UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.
Þú ert hér:
Delta Kappa Gamma, samtök kvenna í ýmiskonar fræðslustörfum veittu UNICEF styrk á dögunum til þess að mennta ungar stúlkur í Vestur-Afríku. Ákveðið var að láta 100 þúsund krónur renna til þessa verkefnis núna en jafnframt munu hinar níu deildir samtakanna fá það verkefni að safna áfram til þessa verkefnis næstu vetur.
Delta Kappa Gamma eru samtök sem stofnuð voru í Bandaríkjunum árið 1929 af tólf menntakonum. Þær trúðu því að þörf væri fyrir félagsskap þar sem konur í fræðslustörfum gætu sameinast í þeim tilgangi að bæta faglega menntun sína, styrkja kynsystur sínar, hvetja þær til dáða og veita viðurkenningar þeim sem skara fram úr. Delta Kappa Gamma veita margskonar styrki og aðstoð til að efla framhaldsmenntun kvenna og einkum hafa þau veitt aðstoð við ungar konur í þriðja heims löndum sem eru að leita sér framhaldsmenntunar.
Í samtökunum eru um 140.000 konur á heimsvísu og hér á landi eru þær liðlega 200 í níu deildum víðsvegar um landið.
Meðfylgjandi er mynd af landssambandsforseta samtakanna, Rósu Kristínu Júlíusdóttur, Bergþóru Gísladóttur bréfritara og Kristínu Bjarnadóttur gjaldkera, þegar þær afhentu Stefáni Stefánssyni, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi styrkinn.