöðu. UNICEF mismunar ekki eftir trúarbrögðum, skoðunum eða öðru í sínu starfi. UNICEF veitir börnum sem minnst mega sín og löndum sem eru mest hjálparþurfi forgang í öllu sínu starfi. UNICEF hefur starfað á Haítí síðan árið 1949.

Utanríkisráðuneytið veitir einnig styrk til Rauða krossins (1 milljón) og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, WFP (2 milljónir).