árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Fyrirtækið Þekkingarmiðlun veitti UNICEF 150 þúsund króna styrk á dögunum í nafni viðskiptavina sinna í stað þess að senda þeim jólakort. Styrkurinn mun renna til menntaverkefa UNICEF, en í dag eru yfir 121 milljón börn sem njóta ekki grunnmenntunar.
Þekkingarmiðlun er öflugt þjálfunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í því að miðla þekkingu og styrkja þannig einstaklinga og vinnustaði. Það er gert með námskeiðahaldi, aðgerðamótun og þjálfun fyrir hópa og vinnustaði.
UNICEF hefur veitt styrknum viðtöku.